Morgunblaðið - 19.04.1991, Side 56

Morgunblaðið - 19.04.1991, Side 56
56- MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 19. APRÍL 1991 N G S K O S N N G A R Röðin komin að breiðu bökunum eftir Danfríði Skarphéðinsdóttur Kvennalistinn er stjórnmálaafl sem vill breyta samfélaginu og setja virðingu fyrir lífinu og samábyrgð í öndvegi. Við stefnum að samfé- lagi þar sem konur og karlar starfa hlið við hlið og standa jafnfætis á öllum sviðum. Þrátt fyrir lagalegt jafnrétti er enn langt frá að svo sé. Meginástæður þess eru rótgróin viðhorf til kvenna og stöðu þeirra í samfélaginu. Þessu vilja Kvenna- listakonur breyta. Atvinnuþátttaka kvenna er orðin almenn, enda nauðsyn fyrir flest heimili landsins. Vinna kvenna stendur undir þeim hagvexti sem orðið hefur á undanfömum áratug- um. Undirstöðuatvinnuvegir þjóð- arinnar standa og falla með vinnu kvenna og þær bera uppi megin- þjónustugreinar þjóðfélagsins. Heimilisstörfin og umönnun barna hvíla enn nær eingöngu á herðum kvenna. Og hvernig metur samfélagið vinnu kvenna bæði innan og utan heimilis? Nýjar tölur sýna að konur í fullu starfi fá aðeins 60% af laun- um karla og heimilisstörfin eru ekki talin þess virði að mæla þau í þjóð- arbúskapnum. A þjóðarsáttarári voru meðallaun afgreiðslukvenna í fullu starfi 55 þúsund kr. en fullvinnandi af- greiðslukarlar fengu 72 þúsund kr. Þeir eru ekki of sælir af þeim 17 þúsundum sem þeir fengu umfram konurnar, en þessi munur á launum karla og kvenna endurspeglar það misrétti sem konur búa við. Ríkisstjórnarflokkamir tala mik- ið um stöðugleika og hrósa sér af árangri í efnahagsmálum. Stöðug- leiki er vissulega mikils virði, en hann má ekki verða á kostnað hina lægstlaunuðu. Upplýsingar frá kjararannsóknanefndum ASÍ og VSÍ sýna að frá þriðja ársfjórðungi 1989 til þriðja ársfjórðungs 1990, á þjóðarsáttarárinu, minnkaði kaupmáttur verkakvenna í fullu starfi um 7% og verkakarla um 3,2%. Hið indæla ár hlutabréfaeigenda Á sama tíma birtist grein í Fijálsri verslun um hið indæla ár hlutabréfaeigenda. Fram kemur að einn einstaklingur hefur haft tæpar 10 milljónir kr. í hagnað á mánuði „Og hvernig metur samfélagið vinnu kvenna bæöi innan og utan heimilis? Nýjar tölur sýna að konur í fullu starfi fá aðeins 60% af launum karla og heimilisstörfin eru ekki talin þess virði að mæla þau í þjóðarbúskapn- um.“ af hlutabréfum sínum. Mörg fleiri dæmi eru nefnd sem sýna að það eru til breið bök í þjóðfélaginu sem eru betur í stakk búin til að taka á sig kjaraskerðingu en almennt launafólk í landinu. Kvennalistakonur hafa lagt fram fjölda tillagna um bætt kjör hinna lægstlaunuðu og endurmat á störf- um kvenna. Og Kvennalistakonur fóru ekki í ríkisstjórn af því að gömiu flokkarnir voru ekki reiðu- búnir til að beita sér fyrir hækkun lægstu launa. Við teljum það sið- leysi að hjá einni af langríkustu Danfríður Skarphéðinsdóttir þjóðum heimsins skuli finnast hópar fólks sem fá laun langt undir fram- færslumörkum. Við höfum lagt fram frumvarp um annað skattþrep. Við greiddum atkvæði gegn matarskattinum og studdum tillögu sem fram kom á þingi sl. vetur um hækkun skatt- leysismarka. Miðað við þær undir- tektir sem sú tillaga fékk á Alþingi hljótum við að undrast og tor- tryggja þann skyndilega áhuga sem hinir flokkamir hafa á þessu máli nú rétt fyrir kosningar. Við hljótum að setja það fram sem sjálfsagða kröfu að einstaklingur geti fram- fleytt sér af dagvinnulaunum. Flótti kvenna af landsbyggðinni Reynsla og rannsóknir sýna að þaðan sem konur flytja burt af landsbyggðinni vegna einhæfs at- vinnulífs eða skorts á atvinnu og þjónustu leggst byggð fljótlega af. Ibúatölur sýna að hér á landi er þgar hafinn flótti kvenna af lands- byggðinni. í öllum landsbyggðar- kjördæmunum era konur mun færri en karlar. Mestur er munurinn í aldurshópnum 20-44 ára. Því er nauðsynlegt að huga að atvinnu- uppbyggingu um allt land fyrir baeði konur og karla. Kvennalistakonur telja að öflug og blómleg landsbyggð tryggi ekki aðeins skynsamlega nýtingu auð- linda okkar heldur styrki einnig sjálfstæði þjóðarinnar. Kvennalist- inn hafnar aðild að EB en leggur áherslu á gott samstarf við aðrar þjóðir þó aðeins þannig að um leið sé tryggt að þjóðin haldi efnahags- legu og menningarlegu sjálfstæði sínu. Kvennalistakonur ætla að breyta vinnubrögðum í þjóðfélaginu. í öllu okkar starfi ástundum við vinnu- brögð sem einkennast af valddreif- ingu, framsýni, ábyrgð og heiðar- leika. Slík vinnubrögð viljum við sjá í samfélaginu öllu. Hvorki lands- byggðin né pólitíkin geta án kvenna verið. Það er að renna upp fyrir æ fleiram að konur og lífsgildi þeirra era ómissandi og að bætt staða kvenna skilar sér í réttlátara og betra þjóðfélagi fyrir okkur öll, konur, karla og böm. Það er því verðugt verkefni að styðja konur til þátttöku í stjóm- málum. Höfundur skipar 1. sæti Kvennalistans á Vesturlandi. Hvað verður um þá sem verða gamlir? eftir Benedikt Jóhannesson í grein sem birtist nýlega í Morg- unblaðinu fjallaði ég um þann vanda sem felst í því að lífeyrissjóðir lands- manna standa hvorki undir þeim lífskjöram sem menn vilja njóta sitt ævikvöld, né þeim loforðum sem sjóðfélögum hafa verið gefin. Kerf- ið byggir á uppsöfnun og því er ljóst að allar breytingar til batnaðar taka langan tíma. Hitt er jafnljóst að menn verða að fara sér hægt og það væra svik við þá sem nú eru að nálgast eftirlaunaaldur að snúa við blaðinu í einu vetfangi. Þarna sem víðar stangast því á óskir og veraleiki. Sjálfstæðisflokkurinn mótaði á landsfundi sínum í mars stefnu til breytinga á lífeyriskerfí lands- manna, þar sem hvort tveggja er virt: Samtrygging sú sem nauðsyn- leg er í öllum lífeyriskerfum og vilji manna til þess að spara sér og sínum nánustu til hagsbóta. Stefnuskrá flokksins um lífeyris- mál er stutt en skýr: • Flokkurinn hafnar hugmyndinni um einn lífeyrissjóð fyrir alla lands- menn. Slíkur sjóður væri líklegur til þess að verða gróðrarstía spill- ingar og miðstýringar sem er and- stæð grundvallarhugsjónum flokks- ins. Krafan um slíkan sjóð er sprott- in af því misræmi sem ríkir í lífeyr- ismálum landsmanna, þar sem lífeyrissjóðir era mjög misjafnlega reknir og mönnum er haldið gegn vilja sínum í óhagkvæmum sjóðum. Einn sjóður þýðir hins vegar að engin samkeppni ríkir og því enginn hvati til hagkvæmni. • Fijálst verði að ávaxta lífeyri sinn hjá hvetjum þeim aðila sem til þess verður viðurkenndur. Þetta þýðir að launþegar geta ráðið sínum lífeyrissparnaði sjálfir og þurfa ekki að una því að greiða í sjóði sem sólunda fé. Sjóðum fækkar sjálf- krafa, því menn leita þangað sem best ávöxtun næst. • Greiðslur í lífeyrissjóð verði skattlausar þegar þær eru inntar af hendi, en skattlagðar sem tekjur þegar þær væru greiddar sem lífeyrir. Skattfrelsið er sjálfsagt réttlætismál, því þau era lífeyris- greiðslur margskattaðar. Það myndi einnig virka sem hvati til frekari lífeyrissparnaðar. • Lífeyriseign hvers og eins væri skipt í séreign og sameign. Séreign- in eæti verið tekin út á ákveðnu tímabili, til dæmis 10 til 15 áram. Hún væri eins og önnur séreign og erfðist til maka og barna. Sameign- in væri til þess að mæta lífeyri hjá þeim sem lifðu lengur eða hlytu skerta starfsorku og einnig maka- og barnalífeyri. Með þessu blandaða kerfi væri komið til móts við þá sem hrífast af kostum séreignarinnar, þar sem hver og einn fær reglulega yfirlit um sína innistæðu. Hinum væri ekki gleymt, sem ná háum aldrei þannig að þeirra séreign hrykki ekki til, eða misstu starfs- orku á unga aldri. Til þess að hvetja til frekari lífeyrisspamaðar gætu menn valið að leggja meira til hlið- ar en tilskilið lágmark. Lágmarks- greiðsla væri til dæmis 10%, en hámarksgreiðsla á bilinu 20 til 25%. Allur lífeyrisspamaður væri skatt- fijáls sem fyrr segir, þangað til útborgunar kæmi. • Greiðslur úr lífeyrissjóðum skerði ekki ellilífeyri. Um árabil hafa skattgreiðendur greitt í sam- eiginlegan sjóð, í þeirri vissu að á elliárum myndu þeir fá ellilífeyri. Ellilífeyririnn er tæpar 12 þúsund krónur á mánuði, en ríkisstjórnin hefur nú séð sér leik á borði að ná þessari rausnarlegu fjárhæð af elli- iíféyrisþegum. í framvarpi sem heil- Benedikt Jóhannesson „Sjálfstæðisflokkurinn mótaði á landsfundi sínum í mars stefnu til breytinga á lífeyris- kerfi landsmanna, þar sem hvort tveggja er virt: Samtrygging sú sem nauðsynleg er í öll- um lífeyriskerfum og vilji manna til þess að spara sér og sínum nán- ustu til hagsbóta.“ brigðisráðherra lagði fyrir Alþingi í þinglok nú í vor er lagt til að greiðslur úr lífeyrissjóði skerði elli- lífeyri. Með þessu móti hyggst ráð- herra hegna þeim sem sýnt hafa fyrirhyggju ennfrekar en nú er gert. Sjálfstæðisflokkurinn hafnaði þess- ari stefnu á landfundi. Kerfí það sem hér hefur verið lýst hefur flesta þá kosti sem lífeyr- issjóði eiga að prýða. Hver og einn getur fylgst með sinni séreign og gætt síns réttar með því að heíja sparnað annars staðar, telji hann sér það hagstæðara. Öryggisnet er haft fyrir alla, þannig að jafnvel þeim sem ekki velta málunum neitt fyrir sér verða með lágmarkssparn- að og þeim er þannig tryggður lág- markslífeyrir. Með þessum breytingum myndi ellilífeyrir aukast því launþegar sjálfír hefðu hag af því að leggja meira til hliðar vegna skattfrestun- ar. Lífeyriskerfið einfaldast, því enginn verður eftir í óhagkvæmu sjóðunum og þeir myndu því sam- einast öðrum. Með meiri sparnaði dregur úr erlendri lánsfjárþörf. Mjög fljótlega stórminnka útgjöld ríkisins vegna svonefndrar tekju- tryggingar vegna vaxandi lffeyris- eignar. Skattfrelsið á lífeyrisspam- að skilar sér því til baka. Það tekur nokkurn tíma þangað til þetta nýja kerfi verður að fullu virkt, en Sjálfstæðisflokkurinn mun ekki koma aftan að ellilífeyrisþeg- um með því að skerða þann lífeyri sem þeir eiga rétt á frá ríkinu. Hið nýja. fijálslynda kerfí mun hins vegar geta staðið til frambúðar. Höfundur er stærdfræðingvr og situr í Heilbrigðis- og trygginganefnd Sjálfstæðisflokksins. & J’# Ósvikið kaffibragð »11 Með aðeins hálfu koffeinmagni

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.