Morgunblaðið - 19.04.1991, Page 66
v66
MORGUNBLíAÐIÐ' FÖSTUÐAGUR 1/9. APRÍL 1-991
S
PHILIPS
PHILIPS
RYKSUGA
Lítil um sig en fjölhæf með
kraftmikinn mótor, 1100
Wött. Hljóðlátog létt í taumi.
x
Heimilístæki hf
SÆTÚNIS SlMI 691515 ■ KRINQLUNNI SlMI 6915 20
l■iStUHJUKQUtK,
lal fólk
fyrir fólk
KOSNINGA
SKRIFSTOFUR
REYKJAVÍK Afgreiðsla Sjálfboðaliðar Kjörskrá 91-82115 91-82142 91-82237
REYKJANES Kópavogur Keflavík 91- 45878 92- 13871
SUÐURLAND Selfoss Vestmannaeyjar Hella 98-22219 98-12999 98-75411
VESTURLAND Akranes Grundarfjörður Borgarnes 93-12903 93-86737 93-71004
VESTFIRÐIR ísafjörður 94-3651
NORÐURLAND Akureyri 96-27787
AUSTURLAND Eglisstaðir 97-11633
FRJÁLSLYNDIR
Askriftarsíminn er69 11 22
félk í
fréttum
BILDUDALUR:
Grunnskólaböm
skoða varðskipið Tý
Verðlaunahafarnir..
Ollum Grunnskólabörnum á
Bíldudal var boðið að skoða
varðskipið Tý fyrir skömmu. Hös-
kuldur Skarphéðinsson, skipherra,
fy.lgdi börnunum um skipið og
fræddi þau um störf Landhelgis-
gæslunnar fyrr og nú.
Börnunum var skipt niður í tvo
hópa, og fengu yngri börnin að
fara fyrst, síðan þau eldri. Alls voru
börnin sextíu og sex. Að sögn
Nönnu Sjafnar Pétursdóttur, skóla-
stjóra, höfðu börnin mjög gaman
af þessari skoðunarferð og hafa
örugglega orðið fróðari um störf
Landhelgisgæslunnar.
Þá var boðið upp á ís og Svala,
og ljósmyndum af varðskipum
dreift á milli barnanna. Landhelgis-
gæslan hefur boðið Grunnskóla-
börnum víða um land í slíkar skoð-
unnarferðir við góðar undirtektir.
R. Schmidt.
RITGERÐIR
Stílistar í röðum
framhaldsskólanema
Morgunblaðið/Róbert Schmidt
Yngri hópurinn um borð í varðskipinu Tý, ásamt kennurum, skip-
stjóra og hluta af áhöfn skipsins.
Itilefni af 60 ára afmæli
Landsspítalans var nýlega efnt
til ritgerðarsamkeppni meðal fram-
haldsskólanema. Að sögn aðstand-
enda keppninnar var samkeppnin
haldin með þvi augnamiði að „vekja
nemendur til umhugsunar um að-
draganda stofnunar spítalans og
þær geysimiklu framfarir er orðið
hafa hvað snertir aðbúnað og lífs-
horfur sjúklinga á þeim 60 árum
er spítalinn hefur verið starfrækt-
ur. Þá og ekki síður hvem þátt
starfsfólk spítalans hefur átt í því
að hið margþætta hlutverk lians,
sem sjúkrahúss- kennslu og rann-
sóknarstofnunnar, er vél af hendi
leyst,“ eins og komist er að orði.
Fyrstu verðlaun hlaut Sigurbjörg
Þrastardóttir frá Akranesi, en aðrir
sem hlutu verðlaun voru Theodóra
Bjarnadóttir, Þuríður B. Þorgríms-
dóttir, Daði Ingólfsson,, Herborg
Hauksdóttir, Sigurður Kjartansson,
Garðar Bragason, Dagur Eggerts-
son, Kristín Elnars, Guðrún B. Stef-
ánsdóttir, María E. Guðsteinsdóttir
og Helgi Þ. Gunnarsson.
Ymsir aðilar veittu verðlaun.
Landsbanki íslands gaf til dæmis
upphæðina 100.000 krónur inn á
þtjár kjörbækur, Örn og Örlygur
gáfu íslandshandbókina og Sögu-
staðinn við Sund, 4 bindi, Menning-
arsjóður gaf íslenska orðabók og
Styrktarsjóður Þórbergs Þórðarson-
ar og Margrétar Jónsdóttur gaf
íslenska samheitaorðabók. AB gaf
íslenskan söguatlas og íslenska
málshætti og ísafold .gaf bókina
íslenskir þjóðhættir. Orðabók HÍ
gaf bókina Orðsifjabókin og hið
Islenska bókmenntafélag gaf Sögu
íslands, 4 bindi. Loks gaf Svart á
hvítu 3 bindi Sturlungu.
MU SIKTILRAUNIR
Infusoria sigraði í fyrstu lotu
Aþriðja tug hljómsveita sem
leika ýmist þungt rokk eða
léttari dægurtónlist reyna nú með
sér á hinum árlegu „Músíktilraun-
um“ Tónabæjar og Stjörnunnar.
Að sögn Jasons Guðmundssonar hjá
Tónabæ virðist vera mikill vaxtar-
broddur í slíkri tónlist hér á landi
um þessar mundir. Til mikils er að
vinna fyrir keppendur, því sigur-
launin eru auk hljóðverstíma, ráðn-
ingar til spilamennsku á vegum
Reykjavíkurborgar.
Fyrsta keppniskvöldið hefur þegar
farið fram, kepptu þá átta sveitir
og voru þrjár valdar til frekari þátt-
töku. „Infusoria“ sigraði og eftir
útlitinu að dæma er þar á ferð þung-
arokkssveit og þarf það kannski að
koma svo ýkja mikið á óvart þótt
tónlist af því tagi nái lengst, því
mikil uppsveifla er í þungarokkinu
beggja vegna Atlantshafsála.
Hljómsveitin Nirvana var kjörin
önnur og dómnefndin kom sér síðan
saman um að „Durkheim" væri svo
athygliverð sveit að hún ætti að fá
frekari tækifæri. Að spilamennsku
keppenda lokinni sté á svið gesta-
sveit kvöldsins, „Síðan skein sól“
og ekki hristist húsið og skókst
minna við breytinguna. Var gerður
góður rómur að leik Sólarinnar enda
á hún gífurlegum vinsældum að
fagna.
Síðan skein sól á fullri ferð.
Söngvari Infusoria tekur roku.
COSPER
TVOFALDUR l.vinningur
11093 Cipib
IHiniMi
C0SPER
—Beinn útlagður kostnaður við hann er þegar orðinn 33.483
krónur.