Morgunblaðið - 19.04.1991, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1991
55
KOSNINGAR
Hin harða hægri stefna
Sj álfstæðisflokksins
eí'tir Kristján
Pétursson
Landsfulltrúar Sjálfstæðisflokks-
ins kusu sér nýjan formann. Ýmsir
fulltrúar flokksins létu í veðri vaka
að borgarstjórinn væri sjálfkjörinn í
þetta embætti sökum manngildis og
foringjahæfileika. Töldu reyndar að
Þorsteinn ætti að víkja með sama
hætti og Friðrik Sophusson á síðasta
landsfundi. Þorsteinn Pálsson og
flestir þingmenn flokksins voru á
öndverðum meiði og ákváðu að
spyrna við fótum og láta á það reyna
í kosningum á landsfundinum hvort
borgarstjóri hefði nægjanlegt fylgi
til að fella formanninn.
Borgarstjórinn marglýsti því yfir
fyrir kosningar, að framboð hans
væri ekki tilkomið vegna málefnalegs
ágreinings við formanninn, heldur
réði því mikill þrýstingur frá flokks-
mönnum í Reykjavík og af lands-
byggðinni. Ljóst er nú að hér var um
hreinar blekkingar að ræða, hinn
harði hægri kjarni flokksins hefur
undanfarin ár verið að leita að for-
ingjaefni, sem sameinað gæti þau öfl
í flokknum sem beijast fyrir svo-
nefndri fijáls- og hægrihyggju,
byggða á miskunnarlausri markaðs-
trú. Þá greindi borgarstjórinn frá því
„Reykjavíkurborg
skortir ekki fé, allt sem
þarf er skipulag, vilji,
víðsýni og þekking
hvernig á að byggja
upp heilbrigt borgar-
samfélag.“
að Sjálfstæðisflokkurinn hefði sl.
tuttugu ár verið lengst af utan ríkis-
stjórna og mátti af orðum hans ráða
að því hafi valdið ómarkviss stefna
forustumanna flokksins. Á þessu yrði
breyting ef hann tæki við flokknum,
með nýjum manni koma nýir straum-
ar og áherslubreytingar. Fyrirmynda
í þeim efnum væri að leita í stjórn
Reykjavíkurborgar, þar sem máttur
hins sterka fær notið sín. Valdahroki
og yfírgangur eru afar slæmir eigin-
leikar, en valdafíkn þó sýnu verri.
Að hve miklu leyti þessir eiginleikar
endurspeglast í fari borgarstjórans
verður hver og einn að meta, en
ætla má að forustumenn annarra
stjórnmálaflokka munu kanna vel að
kosningum loknum hvort Sjálfstæðis-
flokkurinn sé æskilegur samheiji með
Davíð við stjórnvölinn. Samstarf hans
við minnihlutaflokkana í borgarstjórn
Kristján Pétursson
gefur vissulega tilefni til að ígrunda
vel starfsaðferðir hans og hugmynda-
fræði. Viðbrögð hans við málflutningi
og tillögugerð andstæðinga sinna
bera sterk einkenni valdhroka og
lítilsvirðingar á verkum annarra. Svo
virðist sem borgarstjóri haldi að góð
og nýtileg mál geti aðeins orðið til í
hans eigin hugarheimi eða verði að
ná fram að ganga undir hans for-
merkjum svo honum verði helgaður
heiðurinn. Þessi sviðssetning um
ímynd borgarstjórans fellur vel að
glansmyndum og yfirborðskenndum
draumórum fijálshyggjumanna, en
Raunhæfar o g réttlátar
úrbætur í skattamálum
eftir Örn Egilsson
Á undanförnum árum hefur gætt
vaxandi óánægju meðal almennings
hvað varðar störf þingsins og þeirra
ríkisstjórna sem setið hafa við völd.
1987 braust þessi óánægja fram
er íhaldið gerði aðför að Albert Guð-
mundssyni.
Það er athygli vert að þeir sem
þá stofnuðu Borgaraflokkinn til að
mótmæla óréttinum komu ekki ein-
vörðungu úr Sjálfstæðisflokknum,
heldur var hér um að ræða fólk úr
öllum gömlu flokkunum.
Sá sigur sem þetta fólk vann í
kosningunum er merki þess að fólk
lætur ekki endalaust troða á sér og
er búið að fá nóg af sviknum loforð-
um og misheppnuðum ríkisstjórnum.
Eins og menn muna var svo mynd-
uð ríkisstjóm undir forsæti Þorsteins
Pálssonar með þátttöku Framsóknar
og Alþýðuflokks.
Það ætti öllum að vera í fersku
minni hvernig þessari ríkisstjórn
reiddi af.
Litlu mátti muna að undirstöðuat-
vinnuvegir þjóðarinnar færu á haus-
inn jafnframt því sem verðbólgan
æddi upp úr öllu valdi.
Við tók stjóm Framsóknar, Al-
þýðuflokks, Alþýðubandalags auk
hins nýja stjórnmálaafls, Borgara-
flokksins, sem var kjölfesta ríkis-
stjórnarinnar.
Árangur þessarar ríkisstjómar í
efnahagsmálum er einstakur og hon-
um verður að viðhalda með öllum
tiltækum ráðum.
Það' hefði hér áður fyrr verið saga
til næsta bæjar að verðbólga á Is-
landi færi úr tveggja stafa tölu í eina,
svo ekki sé minnst á það að verð-
bólga á íslandi er nú minni en í allf-
lestum nágrannalöndum okkar. Þessi
árangur leiddi m.a. af sér þjóðarsátt-
ina sem hefur svo verið kjölfesta í
því að viðhalda stöðugleika í sam-
skiptum launþega og atvinnurek-
enda.
Eitt af helstu baráttumálum Borg-
araflokksins var að fá matarskattinn
illræmda felldan niður, en það er
viðurkennt, að lífsnauðsynjar á ís-
landi eru dýrar. Því miður báru hinir
þrír stjórnarflokkamir ekki giftu til
að fallast á þetta brýna hagsmuna-
mál almennings, en þó að hluta til.
Sú kjarabót sem þar náðist skilaði
sér til heimilanna í lægri matarreikn-
Örn Egilsson
„Stefna Frjálslyndra,
sem er framhald af
stefnu Borgaraflokks-
ins í skattamálum, er
að fá skatta á helstu
lífsnauðsynjar fellda
niður eða lækkaða.“
ingi sem nemur um 2,2 milljörðum
króna.
Stefna Fijálsiyndra, sem er fram-
hald af stefnu Borgaraflokksins í
skattamálum, er að fá skatta á helstu
lífsnauðsynjar fellda niður eða lækk-
aða. Þetta mætti gera með því að
hafa virðisaukaskatt í 2 þrepum. í
lægra þrepi, sem hæst yrði 6%, yrði
öll matvara og helstu lífsnauðsynjar,
en í hærra þrepinu, hæst 20%, yrði
allt annað, vörur og þjónusta. Hins-
vegar yrði svo frumframleiðsla í
hefðbundnum íslenskum landbúnaði
þ.e. kjöt, mjólk, fiskur og grænmeti
skattlaus. Skattlagning á fjármagns-
tekjur hinna auðugu sem sífellt bæta
við auð sinn myndu hæglega standa
undir þeirri útgjaldaaukningu, sem
óhjákvæmilega yrði.
í yfirstandandi kosningabaráttu
hafa allir flokkarnir veifað um slag-
orðum varðandi persónufrádráttinn,
en aðeins einn flokkur, flokkur
Fijálslyndra, hefur lagt fram þraut-
hugsaðar tillögur í þessu efni sem
ekki valda útgjaldaauka fyrir ríkis-
sjóð. Eru þær byggðar á viðamiklum
er ekki vænleg til ára'ngurs í starfi
flokksleiðtoga né ráðherraembættis.
Þessi dæmalausa persónudýrkun
fyrir foringjahæfileikum manns, sem
aðeins hefur stjórnað meirihluta sjálf-
stæðismanna í borgarstjórn, sýnir
berlega hvaða kröfur flokkurinn ger-
ir til síns leiðtoga. Að visu skortir
flokkinn leiðtoga með sterkan per-
sónuleika, en ef grannt er skoðað
má þar finna hæfileikamenn með
ábyrgar skoðanir í landsmálum eins
og Einar Odd Kristjánsson, Magnús
Gunnarsson, Vilhjálm Egilsson og
Víglund Þorsteinsson. Þrátt fyrir að
þessir valdamiklu áhrifamenn stæðu
með Þorsteini um formannsslaginn
dugði það ekki til. Hægrihyggju-
postulum Davíðs tókst að raska hefð-
bundum starfsháttum þingsins og
rugla andstæðinga sína. í þessu um-
róti steytti Þorsteinn á skeijum og
leitaði lags í grýttum bás. Illa og
óverðskuldað farið með góðan dreng,
sem leitt hafði sundraðan flokk til
sameiningar og átti góðu gengi að
fagna a.m.k. í skoðanakönnunum.
Hvers má þjóðin vænta af núver-
andi formanni Sjálfstæðisflokksins?
Hefur dugnaður, áræði og stjórnviska
einkennt störf hans og hafa hags-
munir almennings setið í. fyrirrúmi?
Skoðum þetta nánar. Margir telja að
bruðl á almenningsfé í gæluverkefni
eins og Perluna, ráðhúsið og einka-
umsvif borgarstjórans sé ekki leiðin
til almenningsheilla og lækkunar
skatta, sem hann þó gumar af. Bið-
listar þúsunda barna til vistunar á
dagheimilum borgarinnar og 4—5
klukkustunda viðvera barna giftra
foreldra er dæmi um stjórnleysi og
mann sem ekkert erindi á í pólitík.
Skortur á húsnæði og rándýrum íbúð-
um fyrir aldraða (ca. 30% yfir mark-
aðsverði) er einnig dæmi um mann
sem ekkert erindi á í pólitík. Borgar-
hverfi án sundlauga, skortur á hús-
næði fyrir grunnskóla (skúrabygg-
ingar við Arbæjarskóla), útivistar-
svæði fá og illa skipulögð (Laugardal-
ur undanskilinn). Reykjavíkurborg
skortir ekki fé, allt sem þarf er skipu-
lag, vilji, víðsýni og þekking hvernig
á að byggja upp heilbrigt borgarsam-
félag.
Vandamál ungmenna eykst ár frá
ári, rán, morð, innbrot, fjársvikamál
og hvers konar ógnanir er orðið dag-
legt brauð. Hér er um samvirkandi
vandamál margra aðila að ræða, en
því miður hafa viðbrögð borgaryfir-
valda einkennst áf ráðleysi, uppgjöf
og undanhaldi. Aðgerðarleysi borgar-
yfirvalda í miðborginni, þar sem þús-
undir ungmenna koma saman, er
dæmigert fyrir þetta getuleysi. Þar
er engin aðstaða fyrir hendi, ekki
einu sinni salerni. Ungmennin gera
þarfir sínar í húsasundum og sjá má
þá spræna utan í skrautbúna verslun-
arglugga og spellvirkjar leika þar
lausura hala. Engum einum verður
þó kennt um hvernig komið er en
eftir höfðinu dansa limirnir og það
eru einmitt slíkar strengjabrúður,
sem Davíð hefur í safni sínu.
Líttu þér nær hr. borgarstjóri og
skoðaðu betur þá innviði sem hafa
brostið. Farðu á þá staði þar sem
fátækt, einmanaleiki, vonleysi og of-
beldi eru daglegir viðburðir. Reyndu
að setja þig í spor þessa fólks og
láttu síðan þjóðina vita hverhig þér
er innanbijósts eftir að hafa ráðstaf-
að 4 milljörðum af fjármunum borg-
arbúa í ótímabærar framkvæmdir við
Perluna og ráðhúsið. Villandi og röng
svör borgarstjórans um að þessir fjár-
munir skaði og teíji ekki aðrar fram-
kvæmdir eins og uppbyggingu dag-
vistarheiniila, húsnæði fyrir aldraða,
skólabyggingar o.fl. sýnir fádæma
virðingarleysi fyrir skoðunum og
dómgreind fólks.
Höt'undur er fyrverandi
deildarstjóri á
Kefla víkurflugvelli.
útreikningum á grundvelli upplýs-
inga sem fengnar voru hjá embætti
ríkisskattstjóra.
í stuttu máli ganga tillögur okkar
Frjálslyndra út á það að tekjumörk
fulls persónufrádráttar miðist við
150 þús. kr. tekjur.
Við hveijar 10 þús. krónur sem
tekjurnar lækka, hækkar per-
sónufrádrátturinn um 2 þús. krónur,
uns skattleysismörkum er náð sem
þá yrðu um 87 þús. krónur í stað
um 57 þús. krónur á dag.
Á sama hátt til mótvægis myndi
persónufrádrátturinn minnka um 2
þús. krónur fyrir hveijar 10 þús.
krónur sem laun myndu hækka um-
fram 150 þús. krónur og við 260
þús. króna tekjur yrði persónufrá-
drátturinn uppurinn, en þá tæki við
neikvæður persónufrádráttur.
Hér er á ferðinni stórt hagsmuna-
og réttlætismál fyrir almenning sem
verður að ná að ganga fram.
Á sameiginlegum framboðsfundi á
Vopnafirði sem haldinn var 11. þessa
mánaðar kom fram áskorun frá fisk-
vinnslufólki um að skattleysismörkin
yrðu a.m.k. hækkuð upp í 80 þús.
krónur. Það var mér því mikið
ánægjuefni að geta skýrt fundinum
frá því að ekki einungis væru Fijáls-
lyndir sammála þessu, heldur værum
við einnig með fullmótaðar tillögur
í þessu efni. Það bar hinsvegar lítið
á málflutningi gamla fjórflokksins á
fundinum, enda er þetta sjálfsagt
eitt af þeim málum sem flokkast
undir aukaatriði í stjórnmálavafstri
þeirra.
Með fulltingi ykkar gefast vonir
um að við náum þessu réttlætismáli
fram í þinginu.
Lifið heil.
Höfundur er 1. nmóurá listn
Frjálslyndra í
Austurlandskjördæmi.
Kœli - og frvstitœki í miklu úrvali!
Lítið inn til okkar og skoðið vönduð
vestur-þýsk heimilistœki!
Hjá SIEMENS eru gœði, ending og
fallegt útlit ávallt sett á oddinn!
SMITH&NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
FRAMBJOÐENDURIREYKJAVIK
SITJA FYRIR SVÖRUM
virka daga frá kl. 1 6.30-1 8.00 á Laugavegi 1 7, 2. hæð,
símar 622908-620277.
Verió velkomin.