Morgunblaðið - 24.07.1991, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 24.07.1991, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1991 3 Tryggingastofnun ríkisins: 500 lyfjaskírteini send út í gær TRYGGINGASTOFNUN ríkisins sendi út 500 lyfjaskírteini í gær, en þegar höfðu verið afgreidd 1.800 lyfjaskírteini sl. föstudag. Hafa því 2.300 lyfjaskírteini verið afgreidd en búast má við að heildar- fjöldi nýrra skírteina er þarf að útbúa sé um 4.000. Að sögn Ástu Ragnheiðar Jó- hannesdóttur deildarstjóra hjá Tryggingastofnun ríkisins er talið að heildarfjöldi nýrra lyfjaskírteina fyrir hjarta-, asma- og skjaldkirtils- sjúklinga sé 4.000. Ásta Ragnheið- ur sagði að enn væru umsóknir að berast til Tryggingastofnunarinnar og kæmu um það bil 200 umsóknir á dag en hún telur að afgreiðslu á nýju lyfjaskírteinunum ætti að ljúka á næstu dögum. Fyrir utan þessi nýju lyfjaskírteini er um 6.000 lyfja- skírteini þegar í umferð. Þess misskilnings hefur gætt hjá þeim er þegar hafa lyfjaskírteini að þeir þurfi að endurnýja skírteini sín strax en það er ekki nauðsyn- legt fyrr en þau renna út um næstu áramót. Tillögur Hagsýslu um ökukennslu: Foreldrar geti sjálf- ir þjálfað böm sín HÁGSÝSLA ríkisins hefur að beiðni Þorsteins Pálssonar dómsmálaráð- herra unnið tillögur um hvernig hcppilegast væri að skipa umsjón og framkvæmd ökuprófa og ökukennslu. Hagsýslan leggur meðal annars til að einstaklingum, fyrirtækjum og stofnunum verði að upp- fylltum ákveðnum skilyrðum heimilt að reka ökuskóla og að möguleik- ar þeirra sem eldri eru, einkum foreldra og forráðamanna, til að annast ökuþjálfun ökunema verði auknir. Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að vinna að framkvæmd þessara tillagna. Dómsmálaráðherra óskaði eftir því við Hagsýsluna 23. maí si. að hún kannaði þessi mál. Hagsýslan skilaði skýrslu 2. júlí sl. þar sem jafnframt var tekið fram að Hagsýsl- an væri reiðubúin til að vinna að áframhaldandi þróun og fram- kvæmd þessa máls, sé þess óskað. Auk framangreindra tillagna er lagt til að nám ökukennara verði tengt námi við Kennaraháskóla Is- lands, að landið allt verði eitt útgáfu- svæði ökuréttinda og ökuskírteina- skrá verði tölvuvædd landsskrá. Þá er lagt til að kostnaður við ökunám og ökupróf verði greiddur af viðkomandi einstaklingi, en ekki af sameiginlegum sjóðum. Þannig eigi framhaldsskólar sem bjóða upp á ökunám að innheimta gjöld hjá ökunemum til að standa undir til- kostnaði. Þá leggur Hagsýslan til að um- sjón, þróun og dagleg framkvæmd málaflokksins verði í höndum Um- ferðarráðs og ökufræðslan falli inn í starfsemi þess. Talið er að hagræð- ing af sameiningu þessara mála á hendi Umferðarráðs geti skilað 15-25% lækkun ríkisframlags. Dómsmálaráðherra hefur ákveðið að óska eftir því við Hagsýslu ríkis- ins að hún vinni áfram að þróun málsins í samvinnu við þá sem það varðar eins og Umferðarráð og Bif- reiðapróf ríkisins, með það að mark- miði að hrinda þeim grunnhugmynd- um í framkvæmd sem fram koma í skýrslunni. Jafnframt mun dóms- málaráðuneytið undirbúa nauðsyn- legar lagabreytingar og leggja fyrir Alþingi í haust. Starfsmenn Pósts og síma rannsaka bilunina í kerfi símstöðvarinnar Morgunblaðið/KGA Landssímahúsinu í gær. Símstöðin í Landssímahús- inu óvirk í 40 mínútur í gær Þjónusta við sex stafa númer truflast við bilunina SÍMSTÖÐIN í Landssímahúsinu varð óvirk kl. 12.20 í gær og varði bilunin í 40 mínútur. Þetta var sams konar bilun og komið hefur fram í stöðinni undanfarið en ekki hefur enn fundist skýr- ing á þessum bilunum. Stöðin datt út á milli kl. 12.20 og 13.00 í gær eða í 40 mínútur. Hilmar Ragnarsson yfirverkfræð- ingur hjá Pósti og síma sagði að bilunin hefði staðið svona lengi í þetta skipti vegna þess að erlendu sérfræðingarnir tveir, sem eru að rannsaka stöðina, hefðu stöðvað endurhlaðningu kerfisins til þess að geta skoðað betur orsakir bil- ananna í stöðinni. Enn hefur eng- in ákveðin skýring fundist á bilun- unum. Sú þjónusta er Póstur og sími býður upp á fyrir sex stafa númer eins og að flytja númer í símboða eða farsíma hefur orðið fyrir trufl- unum vegna þessara bilana. Hilm- ar sagði að þessar truflanir yrðu vegna þess að þegar kerfið er endurhlaðið eru eldri upplýsingar lesnar inn. Þannig getur það kom- ið fyrir 'að maður, sem hefur beð- ið um flutning á númeri í símboða og síðan afpantað flutninginn þegar ekki er þörf á honum leng- ur, lendir í því að númerið er aft- ur flutt í símboða þegar kerfið er endurhlaðið vegna bilunar. Að sögn Hilmars verður fólk sem nýtir sér þessa þjónustu að fylgj- ast með því sjálft hvort símanúm- er þess flyst til þegar bilun verður. Uppsafnaður fjárhagsvandi stofnana og sjóða: 4-5 milljarðar króna taldir falla árlega á ríkissjóð Ríkisstjórnin skipar fortíðarvandanefnd TALIÐ er að um 4-5 milljarðar króna geti árlega fallið á ríkissjóð vegna uppsafnaðs fjárhagsvanda ýmissa opinberra stofnana og sjóða. Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í gær að skipa nefnd til að skil- greina þennan fortíðarvanda og leggja til hvernig best yrði brugðist við honum. Hreinn Loftsson aðstoðarmaður forsætisráðherra verður formaður nefndarinnar en hún hefur að öðru leyti ekki verið skipuð. Hreinn sagði við Morgunblaðið að þarna væri að- allega um að ræða fjárhagsvanda hjá Byggðastofnun, Atvinnutrygg- ingarsjóði, Hlutafjársjóði, Fram- kvæmdasjóði, byggingarsjóðum rík- isins og verkamanna, Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Lífeyrissjóði starfs- manna ríkisins. Nefndinni er ætlað að afla upplýs- inga um þennan vanda og skila nið- urstöðu í haust áður en fjárlög verða afgreidd, en hingað til hefur ekki verið gerð grein fyrir þessum hlutum við afgreiðslu fjárlaga, að sögn Hreins Loftssonar. Hreinn sagði að nefndinni væri einnig ætlað að fá fram með hvaða hætti þessi vandi hefði vaxið, og hvernig hann komi til með að falla á ríkissjóð. Einnig væri ætlast til þess að nefndin benti á hugsanlegar leiðir til að taka á Skattseðlar sendir út á mánudaginn 104 þúsund einstaklingar fá endurgreidda 5 milljarða frá ríkinu um mánaðamótin 104 ÞÚSUND einstaklingar fá um mánaðamótin greidda um 5 millj- arða króna úr ríkissjóði vegna ofgreidds staðgreiðsluskatts, vaxta- og húsnæðisbóta og barnabóta. AIIs nemur innistæða gjaldenda hjá ríkissjóði um 6 milljörðum króna en að sögn Bolla Bollasonar skrifstof- ustjóra í fjármálaráðuneytinu rennur um einn milljarður til greiðslu á vanskilum. Tilkynningar um álagningu opinberra gjalda verða sendar út þann 29. þessa mánaðar, að sögn Skúla Eggerts Þórðarsonar vara- ríkisskattsljóra, á nýrri gerð álagningarseðla. Greiðslurnar úr ríkissjóði skiptast þannig, að sögn Bolla Bollasonar, að um 2,4 milljarðar verða greiddir vegna húsnæðis- og vaxtabóta. Um 11 þúsund gjaldendur fá endur- greiddar um 600 milljónir króna í húsnæðisbætur og um 28 þúsund gjaldendur fá um 1,8 milljarða í vaxtabætur. Barnabætur og barnabótaauki nema samtals um 1,2 milljörðum króna og eru greiddar vegna um 70 þúsund bama. Að sögn Bolla Bollasonar fá um 94 þúsund manns endurgreidda um 2,4 milljarða króna vegna ofgreiddra staðgreiðsluskatta. Þar er meðal annars um að ræða endurgreiðslur vegna hlutafjárkaupa og annarrar fjárfestingar í atvinnurekstri, endur- greitt akstursgjald og oftekið útsvar til íbúa sveitarfélaga þar sem út- svarsprósenta er undir hámarki. Formi álagningarseðilsins hefur verið breytt frá því sem áður tíðkað- ist og hinn nýi seðill verður sendur í lokuðu umslagi en fyrri seðlar voru sendir heftir til viðtakenda. Hinn nýi álagningarseðill opin- berra gjalda fyrir tilbúinn gjald- anda. Nafn, heimilisfang og aðrar upplýsingar á þessum seðli er til- búningur. Seðlarnir verða nú sendir gjaldendum í umslögum en ekki í opnum pósti eins og hingað til. Kt. 201164-3109 Gudbjörn Guóbjörnsson Austurvegi 234 220 HAFNARFJOP.DUR Álagnlngor- og Innheimtuseðlll 1991 r«friisa:-w- GJaldhelatan í Reyklavtk ÍHi??vS?í5U&>10Í lí*''kJ*v!k ■ i. iL im [öta^. 0000 REYKJAVlK 6.70 X nmn Tfjreidd s ta 5gr e Klsl a til útborgunar 1« úgúst kr. 31*328 lauLLiímHI Gjold utan staðgreiAslu kr. 14.424 til innheimtu ( sept.-des. NinURSTÖOUR ÁLAGNINGAR OG GREIÐSLUSTAÐA: Útsvar StaSgrelisla til greiðslu útsvars Tekjuskattur StaSgr'ei 3sla tll frádráttar 154.060 -154.060 343.168 -375.685 Ofgreldd s^aðgreiðsla Verðbatur a ofgreidda staðgreidslu Inneign tll skuldajöfnunar rðj útborgunar Elgnarskattur Sórstakur elgnarskattur Gjald í framkvemdasjoð aldraðra Fyrirframgreiðsluskylda kr. 33.600t greltt fyrlrfram larnabítur Grelðslustada 12. Júlí 1991» innelgn kr. Útborgun greidd með ávísun Skattnfshlttur/rádstolun skattafslatt ”-34.937 57.772 8.450 411.034 2.299.396 411.034 -----* '+SSm*"" 8.033.640 ”29.745 Sjá skýringar á bakhliö þessum vandamálum, t.d. hvort skynsamlegt væri að gera eitthvað af þessum skuldum upp eða leggja starfsemi sjóða eða stofnana niður; og hvernig hægt væri að koma í veg fyrir að sama sagan endurtæki sig í framtíðinni. Forsætisráðherra hefur þegar fal- ið Ríkisendurskoðun að taka út stöðu Byggðastofnunar og sjóða hennar. Búið er að fela Framkvæmdasjóði íslands að skila útfærðum tillögum um það með hvaða hætti þeírri starf- semi sem þar er unnin sé best fyrir komið. Hreinn sagði að með þessu væri þegar hafín vinna við þetta verkefni. Forsætisráðuneytið mun hafa for- ystu fyrir nefndinni og verður Hreinn Loftsson fulltrúi þess, eins og áður sagði. Þá verða fulltrúar íjármálaráðuneytis, viðskiptaráðu- neytis og félagámálaráðuneytis einn-' ig í nefndinni. Nefndin á að hefja störf sem fyrst og vinna samhliða fjárlagagerðinni. --------1 ♦♦ Gosan keypti eitt Geysisgos FYRIRTÆKIÐ Gosan hf. liefur keypt gos í Geysi laugardaginn 27. júlí næstkomandi. Þetta er fyrsta gos í Geysi, sem selt er einkaaðila eftir að Náttúru- verndarráð ákvað að selja fjögur gos í sumar fyrir 120 þúsund krónur hvert gos. Ágóðinn mun renna til náttúruverndar á Geysissvæðinu. Fyrirtækið hefur umboð fyrir gos- drykkinn Pepsi hér á landi og býður þeim sem áhuga hafa að koma og sjá Geysi gjósa um kl. 15 á laugar- dag. í frétt frá fyrirtækinu er fólk minnt á að vera tímanlega á ferðinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.