Morgunblaðið - 26.05.1991, Page 1
104 SIÐUR B/C
116. tbl. 79. árg.
SUNNUDAGUR 26. MAÍ 1991
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
BRUGÐIÐ A LEIKIHEITA LÆKNUM
Morgunblaðið/KGA
Stríðið í Eþíópíu:
Uppreisnarmenn ná höf-
uðstað Erítreu á sitt vald
Nairobi. Reuter.
UPPREISNARMENN í Erítreu sögðust á
Draugabanar
borgarinnar
Ríkisstjórn Nýja Sjálands lætur nú
kanna hvernig til þess gat komið að fé
skattgreiðenda var notað til að borga
fyrir starfsemi „draugabana" fyrir milli-
göngu vinnumiðlunar. Borgarsjóður
borgarinnar Hamilton greiddi drauga-
bönunum sem svarar 3,2 milljónum ISK
fyrir að finna drauga og ljósmynda árur
þeirra. „Við látum nú rannsaka hvernig
verkefni þetta hlaut samþykki í upp-
hafi,“ sagði Maurice McTigue atvinnu-
málaráðherra.
Kærir sig ekki
um eftirlaun
Angelo _ Quirini, 81 árs prestur á
Norður-Ítalíu, gat ekki haldið aftur af
sér eftir að biskup hans hafði reynt að
fá hann til að fara á eftirlaun og stóð
fyrir heldur óvenjulegri uppákomu við
messu í kirkju sinni. Til að mótmæla
beiðni biskupsins reif hann í hempu sína,
steypti messuvíninu í gólfið og slökkti
öll ljósin. Safnaðarbörn hans heyrðu
hann síðan æpa: „Biskup, forðaðu þér
meðan þú getur!“
Réttindalausir
tannlæknar
Svo virðist sem ítalir hafi orðið fyrir
barðinu á miklum fjölda plat-tannlækna.
Tannskurðlæknir nokkur ljóstraði upp
um tannlækni sinn og komst að því að
hann var vörubílstjóri en grunsemdir
hans vöknuðu vegna óvarfærnislegra
vinnubragða „tannlæknisins". Marco
Aguiari, ritari ítölsku tannlæknasam-
takanna, telur að starfandi sé stór keðja
manna og kvenna með fölsuð prófskír-
teini og hefur fjölda tannlæknastofa í
Róm verið lokað í kjölfar athugana.
Einn svikahrappanna var skjálfandi
gömul kona sem hélt því fram að hún
hefði tekið tannlækningapróf fyrir
þremur árum.
Frumleiki frek-
ar en menntun
Rafeindarisinn Sony í Japan hefur til-
kynnt meiriháttar breytingar á stefnu
sinni varðandi mannaráðningar í þá átt
að gefa ungu, framsæknu og frumlegu
fólki starfstækifæri og leggja minni
áherslu á menntun. Akio Morita, for-
sljóri Sony, hefur oft sagt að Japanir
leggi allt of mikla áherslu á menntun
og hann hefur ásamt fleirum áhyggjur
af því að menntakerfið í Japan, sem
einkennist af krossaprófum, slævi sköp-
unargáfu nemenda.
föstudagskvöld hafa nað höfuðstað hér-
aðsins, Asmara, á sitt vald. Þeir hafa
barist fyrir sjálfstæði héraðsins í þrjá
áratugi og með töku borgarinnar hafa
þeir því sem næst allt héraðið á valdi sínu.
Talsmaður Þjóðfrelsisfylkingar Erítreu
(EPLP) sagði að stjórnarherinn hefði ekki
veitt neina mótspyrnu, uppreisnarmennirnir
hefðu einungis þurft að ganga inn í borgina.
Hersveitirnar, sem vörðu borgina,. hafa verið
taldar þær öflugustu innan stjórnarhersins
og er þetta því mikið áfall fyrir stjórnvöld í
Addis Ababa. Borgin hefur verið einangruð
frá því í febrúar í fyrra, er uppreisnarmenn
náðu hafnarborginni Masawa á sitt vald.
Eftir það þurfti stjórnarherinn að reiða sig
á birgðafiutninga með flugvélum frá Addis
■Ababa og á sama tíma héldu uppreisnarmenn
uppi látlausum loftárásum á flugvöllinn í
Asmara.
Stjórnarherinn í Erítreu hefur nú einungis
eina borg á valdi sínu, hafnarborgina Asab.
Útvarp Þjóðfrelsisfylkingar Erítreu sagði að
uppreisnarmenn myndu nú heíja stórsókn í
átt að borginni, en hún er síðasta vígi stjórn-
arhersins við Rauðahaf.
Þótt uppreisnarmenn hafi nú stærstan
hluta Erítreu á sínu valdi er talið ólíklegt
að þeir lýsi yfir sjálfstæði héraðsins. Þeir
hafa lengi krafist þjóðaratkvæðagreiðslu um
Lundúrium. Reuter.
HERMENN sovéska innanríkisráðuneyt-
isins réðust á fimm landamærastöðvar í
Litháen á föstudagskvöld og kveiktu í þeim.
Talsmaður litháíska varnarmálaráðuneyt-
isins sagði að hermenn hefðu ráðist á tvær
stöðvar við landamæri lýðveldisins að Lett-
landi og talið væri að þeir hefðu komið frá
Riga. Einnig hefði verið ráðist á þrjár stöðv-
ar við landamærin að Hvíta-Rússlandi.
framtíð þess. Vestræn ríki, þar á meðal
Bandaríkin, hafa lagst gegn því að stofnað
verði sérstakt ríki í héraðinu án samþykkis
stjórnvalda í Addis Ababa.
Erítrea var ítölsk nýlenda en innlimuð í
Eþíópíu árið 1962.
Landamæraverðir hefðu verið barðir og
nokkrir þeirra væru á sjúkrahúsi.
Zigmas Vaisviia, aðstoðarforsætisráðherra
Litháens, hringdi í ívan Shílov, innanríkisráð-
herra Sovétríkjanna, til að mótmæla árásun-
um. Shílov lofaði að láta rannsaka málið og
sagði að sérstök nefnd frá innanríkisráðu-
neytinu hefði verið send til Riga.
Hermenn ráðuneytisins réðust einnig á
landamærastöðvar í Lettlandi á fimmtudag.
Litháen:
Árás á landamærastöðvar
INDVERSKT
LÝSRÆBI
í TVÍSÝNU
HEF BETRA
SOKNARFÆRI