Morgunblaðið - 08.09.1991, Side 8
8G
MORGUNÓlÍAÐÍfr' DAGBOK StÍNNUDAGtÍR 's. skmÍMB'rÍR 1991
A
1"T¥ \ er sunnudagur, 8. september, 15. sd. eftiri
mJ±WX Trínitatis. Árdegisflóð íReykjavík kl. 6.08
og síðdegisflóð kl. 18.25. Fjarakl. 12.11. Sólaruppráskl.
6.29 og sólarlag kl. 20.21. Myrkur kl. 21.27. Sólin er í hádeg-
isstað í Rvík kl. 13.26 og tunglið er í suðri kl. 13.24 (Alman-
ak Háskóla íslands).
Leggið nú af lýgina og talið sannleika hver við sinn
nánunga, því að vér erum hvers annars limir. (Efes. 4,
25.)
ÁRNAÐ HEILLA
Q fTára afmæli. í dag, 8.
Xj fj september, er 95 ára
Jóhanna Sæberg, Sólvangi
í Hafnarfirði. Hún er ekkja
B.M. Sæbergs bílstöðvaeig-
anda í Hafnarfirði.
Q fTára afmæli. Á morg-
í/1) un, 9. september, er
95 ára Guðbjörg Jónsdóttir,
Dalbraut 27, Rvík. Á afmæl-
isdaginn tekur hún á móti
gestum í safnaðarheimili Bú-
staðakirkju kl. 17—20.
Skipin
REYK JA VÍKURHÖFN:
Á föstudagskvöld fór togar-
inn Snorri Sturluson til
veiða. í gær kom Urriðafoss
að utan og togarinn Viðey
hélt til veiða. í dag fer togar-
inn Ásgeir til veiða og á
morgun er Brúarfoss vænt-
anlegur að utan.
HAFNARFJARÐAR-
HÖFN: í dag er togarinn
Venus væntanlegur inn af
veiðum og á mánudag togar-
inn Sjóli.
10. þ.m., er sjötug Vigdís
Einarsdóttir, Fornastekk
11, Rvík. Eiginmaður hennar
er Hjörtur F. Jónsson. Þau
taka á móU gestum á afmæl-
isdaginn í Ársal, Hótel Sögu,
kl. 18-20.
MORGUNBLAÐIÐ
FYRIR 25 ÁRUM
í gærkvöldi tóku borg
arbúar eftir því að mikill
eldur var úti í Engey. Var
margoft hringt til blaðs-
ins, og spurst fyrir um
eldinn, því ekki var al-
staðar jafn auðvelt að
átta sig á því hvar eldur-
inn var og héldu sumir
að hann væri laus í hús-
um uppi á Kjalamesi. En
það voru gömul húsin í
Engey sem stóðu í björtu
báli. Nokkrum mánuðum
áður höfðu samtök í Rvík
tekið að sér og klárað að
mála húsin, þó svo að þau
væru að hruni komin.
Var sú ákvörðun tekin
fyrir skömmu að brenna
húsin. Það hafði líka flýtt
fyrir þeirri ákvörðun að
umgengni gesta í eynni
um húsin var afar slæm.
KROSSGATAN
LÁRÉTT: — 1 heila, 5 dap-
urt, 8 dimmviðrið, 9 manna,
11 heiðurinn, 14 skán, 15
kænu, 16 karlmannsnafn, 17
nefnd, 19 nákomið, 21 óvild-
ar, 22 líffærunum, 25 spils,
26 púka, 27 sár.
LÓÐRÉTT: — 2 lamdi, 3
auðug, 4 fyrirhöfn, 5 truflun-
in, 6 óhreinindi, 7 málmur, 9
heimskan, 10 kvæðinu, 12
nýfætt lamb, 13 þátttakand-
ann, 18 fyrr, 20 fersk, 21
kvað, 23 slá, 24 frumefni.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU:
LÁRÉTT: — 1 hlass, 5 skömm, 8 ókáta, 9 hrópa, 11
áfast, 14 pól, 15 æruna, 16 iðaði, 17 Rán, 19 sæla, 21 meti,
22 ergileg, 25 agg, 26 éti, 27 tin.
LÓÐRETT: - 2 lár, 3 sóp, 4 skapar, 5 stálin, 6 kaf, 7
mús, 9 hræðsla, 10 óguðleg, 12 agalegt, 13 teinninn, 18
álit, 20 ar, 21 me,..23 gé, 24 LI.
Þeir sem gjörst fylgjast með skipakomum til Reykjavíkurhafnar segja að skemmtiferðaskipið Seabourn Spirit, sem
þessi mynd er af, sé án efa eitt ailra glæsUegasta skip sem komið hefur. Björn Knútsson hjá Samskip, en það
annaðist alla fyrirgreiðslu við skipið meðan það var hér við land, sagði skipinu fylUlega hægt að jafna við fimm
stjörnu hótel. Það er einfaldlega fljótandi 5 stjörnu hótel. Þegar það kom í höfn hér í Reykjavík og lagðist að
Holtabakka, athafnasvæði Samskipa, kom það frá Vestmannaeyjum. Hafði Björn Knútsson siglt með skipinu þaðan
og skoðað allt hátt og lágt. Hann taldi það ekki ofsagt að farkosturinn og viðurværi farþeganna væri sem á mestu
lúxus hótelum. Með skipinu voru 200 farþegar. Til þess að tryggja að þeim liði vel og hefðu allt til alls er alls 140
manna áhöfn. Farþegamir eru ekki neinir láglaunasvæðis þegnar. Þessi ferð hingað norður og síðan vestur um haf
til St. John á Nyfundnalandi, alls 16 daga sjóferð, kostaði hvern hinna 200 farþega, sem allt munu hafa verið
Bandarikjamenn, 12.000 bandaríkjadali, eða um 733 þúsund krónur. Það er norskt skipafélag sem á þetta skip og
systurskip þess. Þetta skip sem er um 10.000 tonn er rúmlega 130 m langt og var byggt árið 1989. Það lagði af stað
til Nýfundnalands seint á föstudagskvöldið. Það mun vera látið ganga með 16-18 sjómílna hraða. Meðan skipið var
hér hafði ferðaskrifstofan Atlantic veg og vanda af allri fyrirgreiðslu við farþega skipsins.
í DAG er Maríumessa, hin
síðari, segir Háskólaalmanak-
ið. Maríurpessa hin fyrri var
15. ágúst, (himnaför Maríu)
segir í Stjömufræði/Rím-
fræði. Maríumessan í dag er
fæðingardagur Maríu að kaþ-
ólskri trú. Árlega em 7 Mar-
íumessur, segir í sömu heim-
ildum. Þennan dag árið 1208
var háður Víðibardagi.
VIÐEY. Messað verður í Við-
eyjarkirkju kl. 14 í dag, báts-
ferð kl. 13.30. Staðarskoðun
verður kl. 15.15.
PRÓFESSORAR. í nýju
Lögbirtingablaði er tilk. um
skipan prófessora við Háskóla
Islands. Þeir eru sem kunnugt
er skipaðir af forsetanum.
Hinir nýju prófessorar eru
Guðmundur Pétursson for-
stöðumaður, var í maí skipað-
ur prófessor við læknadeild-
ina. Dr. Ágúst Kvaran, skip-
aður prófessor í eðlisefna-
fræði við raunvísindadeild,
frá 1. þ.m. Einnig, frá sama
tíma er dr. Vésteinn Ólafs-
son skipaður prófessor í fsl.
bókmenntum, við heimspeki-
deildina. Við þá sömu deild
var Helga Kress skipuð próf-
essor í marsmánuði síðastlið-
inn. Í félagsvísindadeild hefur
dr. Þorlákur Karlsson verið
skipaður lektor í aðferðafræði
í félagsvísindadeild frá í júlí-
mánuði. Þá hefur Anna
Kristjánsdóttir verið skipuð
prófessor í kennslufræði
stærðfræðinnar við Kennara-
háskóla íslands frá 1. mars.
BARNADEILD Heilsu-
vemdarstöðvarinnar við Bar-
ónsstíg hefur opið hús á
þriðjudaginn kemur kl.
15—16 fyrir foreldra ungra
barna. Umræðuefnið verður
að þessu sinni tannvernd.
HÚSMÆÐRAFÉLAG
Reykjavíkur ætlar að hefja
vetrarstarfið á fundi sem
FRÉTTIR/MANNAMÓT
haldinn verður nk. þriðjudag
í félagsheimilinu á Baldurs-
götu 9 og verður þá opið hús
þar kl. 13—17.
EMBÆTTI sýslumannsins í
Isafjarðarsýslu og bæjar-
fógetans á ísafirði, hefur
verið augl. laust til umsóknar
í Lögbirtingi og setur dóms-
og kirkjumálaráðuneytið um-
sóknarfrestinn til 20. þ.m.
fijáls spilamennska. Kaffítími
kl. 15.
KÓPAVOGUR. Kvenfélagið
heldur vinnufund vegna bas-
ars, mánudagskvöld kl. 20 í
fundarherbergi félagsins.
SÉRFRÆÐINGAR. í tilk. í
Lögbirtingi frá heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytinu
segir að það hafí veitt Finni
Snorrasyni lækni leyfí til
starfa sem sérfræðingur í
bæklunarskurðlækningum.
Þá hefur Úlfi Agnarssyni
lækni verið veitt sérfræðings-
leyfí í meltingar- og næring-
arsjúkdómum barna, sem
undirgrein við almenna
barnalækningar, sem hann
hafði hlotið 1986.
BISKUPSSKRIFSTOFA
hefur auglýst 5 prestaköll
laus til umsóknar með um-
sóknarfresti til 12. þ.m. Er
það fyrst talið upp Þingvalla-
prestakall ásamt starfi þjóð-
garðsvarðar. Stykkishólms-
prestakall, Patreksfjarðar-
prestakall, Hólmavíkur- og
Raufarhafnarprestaköll. Þá
er staða fræðslufulltrúa í
biskupsstofu laus til umsókn-
ar. Áskilin er reynsla af starfi
með ungmennum, auk há-
skólamenntunar.
J.C.—Mosfellsbær. Mánu-
dagskvöld kl. 20.30 verður
fundur í Hlégarði. Gestur
fundarins verður Ragnheið-
ur Rikarðsdóttir, skólastjóri
gagnfræðaskólans.
LYFJAFRÆÐINGAR. Heil-
brigðis- og tryggingamála-
ráðuneytið tilk. í Lögbirtingi
að þessum lyfjafræðingum
hafí verið veitt_ starfsleyfi:
Elínu Soffíu Ólafsdóttur,
Kristján S. Guðmundssyni
og Einari Má Sigurðssyni.
GERÐUBERG, félags- og
þjónustumiðstöð aldraðra.
Mánudagsmorgun er fót-
snyrting og hárgreiðsla. Há-
degishressing. Síðdegis spilað
og spjallað. Kaffitími kl. 15.
HVASSALEITI 56-58, fé-
lags- og þjónustumiðstöð.
Mánudagsmorgun kl. 9 leik-
fimi og siiki- og taumálun.
Bridskennsla verður kl. 13 og
Stúlkurnar á þessari mynd, Elísabet Ómarsdóttir, Karitas
Sæmundsdóttir og Kristín Erla Þórisdóttir, söfnuðu 1.060
krónum og færðu Hjálparsjóði Rauða kross íslands.
Þessir krakkar héldu nýlega hlutaveltu til styrktar Rauða
krossinum og söfnuðu 1.350 krónum. Þau heita Sigurlaug
Traustadóttir, Ólafur Traustason og Arnheiður Leifsdótt-
ir.