Morgunblaðið - 24.07.1991, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 24.07.1991, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1991 AF INNLENDUM VETTVANGI AGNES BRAGADÓTTIR Sægreifar Eyja eru sundurleitur hópur Ytri aðstæður kunna þó að berja þá til samstarfs og jafnvel sameiningar í náinni framtíð VESTMANNAEYJAR eru um margt sérstakar hvað varðar sjávar- útveg. Þær eru langstærsta verstöð landsins, sem fær á milli 8 og 9% af öllum botnfiski í sinn hlut, sem á síðasta ári gerðu um 52 þúsund tonn. Atvinnulíf er þar einhæft með afbrigðum, og byggir að langmestu Ieyti á sjávarútvegi og fiskvinnslu. Nafngift- in smákóngar á ekki upp á pallborðið hjá sægreifunum í Vest- mannaeyjum. Þeim er líkt farið og öðrum smákóngum íslensks sjávarútvegs - þeir hafa horn í siðu forskeytisins smá, því þeim líður auðvitað sem væní þeir raunverulegir kóngar. Vestmannaeyj- ar og fiskimiðin eru konungsríki þeirra og gjaldmiðill þeirra er kvótinn. Sægreifarnir „eiga sinn kvóta“ og líta á þá eign sem varanlega, hvað sem öllum lagaákvæðum líður. Þarna eru saman- komnir miklir atorkumenn, sem í krafti einkaframtaks, dirfsku, dugnaðar og sjósóknar hafa byggt upp öflug útgerðar- og fisk- vinnslufyrirtæki, sem oft og tíðum hafa gengið mjög vel. En í dag er öldin önnur - afli fer minnkandi, skuldsetning fyrirtækjanna nálgast það að vera geigvænleg, fiskvinnslustöðvarnar eru of margar, fiskiskipaflotinn of stór og kostnaður við úthald hans of mikill. Fyrirtækin eru að sligast undan gífurlegum fjármagns- kostnaði. Það má til sanns vegar færa að dugmiklu mennirnir sem hér er minnst á að ofan, standi hálfráðþrota á bryggjum sínum í Eyjum og horfi til dökkrar framtrðar. Haraldur Gíslason, fram- kvæmdastjóri Fiskimjöls- verksmiðjunnar: „Ég tei að áhættan í sambandi við að sameina öll fyrir- tækin í eitt sé of mikil.“ Björn Úlfljótsson, fram- kvæmdastjóri Vinnslu- stöðvarinnar: Fúsari nú en áður til að ræða sam- starfs- og sameiningar- inöguleika við önnur fyr- irtæki í Eyjum. Guðmundur Karlsson, framkvæmdastjóri Fisk- iðjunnar: „Við höfum af- hent litlum hópi manna okkar fjöregg." Helstu forsvarsmenn og eigendur fjögurra stærstu fyrirtækjanna í Eyjum, Hraðfrystihúss Vestmanna- eyja, Vinnslustöðvarinnar, ísfélags Vestmannaeyja og Fiskiðjunnar, gera sér grein fyrir því að eitthvað verður að gera, til að fyrirtækin eigi sér meiri afkomuvon í framtíð- inni. En þegar ég ræddi við þá í liðinni viku úti í Eyjum, var ekki að heyra á þeim að þeir hefðu neina nákvæma útfærslu á þessu „ein- hveiju" sem gera þyrfti. Ætli orð Bjarna Sighvatssonar, stjórnar- formanns Vinnslustöðvarinnar og aðaleiganda, lýsi ekki ágætlega við- horfí sægreifanna: „Það gerist ein- hver andskotinn með haustinu. Bát- arnir eru of margir, frystihúsin eru of mörg og aflinn fer minnkandi. En það er ekkert sniðugt að sam- eina fjárhagslega illa stæð fyrirtæki - það er enginn ávinningur fólginn í því að sameina bara skuldir." Einingar verða að stækka Haraldur Gíslason, framkvæmd- astjóri Fiskimjölsverksmiðjunnar, er jafnframt hluthafi í Fiskiðjunni og Vinnslustöðinni. Hann er þeirrar skoðunar að rekstrareiningamar verði að stækka, vegna þess sam- dráttar sem nú er boðaður. Sjái menn ekki þörf þessa í tíma telur hann að í algjört óefni stefni hjá stærstu fyrirtækjunum í Vest- mannaeyjum. Afkastageta frystihúsanna fjög- urra í Vestmannaeyjum, ísfélags Vestmannaeyja, Vinnslustöðvar- innar, Hraðfrystihúss Vestmanna- eyja og Fiskiðjunnar, er mun meiri en vinnslumagnið segir til um. Frystihúsin vinna á bilinu 5 til 8 þúsund tonn af botnfiski á ári, en hvert um sig gæti unnið miklu meira. Menn greinir á um hvort vinnslu- getan er margföld á við það sem unnið er, en allir eru sammála um að þijú frystihús myndu léttilega afkasta því sem unnið er í þeim ijórum sem hér að ofan voru nefnd. Reyndar ganga aðrir lengra og segja að tvö frystihús myndu anna öllum afla sem á land kemur í Eyj- um. í þeirra hópi eru Kristján Ragn- arsson, formaður LÍÚ, og Bjarni Sighvatsson. Sigurður Einarsson telur að tvö til þijú frystihús í Vest- mannaeyjum gætu annað þeim afla sem unninn er í öllum húsunum. Haraldur Gíslason segist vera fylgj- andi aukinni hagræðingu og sam- einingu fyrirtækja, en hann kveðst efast um ágæti þess að steypa öllum fyrirtækjunum Ijórum saman í eitt. „Eg tel að áhættan í sambandi við slíka sameiningu sé of mikil. Maður veit ekkert hvernig því tækist upp í rekstri og ef illa færi, þá væri allt bæjarfélagið undirlagt," segir Haraldur. Kvótakaup eina fjárfestingin Magnús Kristinsson, stjórnar- Arnar Sigurmundsson, formaður Samtaka fisk- vinnslustöðva: „Þessi svarta skýrsla Hafró kall- ar á ný vinnubrögð og ný viðhorf." Sigurður Einarsson, for- stjóri Hraðfrystistöðvar Vestmannaeyja: „Ég er sannfærður um að fyrsta fyrirtækið hér í Eyjum sem færi á almennan markað, ætti sér betri Iífsmögulcika en hin fyr- irtækin." Magnús Kristinsson, stjórnarformaður ísfé- lags Vestmannaeyja: „Til hvers ætti ég að vera að sameinast einhvcijum öðrum?“ formaður ísfélags Vestmannaeyja, telur að ísfélagið hafi staðið sig vel í hagræðingu. Þegar flæðilínur verði komnar í frystihúsið verði fyrirtækið komið eins langt og unnt er hvað varðar úrvinnslu, áður en komið sé að sérpakkningum, en þær segir Magnús seinni tíma mál. „Ég held að hver og einn hér í Eyjum hafi alla burði til að bjarga sér. Til hvers ætti ég að vera að sameinast einhveijum öðrum?“ spyr Magnús. „Við hér í frystideild ísfé- lagsins erum með ársveltu upp á liðlega 500 milljónir króna. Þetta er ósköp þægileg stærð að halda utan um. Fyrirtækið í heild, með fískiskipum sínum og eignarhluta í öðrum fískiskipum veltir svona 1,2 til 1,4 milljarði á ári og ég tel að slíkt fyrirtæki eigi fullan rétt á sér og möguleika á að standa á eigin fótum,“ segir Magnús. Magnús viðurkennir að vísu að dæmið kunni að horfa öðru vísi við, verði um verulegan aflasamdrátt HRAÐFRYSTISTÖÐ VE: Fjölskyldu fyrirtæki í eigu Sigurðar Einarssonar og fjöl- skyldu. Velti á liðnu ári um 550 milljónum króna. Gerir út sjö báta. Á jafnframt loðnu- verksmiðju sem velti um 100 milljónum króna. □ ÍSFÉLAG VESTMANNAEYJA: Fjölskyldufyrirtæki í eigu Kristins Pálssonar og fjölskyldu, á millí 60 og 70%. Elsti sonur Kristins, Magnús er stjómarformaður fyrirtækisins. Velta fyrirtækisins var nímar 500 milljónir á liðnu ári. Isfélagið á togarana Halkíon og Gídeon (velta 150-200 milljónir) og 45% í Berg Huginn, sem á togarana Vestmannaey, Bergey og Smáey. Kristinn Pálsson og fjölskylda eiga 35% í Berg Huginn og Eyjólfur Pétursson á 15%. 1 VINNSLUSTÖÐIN: Stærsti eigandi Vinnslustöðvarinnar er Bjarni Sighvatsson stjórnarformaður, sem á nálægt 40%. Haraldur Gíslason á um 20%, en aðrir eigendur eru smærri. Fyrirtækið velti á milli 7 og 800 milljónum á liðnu ári. Það á einnig stærstu verslun bæjarins, Tangann (Gunnar Ólafsson hf.). Vinnslustöðin á útgerðar- félagið Knörrinn sem gerir út ísfisktogarann Breka og fimm báta. '~~'i < ' FISKIÐJAN: Sæhamar hf. á þriðjung fyrirtækisins og þeir Guðmundur Karlsson, framkvæmdastjóri Fiskiðjunnar og Haraldur Gíslason eiga 15-20% hvor. Velta fyrir- tækisins á sl. ári var á milli 5 og 600 milljónir. Fyrirtækið á togarana Klakk og Sindra. að ræða. „Eina sem gerist hjá mér við minnkandi afla, er að útflutn- ingur minnkar. Það er algjör gi-und- vallarregla hjá okkur að sjá til þess að frystihúsið hafi nægt hráefni. ísfélag Vestmannaeyja gæti unnið meiri afla en nú er gert, en til þess vantar þá mannskap. Ef við lifum ekki af núverandi rekstri, þá verð- um við að reyna að komast yfir meiri afla,“ segir Magnús. Hann virðist eiga sér skoðanabróður á þessu sviði, þar sem er Bjarni Sig- hvatsson, stjórnarformaður Vinnsl- ustöðvarinnar og Fiskimjölsverk- smiðjunnar. „Kvótakaup eru eina fjárfestingin sem skiptir máli,“ seg- ir Bjami og upplýsir að Vinnslustöð- in hafí á þriggja ára tímabili keypt um 5 þúsund tonn af kvóta. „Kvót- inn er það eina sem einhvers virði er í dag. Ég lít á þetta dót í landi sem einskis virði.“ Björn Úlfljótsson, framkvæmda- stjóri Vinnslustöðvarinnar, segir forsvarsmenn Vinnslustöðvarinnar fúsari nú en áður til að ræða sam- starfs- og sameiningarmöguleika við önnur fyrirtæki í Eyjum. Nýleg skýrsla Hafrannsóknastofnunar veki menn vissulega til umhugsun- ar, en hann, eins og þeir Bjarni og Magnús, bendir á að svigrúmið til hagræðingar sé ósköp takmarkað, þar sem ekki verði svo auðveldlega losað um eignir. Fjöregg þjóðarinnar Guðmundur Karlsson, fram- kvæmdastjóri Fiskiðjunnar og stór hluthafi í fyrirtækinu, segir að mið- að við aðstæður í dag, sé engin spurning að menn verði að fækka skipum, hagræða innan fyrirtækj- anna ef unnt er, eða þá að fækka einingunum „hvort sem það er gert með því að láta einhver fyrirtæki fara á hausinn eða sameina fyrir- tæki“, segir Guðmundur. Hann tel- ur vera þörf á því fyrir íslendinga að byggja upp fleiri stór sjávarút- vegsfyrirtæki og telur að sameina beri einhver fyrirtæki í Eyjum. „Við áttum í fyrra í viðræðum bæði við ísfélag Vestmannaeyja og Vinnslustöðina, en því miður leiddu þær ekki til jákvæðrar niðurstöðu. Við í þessu fyrirtæki höfum lengi verið þeirrar skoðunar að sameina bæri fyrirtæki hér í Eyjum,“ segir Guðmundur. Sæhamar hf. á þriðjung í Fiskiðj- unni og keypti hlut sinn fyrir þrem- ur árum. Mér var sagt í Vestmanna- eyjum að aðrir eigendur Fiskiðjunn- ar hefðu gert sér vonir um að aðild Sæhamars að fyrirtækinu myndi tryggja að þátar í eigu Sæhamars legðu upp hjá Fiskiðjunni. Þær von- ir hefðu brugðist, þar sem eigendur Sæhamars legðu upp hjá Fiskiðj- unni bara eftir hentugleikum og þá á uppsprengdu verði. Annars sigldu þeir mikið með aflann eða færu með fisk á markað í Reykjavík. Ég spurði Guðmund hvað hann segði um þessa gagnrýni margra Eyjamanna á Sæhamar: „Við bjuggumst náttúriega við því að það kæmi þó nokkur afli til Fiskiðjunn- ar frá Sæhamarsbátunum, því er ekki að neita. En þetta eru náttúr- lega einstaklingar, hver með sinn bát. Auðvitað eru þeir eins og geng- ur og gerist skuldugir og berjast þannig fyrir lífi sínu. Því geri ég ráð fyrir að það sjónarmið ráði hjá þeim að selja aflann þar sem þeir fá best verð fyrir hann á hverjum tíma,“ segir Guðmundur. Hann segir að þetta vandamál sé alls ekki einskorðað við eigendur Sæhamars. „Þetta er sjónarmið okkar íslendinga í sambandi við sjávarútveginn. Menn hugsa' bara til dagsins í dag og hafa engin lang- tímasjónarmið. Ég á von á því að við íslendingar getum skaðast af því og tel reyndar að við höfum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.