Morgunblaðið - 24.07.1991, Síða 1
48 SIÐUR B
165. tbl. 79. árg.
MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
króatískur
Glundroði á Madagaskar:
Neyðarástandi lýst
yfír í Antananarivo
Antananarivo. Reuter.
DIDIER Ratsiraka, forseti Afríkuríkisins Madagaskar, lýsti í gær
yfir neyðarástandi í höfuðborg landsins, Antananarivo, eftir að
stjórnarandstæðingar höfðu lýst yfir myndun nýrrar stjórnar í óþökk
hans og náð nokkrum opinberum byggingum á sitt vald. Leiðtogi
stjórnarandstæðinganna, Jean Rakotoharison hershöfðingi, sem þeir
hafa tilnefnt sem forseta, komst inn í fjármálaráðuneytið og öryggis-
sveitir reyndu ekki að stöðva hann.
Um 300.000 manns söfnuðust
saman í miðborginni til að krefjast
þess að Ratsiraka segði tafarlaust
af sér og að sett yrði lýðræðisleg
stjórnarskrá. Herforingjastjórn hef-
ur farið með völdin í landinu frá
árinu 1972 og Ratsiraka hefur ver-
ið leiðtogi hennar frá 1975. Hann
féll frá kommúnisma fyrir nokkrum
Noregur:
Álítur EB
upphafið að
heimsenda
Ósló. Frá Jan-Gunnar Furuly, frétta-
ritara Morgunblaðsins.
UMRÆÐAN um Evrópu-
bandalagið (EB) er nú komin
á æðra plan í Noregi. Dóms-
dagspredikarinn Aril Ed-
vardsen hélt því fram á vakn-
ingarsamkomu á sunnudag að
bandalagið væri upphafið að
heimsenda.
„Guð notfærir sér pólitíska
viðburði til að ná fyrirætlunum
sínum fram. EB er undanfari
nýja stórveldisins sem sam-
kvæmt Biblíunni á eftir að
drottna yfir löndum Miðjarðar-
hafsins. Þannig verður Róm-
verska keisaradæmið endurreist,
sem síðasta ríki heims fyrir þús-
undáraríkið," þrumaði prédikar-
inn. Um 4.000 fylgjendur hans
hlýddu á ræðuna í grafarþögn.
„I þessu stórveldi rís síðan upp
einræðisherra, Anti-Kristur, sem
breytir því í helvíti áður en Jesús
kemur,“ hélt predikarinn áfram.
Edvardsen segir að augljóst
samband sé á milli Evrópu-
bandalagsins og dýrsins (nýja
keisaradæmisins) f Opinberun
Jóhannesar.
árum, tók upp markaðshyggju og
kom á lýðræðislegum umbótum.
Stjómarandstæðingar saka hins
vegar stjórnvöld um að hafa tryggt
kjör hans sem forseta með stór-
felldu kosningamisferli árið 1989.
Látlaus fjöldamótmæli hafa verið
í höfuðborginni í sex vikur og alls-
heijarverkfall hefur staðið frá 8.
júlí. Mótmælin höfðu farið friðsam-
lega fram þar til í gær er til átaka
kom milli hermanna og hóps mót-
mælenda við útvarpshúsið í borg-
inni.
Stjórnarandstæðingar lýstu því
yfir á dögunum að þeir hefðu mynd-
að nýja stjórn og réðust í gær á
nokkur ráðuneyti til að „ráðherr-
arnir“ gætu tekið við embættum
sínum. „Forseti" þeirra og leiðtogi,
Rakotoharison hershöfðingi, komst
inn í fjármálaráðuneytið án þess
að öryggissveitir hefðust nokkuð
að. Þvert á móti tóku liðsmenn
þeirra sér réttstöðu er hann gekk
inn í bygginguna. Sveitimar hafa
þó heitið Ratsiraka forseta hollustu.
Júgóslavía:
Reuter
Skop íMoskvu
Sovéskur myndlistarmaður leggur síðustu hönd á
skopteikningar af George Bush Bandaríkjaforseta,
Borís Jeltsín, forseta Rússlands, John Major, forsæt-
isráðherra Bretlands, og fleirum á Arbat-götu í
Moskvu í gær. Bush og Míkhaíl Gorbatsjov Sovétfor-
seti efna til fundar í borginni í lok mánaðarins og
undirrita þá sögulegan samning um fækkun lang-
drægra kjarnorkuvopna.
Serbar og Króatar ásaka
hvorir aðra hatrammlega
Forsetar Júgóslavíu og Króatíu segja borgarastyrjöld yfirvofandi
Ohrid, Vín, Haag, Vitikovci. Reuter.
FORSÆTISRAÐ Júgóslavíu kom
saman í Ohrid á mánudag en fund-
ur þess leystist upp án þess að
lausn á málefnum landsins væri í
augsýn. Króatar og Serbar ásaka
hvorir aðra um að eiga sök á bar-
dögunum í landinu. Stipe Mesic,
Gorbatsjov gagnrýn-
ir tilskipun Jeltsíns
Moskvu. Reuter.
MÍKHAÍL S. Gorbatsjov Sovétforseti telur að bann Boris Jeltsíns, for-
seta Rússlands, við stjórnmálastarfsemi í fyrirtækjum og stofnunum
auki spennu í Sovétríkjunum, að sögn Vítalý's ígnatenkós, talsmanns
Gorbatsjovs, á fundi með fréttamönnum í gær.
Ignatenkó gaf einnig í skyn að
bannið gæti verið ólöglegt auk þess
sem það væri ótímabært. „Það er
ástæða til að hafa áhyggjur af því
að tilskipun sem þessi muni auka
spennu og óeiningu í landinu. Marg-
ir hafa að sjálfsögðu dregið lögmæti
þessarar tilskipunar í efa og velt því
fyrir sér hvort ekki liggi pólitísk
hentistefna að baki henni," sagði
ígnatenkó.
Með gagnrýni sinni á tilskipunina,
sem bannar starfsemi flokksdeilda í
fyrirtækjum og stofnunum, skipar
Gorbatsjov sér á bekk með harðlínu-
kommúnistum tveimur dögum fyrir
fund miðstjórnar kommúnistaflokks-
ins þar sem ræða á nýja stefnuskrá
flokksins.
Dagblaðið Sovjetskaja Rossíja
birti í gær yfirlýsingu 12 harðlínu-
manna í kommúnistaflokknum þar
sem sagði m.a. að aðeins herinn
gæti komið í veg fyrir óreiðu og
upplausn í Sovétríkjunum og hörð
gagnrýni kom fram á tillögur þær,
sem á mánudag voru kynntar sem
hugmyndir Gorbatsjovs um nýja
stefnu flokksins.
forseti Júgóslavíu, ásakaði Serba
um að kynda undir ofbeldi í Kró-
atíu í pólitískum tilgangi. I yfirlýs-
ingu eftir fundinn bað forsætis-
ráðið Evrópubandalagið (EB) um
að sjá um að vopnahléinu yrði
framfylgt í Króatíu en að sögn '
talsmanns hollenska utanríkis-
ráðuneytisins eru engin slík áform
uppi innan EB. Tveir króatískir
þjóðvarðliðar féllu í gær og marg-
ir særðust í átökum við serbneska
skæruliða.
Eftir fundinn á mánudag gáfu leið-
togar lýðveldanna út yfirlýsingu þar
sem segir m.a.: „Eijur milli þjóðar-
brota og bardagar milli lýðvelda ógna
öllum íbúum landsins og gætu leitt
til borgarastyijaldar sem hefði
hörmulegar afleiðingar í för með
sér.“
Franjo Tudjman, forseti Króatíu,
rauk út af fundinum eftir að honum
var ljóst að herinn myndi ekki halda
til búða sinna eins og hann hafði
farið fram á. Hann ásakaði serbn-
eska foringja í sambandshernum um
að ala á ofbeldi í Króatíu með því
að styðja serbneska skæruliða og
hvatti hann Króata til að búa sig
undir yfirvofandi styijöld sem gæti
hafist á næstu dögum.
Stipe Mesic, sem er Króati, tók í
sama steng og Tudjman og sakaði
Serba um að eiga sök á ástandinu.
leitar skjóls á bak við tré í miðbæ
Vinkovci meðan á árás serbn-
eskra skæruliða stóð á mánudag.
Hann sagði að Serbar útveguðu
serbneskum skæruliðum í Króatíu
vopn og styddu ofbeldið í Króatíu í
pólitískum tilgangi. „Serbía er að
reyna að innlima hluta Króatíu. Það
geta þeir ekki nema stofna til
mannskæðs stríðs,“ sagði hann við
blaðamenn eftir fundinn.
En leiðtogar Serba ásaka Króata
einnig um að eiga sök á ástandinu.
Borislav Jovic, fulltrúi Serba í for-
sætisráðinu, sagði eftir fundinn að
Króatar hefðu komið í veg fyrir að
samningar um frið tækjust þar með
því að setja það skilyrði að hersveit-
irnar sem staddar eru í Króatíu hyrfu
til búða sinna. „Ef herinn dregur sig
til baka mun það hugsanlega leiða
til borgarastyijaldar þar sem blóð
mun renna í stríðum straumum,“
sagði Jovic.
Forsætisráð Júgóslavíu æskti þess
eftir fundinn á mánudag að friðar-
gæslusveit á vegum Evrópubanda-
lagsins yrði send til Króatíu, en slík
sveit var send til Slóveníu fyrir rúmri
viku. Talsmaður hollenska utanríkis-
ráðuneytisins sagði í gær að það
væri ekki á döfinni. Þeir Helmut
Kohl, kanslari Þýskalands, og
Francois Mitterrand, forseti Frakk-
lands, sögðu í gær að ekki væri unnt
að halda Júgóslavíu saman með valdi.
Embættismenn í Beigrad, höfuð-
borg Júgóslavíu, sögðu í gær að sá
hvassi tónn sem kominn væri í sam-
skipti Króata og Serba minnti á
hatrömm viðskipti þeirra áður fyrr.
Einn þeirra sagð.i að það væri engu
líkara en að lýðveldin hefðu „aldrei
ætlað sér að ná samkomulagi. Serbar
ásaka Króata og öfugt á meðan allt
stefnir í hrun Júgóslavíu".