Morgunblaðið - 03.05.1991, Síða 1

Morgunblaðið - 03.05.1991, Síða 1
80 SIÐUR B/C/D 98. tbl. 79. árg._____________________________________FÖSTUDAGUR 3. MAÍ 1991_________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins Irak: Stjómin sögð fallast á frjálsar kosningar innan sex mánaða Nikosíu, Bagdad, Lundúnum, Washington. Reuter. SKÝRT var frá því í gær að írösk stjórnvöld hefðu gengið að helstu kröfum kúrdískra uppreisnarmanna. Einn af leiðtogum Kúrda, Jalal Talabani, sagði að íraska stjórnin hefði fallist á að leggja niður helstu valdastofnun landsins, Byltingarráðið, og efna til frjálsra kosninga í landinu innan sex mánaða. Talabani fór fyrir sendinefnd kúrdískra leiðtoga, sem ræddi við Saddam Hussein íraksforseta í síðustu viku. „Iraska stjórnin féllst á að efnt yrði til fijálsra kosninga með þátttöku allra flokka og kom- ið yrði á fjölflokkakerfi í írak. Nýtt þing kemur í stað gömlu valdastofnananna," sagði Tala- bani í samtali við breska útvarpið BBC. Hann bætti við að samkomu- lag hefði náðst um að Byltingar- ráðið yrði leyst upp. Kúrdíska sendinefndin hefði einnig fengið því framgengt að uppreisnar- mönnum úr röðum Kúrda og shíta yrði veitt sakaruppgjöf. Samningaviðræðunum er ekki lokið en vestrænir stjórnarerind- rekar sögðu í gær að svo virtist sem Saddam Hussein hefði léð máls á því að Kúrdar fengju yfir- ráð yfir olíuborginni Kirkuk. Prá borginni kom um þriðjungur olíu- framleiðslu íraka fyrir innrás þeirra í Kúveit 2. ágúst. Hersveitir Bandaríkjamanna og bandamanna þeirra héldu lengra inn í írak í gær og er nú griða- svæðið fyrir Kúrda í norðurhluta landsins tvöfalt stærra en í upp- hafi. íraskir hermenn munu ekki hafa veitt mótspymu. Griðasvæðið er nú orðið 120 km langt og 60 km breitt. Heimildarmenn í Bagdad sögðu að Saddam Hussein hefði fyrir- skipað hermönnum sínum að eyði- leggja höll hans á griðasvæðinu til að koma í veg fyrir að Banda- ríkjamenn gætu notað hana sem herstöð. Talsmenn Bandaríkjahers sögðu að hersveitirnar myndu leita Hungursneyð yfirvofandi í Eþíópíu Meira en milljón Eþíópíumenn hefur aðeins tíu daga birgðir af matvælum og berist þeim ekki meiri matur bráðlega kynnu fleiri að svelta í hel en í hungursneyð- inni í landinu árið 1984, að sögn bresku hjálparstofnunarinnar Oxfam í gær. Eþíópíumennirnir eru í héraðinu Ogaden í austur- hluta landsins þar sem þessi mynd var tekin af vannærðu bami. Ennfremur er óttast að 27 milljónir Afríkumanna í Súd- an, Eþíópíu, Líberíu, Sómalíu, Angóla, Malawi og Mozambique eigi á hættu að verða hungur- morða á árinu verði þeim ekki komið til hjálpar. Ottast að fellibylurinn hafi kostað 100.000 manns lífið að þungavopnum í höllinni en leyfa síðan liðsmönnum úrvalssveita Saddams að vera þar áfram. I skýrslu, sem lögð var fyrir utanríkisnefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings í gær, segir að vernda þurfi Kúrda fyrir íraksher þar til Saddam Hussein fer frá völdum. Bandaríkjastjórn er þar einnig gagnrýnd fyrir að hafa ekki stutt Kúrda og shíta í uppreisn þeirra gegn Saddam og misst þar með af kjörnu tækifæri til að steypa forsetanum af stóli. Bangladesh: Reuter Gífurlegt tjón varð í þorpinu Madarbari við strönd Bangladesh í fellibylnum, sem gekk yfir landið á mánudag. Ottast er að meira en 100.000 manns hafi farist í ofviðrinu og mikil hætta er á farsóttum í kjölfar þess. hefði ákveðið að kaupa matvæli fyr- ir átta milljónir ECU (576 milljónir ÍSK) af stjórn Bangladesh og dreif- ing þeirra hæfíst þegar í stað. Auk þess myndi Rauði krossinn dreifa hjúkrunargögnum, teppum og tjöld- um fyrir bandalagið að andvirði tveggja milljóna ECU (144 milljóna ÍSK). Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Bretlandi lofuðu einnig aðstoð. „Tala djöfuls- ins“ tekin úr umferðinni Lundúnum. The Daily Telegraph. í Opinberunarbók Jóhann- esar er varað við tölunni „666“, enda er hún þar tengd djöflinum. Þau varnaðarorð virðast enn eiga við því bresk- um yfirvöldum hafa borist svo margar kvartanir vegna bíl- númersins „666“ að þau hafa ákveðið að framvegis verði engar bifreiðar skráðar með þessari tölu. „Pólk var alltaf að kvarta yfir undarlegum atvikum í tengslum við þetta skráningarnúmer," sagði talsmaður skráningar- skrifstofu breska bifreiðaeftir- litsins. „Við vorum orðin svo leið á nöldrinu út af árekstrum og slysum, sem bifreiðar með þetta númer áttu að hafa lent í, að við hættum að nota það. Fólk trúir því að talan tengist djöflin- um og þegar menn fá þessa flugu í höfuðið er ómögulegt að tjónka við þá.“ Norðmenn um EES-viðræður: # Dhaka, Bazar. Reuter, The Daily Telegraph. ÓTTAST er að meira en 100.000 manns hafi farist í fellibylnum, sem gekk yfir Bangladesh á mánudag, að því er embættismenn í landinu sögðu i gær. Mikil hætta er talin á hungursneyð og farsóttum, svo sem kólerufaraldri, í kjölfar fellibylsins. „Til þessa höfum við fengið stað- fest að 37.524 hafí beðið bana og tala látinna gæti farið yfir hundrað þúsund," sagði embættismaður í höfuðborg landsins, Dhaka. Björg- unarsveitir áttu í gær fullt í fangi með að grafa þúsundir líka og dreifa matvælum til milljóna manna. „Það er ljóst að ástandið mun versna til muna og alþjóðlegar hjálparstofnan- ir þurfa að grípa til jafn viðamikilla aðgerða og gert var til að bjarga Kúrdum,“ sagði embættismaðurinn. Alain Deloche, heiðursforseti lækna- samtakanna Medecins du Monde, taldi mikla hættu á kólerufaraldri í landinu. Háttsettur embættismaður sagði að fellibylurinn væri sá mesti sem gengið hefur yfir landið frá því það öðlaðist sjálfstæði fyrir tuttugu árum og ef til vill sá öflugasti á öld- inni. Ofviðrið olli miklu flóði og öldu- hæðin var um sex metrar. Vindhrað- inn var um 235 km á klukkustund. Að minnsta kosti 100.000 manns fórust í mun minni fellibyl, sem gekk yfir landið árið 1970. Seint gekk að koma matvælum, vatni og öðrum hjálpargögnum til þeirra svæða, sem verst urðu úti, vegna skorts á flugvélum og hrað- skreiðum bátum. Að sögn flug- manna eru íbúar þessara svæða afar illa á sig komnir. Örvæntingin var mikil á meðal þeirra og þyrla þurfti að snúa aftur með matvæli eftir að hungrað fólk hafði ráðist á hana. Stjóm Bangladesh hvatti stjórn- völd allra vinveittra þjóða til að senda sem allra fyrst þyrlur og hjálp- argögn til landsins. Khaleda Zia, forsætisráðherra landsins, sagði að Bangladeshmenn réðu ekki einir við ástandið. Aætlað er að fellibylurinn hafi kostað landsmenn meira en 400 milljónir dala (24 milljarða ÍSK). Bangladesh er í hópi allra fátækustu landa heims. Talsmaður Evrópubandalagsins sagði að framkvæmdastjórn þess Reuter Ljóst að verið er að herða á taugastríðinu Ósló. Frá Hdge SBrensen, fréttnriUira Morgunblaðsins. „ÞAÐ er greinilega verið að herða á taugastríðinu áður en lokahrinan hefst," sagði Eldrid Nordbös, viðskiptaráðherra Noregs, um þá ákvörð- un íslendinga að hunsa viðræðurnar um evrópska efnahagssvæðið vegna óánægju með afstöðu eða afstöðuleysi Evrópubandalagsins í deilunni um fiskinn. Kom þetta fram í viðtali, sem Aftenposten átti við Nordbös í gær. Nordbös sagði það miður, að Is- lendingar teldu sig þurfa að grípa til þessa ráðs en hún lagði jafnframt áherslu á, að hún skildi, að þeir væru orðnir óþolinmóðir með að bíða eftir ákveðnum tillögum frá EB varð- andi fískinn og tollamálin. Hún taldi þó hagsmunum Norðmanna best borgið með því að taka áfram þátt í viðræðunum. Ráðherrann bætti því við, að Norð- menn hefðu eins og íslendingar mikl- ar áhyggjur af óeiningunni innan EB og þeim drætti, sem orðið hefði varðandi tollamálin.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.