Morgunblaðið - 24.07.1991, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1991
29
dóttur Valgerði og öðrum ástvinum
vottum við hjónin innilega samúð
með þökk fyrir vináttu og tryggð
í samfylgd um langan veg.
Grímur Grímsson
Það er ætíð erfitt að sætta sig
við dauðann og þá sérstaklega þeg-
ar hann hefur á brott með sér ein-
hvern sem manni þykir vænt um.
Jafnvel þó að það sé vitað að heim-
sókn hans verði ekki umflúin og í
raun eingöngu tímaspursmál, er
áfallið við komu hans mikið.
Þórður Kristjánsson kvaddi þenn-
an heim að morgni sunnudagsins
14. júlí og lagði af stað þangað sem
þreyttir og þjáðir öðlast eilífan frið.
Mér finnst ekki þurfa að tíunda
hvaða mann Þórður hafði að geyma.
Þeir sem hann þekktu vita innra
með sér hve mikill mannkostamað-
ur hann var.
Sem faðir vinkonu minnar, var
hann alltaf sérstaklega hlýr í við-
móti við mig og hann var vanur
að taka á móti mér með þessum
orðum þegar ég kom í heimsókn:
„Jóhanna, komdu fagnandi.“ Síðan
var spjallað um daginn og veginn
og hann leitaði frétta af mínum
nánustu og lífinu í kringum mig. Á
þennan hátt fylgdist hann með
manni gegnum árin.
Létt lund og elskulegt viðmót var
hans prýði og því tel ég að Þórður
vilji láta minnast sín í gleði en ekki
sorg.
Og þannig man ég hann.
Ég man eftir honum sitjandi í
rólegheitum í stólnum sínum með
ilmandi vindil og bók í hendi eða
hlustandi á útvarpið (stundum hvort
tveggja).
Eg minnist hans þegar hann,
þolinmóður að vanda, gerði sitt ýt-
rasta til að kenna mér og dóttur
sinni almennilega spilamennsku, en
við stöllumar voru engir fyrirmynd-
arnemendur. Ég kalla fram minn-
inguna um Þórð þar sem hann kem-
ur úr veiðiferð sæll og glaður, en
laxveiðar voru eitt af því sem hann
hafði svo gaman af.
Já, svona ætla ég að muna Þórð,
eins og hann í rauninni alltaf var.
Líkaminn var að sönnu þreyttur
og honum fjötur um fót í lokin, en
sálin sú hin sama.
Hafi Þórður þökk fyrir allt og
allt. Hans bíður einhver handan
móðunnar miklu og tekur á móti
honum með hans hlýju orðum:
„Komdu fagnandi."
Jóhanna Gunnarsdóttir
Það eru nú liðin næstum því
þijátíu ár síðan kynni okkar Þórðar
Kristjánssonar hófust. Á þeim árum
var ég yfirverkstjóri við Áhaldahús
Reykjavíkurborgar og áttum við þá
samskipti á ýmsum sviðum sem
leiddu til vaxandi kynni og einlægr-
ar vináttu.
Þórðu var vissulega vinur vina
sinna eins og fram kom þegar ég
stóð í erfiðu máli þar sem að mér
var sótt úr ýmsum áttum óg síðar
í veikindum sem hlutust af slysi sem
ég varð fyrir. Enginn stóð þá fastar
og betur með mér en Þórður og
hann sýndi oft hug sinn í verki með
því að leggja á sig ómælt erfiði til
að greiða úr margvíslegum úrlausn-
arefnum sem hann sinnti og bjarg-
•aði við fyrir mína hönd.
Þórður var framúrskarandi félagi
og glaður og reifur á góðri stund.
Margar eru þær minningarnar sem
ég á frá veiðiferðum okkar í Hvalsá
á Ströndum og víðar þar sem hann
jafnan var hrókur alls fagnaðar.
Um allmörg ár nú í seinni tíð'tók
heilsu hans að hraka og hann þurfti
margsinnis að leggjast inn á sjúkra-
hús til að gangast undir læknisað-
gerðir. Þó gat hann lengst af dval-
ist mestmegnis heima þar sem hann
hafði ferlivist framundir það
síðasta. Hvort sem hann var heima
eða á sjúkrahúsi þegar ég heim-
sótti hann var hann ávallt hlýr í
bragði og miðlaði af vináttu sinni
og góðvild þannig að mér fannst
ég hveiju sinni fara af fundi hans
auðugri en ég kom.
Hugheilar samúðarkveðjur flyt
ég konu hans, Ásdísi og Valgerði
dóttur þeirra með þakklæti fyrir
allar ánægjustundirnar sem ég átti
á heimili Þórðar og þeirra.
Blessuð sé minning Þórðar
Kristjánssonar.
Reynir Þórðarson
í dag kveðjum við Þórð Kristjáns-
son kennara, Sporðagrunni 5,
Reykjavík. Hann andaðist í Land-
spítalanum 14. júlí sl. og fer útför
hans fram í dag frá Áskirkju, kirkj-
unni sem hann átti svo mikinn þátt
í að byggja. Ég veit, að aðrir munu
gera þeim þætti skil.
Leiðir okkar Þórðar lágu saman
í Laugarnesskóla, en þar kenndi
hann kristin fræði í nokkur ár.
Þórður hafði lagt stund á kristin
fræði sem aðalgrein við Kennarahá-
skólann í Kaupmannahöfn 1949-
1950. Námstjóri í kristnum fræðum
í Reykjavík var hann 1961-1966.
Þórður tók saman Biblíusögur fyrir
barnaskóla, ásamt Steingrími Bene-
diktssyni.
Þórður var vinsæll kennari. Hann
hafði lag á að gera kennsluna lif-
andi og fjölbreytta. Ég minnist þess
hve nemendum í Laugamesskóla
þótti skemmtilegt í kristinfræði-
tímunum hjá Þórði.
Fáum hef ég kynnst, sem hafa
verið jafn dagfarsprúðir og góðvilj-
aðir og Þórður Kristjánsson. Hann
lagði jafnan gott til málanna og
reyndi að finna friðsamlega lausn
á deilumálum. Áhugi hans á félags-
málum og almennum þjóðmálum
var mikill og þar voru honum falin
ýmis trúnaðarstörf. M.a. var hann
nær óslitið í stjórn Sambands
íslenskra barnakennara frá 1952-
1974 og vann þar af miklum áhuga
og einlægni að málefnum stéttar-
innar.
Þórður hafði ekki þann hátt á
að láta mikið á sér bera í ræðu eða
riti, enda vinnast mál sjaldan frekar
með því móti. Það er hið þögla,
hljóðláta starf, sem unnið er í kyrr-
þey að tjaldabaki er oft ber mestan
árangur. Á þann hátt starfaði Þórð-
ur og lagði þannig mörgu góðu
máli lið.
Eins og áður hefur komið fram-
vorum við Þórður um nokkurra ára
skeið samkennarar við Laugar- nes-
skólann og frá þeim tíma hélst jafn-
an okkar vinátta og kunningsskap-
ur, þó að við störfuðum ekki á sama
vinnustað. En nánust kynni og
tengsl tókust með okkur síðustu
starfsár Þórðar á Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkurumdæmis í Tjarnargötu
20 og Austurstræti 14. Við vorum
þar báðir í hlutastarfi.
Þegar fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur var skipt í tvennt 1984,
í Skólaskrifstofu Reykjavíkur og
Fræðsluskrifstofu Reykjavíkurum-
dæmis, þá kom Þórður til starfa á
Fræðsluskrifstofunni að Tjarnar-
götu 20, þar sem skrifstofan var
fyrst til húsa. Þórður hafði þar
umsjón með sjúkrakennslu í Borg-
inni eins og hann hafði gert í fjölda-
mörg ár.
Ég tel að það hafi verið lán fyrir
Fræðsluskrifstofuna að Þórður
skyldi starfa þar eftir skiptinguna.
Hann gjörþekkti alla málavexti og
var tillögugóður og raunsær. Einnig
var hann afar samviskusamur og
vandvirkur í öllu sínu starfi.
Á Fræðsluskrifstofunni áttum við
Þórður margar ógleymanlegar sam-
verustundir. Við ræddum af mikilli
einlægni og alvöru um vandamál,
sem við var að glíma. Báðir höfðum
við mikinn áhuga á þjóðmálum og
veltum oft vöngum yfir stöðu
þeirra. Sjónarmið okkar voru að
flestu leyti svipuð. Við vorum ótrú-
lega sammála um margt, þó að við
skipuðum okkur hvorn í sínn stjórn-
málaflokk.
Að leiðarlokum þakka ég Þórði
fyrir einlæga vináttu og ágætt sam-
starf á liðnum árum. Með honum
er genginn vandaður, góður dreng-
ur.
Blessuð sé minning Þórðar
Kristjánssonar.
Ásdísi, Valgerði, systkinum og
öðru venslafólki sendi ég samúðar-
kveðjur.
Þorsteinn Ólafsson
Kveðjuorð:
Gísli Sigurðs-
son ,Seyðisfirði
Fæddur 26. júní 1926
Dáinn 14. júlí 1991
Frétt um andlát Gísla Sigurðs-
sonar kom mér á, óvart. Ég hafði
brugðið mér úr byggð og las um
andlátið í blöðum á útfarardaginn.
Með honum er genginn einn af sam-
ferðamönnunum, sem skiljaeftirsig
spor. Gísli var næmur, þekkti vel
umhverfi sitt og fýlgdist náið með
hræringum í landsmálum. Þyrftu
menn að fræðast um gang atvinnu-
lífs og almannahag á Seyðisfirði
var óhætt að treysta Gísla. Vegna
starfa sinna kynntist hann hvoru
tveggja náið. Þar við bættist eðlis-
læg góðvild hans og samstaða með
þeim sem höllum fæti standa í
lífsbaráttunni.
Hann var einlægur sósíalisti og
vinstri maður í lífsskoðun. Þeirri
sannfæringu fylgdi hann eftir í
starfí á félagsvettvangi. Hann tók
virkan þátt í starfi Alþýðubanda-
lagsins á Seyðisfirði allt frá stofnun
þess. I-tvö kjörtímabil, 1966-1974,
sat hann í bæjarstjórn Seyðisfjarðar
sem fulltrúi Álþýðubandalagsins og
varabæjarfulltrúi var hann 1982-
1986. Hann starfaði mikið í nefnd-
um á vegum Seyðisfjarðarkaup-
staðar og naut almennrar virðingar
óháð því hvort menn voru samheij-
ar hans eða andstæðingar í stjóm-
málum. Þess utan vann Gísli mikið
að félagsmálum, m.a. í Lionsklúbbi
Seyðisfjarðar.
Ég kynntist Gísla og konu hans,
Guðborgu Sigtryggsdóttur, fljót-
lega eftir að ég byrjaði að starfa
sem liðsmaður innan Alþýðubanda-
lagsins á Austurlandi. Leiðir okkar
lágu saman í heimsóknum mínum
til Seyðisfjarðar og á fundum kjör-
dæmisráðs, þar sem Gísli var oft
fulltrúi. Ég held hann hafi verið
hlédrægur að eðlisfari, en þegar
hann kvaddi sér hljóðs lögðu menn
við hlustir. í fari hans blönduðust
saman alvara og græskulaus kímni.
Alltaf var gott til hans að leita og
á það reyndi oft í störfum mínum
sem þingmanns. Áhugi hans og
áhyggjur beindustu mjög að at-
vinnumálum í heimabyggðinni.
Þekking hans á sjávarútvegi var
náin, bæði sem sjómanns fyrr á
árum og síðar sem bókhaldará með
yfirsýn yfír sveiflur í afkomu fólks
og fyrirtækja.
Gísli sat um árabil í yfírkjörstjórn
Austurlandskjördæmis tilnefndur
af Alþýðubandalaginu og var end-
urkjörinn af Alþingi í það trúnaðar-
starf síðastliðið vor. Síðasta samtal
okkar tengdist einmitt ósk minni
um að hann gegndi því áfram. Með
fráfalli Gísla sjáum við félagar hans
á bak góðum og ósérhlífnum liðs-
manni.
Gísli er dæmi um atorkumann
sem skilar miklu ævistarfi þrátt
fyrir að hann gengi ekki alltaf heill
til skógar. Þeim málum flíkaði hann
ekki út á við, en eigin þrautseigja
og stuðningur konu hans og mann-
vænlegs barnahóps þeirra dugðu
honum vel til loka.
Öllum hans nánustu sendi ég
samúðarkveðjur.
Hjörleifur Guttormsson
Ferðamála-
ráðstefna í
Hveragerði
21. ferðamálaráðstefna Ferða-
málaráðs verður haldin á Hótel
Örk í Hveragerði, dagana 10. og
11. október nk.
Fyrsta ferðamálaráðstefnan var
haldin árið eftir stofnun Ferðamála-
ráðs 1965 á Þingvöllum. Ferðamála-
ráðstefnan er opin öllu áhugafólki
um ferðamál og hefur aðsókn að
henni aukist mikið á undanfömum
árum samfara miklum vexti ferða-
þjónustunnar, segir í frétt frá Ferða-
málaráði íslands.
Á ferðamálaráðstefnum eru tekin
fyrir og rædd þau mál sem efst eru
á baugi hveiju sinni í atvinnugrein-
inni, auk þess sem ýmis hagsmuna-
mál ferðaþjónustu eru til umræðu.
Ferðamálaráðstefnan 1991 verður
sett af Halldóri Blöndal, samgöngu-
ráðherra, kl. 10 fimmtudaginn 10.
október og að loknu ávarpi formanns
Ferðamálaráðs, Kristínar Halldórs-
dóttur, verða flutt 3 framsöguerindi.
1. Ferðaþjónusta og umhverfis-
mál: Eiður Guðnason, umhverfisráð-
herra.
2. Breytingar í ferðaþjónustu í
Evrópu innan EFTA/EB: Dr. Klaus
Lukas, ferðamálastjóri Austurríkis.
Dr. Lukas hefur tekið mjög virkan
þátt í undirbúningi samninga
EFTA/EB hvað varðar ferðaþjón-
ustu.
3. Ferðaþjónustan utan háanna-
tíma: Helgi Jóhannsson, formaður
Félags íslenskra ferðaskrifstofa.
Þessi aðalumræðuefni verða síðan
rædd í hópum síðdegis og að morgni
11. október.
Að því loknu fara fram almennar
umræður um ferðamál og afgreiddar
verða ályktanir ferðamálaráðstefn-
unnar. (Fréttatilkynning)
Dl Dictaphone
A Pitney Bowes Company
• Gæðatækitil hljóðupptöku,
afspilunar og afritunar • Fagleg
hönnun • Vandaðar upptökur •
val»d
Umboft á Íslandi:
OTTO B. ARNAR HF.
Skipholti 33 ■ 105 Reykjavik
Simar 624631 / 624699
CLASSICA
Gróðurhús fyrir íslenska veðráttu
Níðsterk - formfögur - dönsk hönnun
Heildverslunin SmÍðshÚS - E. Sigurjónsdóttir,
Smiðshús, 225 Bessastaðahreppur, sími 650800.
Myndir sem birtast í Morgunblaðinu,
teknar af Ijösmyndurum blaösins
fást keyptar, hvort sem er
til einkanota eöa birtingar.
UÓSMYNDADEILD
„SALA MYNDA"
Aðalstrœti 6, síml 691150
101 Reykjavík