Morgunblaðið - 24.07.1991, Page 4
4
f:i Í.lH H ! ,1 |,/i 0HÖA.1&WJW1OM
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1991
Hjúkrunarheimilið Eir:
12 tilboð bárust
í þriðja áfanga
TÓLF tilboð bárust í þriðja áfanga byggingar Hjúkrunarheimilisins
Eirar við Gagnveg í Grafarvogi. Lægsta boð átti Fjarðarmót hf., sem
bauð um 165,6 milljónir króna eða 72% af kostnaðaráætlun en hún er
um 230,5 milljónir króna. Að sögn Sigurðar H. Guðmundssonar form-
anns byggingarnefndar, er heimilið ætlað 100 sjúklingum og er reikn-
að með að kostnaður við hvert rúm fullbúið verði svipaður og á Hjúk-
runarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi, í Skjóli og á Hrafnistu í
Hafnarfirði.
í þriðja áfanga er gert ráð fyrir
uppsteyptu húsi og fullfrágengnu að
utan en byggingin er um 7.200 fer-
metrar á fjórum hæðum. Næst
lægsta boð átti Ármannsfell hf. sem
bauð um 169,6 millj. eða 74% af
kostnaðaráætlun, þá Öm Úlfar
Andrésson, sem bauð um 171,7 millj.
eða 75% af kostnaðaráætlun, Sig-
urður K. Eggertsson, sem bauð
um 174,5 millj. eða 76% af kostn-
aðaráætlun, Byrgi sf., sem bauð
um 179,8 millj. eða 77% af kostn-
aðaráætiun og Álftárós hf. sem
bauð um 184,5 millj. eða 80% af
kostnaðaráætlun.
Sveinbjöm Sigurðsson bauð um
185,5 millj. eða 81% af kostnaðará-
ætlun, Hagvirki, Klettur hf. bauð um
188,8 miilj. eða 82% af kostnaðará-
ætlun, Eykt sf., sem bauð um 196,4
millj. eða 85% af kostnaðaráætlun,
Byggðaverk hf. sem bauð um 198,6
millj. eða 86% af kostnaðaráætlun,
Álfaborg hf. sem bauð um 200,5
millj. eða 87% af kostnaðaráætlun
og Reisir sf., sem bauð um 203 millj.
eða 88% af kostnaðaráætlun.
Gert er ráð fyrir að framkvæmdir
hefjist nú þegar og að tekið verði á
móti fyrstu sjúklingunum í septemb-
er á næsta ári.
Morgunblaðið/Bjarni
Lokið hefur verið við grunn að Hjúkrunarheimilinu Eir við Gagnveg í Grafarvogi. Í gær voru opnuð tilboð
í þriðja áfanga heimilisins og bárust tólf tilboð.
VEÐURHORFUR í DAG, 24. JÚLÍ
YFIRLIT: Yfir N-írlandi er 998 mb lægð sem þokast austur en
1025 mb hæð yfir Grænlandi. 800 km suður af Hvarfi er 995 mb
lægð sem þokast austur.
SPÁ: Austlæg eða norðaustlæg átt, yfirleitt fremur hæg. Skýjað
um mestalit land og víða dálítil rigning öðru hverju, einkum norð-
vestantil á landinu og á Austurlandi. Hiti 9-15 stig, hlýjast á Suð-
vestur- og Vesturlandi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FIMMTUDAG OG FÖSTUDAG: Fremur hæg austlæg
átt og hlýtt um vestanvert iandíð. Skýjað og dálítil súld um austan-
vert landið en annars þurrt.
Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TÁKN:
Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
/ Norðan, 4 vindstig:
' Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
/ / •/
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■J Q" Hitastig:
10 gráður á Celsíus
SJ Skúrir
*
V E'
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
JT Þrumuveður
m / VEÐUR VÍÐA UM HEIM k\. 12:00 í gær að ísl. tíma hlti veAur Akureyri 11 alskýjað Reykjavík 13 rígning
Bergen 16 skýjað
Hefsinki 20 skýjað
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Narssarssuaq 17 hálfskýjað
Nuuk 9 hálfskýjað
Ósló 19 skýjað
Stokkhólmur 20 léttskýjað
Þórshöfn 11 rigning
Algarve 24 helðskírt
Amsterdam 25 léttskýjað
Barcelona 28 léttskýjað
Berlfn 22 léttskýjað
Chicago 22 skýjað
Feneyjar 28 heiðskfrt
Frankfurt 28 léttskýjað
Glasgow 18 rígning
Hamborg 21 léttskýjað
London 26 skýjað
LosAngeles 17 alskýjað
Luxemborg 27 heiðskýrt
Madríd 33 iéttskýjað
Malaga 26 heiðskfrt
Mallorca 31 léttskýjað
Montreal 17 alskýjað
NewYork 28 mistur
Orlando vantar
París 3ð léttskýjað
Madelra 23 skýjað
Róm 30 heiðskírt
V/n 25 hálfskýjað
Washington 27 þokumóða
Winnipeg 14 léttskýjað
Nefnd móti stefnu
í fangelsismálum
ÞORSTEINN Pálsson dóms-
málaráðherra hefur ákveðið að
skipa nefnd til þess að gera til-
lögur um stefnumörkun í fang-
elsismálum og fara yfir valkosti
í því efni. Er við það miðað að
tillögur nefndarinnar liggi fyrir
í lok marz 1992, þannig að unnt
verði að taka tillit til tillagn-
anna við fjárlagagerð fyrir árið
1993.
I nefndinni eru: Haraldur Jo-
hannessen, forstjóri Fangelsismál-
astofnunar, formaður, Erlendur
Baldursson, afbrotafræðingur,
Björk Bjarkadóttir, fangavörður,
Gústaf Lilliendahl, forstjóri Litla-
Hrauns, Guðmundur Þór Guð-
mundsson frá dómsmálaráðuneyti
og Jón H. Steingrímsson frá fjár-
málaráðuneyti.
Nefndin er skipuð í framhaldi
af bráðabirgðaskýrslu sem Har-
aldur Johannessen hefur samið,
en dómsmálaráðherra óskaði eftir
skýrslu hans um efnið í framhaldi
af umræðum um fangelsismál,
m.a. vegna stroks úr fangelsum.
í skýrslunni kemur fram að ýms-
um þáttum húsnæðismála fang-
elsa, aðstöðu til starfsemi þeirra
og aðbúnaði fanga er verulega
ábótavant, að því er segir í frétt
frá dómsmálaráðuneytinu.
Jón Steffensen
fv. prófessor látinn
JÓN Steffensen fv. prófessor lést
21. júlí sl. 86 ára að aldri.
Jón Steffensen fæddist 15. febr-
úar árið 1905 í Reykjavík, sonur
hjónanna Valdimars Steffensen
læknis á Akureyri og Karenar fædd
Larsen. Hann varð stúdent frá
Menntaskólanum í Reykjavík árið
1924 og lauk prófi í læknisfræði
frá Háskóla íslands árið 1930.
Hann stundaði framhaldsnám í
Björgvin og Kaupmannahöfn árið
1930 og 1932, síðan í Miinchen á
árunum 1935 til 1936 og aftur í
Kaupmannahöfn árið 1936 til 1937.
Enn fremur í London og Edinborg
árið 1937.
Jón varð staðgengill héraðslækn-
isins í Miðfjarðarhéraði árið 1930
til 1932 og settur héraðslæknir þar
um hríð. Hann var starfandi læknir
á Akureyri árið 1934 og 1935 og
prófessor við læknadeild Háskóla
Islands frá árinu 1937 til 1970 en
kenndi læknanemum áfram líffræði
til haustsins 1972.
Jón var settur tryggingayfir-
læknir um tíma árið 1943, hann sat
í stjórn Læknafélags Akureyrar
árið 1935 og í stjórnarnefnd ríkissp-
ítalanna á árunum 1959 til 1973.
Hann var formaður Hins íslenska
fornleifafélags á árunum 1961 til
1978, formaður Félags áhuga-
manna um sögu læknisfræðinnar
frá stofnun þess 18. desember árið
1964, félagi í Vísindafélagi íslend-
inga frá árinu 1942 og forseti þess
árin 1953 til 1955.
Hann var kjörinn bréfafélagi í
Svenska Lákarsallskapets Medic-
insk-Historiska Sektion, kjörinn
heiðursfélagi í Dansk medicinsk-
historisk Selskab og sæmdur dokt-
orsnafnbót í Iæknisfræði við Há-
skóla íslands. Jón hlaut heiðurs-
verðlaun úr Verðlaunasjóði Ásu
Guðmundsdóttur Wright árið 1975,
hann varð heiðursfélagi í Læknafé-
lagi Akureyrar árið 1978 og heið-
ursfélagi Hins íslenska fomleifafé-
lags árið 1980.
Jón ritaði fjölda greina um sögu
læknisfræðinnar og fjölda ritgerða
í Læknablaðið auk greina í innlend
og erlend tímarit, einkum í Samtíð
og sögu, Skfmi og Árbók fornleifa-
félagsins.
Kona Jóns var Kristín Björns-
dóttir frá Mýrarhúsum á Seltjamar-
nesi. Hún lést árið 1972.