Morgunblaðið - 24.07.1991, Síða 30
30
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1991
Útför ÞORSTEINS JÓNSSONAR
á Úlfsstöðum,
verður gerð frá Reykholtskirkju föstudaginn 26. júlí kl. 14.00.
Vandamenn.
t
Elskulegur sonur okkar og bróðir,
BARÐI PÁLL ÓSKARSSON,
sem lést af slysförum laugardaginn
13. júlí sl., verður jarðsunginn frá Eyrar-
bakkakirkju laugardaginn 27. júlí kl.
14.00.
Þórunn Vilbergsdóttir, Óskar Magnússon
og systkini hins látna.
t
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð
og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður og
ömmu,
ÞÓRU KEMP,
Ljárskógum 26.
Elsa Kemp, Ólafur E. Ólafsson,
Lúðvfk Kemp,
Bára Kemp, Magnús Axelsson
og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir og amma,
SIGRÍÐUR STEIINIUNN JÓNSDÓTTIR,
Skúlagötu 78,
Reykjavík,
andaðast í Hátúni 10b 23. júlf.
Ragnar Halldórsson,
börn og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
REGÍNA MAGNÚSDÓTTIR
frá Kirkjubóli,
Laugarnesvegi 36,
Reykjavik,
andaðist í Landakotsspítala þann 22. júlí.
Jarðarförin fer fram frá Fíladelfíukirkjunni, Hátúni 2, Reykjavík,
miðvikudaginn 31. júlí kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Trúboðssjóð Fíladelfíu-
safnaðarins.
Ragnar Guðmundsson,
Magnús Ragnarsson,
Sigurlaug Guðnadóttir,
Guðbjörg Ragnarsdóttir,
Garðar Ragnarsson,
Anna Guðjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
HELGA M. S. BERGMANN
listmálara,
Grundarstig 21,
fer fram frá Fossvogskapellu fimmtudaginn 25. júlí kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag (slands.
Guðrún Bergmann, Árni Guðmundsson,
Þórður H. Bergmann, Sigriður Eggertsdóttir,
Páll Helgason, Jónfna Runólfsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
HILMAR GUÐBJÖRNSSON
vélstjóri,
Arnarhrauni 17,
Hafnarfirði,
sem lést fimmtudaginn 18. júlí, verður
jarðsunginn föstudaginn 26. júlí
kl. 13.30 frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði.
Hjördis Guðmundsdóttir,
Helga Hilmarsdóttir, Kristján Kristjánsson,
Elín María Hilmarsdóttir, Sigurður Þórarinsson,
Kristfn G. Hilmarsdóttir, Axel S. Helgason,
Berglind Hrönn Hilmarsdóttir,
Ingvar Hilmarsson
og barnabörn.
Kveðjuorð
j*
Einar Olafsson
Fæddur 1. maí 1896
Dáinn 15. júlí 1991
Mig langar í örfáum orðum að
minnast afa míns, Einars Ólafsson-
ar í Lækjarhvammi, sem lést á Sel-
fossi 15. júlí síðastliðinn.
Hann gaf mér svo margar ánæg-
justundir á samleið okkar. Nú hafa
samverustundir okkar verið rofnar
í bili að minnsta kosti þó svo að
hann hafi ekki haft mikla trú á að
eitthvað kæmi eftir að þessu lífi
lyki, þá vonast ég til að hitta hann
aftur þegar minn tími kemur.
Þegar ég minnist hans kemur
fyrst upp í hugann gleði og þakk-
læti fyrir að hafa fengið að kynn-
ast og alast upp í tengslum við slíka
hetju, sem afi var alla tíð í mínum
augum. Þær stundir sem við áttum
saman þegar ég sem ungur drengur
var í sveit hjá afa og ömmu, að
Lækjarhvammi í Reykjavík og að
Bæ í Kjós, voru mínar sælu stund-
ir. Þegar hann leiddi mig með sínum
stóru og vinnulúnu höndum um tún
og haga að athuga slægjuna eða
reka féð er sveipað ákveðnum ljóma
sem ég einn á mynd af í huga
mér. Síðar þegar hann fluttist aust-
ur á Selfoss, þar sem hann bjó hjá
foreldrum mínum, rifjuðum við upp
þessar sælustundir okkar. Og nú
fengu börn mín að kynnast hetj-
unni minni sem ég hafði verið að
segja þeim frá.
Nú er hann farinn frá okkur til
ömmu, en ég vona að við hittumst
aftur og þá getum við tekið þráðinn
upp að nýju.
Afa þakka ég fyrir allt sem hann
hefur gert fyrir mig og mína fjöl-
skyldu með tilveru sinni. Guð blessi
minningu afa og ömmu.
Einar Jónsson
Mánudaginn 22. júlí var til mold-
ar borinn í Reykjavík Einar Ólafs-
son fyrrum bóndi í Lækjarhvammi.
Einar var fæddur í Flekkudal í Kjós
1. maí 1896, sonur hjónanna Ólafs
Einarssonar, sem var frá Flekku-
dal, og Sigríðar Guðnadóttur, sem
var frá Eyjum í sömu sveit. Einar
var næstelstur 7 systkina og elsti
sonurinn. Ótrúlega snemma tók
Einar að sér trúnaðarstörf á heimil-
inu þar sem faðir hans stundaði sjó
til þess að drýgja tekjurnar, sem
annars hefðu ekki dugað til fram-
færslu fjölskyldunnar í Flekkudal.
Ekki naut Einar mikillar skóla-
göngu á nútíma vísu, en var þó 2
vetur í Mýrarhúsaskóla auk heima-
náms. Aldrei þótti mér skorta neitt
á menntun hjá Einari, enda kunni
hann allt það sem hann lærði í skól-
anum og bætti stöðugt við á lífsleið-
inni eins og gengur. Ekki er nokkur
vafi á því að Einar hefði verið góð-
ur námsmaður ef hann hefði lagt
slíkt fyrir sig. Eitt var það þó sem
hann sá eftir að hafa eytt tíma í
að læra en það var kverið. Öllum
var ætlað að læra það utanað og
auðvitað gerði hann það, en eitt-
hvað efaðist hann um sannleiksgild-
ið og reyndar var það svo að trú
og trúariðkanir höfðuðu ekki til
hans. Sú skoðun breyttist ekki þótt
aldurinn færðist yfir hann og enda-
lokin nálguðust. Ekki þannig að
hann hefði neitt á móti trú ann-
arra, þetta var bara ekki hans hugð-
arefni og hann virtist ekki þurfa á
trú að halda. Honum þótti þó mikil
speki fólgin í boðorðunum og hann
taldi að þau væru mannanna verk
og að þau væru lykillinn að sam-
býli mannanna. Einar fór snemma
að vinna í Reykjavík. Fyrst í físk-
vinnu og síðar við höfnina. Þegar
hann hafði aldur til fór hann til
sjós á togara. Allir vildu komast á
togara, sem þýddi að á togarana
völdust einungis úrvals menn. Einar
var á ýmsum togurum og um tíma
á færeyskum. Upp úr 1920 kynnt-
ist Einar Bertu Agústu Sveinsdótt-
ur, sem bjó með móður sinni, Þór-
unni Guðmundsdóttur, í Lækjar-
hvammi við Reykjavík. Sveinn
Steindórsson skipstjóri og Þórunn
höfðu flust frá Hvassahrauni á
Vatnsleysuströnd að Lækjar-
hvammi 1916, en Sveinn féll frá
skömmu síðar. Berta og Einar giftu
sig 1926 og hófu þá búskap í Lækj-
arhvammi. Vegna landþrengsla í
Lækjarhvammi og skorts á beiti-
landi handa kúnum var jörðin Bær
í Kjós keypt 1941 og kýrnar hafðar
í seli þar, en túnin í Lækjarhvammi
öll nýtt til slægna. Ég sem þetta
skrifa er upprunninn í næsta ná-
grenni við Lækjarhvamm og fór.
snemma að sniglast þar í kring
ásamt fleirum. A sumrin var þey-
skapur með hestum, vögnum og
vélum og mikil ævintýri í kringum
það. Vorið 1840, þá var ég 11 ára,
átti ég leið yfir túnið í Lækjar-
hvammi sem oftar. Þar hitti ég
Einar svona um það bil þar sem
hitaveitustöðin í Bolholtinu er.
Hann spurði mig hvort ég vildi vera
hjá sér um sumarið sem ég þáði
og er raunar ekki farinn úr vistinni
enn. Þeim hjónum varð ekki barna
auðið, en þau ólu upp 2 börn. Dótt-
urina Þórunni sem þau ættleiddu
og Stefán Ottó Helgason, en þau
voru systkinabörn, Berta og hann.
Þórunn giftist undirrituðum og
eignuðust þau 9 börn og barnabörn-
in eru orðin 20. Þau búa á Sel-
fossi. Stefán Ottó giftist Ingibjörgu
Sigurgeirsdóttur og eignuðust þau
eina dóttur. Stefán Ottó lést 1956.
Fleiri voru iangdvölum í Lækjar-
hvammi og nálguðust það að vera
fósturböm og vil ég þar nefna Þor-
móð Sigurgeirsson, sem giftur er
Magdalenu Sæmundsen og búa þau
á Blönduósi, og mig sjálfan, við
nutum foreldralegrar umhyggju
þeirra hjóna, en miklu fleiri eiga
góðar minningar frá margra ára
veru sinni í Lækjarhvammi og í Bæ.
Einar og Berta bjuggu allstóru búi
og voru með um 30 mjólkurkýr
þegar mest var og um 200 ær.
Snemma hlóðust félagsmálastörf á
Einar og urðu þau snar þáttur í
störfum hans sem tóku mikinn tíma
frá búskapnum. Einar var knár og
harðduglegur, en hann bjó ekki
einn, Berta bjó með honum og dygg
hjú. Alla tíð var mikill áhugi á
stjómmálum í Lækjarhvammi, en
þótt stefna Sjálfstæðisflokksins
væri sú stefna sem helst var að-
hyllst var umræðan alltaf málefna-
leg og það sem var gott hjá hinum
var ekki síður metið. Fyrir þessar
sakir hlaut Einar trúnað ekki aðeins
sinna flokksmanna heldur einnig
hinna. Þegar Einar brá búi 1966
hóf hann störf hjá Framleiðsluráði
landbúnaðarins þar sem hann var
öllum hnútum kunnugur, enda hafði
hann tekið þátt í að móta margar
þær aðferðir sem þar var unnið
eftir. Hjá Framleiðsluráði var hann
allt til 89 ára aldurs. Einar var
mjög þakklátur fyrir þann tíma sem
hann var þama. Þetta stytti honum
stundirnar í góðum félagsskap sem
hann mat mikils. Berta lést árið
1968. Einari var það mjög þung-
bært enda hafði sambúð þeirra ver-
t
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURJÓN JÓNSSON
bóndi, Smjördölum,
Sandvíkurhreppi,
verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 27. júlí kl. 13.30.
Jarðsett verður í Laugardælum.
Stefán Sigurjónsson, Svanbjörg Gisladóttir,
Eiríkur Sigurjónsson, Guðbjörg Hulda Albertsdóttir,
Jón Kristinn Sigurjónsson, Kristin Alda Aibertsdóttir,
Grétar Sigurjónsson,
Margrét Sigurjónsdóttir
og barnabörn.
t
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför
sonar míns og bróður okkar,
GUÐJÓNS ÝRS GUÐJÓNSSONAR,
Álfaskeiði 37,
Hafnarfirði.
Kristjana Marteinsdóttir,
Sigrún, Marteinn, Ómar, Erla Björg,
Páll, Fanný og Herjólfur.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÞÓRU GUÐMUNDSDÓTTUR
Ijósmóður,
Fellsmúla 22,
Reykjavik.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Landakotsspítala fyrir góða umönn-
un. v
Hulda Þorláksdóttir, Baldur Sigurðsson,
Finnur Þorláksson, Svandís Jörgensen,
Sigrún Þorláksdóttir,
Ásdís Þorláksdóttir, Jón Sigurjónsson,
Hildur Þorláksdóttir,
Ólafía Hagalínsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Birting afmælis-
og minningargreina
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting-
ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á
2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu biaðsins í Hafn-
arstræti 85, Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum •
fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að
berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga.