Morgunblaðið - 24.07.1991, Side 36
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 24. JÚLÍ 1991
wí6
'cc, i/aerú ub Smyglc^?"
... dásamleg til að dreifa hug-
anum.
TMRog. U.S. Pat Off.—all rights reserved
® 1991 Los Angeles Times Syndicate
Ast er.
Hvaða kona er það sem þú
ætlar að hitta í matar-
tímanum...?
HOGNI HREKKVÍSI
// HANKI VILL H/tF-A pyRWAP SÍH/ll? SVONA...
EINS OG GÓ'NG'"
í»essir hringdu . . .
Endursýnið Dave Allen
Páll hringdi:
Eg vildi gjarnan biðja Sjón-
varpið að endursýna þættina með
írska háðfuglinum Dave Allen
sem nutu mikilla vinsælda fyrir
nokkrum árum. Ég hef heyrt
marga aðra láta þessa ósk í ljós
og er viss um að þetta myndi al-
mennt mælast vel fyrir.
Léleg dagskrá
Jón Þór Þórarinsson hringdi:
Ég var í sumarfríi á lands-
byggðinni fyrir nokkru þar sem
ekki næst í aðrar stöðvar en Rás
1 og Rás 2 og komst að því að
dagskráin hjá þeim er hrikalega
léleg. Það er allt of mikið af tali
og gamalli og lélegri tónlist en
ekkert fyrri ungt fólk. Ég er viss
um að meirihluti landsmanna
hlustar á Rás 1 og Rás 2 ein-
göngu vegna þess að hann á ekki
annarra kosta völ.
Gullhringur tapaðist
Ingibjörg hringdi:
Karlmannsgullhringur með
steini, merktur: Tryggvi, tapaðist
um s.l. mánaðarmót. Fundarlaun.
Nota Kolaportið
Guðrún Jacobsen hringdi:
Oft er rætt um það vandamál
sem fylgir unglingafjöld í mið-
bænum, einkum á föstudags-
kvöidum. Virðist vandamálið
einkum liggja í því að stað vantar
fyrir þennan hóp. Mér flaug í hug
hvort ekki mætti opna Kolaportið
á föstudagskvöldum og halda þar
stórt ball fyrir þennan hóp. Mér
virðist Kolaportið vera tilvalið til
þess arna. Þar er nóg pláss og
þarf bara bekki og borð. Hægt
er að hafa strætisvagn til að keyra
liðið heim og bjóða kannski upp
á heita súpu eða þvíumlíkt. Kolap-
ortið er ekkert notað á föstudags-
kvöldum en þannig mætti finna
not fyrir það.
Gulleyrnalokkur
Gulleyrnalokkur tapaðist á leið
frá Glæsibæ að Eikjuvogi ellegar
á gangbraut milli Sæbrautar og
Eikjuvogs föstudaginn 19. júlí.
Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 678448. Fundarlaun.
Köttur týndist
Dökkgrár fressköttur týndist
4. júlí s.l. frá Háaleitisbraut 51.
Hann er merktur RIH 043. Upp-
lýsingar í síma 814668.
Týndur páfagaukur
Gulur páfagaukur með smá-
grænu á bringunni tapaðist s.l.
sunnudag frá Holtsgötu 34.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
um að hringja í síma 11236 (eftir
kl.5) eða 681444.
BíIIyklabudda tapaðist
Lítil Toyota bíllyklabudda með
tveimur lyklum taþaðist 7. júlí.
Finnandi vinsamlegast hringi í
síma 36246.
Ánægður með Agnesi
Karl Ormsson, raftækjavörður,
hringdi:
Ég las grein Agnesar Braga-
dóttur um smákóngana á Lands-
byggðinni og er alveg stórhrifinn
af greininni. Ég hvet Agnesi
Bragdóttur til að ferðast meira
um landsbyggðina. Það hefur
áhrif ef fleiri taka á árarnar með
ríkisstjórninni um samvinnu og
hagræðingu á landsbyggðinni.
Fugladráp katta mesta
vandamálið
Kona í Vesturbænum hringdi:
Vegna skrifa Víkveija í
Morgunblaðið um ketti nýlega vil
ég benda á að ég hef margoft
skrifað í Velvakanda og bent á
þetta vandamál. Hins vegar er
aðalvandmálið það að kettirnir
drepa alla fuglana enda heyrist
orðið ekki í skógarþröstum í Vest-
urbænum. Kattaeigendur telja sig
ekki þurfa að passa kettina sína
neitt og verða bara fýldir ef þetta
er nefnt við þá. En það þarf að
fækka köttum og mér finnst að
það ætti að þurfa leyfi fyrir þá,
að kattaeigendur þurfi að borga
fyrir þessi dýr eins og hundaeig-
endur.
Viðhengi við armband
Guðfinna hringdi:
Ég var svo óheppin föstudaginn
19. júlí að týna viðhengi við arm-
band sem er mér dýrmætt. Það
er úr gulli, stærra en tíkall, með
ígröfnum myndum af stjörnum-
erkjum í hring en í miðju brún
kúla sem hægt er að snúa. Þetta
týndist á leiðinni frá Kaupmanna-
höfn til Keflavíkurflugvallar með
Sólarflugi og gæti t.d. hafa týnst
í troðningnum á flugvellinum. Ef
einhver hefur séð það vinsamleg-
ast hringi í síma 53156 (fyrir
hádegi) eða 33755 (vinnusími).
Fundarlaun.
Rauður barnaskór
Rauður barnaskór nr. 19 týnd-
ist einhvers staðar á leið frá Selj-
alandi í Fossvogi að Kringlunni
s.l. laugardag. Finnandi hringi í
síma 813624.
Kettlingur fæst gefins
Gullfallegur 10 vikna kassa-
vanur kettlingur fæst gefins.
Upplýsingar í síma 612197.
„Mengxinin á Ströndum, loðna og síld“
Þegar ég var ungur drengur man
ég eftir því þegar ströndin hérna
fylltist af dauðri og deyjandi loðnu;
hún leystist upp í grút sem var
umfangsmeiri eftir því sem megnið
af loðnunni hafði rekið lengra. Ef
það gerði brim sótti brimið loðnu-
leyfarnar og bar þær aftur út-í sjó
og var þá ástand efnisins sem áður
var loðna eftir því umbreytingar-
stigi sem hún var á þegar brimið
sótti hana, hvort sem það var loðna,
grútur eða eitthvert millistig. Fram-
haldið kann ég ekki til að lýsa því
en man eftir hvítum flyksum, svipað
og sést I Sjónvarpinu frá ströndum.
Gallinn er að fiskifræðingar virð-
ast vita svo lítið um loðnu og sfld,
t.d. hvar þessar tegundir hrygna.
Því spyr ég: hrygna þær (og þó
loðnan í þessu tilviki) ekki 'i árósum
á mörkum salta og ósalta vatnsins,
eða í ósalta vatninu eins og aðrir
laxfiskar? Og drepast síðan eftir
hrygningu og áin skolar dauðri
loðnunni út í sjó með fyrrgreindum
afleiðingum.
Áhugasamur
yíkverji skrifar
Ymsar furðufréttir hafa verið í
fjölmiðlum síðustu vikurnar.
Einkennilegastar þóttu Víkveija
frásagnir af kúnni sem fannst dauð
á hafi úti á Patreksfirði eða við
fjörðinn. Kafari var sendur á vett-
vang til að kynna sér útlit dýrsins.
Var rætt við hann í útvarpi og sagði
hann frá því, að kýrin hefði verið
skotin í höfuðið. Fagmannlega hefði
verið að verki staðið. Hins vegar
vekti athygli að þess sæjust hvergi
merki á kúnni að hún hefði verið
dregin til sjávar. Kom fram í út-
varpsviðtalinu, að kannski hefði
kýrin ekki dottið dauð niður við að
fá skot í hausinn heldur rokið á haf
út. Utvarpssamtalið vakti einnig þá
hugmynd, að ef til vill hefði kýrin
verið skotin um borð í skipi og síð-
an kastað í hafið.
Á meðan Víkveiji var að bijóta
heilann um þessi undur heyrði hann
því slegið föstu í einhverrl stöðinni,
að það væri alrangt hjá kafaranum,
að skotgat væri á haus kýrinnar.
Var þó ekkert upplýst um dánaror-
sök en sagt, að dýrið hefði verið
urðað í djúpri holu til að koma í
veg fyrir hugsanlegt smit. Var sýnt
í sjónvarpi, hvernig að því verki var
staðið.
Eftir stendur hvort nokkurn tíma
hafi verið minnsta ástæða hjá fjöl-
miðlum að veija fé og mannafla til
að ræða það, þótt bátur hafi fundið
dauða kú á hafi úti. Eigandi hræs-
ins hefur haft vit á því að hafa
hægt um sig. Óðagotið í fjölmiðl-
ungum hefur vafalaust orðið honum
hvatning til að halda sig í skefjum.
xxx
Um tíma beindist fjölmiðlaljósið
mjög að nokkrum þýskum
skátum, sem voru á ferð um Austur-
land. Hér verður ferðasaga þeirra
ekki rakin. Yfirlýstur tilgangur
skátaferðarinnar var að þjálfa þátt-
takendur í að bjarga sér við erfiðar
aðstæður. Frásagnir fjölmiðla bentu
til þess, að tilgangurinn hefði náðst.
Ferðalangarnir kunnu því hins
vegar illa, að þeir skyldu lenda í
fjölmiðlaljósinu. Þeim þótti sjálfum
ekkert fréttnæmt við ferðir sínar
og sögðust aldrei hafa litið þannig
á, að þeir væru í neinni hættu. Hér
skal ekki tekin afstaða til þess en
hitt fullyrt, að þeir sem höfðu
áhyggjur af ferðum skátanna hafi
aðeins borið hag þeirra fyrir brjósti
og ekki áttað sig á því að eftirleikur-
inn kynni að verða nokkuð óvandað-
ur. Var sagt frá því í Morgunblað-
inu, að skátarnir hefðu gert aðsúg
að fréttaritara blaðsins, þegar hann
reyndi að ljósmynda þá við brottför
frá Seyðisfirði.
Enn vaknaði sú spurning í huga
Víkveija, hvort fjölmiðlar hefðu
ekki gert alltof mikið veður út af
máli, sem var í raun aldrei frétt-
næmt, úr því að skátarnir fundust
allir heilir á húfi.
XXX
Fjölmiðlar hafa það sér ekki til
afsökunar, að þeir hafi orðið
að gera lítil atvik að stórum að
þessu sinni, af því að nú sé svoköll-
uð „gúrkutíð" og því fátt um góðar
fréttir. Þvert á móti eru mikil tíð-
indi að gerast bæði innan lands og
utan.
Ný ríkisstjórn fetar inn á nýjar
brautir og ætlar að stöðva fjár-
streymi úr vösum skattgreiðenda
til vonlausra atvinnufyrirtækja. Er-
lendis er kommúnisminn og alræði
hans á hröðu undanhaldi, upplausn
í Júgóslavíu og samningar takast
um fækkun langdrægra kjarnorku-
vopna eftir áralangar viðræður.