Morgunblaðið - 24.07.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 24.07.1991, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JULI 1991 BCCI-bankinn í ábyrgðum vegna skreiðarkaupa BCCI-alþjóðabankinn, sem senn verður lýstur gjaldþrota, gekkst í ábyrgðir vegna kaupa Nígeríu- manna á skreið frá ísiandi þegar skreiðarviðskiptin voru sem mest á árunum 1982-83. Heimildarmaður Morgunblaðsins innan bankakerfísins kvaðst ekki telja að íslendingar hefðu átt bein viðskipti við bankann þótt ekki væri hægt að útiloka það. Hann sagði að bankinn hefði aðallega verið í stórum viðskiptum þar sem um hefði verið að ræða milljónir dollara. Einnig hefði bankinn fengist mikið við fjár- mögnunarstarfsemj og vöruskipta- samninga. Bankinn hefði þó komið við sögu skreiðarviðskipta hér á landi á árum áður og hefði staðfest ábyrgðir fyrir nígeríska banka, en um langan tíma hafa íslenskir bank- ar ekki samþykkt ábyrgðir níger- ískra banka. Þetta hefðu þó alltaf verið lágar upphæðir. Fyrir um tíu árum hefði íslenskur banki grennslast fyrir um BCCI- bankann vegna þessara ábyrgða og hefði sú athugun dregið ýmislegt vafasamt fram í dagsljósið. Eitthvað af þessum skreiðarsamningum er ennþá óúppgert. ♦ ♦ ♦ Salan á SR: Sérstök „sölunefnd“ skipuð BÚIÐ ER að skipa nefnd til að leggja til breytt rekstrarform Síldarverksmiðja ríkisins og hvernig standa eigi að sölu fyrir- tækisins. Þorsteinn Pálsson, sjáv- arútvegsráðherra, segir að ætl- unin sé síðan að afla nauðsyn- legra lagaheimilda á haustþing- inu til að koma þessum breyting- um fram. Formaður nefndarinnar er Eggert Hauksson, skipaður af sjáv- arútvegsráðherra, og aðrir í nefnd- inni eru Óttar Yngvason, skipaður af viðskiptaráðherra, og Valbjöm Sigurbjömsson, skipaður af fjár- málaráðherra. „Það er liðin tíð að ríkið standi í beinum rekstri í sjáv- arútvegi og því tímabært að huga að sölu Síldarverksmiðjanna,“ segir Þorsteinn. Morgunblaðið/V aldimar Landsliðið, talið frá vinstri: Hinrik Bragason á Pjakki, Jón Pétur Ólafsson á Byr, Gunnar Arnarsson á Kolbaki, Sigurbjörn Bárðarson á Kraka, Tómas Ragnarsson á Snúði, Einar O. Magnússon á Atgeir og Ragnar Hinriksson á Gammi. Landslið í hestaíþróttum æfir fyrir Evrópumótið Landslið íslands í hesta- íþróttum sem skipað er sjö knöpum og jafnmörgum hest- um kom saman á æfingu á fé- lagssvæði Sörla í Hafnarfirði í gær. Er þetta fyrsta sameigin- lega æfingin síðan liðið var valið í byijun júlí og að öllum líkindum sú eina áður en hest- arnir fara utan 7. ágúst nk. Liðsmennirnir mátuðu í gær nýja landsliðsbúninga sem hestaíþróttasambandið hefur látið sauma á liðsmenn og liðs- stjóra. Að sögn liðsstjóranna er fjáröfl- un vegna þátttöku í heimsmeist- aramótinu í Norrköping í Svíþjóð 12.-18. ágúst vel á veg komin. Einn stór liður í henni er hópferð sem hestaíþróttasambandið efnir til á mótið, þar sem flogið verður nánast beint á mótsstað. Sögðu þeir Pétur og Sigurður að ef þeim tækist að fylla flugvélina, sem nú vantaði aðeins herslumuninn á, fengi sambandið frímiða fyrir alla liðsmenn og liðsstjóra. Evrópska efnahagssvæðið: Gestur Ólafur Þórólfsson Maðurinn sem lést MAÐURINN sem lést í bílveltu í Blöndudal síðastliðinn laugar- dagsmorgun hét Gestur Ólafur Þórólfsson. Gestur Ólafur var 26 ára gam- all, til heimilis á Hjaltastöðum í Skagafirði. Hann var ókvæntur, en lætur eftir sig dóttur, Ester Ósk. Reynt til þrautar að ná sam- komulagi fyrir mánaðamótin Brussel, frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins. JÓN Baldvin Hannibalsson, utanríkisráðherra, og Perrti Salolainen, utanríkisviðskiptaráðherra Finnlands, sátu í gærkvöldi kvöldverð með Piet Dankert, ráðuneytisstjóra i hollenska utanríkisráðuneytinu, en Hollendingar sitja í forsæti EB og Frans Andriessen úr framkvæmda- stjóm Evrópubandalagsins (EB) auk Horst Rrenzler, yfirsamninga- manns bandalagsins, til þess að leita færra leiða út úr þeim ógöngum sem samningaviðræður bandalaganna hafa ratað í. Gert er ráð fyrir að yfírsamninga- Noregs í Brussel í gær. Hún átti nefndir EFTA og EB fjalli um mögu- lega lausn á deilunum á fundum í Brussel í dag og á morgun en ut- anríkisráðherrar EB koma saman til fundár á mánudag og þriðjudag, 29. og 30. júlí, m.a. til að fjalla um samn- ingana. Auk Jóns Baldvins og Salolainen var Eldrid Nordbö viskiptaráðherra fund með Frans Andriessen seint í gær. Ekki reyndist unnt að ná sam- bandi við ráðherrann en heimildir í Brussel herma að Norðmenn hafí áhyggjur af því að hagsmunir þeirra í sjávarútvegi verði vanmetnir þegar til kastanna kemur við lausn samn- inganna. Mikil leynd hefur hvílt yfír samn- ingaviðræðunum um Evrópska efna- hagssvæðið (EES) undanfamar vik- ur en af ummælum embættismanna Evrópubandalagsins og Fríverslun- arbandjilags Evrópu (EFTA) má ráða að miklar efasemdir eru uppi um að takist að ganga frá samningum fyrir 1. ágúst en þá hefjast sumarleyfí innan EB. Vísað er til þess að góðum tækifærum hafí verið klúðrað á und- anfömum mánuðum með íjölmiðla- fári og þess vegna sé nauðsynlegt að halda blaðamönnum sem lengst í burtu frá samningaviðræðunum. Fjöldi mála er enn óútkljáður fyrir utan stóru atriðin, físk, þróunarsjóð og landbúnað. Má þar nefna ríkis- styrki til skipasmíða en EB vill að sínu leyti hafa hærri mörk á styrkjum en bandalagið er tilbúið til að sam- þykkja fyrir EFTA, deilt er um textíl- vömr, stöðu bankastofnana frá ríkj- um utan EFTA og EB sem starfa innan aðildarríkja EFTA og verka- skiptingu eftirlitsstofnanna með samkeppni innan EES. Dragist við- ræðurnar fram á haust er talið eins víst að það geti komið í hlut íslend- inga, sem taka við forsæti EFTA um áramótin, að leiða þær til lykta á fyrri hluta næsta árs. SS fær 100 tonn af einum kjötflokki frá Goða: Ætla að láta reyna á hvort við fáum það kjöt sem við þurfum Morgunblaðið/Magnús Gíslason Vörubíllinn á hliðinni. - segir forstjóri Sláturfélagsins SAMKOMULAG tókst í gær um að Sláturfélag Suðurlands gæti fengið keypt allt að 100 tonnum af fyrsta flokks lambakjöti hjá Goða hf. Sláturfélagið getur því, um sinn að minnsta kosti, haldið áfram að bjóða „Iambakjöt á lágmarksverði" að sögn Steinþórs Skúlasonar forstjóra SS. Hann kvaðst þó vera óánægður með, að einungis náðist samkomulag um einn flokk kjöts á verði, sem væri viðunandi. „Eg ætla nú að láta á það reyna hvort við fáum ekki keypt það kjöt sem þarf, en sé ekki bara skammtaðir ákveðnir flokkar," sagði Steinþór í samtali við Morgunblaðið í gær. Eins og fram kom í Morgunblað- inu í gær, ákvað SS að hætta að bjóða „lambakjöt á lágmarksverði“ þar sem ekki fékkst kjöt keypt á svonefndu milliverði, sem er nokkru lægra en heildsöluverð, frá Goða hf., en Goði hefur einkarétt á sölu kjöts frá kaupfélagasláturhúsum. Jafnframt kom fram að áætlað er að um 1.300 tonn af kindakjöti verði til í upphafi sláturtíðar í haust. Þetta mál hefur komið til kasta landbúnaðarráðherra. „Þetta mál var tekið upp fyrir nokkru í Samstarfsnefnd um bú- vörusamninga og forstjórar Goða og Sláturfélagsins komu á þann fund og þar voru þeir hvattir til þess að ná samkomulagi,“ sagði Halldór Blöndal landbúnaðarráð- herra í gær. Hann kvaðst fagna því að þetta samkomulag hefði nú náðst. Í gærkvöldi var fyrirhugaður fundur með landbúnaðarráðherra og formanni Stéttarsambands bænda þar sem ræða átti meðal annars samskiptamál af þessu tagi, auk þess sem ræða átti almennt um stöðuna í landbúnaðinum. Steinþór Skúlason sagði að sam- komulag hefði náðst um kaup á einum flokki af kjöti, allt að 100 tonnum. „En þeir vilja hins vegar ekki láta þau kjör ná yfír aðra flokka af kjöti, sem okkur finnst auðvitað mjög undarlegt. Þeir eru að skammta hvað við megum kaupa. Það náðist samkomulág um kaup á aðalsöluflokknum, sem heitir D-IA. Hins vegar ná þau kjör sem samið var um ekki yfír aðra flokka, þar á meðal kjöt af fullorðnu," sagði hann. Þetta er sá flokkur sem notaður er í „lambakjöt á lágmarksverði" og því getur Sláturfélagið haldið áfram, um sinn að minnsta kosti, að bjóða það til sölu, að sögn Steinþórs. Bílvelta í Hrútafirði Stað í Hrútafirði. Vöruflutningabifreið valt í gær- morgun klukkan 6.30, fullhlaðinn rækju, út af þjóðveginum við Borðeyri. Ekki varð slys á öku- manni, sem var einn í bifreiðinni. Sveinn Karlsson, bifvélavirki á Borðeyri, sagði í viðtali við frétta- mann að það hefði verið ónotaleg tilfínning að vakna í morgun við hávaðann þegar flutningabifreiðin hafnaði á hliðinni skammt frá hús- vegg á íbúðarhúsi Sveins. - M.G.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.