Morgunblaðið - 08.09.1991, Page 24

Morgunblaðið - 08.09.1991, Page 24
24 iMORQUNHIaAöJp) SUAWWA5ÍÍJR Jfc SRf?TBMBE)R;J<9W SAMKOMULAG UM SKOLAGJOLDIIM Þaksettá 250 milljómr ■ LÁNASJÓÐUR NÁMSMANNA LÁN- AR 400 MILUÓNIR VEGNA SKÓLA GJALDA ■ HÆSTU SKÓLAGJÖLD HÉRLENDIS NEMA 91.000 KRÓNUM ■ HÆSTU SKÓLAGJÖLD ERLENDIS NEMA UM MILLJÓN KRÓNUM eftir Pól Lúðvik Einarsson og Friðrik Indriðoson SAMKOMULAG hefur nú náðst innan ríkisstjórnarinnar um skólagjöld þau sem svo mjög hafa verið til umræðu undanfarna daga. í grófum dráttum felur # samkomulagið það í sér að ekki verði um auknar fjárveitingar að ræða til framhalds-og háskóla hérlendis frá því sem var í síð- ustu fjárlögum. Mismuninn sem á vantar, og taiinn er vera um 250 milljónir króna, útvegi skól- arnir sjálfir með hagræðingu, sölu á þjónustu og skólagjöldum. Jafnframt er sett þak á inn- heimtu skólagjalda þannig að hún fari ekki framúr 250 milljónum króna. Slíkt þýðir að til jafnaðar séu skólagjöld ekki hærri en 8.000 krónur fyrir nemendur í framhaldsskólum og 17.000 krón- ur fyrir nemendur í háskólum. Innheimta nemendagjalda sé svo fyrir utan þessar upphæðir. Fjár- veitingar ríkissjóðs til háskólans námu um 1,8 milljörðum króna á síðasta ári og til framhaldsskóla um 3,1 milljarði króna. Hér er því ekki um að ræða nema brot af þessum upphæðum. Samkvæmt 8. grein laga um framhaldskóla skulu skóla- nefndir ákveða upphæðina sem nemendum er gert að greiða við innritun í námsáfanga, s.s. innritunargjöld, efnisgjöld, pappírsgjöld og nemend- asjóðsgjöld. Hins vegar kveður 32. grein sömu laga á um að ríkissjóð- ur greiði rekstrarkostnað þeirra framhaldsskóla sem ríkið reki eitt sér eða í samstarfi við sveitai’félög. Þau gjöld sem nemendur greiða eru mismunandi milli framhaldsskóla eða á bilinu 4.000 krónur til rúm- lega 8.000 króna að Verslunarskól- anum frátöldum þar sem gjöldin nema nú 34.000 krónum. í háskól- "^um eru gjöldin á bilinu 8.000 krón- ur til 91.000 krónur. I öllum tilvik- um rennur hluti þeirra til nemenda- sjóða viðkomandi skóla en í mis- miklum mæli þó. Sem dæmi um í hvað skólagjöldin fara má nefna Menntaskólann í Hamrahlíð og Fjöl- brautaskólann í Breiðholti. Sam- kvæmt upplýsingum frá MH renna % hlutar þeirra 8.000 króna sem innheimtar eru beint til nemendafé- lagsins. Afgangurinn fer að hluta til í pappírskostnað og að hluta til aftur til nemenda á óbeinann hátt, í>vo sem í formi styrkja til leikfélags og kórs skólans og til að borga fyrir fyrirlesara og listamenn á svo- kölluðum lagningardögum skólans. Samkvæmt upplýsingum frá FB er þeim 8.200 krónum sem inn- heimtar-eru- skipt þannig- að nem- endafélagið fær 4.000 krónur en 4.200 renna til pappírs- og próf- gjalda og að hluta til í efniskostn- að. í skólanum er töluvert verknám og dugir þessi upphæð fyrir um 30% af efniskostnaði við það nám. Þegar litið er á skiptingu innrit- unar- eða skólagjalda í öðrum fram- haldsskólum kemur í ljós að í flest- um tilfellum fer helmingur, eða rúmlega það, af upphæðinni til nemendafélaga viðkomandi skóla. Undantekningar eru skólar eins og Iðnskólinn þar sem megnið af upp- hæðinn fer í efniskostnað og Fóst- urskólinn þar sem meira en helm- ingur upphæðarinnar fer í efnis- kostnað. Hvað sérskólana varðar eins og Verslunarskólann, Myndlista- og handíðaskólann og tónlistarskóla eru skólagjöldin mismunandi en yfirleitt mun hærri en í öðrum fram- haldsskólum enda standa þau í mun meira mæli undir rekstri viðkom- andi skóla. Skólagjöld í Verslunar- skólanum nema nú 34.000 krónum. Skólinn hefur þá sérstöðu að hann er rekinn sem einkaskóli sem fær ákveðið framlag úr ríkissjóði. Af upphæðinni renna 3.000 krónur til nemendafélagsins en annað til reksturs skóians. I Myndlista- og handíðaskólanum er um tvenns konar gjöld að ræða. Annars vegar svokallað skráningargjald sem nú er 4.000 krónur og ætlað í þágu nemenda. Hins vegar er efniskostn- aður sem getur verið frá engu og upp í 40.000 krónur á ári. Mestur er efniskostnaður þeirra sem stunda skúlptúrnám. Sem dæmi um skóla- gjöld í tónlistarskólum má nefna Tónmenntaskóla Reykjavíkur sem fyrir forskóla upp í 38.000 krónur fyrir eldri nemendur. Við þessar upphæðir bætist.svo 3.000 króna efniskostnaður. Ef litið er á skólagjöld í háskólum hérlendis eru þau sem fyrr segir 8.000 krónur við Háskóla íslands, Kennaraháskólann, Tækniskólann og Háskólann á Akureyri. Sam- vinnuháskólinn í Bifröst sker sig liins vegar nokkuð úr því þar eru skólagjöldin í ár 91.000 krónur. Jónas Guðmundsson aðstoðarrektor segir að gjöld þessi beri nafnið „af- notagjöld safns og tækja“ og standi þau undir kostnaði við skólasafnið, tækjakaupum til skólans og viðhaldi á þeim. Sem stendur greiðir ríkið 75% af rekstrarkostnaði við skól- ann, það eru laun og orkukostnað- ur, en skólagjöldin standa undir hinu. Af þessari upphæð renna svo 10% til nemendafélags skólans. Um 400 milljónir í skólagjöld erlendis Þórður Gunnar Valdimarsson vegna skólagjalda í erlendum há- skólum á síðasta námsári. Hann segir að af 2.500 nemendum sem stunda nám erlendis og fengu lán hjá lánasjóðinum var tekið tillit til skólagjalda hjá 900 nemendum og er áætlað að lánveitingar sjóðs- ins vegna þessa nemi um 400 millj- ónum. Tekið var tillit til skólagjalda hjá 150 umsækjendum sem nema við íslenskar menntastofnanir. Að sögn Þórðar Gunnars Valdimars- sonar er þar ekki um háar upphæð- ir að ræða, trúlega á bilinu 7,5—10 milljónir íslenskra króna. Uthlutunarreglur lánasjóðins kveða á um að lán vegna skóla- gjalda séu aðeins veitt til háskóla- náms og sérnáms erlendis sem ekki verði stundað á Islandi. Einnig eru veitt lán vegna skólagjalda við við- urkennda skóla á íslandi ef skóla- gjöld eru 15 þúsundir króna eða hærri. Þegar um er að ræða nám sem verður að stunda utan land- steinanna er hámarkslán vegna skólagjalda í fyrrihlutanámi 5.000 ekki verið endurskoðuð. Skólagjöld umfram þessa upphæð verða nem- endur að fjármagna sjálfir. Lánveit- ingar í öðrum gjaldmiðlum voru fastákveðnar við gengi bandaríkja- dalsins um þetta leyti, þannig að nemendur í öðrum löndum eru ekki háðir sveiflum á dollaragengi. I framhaldsnámi á háskólaskóla- stigi er lánað fyrir skólagjöldum. Nú í sumar var sett hámark á þá heildarupphæð sem sjóðurinn lánar vegna skólagjalda; samalögð lán þeirra vegna mega ekki nema meiru en 27 þúsundum bandaríkjadala (rúmlega 1,65 milljónir íkr.). En áður höfðu ekki verið verið tak- markanir á lánveitingum vegna framhaldsnáms á háskólastigi, s.s. doktorsnám og náms á „masters“- stigj. Þeir námsmenn sem fengu lán vegna hærri skólagjalda áður en þessi regla var sett fá þó lán af- greitt eftir gamla laginu til að ljúkja námi. Meira en milljón í skólagjöld Skólagjöld sem eru innheimt í háskólum í Bandaríkjunum eru mjög mismunandi. Almennt má segja að skólar sem reknir eru af opinberum aðilum séu ódýrari held- ur en þeir sem eru í hreinni einka- eigu. Skólagjöld sem íslenskir námsmenn greiða eru í mörgum tilvikum innan settra marka lána- sjóðsins. En oft eru þau mun hærri. Nám í Harvard-háskólanum kostar t.a.m. árlega 16.389 bandaríkjadali (um ein milljón íkr.). Háskólinn í Maiyland er trúlega ekki fjarri því að teljast vera meðaldýr skóli, en þár kbsfár- nám á' framKaldsstígT 4.791 til 6.303 bandaríkjadali (293-386 þús íkr.). Háskólinn í -eríhópr þeirra'-stærstu:~Þar_enr' skólagjöldin mismunandi eftir aldri nemenda eða frá 23.750 krónum "fí'afnkværnðasfjóri' lenskra námsmanna áætlar að sjóð- urinn hafi lánað um 400 milljónir ‘ bandarikjadslir -árlega- þús. íkr.). Þessi regla hefur gilt að fullu síðan 1987 og fjárupphæðin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.