Morgunblaðið - 03.05.1991, Side 1
80 SIÐUR B/C/D
98. tbl. 79. árg._____________________________________FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1991_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins
Irak:
Stjómin sögð fallast
á frjálsar kosningar
innan sex mánaða
Nikosíu, Bagdad, Lundúnum, Washington. Reuter.
SKÝRT var frá því í gær að írösk stjórnvöld hefðu gengið að
helstu kröfum kúrdískra uppreisnarmanna. Einn af leiðtogum
Kúrda, Jalal Talabani, sagði að íraska stjórnin hefði fallist á að
leggja niður helstu valdastofnun landsins, Byltingarráðið, og efna
til frjálsra kosninga í landinu innan sex mánaða.
Talabani fór fyrir sendinefnd
kúrdískra leiðtoga, sem ræddi við
Saddam Hussein íraksforseta í
síðustu viku. „Iraska stjórnin féllst
á að efnt yrði til fijálsra kosninga
með þátttöku allra flokka og kom-
ið yrði á fjölflokkakerfi í írak.
Nýtt þing kemur í stað gömlu
valdastofnananna," sagði Tala-
bani í samtali við breska útvarpið
BBC. Hann bætti við að samkomu-
lag hefði náðst um að Byltingar-
ráðið yrði leyst upp. Kúrdíska
sendinefndin hefði einnig fengið
því framgengt að uppreisnar-
mönnum úr röðum Kúrda og shíta
yrði veitt sakaruppgjöf.
Samningaviðræðunum er ekki
lokið en vestrænir stjórnarerind-
rekar sögðu í gær að svo virtist
sem Saddam Hussein hefði léð
máls á því að Kúrdar fengju yfir-
ráð yfir olíuborginni Kirkuk. Prá
borginni kom um þriðjungur olíu-
framleiðslu íraka fyrir innrás
þeirra í Kúveit 2. ágúst.
Hersveitir Bandaríkjamanna og
bandamanna þeirra héldu lengra
inn í írak í gær og er nú griða-
svæðið fyrir Kúrda í norðurhluta
landsins tvöfalt stærra en í upp-
hafi. íraskir hermenn munu ekki
hafa veitt mótspymu. Griðasvæðið
er nú orðið 120 km langt og 60
km breitt.
Heimildarmenn í Bagdad sögðu
að Saddam Hussein hefði fyrir-
skipað hermönnum sínum að eyði-
leggja höll hans á griðasvæðinu
til að koma í veg fyrir að Banda-
ríkjamenn gætu notað hana sem
herstöð. Talsmenn Bandaríkjahers
sögðu að hersveitirnar myndu leita
Hungursneyð
yfirvofandi í
Eþíópíu
Meira en milljón Eþíópíumenn
hefur aðeins tíu daga birgðir af
matvælum og berist þeim ekki
meiri matur bráðlega kynnu fleiri
að svelta í hel en í hungursneyð-
inni í landinu árið 1984, að sögn
bresku hjálparstofnunarinnar
Oxfam í gær. Eþíópíumennirnir
eru í héraðinu Ogaden í austur-
hluta landsins þar sem þessi
mynd var tekin af vannærðu
bami. Ennfremur er óttast að
27 milljónir Afríkumanna í Súd-
an, Eþíópíu, Líberíu, Sómalíu,
Angóla, Malawi og Mozambique
eigi á hættu að verða hungur-
morða á árinu verði þeim ekki
komið til hjálpar.
Ottast að fellibylurinn hafi
kostað 100.000 manns lífið
að þungavopnum í höllinni en leyfa
síðan liðsmönnum úrvalssveita
Saddams að vera þar áfram.
I skýrslu, sem lögð var fyrir
utanríkisnefnd öldungadeildar
Bandaríkjaþings í gær, segir að
vernda þurfi Kúrda fyrir íraksher
þar til Saddam Hussein fer frá
völdum. Bandaríkjastjórn er þar
einnig gagnrýnd fyrir að hafa ekki
stutt Kúrda og shíta í uppreisn
þeirra gegn Saddam og misst þar
með af kjörnu tækifæri til að
steypa forsetanum af stóli.
Bangladesh:
Reuter
Gífurlegt tjón varð í þorpinu Madarbari við strönd Bangladesh í fellibylnum, sem gekk yfir landið á
mánudag. Ottast er að meira en 100.000 manns hafi farist í ofviðrinu og mikil hætta er á farsóttum í
kjölfar þess.
hefði ákveðið að kaupa matvæli fyr-
ir átta milljónir ECU (576 milljónir
ÍSK) af stjórn Bangladesh og dreif-
ing þeirra hæfíst þegar í stað. Auk
þess myndi Rauði krossinn dreifa
hjúkrunargögnum, teppum og tjöld-
um fyrir bandalagið að andvirði
tveggja milljóna ECU (144 milljóna
ÍSK). Stjórnvöld í Bandaríkjunum
og Bretlandi lofuðu einnig aðstoð.
„Tala djöfuls-
ins“ tekin úr
umferðinni
Lundúnum. The Daily Telegraph.
í Opinberunarbók Jóhann-
esar er varað við tölunni
„666“, enda er hún þar tengd
djöflinum. Þau varnaðarorð
virðast enn eiga við því bresk-
um yfirvöldum hafa borist svo
margar kvartanir vegna bíl-
númersins „666“ að þau hafa
ákveðið að framvegis verði
engar bifreiðar skráðar með
þessari tölu.
„Pólk var alltaf að kvarta yfir
undarlegum atvikum í tengslum
við þetta skráningarnúmer,"
sagði talsmaður skráningar-
skrifstofu breska bifreiðaeftir-
litsins. „Við vorum orðin svo leið
á nöldrinu út af árekstrum og
slysum, sem bifreiðar með þetta
númer áttu að hafa lent í, að
við hættum að nota það. Fólk
trúir því að talan tengist djöflin-
um og þegar menn fá þessa
flugu í höfuðið er ómögulegt að
tjónka við þá.“
Norðmenn um EES-viðræður:
# Dhaka, Bazar. Reuter, The Daily Telegraph.
ÓTTAST er að meira en 100.000 manns hafi farist í fellibylnum, sem
gekk yfir Bangladesh á mánudag, að því er embættismenn í landinu
sögðu i gær. Mikil hætta er talin á hungursneyð og farsóttum, svo
sem kólerufaraldri, í kjölfar fellibylsins.
„Til þessa höfum við fengið stað-
fest að 37.524 hafí beðið bana og
tala látinna gæti farið yfir hundrað
þúsund," sagði embættismaður í
höfuðborg landsins, Dhaka. Björg-
unarsveitir áttu í gær fullt í fangi
með að grafa þúsundir líka og dreifa
matvælum til milljóna manna. „Það
er ljóst að ástandið mun versna til
muna og alþjóðlegar hjálparstofnan-
ir þurfa að grípa til jafn viðamikilla
aðgerða og gert var til að bjarga
Kúrdum,“ sagði embættismaðurinn.
Alain Deloche, heiðursforseti lækna-
samtakanna Medecins du Monde,
taldi mikla hættu á kólerufaraldri í
landinu.
Háttsettur embættismaður sagði
að fellibylurinn væri sá mesti sem
gengið hefur yfir landið frá því það
öðlaðist sjálfstæði fyrir tuttugu
árum og ef til vill sá öflugasti á öld-
inni. Ofviðrið olli miklu flóði og öldu-
hæðin var um sex metrar. Vindhrað-
inn var um 235 km á klukkustund.
Að minnsta kosti 100.000 manns
fórust í mun minni fellibyl, sem gekk
yfir landið árið 1970.
Seint gekk að koma matvælum,
vatni og öðrum hjálpargögnum til
þeirra svæða, sem verst urðu úti,
vegna skorts á flugvélum og hrað-
skreiðum bátum. Að sögn flug-
manna eru íbúar þessara svæða afar
illa á sig komnir. Örvæntingin var
mikil á meðal þeirra og þyrla þurfti
að snúa aftur með matvæli eftir að
hungrað fólk hafði ráðist á hana.
Stjóm Bangladesh hvatti stjórn-
völd allra vinveittra þjóða til að
senda sem allra fyrst þyrlur og hjálp-
argögn til landsins. Khaleda Zia,
forsætisráðherra landsins, sagði að
Bangladeshmenn réðu ekki einir við
ástandið. Aætlað er að fellibylurinn
hafi kostað landsmenn meira en 400
milljónir dala (24 milljarða ÍSK).
Bangladesh er í hópi allra fátækustu
landa heims.
Talsmaður Evrópubandalagsins
sagði að framkvæmdastjórn þess
Reuter
Ljóst að verið er að
herða á taugastríðinu
Ósló. Frá Hdge SBrensen, fréttnriUira Morgunblaðsins.
„ÞAÐ er greinilega verið að herða á taugastríðinu áður en lokahrinan
hefst," sagði Eldrid Nordbös, viðskiptaráðherra Noregs, um þá ákvörð-
un íslendinga að hunsa viðræðurnar um evrópska efnahagssvæðið
vegna óánægju með afstöðu eða afstöðuleysi Evrópubandalagsins í
deilunni um fiskinn. Kom þetta fram í viðtali, sem Aftenposten átti
við Nordbös í gær.
Nordbös sagði það miður, að Is-
lendingar teldu sig þurfa að grípa
til þessa ráðs en hún lagði jafnframt
áherslu á, að hún skildi, að þeir
væru orðnir óþolinmóðir með að bíða
eftir ákveðnum tillögum frá EB varð-
andi fískinn og tollamálin. Hún taldi
þó hagsmunum Norðmanna best
borgið með því að taka áfram þátt
í viðræðunum.
Ráðherrann bætti því við, að Norð-
menn hefðu eins og íslendingar mikl-
ar áhyggjur af óeiningunni innan
EB og þeim drætti, sem orðið hefði
varðandi tollamálin.