Morgunblaðið - 08.09.1991, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 08.09.1991, Qupperneq 14
ðí JA fcer JiaaMariag .3 auoAauw’/ug qiqajsmuohom ----WROUNfifcAÐi© -fitlNNTOAGíf R-SrfiEPTEMBEíM-991- Sendi öllum vinum mínum og vandamönnum, sem glöddu mig á hundrað ára afmœli mínu þann 15. ágúst sl., innilegt þakklœti fyrir. Óskar Bjartmarz. Til sölu 21 feta Mótunarplastbátur með Mercruiser 125 kW vél. Upplýsingar í síma 686666. Blikk Og Stál. Kjólar - brúðarkjólar - samkvœmisblússur Lopi - Lopi 3ja þráða plötulopi, 10 sauðalitir, einnig gulir, rauðir, grænir og bláir litir. Hnotulopi í öllum litum. 100% íslensk ull. Sendum í póskröfu um landið. Heildsala - smásala. Lopi - ullarvinnsla, sími 30581, Súðarvogi 4, 104 Reykjavík. Myndlist og bókmenntir Ásmundur Sveinsson, Mother Earth, 1936. IVIyndlist Bragi Ásgeirsson I sumar hefur staðið yfir í endur- gerðum salarkynnum listasafns Ás- mundar Sveinssonar sýning, er nefn- ist „Bókmenntirnar í list Ásmundar Sveinssonar." Það mætti auðvitað rita langt mál um myndlist og bókmenntir í sögu- legu samhengi, þegar farið er að fjalla um þessa sýningu. Einkum vegna þess að ekki er ýkja langt síðan að ekki mátti sjást hinn minnsti vottur af bókmenntum í myndlist, án þess að hún væri um leið dæmd ómerk. Þetta var líkt og með fígúruna, sem var dæmd úr leik vegna frægra ummæla Picassos: „Fígúran er dauð“, sem gengu eins og eldur í sinu milli nær allra, er töldu sig nýskapendur í myndlist og varð að trúarbrögðum hjá fjölmörgum. Svo langt gekk þetta, að er meistarinn sjálfur tók fígúruna í sátt, þá var hann af mörgum dæmdur úr leik og jafnvel álitinn svikari! En það er mjög sennilegt, að menn hafi' misskilið framslátt Pic- assos, vegna þess að í raun getur ekkert form náttúrunnar dáið, og það mun honum hafa verið betur kunnugten flestum. Ogekkert nema sértrúarbrögð geta afneitað jafn mikilvægum hluta sköpunarverks- ins. Frekar væri að hann hafi meint, að á meðan hinn óhlutlægi heimur skyldi rannsakaður í kjölinn mætti gefa hinum hlutkennda frí. Á svipaðan hátt má rökstyðja það, að málarar voru upphaflega á móti bókmenntum í myndlist vegna þess, að þeir vildu sýna fram á sjálf- stæði listgreinarinnar og að hún væri í kjarna sínum óháð bókmennt- um. Það er rétt í báðum tilvikum, að myndlistin á hvorki að vera háð fígúrunni né bókmenntunum, en hún getur þó án hvorugs verið líkt og bókmenntirnar geta ekki án ritlistar- innar verið, en margar tegundir rit- listar, eins og t.d. austurlenzk kalli- grafía er myndlist út í fingurgóma. Má því gera því skóna, að margur framsláttur heimskunnra lista- manna úr fjaríægð hafí verið tekinn of bókstaflega í hinum einangraðari þjóðfélögum. Edvard Munch, sem svo mjög var á moti bókmenntum í myndlist, nærðist t.d. á bókmenntum og marg- ir vinir hans voru snillingar bók- menntasögunnar svo sem Ibsen, Strindberg, Mallermé og Nietsche og hann gerði frægar myndir af þeim öllum. Fræg eru neikvæð ummæli Munchs um áhrif ljósmyndarinnar og langar mig til að vitna enn einu sinni í þau: „Ljósmyndavélin getur ekki veitt penslinum og litaspjaldinu samkeppni meðan ekki er hægt að nota hana á himnum eða í helvíti“ en svo kom í ljós við dauða hans, að hann skildi eftir sig mikið safn ljósmynda og kom þá fram, að hann hafði stuðst við þær í gerð margra mynda sinna, en á mjög ftjálslegan hátt. Ljósmyndirnar voru honum hjálparmeðal, sem hann sótti hug- myndir í, nákvæmlega eins og bók- menntirnar. Þetta voru ljósmyndir, sem hann tók t.d. af fyrirtækjum sínum og sjálfum sér, og hann var snjall ljós- myndari og skildi eftir sig mikið magn ljósmynda. Fjölskylda hans fann þær í eftirlátnum munum og á að hafa eyðilagt mikið af þeim, eins og ég hef áur vikið að í greinum um listamanninn. En svo mikið fannst þó síðar, að bók var gefin út um þennan þátt listar hans. Þá var hann mjög ritfær, eins og Strind- berg var einnig merkilegur málari. Þannig er oft nokkurt misvægi á framsetningu skoðana og staðreynd- um. Og því hef ég tekið þetta með hér, að meðal íslenzkra myndlistar- manna hafa fordómar gegn bók- menntum risið hátt á ýmsum tímum. Það er þannig í ljósi framanskráðs fullkomlega eðlilegt, að Ásmundur Sveinsson skyldi leita til bókmennta- Sigurjón Gunnsteinsson, landsliðsmaður í KARATE, og margfaldur íslandsmeistari í KATA og KUMETE IDebora Blaiden sér um líkamsrækt. Vibar Guðjohnsen, júdókennari. Islandsmeistari, Open Skandinavian meistari, Norðurlandameistari, Islandsmeistari í vaxtarrækt '82. ,e'kfí "ni. fullkonrin rikunidjfiukiufíiuki íi Jiuununi og KARATE + • fyrir stráka og stelpur Farið í undirstöðuatriði bæði í JÚDÓ og KARATE. Fjölskyldudagar miðvikudaga og laugardaga. Foreldrar geta æft líkamsrækt meðan krakkarnir æfa JÚDÓ og KARATE. Fjölskylduafsláttur SPORT Mörkinni 8, austast við Suðurlandsbraut, sími: 679400

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.