Morgunblaðið - 24.07.1991, Page 18
18
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1991
Suður-Afríka:
Búist við afsögn
þriggja ráðherra
Jóhannesarborg. Reuter, The Daily Telegraph.
RÍKISSTJÓRN Suður-Afríku kom saman til fundar á leynilegjim stað
í gær til að ræða hvernig bregðast ætti við uppljóstrunum um að stjórn-
völd hefðu stutt fjárhagslega við bakið á Inkatha-frelsisflokki Zulu-
manna. Kom fjármagnið úr leynilegum sjóði sem í voru 300 milljónir
randa, eða um 6,5 milljarðar íslenskra króna. Inkatha hefur átt í blóðug-
um átökum við Afríska þjóðarráðið (ANC).
Miklar líkur eru taldar á því að Botha en á blaðamannafundi með
allt að þrír ráðherrar verði að segja Gareth Evans, utanríkisráðherra
af sér vegna málsins. Þar ber fyrst
að nefna Adrian Vlok, ráðherra lög-
reglumála, en einnig Pik Botha ut-
anríkisráðherra og Magnus Malan
varnarmálaráðherra. Uppljóstranirn-
ar eru sérstaklega óþægilegar fyrir
Suður-Afríka:
Fjöldi hvítra
vill á brott
Jóhannesarborg. Reuter.
LÍKUR eru á því að allt að 250
þúsund hvitir Suður-Afríkumenn
flytji úr landi á næstu fimm árum,
samkvæmt könnun markaðsrann-
sóknafyrirtækisins Market Rese-
arch Africa.
Clive Corder, stjórnarformaður
markaðsrannsóknafyrirtækisins,
segir slæmt efnahagsástand og óljós
pólitísk framtíð Suður-Afríku valdi
því að svo margir hvítir Suður-
Afríkumenn hyggist flytja úr landi.
Önnur könnun hafi einnig leitt í ljós
að tekjur stórs hluta hvítra manna
í Suður-Afríku séu lágar og eignir
mjög litlar.
Samkvæmt opinberum tölum
fluttu 1.135 manns frá Suður-Afríku
í fyrra og voru það aðallega hvítir
menn.
Ástralíu, í síðasta mánuði, vísaði
hann fréttum í áströlskum fjölmiðl-
um um fjárstuðning við Inkatha á
bug.
Afríska þjóðarráðið hefur lýst því
yfir að því nægi ekki afsögn ein-
stakra ráðherra og krefst víðtækrar
opinberrar rannsóknar á greiðslum
úr leynisjóðum. Er mál þetta talið
geta stefnt samningaviðræðum
stjórnarinnar og ANC í hættu.
Peter Wronsley, ríkisendurskoð-
andi Suður-Afríku, greindi á mánu-
dag frá því að til að ná fé út úr hin-
um leynilega sjóð þyrfti undirskriftir
jafnt forseta landsins, F.W. de
Klerks, sem og fjármálaráðherrans
Barends du Plessis.
Aurskriða úrPinatubo
Reuter
íbúi Santa Rita, þorps á Filippseyjum, reynir að grafa
upp vélhjól sitt úr eðju í gær. Allir íbúar þorpsins
þurftu að fara þaðan eftir aurskriðu úr eldfjallinu
Pinatubo á dögunum.
Friðarumleitanir Bandaríkjastjórnar í Mið-Austurlöndum:
Ráðgjafí Shamirs segir margt
geta hindrað friðarráðstefnu
Jerúsalem, Kuala Lumpur. Reuter.
YOSSI Ben-Aharon, nánasti ráð-
gjafi Yitzhaks Shamirs, forsætis-
ráðherra ísraels, gerði í gær lítið
Keuter
Píslarvættis Husseins minnst
Shíti ber sjálfan sig með keðju og hnífi i Nýju Delhí í gær er múslim-
ar minntust píslarvættis sonarsonar Múhameðs spámanns, Husseins.
úr vangaveltum um að Israelar
myndu láta undan þrýstingi frá
Bandaríkjastjórn og fallast á til-
lögu hennar varðandi ráðstefnu
um frið í Mið-Austurlöndum.
Ben-Aharon hefur _ávallt risið
öndverður gegn því að ísraelar gefi
hernumin svæði sín eftir til að
tryggja frið. Hann sagði að Banda-
ríkjastjórn hefði ekki enn leyst
ýmis vandamál, sem gætu staðið í
veginum fýrir friðarráðstefnu. Hún
hefði til að mynda ekki veitt svör
við því hverjir yrðu fulltrúar Pal-
estínumanna á ráðstefnunni. Hann
ítrekaði þá afstöðu ísraelsstjórnar
að ekki kæmi til greina að ræða
við fulltrúa Frelsissamtaka Pal-
estínu (PLO) og íbúa Austur-Jerú-
salem, sem ísraelar segja hluta af
ísrael.
James Baker, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, ræddi við Pal-
estínumenn frá hernumdu svæðun-
um og Austur-Jerúsalem í fimmtu
friðarför sinni til Mið-Austurlanda,
sem lauk á mánudag. Þeir áréttuðu
að ekki kæmi til greina að friðarráð-
stefna yrði haldin án fulltrúa frá
PLO og Austur-Jerúsalem. Ben-
Aharon sagði að Bandaríkjamenn
væru að íhuga möguleikann á því
að Jórdanir og Palestínumenn yrðu
með sameiginlega sendinefnd á ráð-
stefnunni.
Fréttaskýrendur í ísrael telja að
erfitt verði iyrir Shamir að hafna
friðarráðstefnu og hætta á að skaða
mikilvæg tengsl Israela við Banda-
ríkjamenn. Búist er við að ísraels-
stjóm óski eftir tíu milljarða dala
láni frá Bandaríkjamönnum í sept-
ember til að standa straum af
kostnaði vegna innflutnings sov-
éskra gyðinga til landsins.
Nokkrir fréttaskýrendur telja að
Shamir fallist á ráðstefnu en reyni
að tryggja að Israelar þurfi ekki í
raun að fallast á neinar tilslakanir.
James Baker sagði í gær að ísra-
elum hefði ekki verið veittur neinn
ákveðinn frestur til að svara tillögu
Bandaríkjastjórnar. ísraelar ættu
að fallast á friðarráðstefnu sem
fyrst og síðar yrði deilan um aðild
Palestínumanna leyst í samráði við
þá.
Rauði herinn í Ungveijalandi:
Mikil náttúruspjöll
Búdapcst. Reuter.
SOVÉSKAR hersveitir ollu mikl-
um umhverfisspjöllum í Ungverja-
landi á þeim árum sem þær voru
þar í landi, að sögn Erno Kiss, sem
starfar í umhverfis- og þróunar-
málaráðuneyti Ungverjalands.
Opinbera. fréttstofan MTI hafði
eftir Kiss í gær að á síðustu 35 árum
hefðu sovéskar hersveitir mengað
40% af grunnvatni landsins og valdið
spjöllum sem metin eru á um 50
milljarða ISK. Síðustu sovésku her-
sveitimar fóra frá Ungveijalandi
þann 19 júni sl., eftir rúmlega fjög-
urra áratuga vera þar.
Kiss sagði að eins metra steinolíu-
lag flyti ofan á grunnvatni nálægt
sovéska herflugvellinum Tokol, og
að það myndi menga vatnsbirgðir í
Búdapest ef ekki yrði gripið til
skjótra aðgerða.
Sovésku hersveitirnar skildu einn-
ig eftir sig 750.000 rúmmetra af
menguðum jarðvegi og 72.000 rúm-
metra af byggingarústum og hættu-
legum úrgangsefnum sem grafín eru
í jörðu.
Þýska tímaritið Der Spiegel:
Stasi skipulagði fyrirspum-
ir á norrænum þjóðþmgum
TVEIR fyrruin starfsmenn
austur-þýsku öryggislögreglunn-
ar Stasi, Giinter Bohnsack og
Herbert Brehmer, segja í grein
í síðasta hefti þýska tímaritsins
fíer Spiegel að Stasi hafi skipu-
lagt gagnrýnar fyrirspurnir á
danska og norska þinginu til að
reyna að reka fleyg milli þessara
landa og Bandaríkjanna.
Stasi-mennirnir fyrrverandi
segja að í gangi hafí verið aðgerð
sem bar heitið „Flanke“ og beindist
aðallega gegn ríkjum nyrst og syðst
á varnarsvæði Atlantshafsbanda-
Iagsins (NATO). Hafí oft tekist að
fá Iítil NATO-ríki til að rísa upp
gegn Bandaríkjunum, t.d. með fyrr-
nefndum fyrirspurnum.
Þessar aðgerðir Stasi beindust
einnig gegn Svíþjóð en þar var í
gangi langtímaaðgerð undir nafn-
inu „Trójuhesturinn" sem hafði það
að markmiði að grafa undan trausti
konungsfjölskyldunnar. Var það
gert með því að birta upplýsingar
um samskipti hennar við stjórn
nasista í Þýskalandi á stríðsáran-
um.
Sá sem skipulagði þá rógsherferð
var kommúnisti að nafni Kurt Vie-
weg en hann var prófessor í
Greifswald í Austur-Þýskalandi.
Austur-þýsk tjórnvöld ákváðu að
Ieggja „Trójuhestinn" á hilluna um
miðjan áttunda áratuginn þar sem
konungsfjölskyldan var talin vera
orðin nokkuð „framsækin" og menn
vildu ekki spilla samskiptum við
hana í framtíðinni.
Þá kemur m.a. fram í greininnni
að Stasi sá um að útvega friðar-
hreyfingunni í Belgíu ýmis konar
upplýsingar og einnig var á sínum
tíma reynt að láta líta út fyrir að
tengsl væru á milli vestur-þýsku
leyniþjónustunnar BND og herfor-
ingjastjórnarinnar í Grikklandi til
að koma óorði á vestur-þýsk stjórn-
völd.
Danmörk:
Vilja banna
aukastörf
með lögum
Kaupmannahöfn. Frá NJ.Bruun,
fréttariiara Morgunblaðsins.
ÞEGAR danska þingið kem-
ur saman að nýju ætla jafnað-
armenn að leggja til, að
bannað verði með lögum að
gegna fleiri en einu starfi.
Segja þeir, að með því megi
draga allnokkuð úr atvinnu-
leysinu I Danmörku.
Dagblaðið Det fri Aktuelt
hefur það eftir Jytte Andersen,
talsmanni jafnaðarmanna í
málefnum vinnumarkaðarins,
að það sé til skammar gagn-
vart þeim, sem eru atvinnulaus-
ir, þegar kennari eða lögreglu-
þjónn svo einhveijir séu nefndir
hafa annað starf með höndum
í frítímanum, til dæmis leigu-
bílaakstur. Vilja jafnaðarmenn
setja skorður við þessu og
þrengja enn meir að yfirvinn-
unni en nú er gert.