Morgunblaðið - 19.04.1991, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1991
59
Minning:
Katrín Krístleifsdótt-
ir frá Stóra Kroppi
Fædd 20. september 1894
Dáin 10. apríl 1991
Hún fæddist á Uppsölum í Hálsa-
sveit. Þar bjuggu þá foreldrar henn-
ar hjónin Kristleifur Þorsteinsson
frá Húsafelli og Andrína Guðrún
Einarsdóttir frá Urriðafossi í Flóa.
Þau fluttu að Stóra Kroppi árið
1897 og þar áttu þau heima síðan
til dauðadags og Katrín var þar hjá
þeim þar til yfir lauk. Andrína Guð-
rún lést 1899 og ári seinna kvænt-
ist Kristleifur Snjáfríði Pétursdóttur
frá Grund í Skorradal. Snjáfríður
lést árið 1951 og Kristleifur 1952.
Kristleifur var sonur Þorsteins
Jakobssonar á Húsafelli, Snorra-
sonar prests á Húsafelli. Móðir
Kristleifs var Ingibjörg Jónsdóttir
frá Deildartungu. Kristleifur hafði
afburða trútt minni og gerðist rit-
höfundur á efri árum og þykja rit-
smíðar hans hinar merkustu, fram-
úrskarandi áreiðanlegar og vel stíl-
aðar. Andrína Guðrún var dóttir
Einars Einarssonar hreppstjóra á
Urriðafossi og Katrínar Eyjólfsdótt-
ur þriðju konu hans.
Til er bréf frá Kristleifi þar sem
hann lýsir konu sinni og tengda-
fólki. Um Katrínu tengdamóður
sína segir hann að hún hafi verið
ágæt kona sem vildi „breiða yfir
hvers manns lýti og öllum gott eitt
gjöra“. Einnig segir hann um konu
sína að hún hafi verið rík af mann-
kærleik og öllum hafi þótt vænt um
hana. Ingibjörg móðir hans sagði
um hana að hún væri „besta
tengdadóttir sín“. Það hef ég líka
eftir Þórði Kristleifssyni sem þekkti
Katrínu ömmu sína, að hún hefði
verið sú fallegasta og besta kona
sem hann hafi kynnst.
Þau Kristleifur og Andrína áttu
8 börn og náðu 7 þeirra fullorðins-
aldri. Elst var Katrín sem lést á
öðru ári, fallegt barn harmdauði
foreldrum sínum. Næstur var Þor-
steinn. Hann lést 7. desember síð-
astliðinn og vantaði þá 27 daga í
tírætt. Þriðja í röðinni var Ingi-
björg, húsfreyja á Húsafelli. Hún
dó fyrir aldur fram 38 ára að aldri.
Þá kom Þórður kennari og fræði-
maður sem lifir enn 98 ára gamall,
og fimmta í röðinni var Katrín sem
riú er kvödd í hárri elli. Einar bóndi
í Runnum var sá sjötti, látinn 1982,
sjöunda var Jórunn húsfreyja á
Sturlureykjum. Hún andaðist árið
1972 og sú áttunda var Andrína
Guðrún húsfreyja í Sveinatungu
sem fæddist þremur vikum fyrir
andlát móður sinnar og er látin
fyrir 7 árum.
Sem fyrr er sagt kvæntist Krist-
leifur árið eftir Snjáfríði Pétursdótt-
ur, mikilli myndarkonu. Þau áttu
saman eina dóttur Guðnýju sem
lést í blóma lífsins árið 1932.
Katrín þjónaði föður sínum og
stjúpu á Stóra Kroppi eins og fyrr
segir. Hún var hæglát og geðprúð,
flugnæm og listelsk. Hún hafði
þessi sömu einkenni og Kristleifur
lýsir á móður hennar og ömmu. Það
sópaði að Snjáfríði. í skjóli hennar
stóð höfðinginn Kristleifur og undi
vel í því skjóli, en það lýsti af Katr-
ínu góðmennskan eins og af Katrínu
ömmu hennar. Þorsteinn skáld á
Ulfsstöðum sagði einhveiju sinni
þessa setningu: „Viljirðu boða komu
vorsins og vinna að komu þess þá
farðu að dæmi sólarinnar, hún að-
eins skín“ og á þetta vel við Katrínu.
Gömlu hjonin á Stóra Kroppi
önduðust eftir þung veikindi og
hjúkraði Katrín þeim til hins síð-
asta. Þó að hún hefði á unga aldri
verið heilsuveil svo að henni var
ekki spáð langlífi var nú eins og
ekkert gæti bugað hana. Hún tók
nú við jörðinni en var svo lánsöm
að ung hjón tóku við búinu, þau
Sigríður Agústsdóttir og Andrés
Jóhannesson sonur Jórunnar systur
hennar og Jóhannesar hreppstjóra
á Sturlureykjum. Þau eignuðust 4
börn sem urðu skærasta ljósið í lífi
Katrínar.
Enginn veit hvaða vonir, ástir
og sorgir Katrín hefur alið með sér
á unga aldri en á gamals aldri sá
hún vaxa upp þessi börn sem veittu
henni hamingju í lífinu.
Það er mikið happ að kynnast
góðu fólki. í óveðri mannlegs lífs
eru þessi ljós sem aldrei eru reið,
aldrei rífast og það stafar ekki af
aumingjaskap heldur af einhverri
óbilandi ljúfmennsku. Þetta hefur
gengið mann fram af manni í ætt
Katrínar Eyjólfsdóttur sem var hús-
freyja á Urriðafossi og Þórður
Kristleifsson kynntist blindri í elli
Hermann Sigurðs-
son — Kveðjuorð
Fæddur 10. október 1918
Dáinn 15. apríl 1991
Hann afi okkar, Hermann á Þórs,
er dáinn. Andlát hans bar mjög
brátt að og það er mjög erfitt að
sætta sig við það, að fá aldrei að
sjá hann aftur. Afi var okkur mjög
kær og mikill vinur okkar. Heimili
hans, Þórsberg, var okkur sem ann-
að heimili, þangað gátum við alltaf
komið hvernig sem á stóð og hann
tók alltaf á móti okkur með hlýju.
Hann var barngóður, umhyggju-
samur og kærleiksríkur maður og
þótti okkur öllum afar vænt um
hann.
Við barnabörnin eigum margar
og góðar minningar um afa okkar.
Okkur er það þó einkar minnis-
stætt þegar við fengum að fara í
bíltúr með honum á sparibílnum
hans, þá fengum við alltaf að læðast
í hanskahólfið og fá okkur bijóst-
sykursmola.
Við eigum stóra og samheldna
fjölskyldu sem hittist oft og það var
sama hvert tilefnið þá hann lét sig
aldrei vanta, þar með taldar sumar-
bústaðaferðir Ijölskyldunnar í
Grímsnes. Þar höfum við átt marg-
ar ánægjulegar stundir saman síð-
astliðin ár.
Tjlvpra okkar er tómleg án hans
og énginn getur fyllt upp í það
tómarúm. Við erum þakklát fyrir
þær stundir sem við áttum með afa
á Þórs, þótt hann sé okkur horfinn
úr Iifanda lífi munum við varðveita
minningarnar um hann.
Þú gafst mér akurinn þinn,
þér gef ég aftur minn.
Ást þína á ég ríka,
eigðu mitt hjartað líka,
H. Pétursson. (Ps. 17)
Megi Guð varðveita hann afa
okkar.
' Fyrir þönd þarnabarna, in„ ;
Asdís, Malla, Linda og Hermann.
uppi á Gilsbakka í Hvítársíðu. Ekki
ber að skilja það svo að lítið hafi
kveðið að Katrínu Kristleifsdóttur.
Hún ræktaði framúrskarandi fagr-
an blómagarð á Stóra Kroppi af
mikilli elju og safnaði fallegum
steinum. Hún var mikill náttúru-
unnandi eins margir af frændum
hennar voru.
Ég var hálfan vetur í vinnu á
Sturlureykjum þegar ég var ungur.
Þar kynnist ég einni af þessum
góðu konum, Helgu Jakobsdóttur,
þá orðin farlama en hver maður,
ekki síst unglingar og börn, nutu
geðprýði hennar og þolinmæði.
Katrín á Stóra Kroppi og hún voru
bræðradætur. Næsta vetur var ég
á Stóra Kroppi og kynntist Katrínu.
Það sem líkt var með þessum kon-
um var manngæskan og geðprýðin.
Það undrar engan sem til þekkir
að eldri dóttir hjónanna á Stóra
Kroppi var látin bera nöfn þessara
ágætu kvenna, Katrínar og Helgu.
Þegar Andrés og Sigríður urðu
að bregða búi á Stóra Kroppi vegna
heilsuleysis settist Katrín að á Dval-
arheimili aldraðra í Borgarnesi. Þar
hefur hún átt heima undanfarin ár
og notið umönnunar þess góða fólks
sem þar annast gamla fólkið. Andr-
és og fjölskylda hans sinnti henni
einnig eftir föngum. Þó að líkaminn
virtist farinn að heilsu hélt hún
andlegu heilbrigði og minni óskertu
til hinsta dags.
Þorsteinn Þorsteinsson
OPNUNARTILBOD
qjjf-h txti opnor verslun
í Borgartúni 26, Reykfavík
í tilefni þesso og árs afmælis fyrirtækisins, bjóðum
við ykkur velkomin á báða staðina til að gera góð kaup.
ZANUSSI uppþvoltavélareru til í
tveimur gerðum ZW 106 m/ 4
valk. og ID-5020 til innb. m/7
valkerfum. Báðarf. borðb.fyrir
12. Hljóðlátar-einfaldarínotk-
un.
Verð frá kr. 60.640,-
Tilboðkr. 56.728,-
GufugleyparfráZANUSSI,
CASTOR, FUTURUM og KUP-
PERSBUSCH eru bæði fyrir út-
blástur eða gegnum kolsiu.
Verðfrá kr. 9.594,-
Tilboðkr. 8.786,-
RAFHA, BEHAog KUPPERS-
BUSCH eldavélareru bæði með
eða án blæstri. Með glerborði
og blæstri. 4 hellurog góðurofn.
2ja ára ábyrgð á RAFHA vélinni
-fri uppsetning.
Verðfrákr. 44.983,-
Tilboð kr. 41.196,-
Um er að ræða mjög margar
gerðir af helluborðum: Glerhellu-
borð m/halogen, helluborð 2
gas/2 rafm. eða 4 rafm. hellur
með eða án rofa.
Verðfrákr. 21.655,-
ZANUSSI og KUPPERBUSCH
steikar/bökunarofnar í fjölbreyttu
úrvali og litum. Með eða án
blæstri - m/grillmótor m/kjöthita-
mæli - m/katalískum hreinsi-
búnðaiog fl.
Verðfrákr. 34.038,-
ZANUSSUI örbylgjuofnar i stærð-
um 18 og 23 Itr. Ljós í ofni, bylgju-
dreyfir, gefur frá sér hljóðmerki.
23 Itr. verð kr. 28.122,-
Tilboðkr. 26.308
ihS
Bjóðum uppá 5 gerðirþvottavéla.
700-800-1000-1100 sn./mín.
Með/án valrofa á hitasparnaöar-
rofa. Hraðvél, sem sparar orku,
sápu og tíma. Þvottavél með
þurrkara og rakaþéttingu. 3ja ára
ábyrgð-uppseting.
Verð f rá kr. 54.512,-
Tilboðkr. 49.922,-
Þurrkarar3 gerðirhefðbundnir,
með rakaskynjara eða með raka-
þéttingu (barki óþarfur). Hentar
ofan á þvottavélina.
Verðfrákr. 30.786,-
Tilboð kr. 28.194,-
7 gerðirkæliskápa: 85, 106, 124,
185 sm hæð. Með eða án frysti-
hólfi. Sjálfv. afhríming. Hægt að
snúa hurðum. Eyðslugrannir -
hljóðlátir.
Verðfrá kr. 29.727,-
Tilboðkr. 27.810,-
Bjóðum upp á 9 gerðir kæli/frysti-
skápa. Mjög margirmöguleikarí
stærðum: Hæð 122,142, 175
og 185sm. Frystiralltaf4stjörnu.
Sjónersögu ríkari. Fjarlægjum
gamlaskápinn.
Verð frá kr. 42.229,-
Tilboðkr. 39.505,-
Tilboðkr. 44.063,-
Tilboðkr. 49.420,-
Frystiskápar: 50, 125, 200 og
250 Itr. Lokaöir með plaslokum
- eyðslugrannir - 4 stjörnur.
Verð frá kr. 30.903,-
Verð er miðað við staðgreiðslu.
Tilboðið stendur út mánuðinn.
ZANUSSI frystikistur 270 og 396
Itr. Dönsk gæðavara. Mikil frysti-
geta. Ljós í loki. Læsing.
4 stjörnur.
Verð kr. 41.060,-
Verð kr. 49.276,-
Okkarfrábæru greiðslukjör!
Útborgun aðeins 25% og eftirstöðvar á allt að 12 mánuðum.
Opið sem hér segir: Virka daga til kl. 18.30.
Laugardag til kl. 16.00.
VERSLUNIN RAFHA, HAFNARFIRÐI. SÍMI 50022 - LÆKJARGÖTU 22
VERSLUN RAFHA, REYKJAVÍK, SÍMI620100- BORGARTÚNI26