Morgunblaðið - 08.09.1991, Síða 40
varóa i
Landsbanki
Islands
Banki allra landsmanna
B3S
FORGANGSPÓSTUR
UPPL ÝSINGASÍMI 63 71 90
MORGUNBLADID, ADALSTRÆTI 6, 101 REYKJA VÍK
TELEX 2127, PÓSTFAX 681811, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1991
VERÐ í LAUSASÖLU 100 KR.
L
LIN:
400 milljón-
ir í skólagjöld
LÁNASJÓÐUR íslenskra náms-
manna greiðir nú um 400 milljón-
ir króna árlega í skólagjöld fyrir
lánþega sjóðsins erlendis. Sam-
kvæmt upplýsingum frá LIN eru
nú 2.500 nemendur sem fá lán hjá
sjóðnum en af þessum fjölda er
tekið tillit til skólagjalda hjá 900
nemendum.
Heildarútgjöld LÍN á síðasta ári
námu um 4 milljörðum króna þannig
að um 10% hafa farið til greiðslu á
skólagjöldum. Hér innanlands var
tekið tiHit til skólagjalda hjá 150
nemendum en þar var ekki um háar
upphæðir að ræða, í heildina á bilinu
7,5-10 milljónir króna.
Skólagjöld erlendis eru mjög mis-
munandi eftir löndum en hæst munii
þau vera í Bandaríkjunum eða allt
frá rúmlega 200.000 krónum upp í
um milljón krónur á ári. í Bretlandi
hinsvegar greiða erlendir stúdentar
í flestum tilfellum skólagjöld sem eru
á bilinu 400-600.000 krónur.
Sjá bls. 24 og 25.
Flugleiðir:
~Verri sætanýt-
ing en í fyrra
SÆTANYTING Flugleiða í sumar
hefur verið um 10% minni er í
fyrra þrátt fyrir um 4% fjölgun
farþega. Sætaframboð var aukið
um 13% þar sem gert var ráð fyr-
ir um 15% fjölgun farþega í sumar
og um 9% fjölgun milli ára. Utlit
var mjög gott á fyrsta ársfjórð-
ungi og bókanir í apríl og maí
fyrir sumarið voru mjög góðar.
Þetta kemur meðal annars fram
í viðtali við Sigurð Helgason, for-
stjóra Flugleiða, í Flugleiðafrétt-
blaði starfsmanna Flugleiða.
Ennfremur kemur fram að ákveð-
ið hefur verið að hætta flugi til
Frankfurtar og Parísar yfir vetrar-
mánuðina og færa áhersluna á leiðir
sem gefa meira af sér. Gert er ráð
fyrir að fljúga 7-8 ferðum færra til
viðkomustaða í Evrópu næsta sumar
en nú. Það er einkum Evrópuflugið
sem hefur brugðist í sumar, en N-
Atlantshafsflugið hefur komið mun
betur út og gert er ráð fyrir að fjölga
um eina ferð til New York.
Forsætisráðherra um vaxtahækkun bankanna til að bæta upp tap:
Komast upp með hækkanir
vegna skorts á samkeppni
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra segir í bréfi, sem hann sendi
Seðlabankanum á föstudag, að í
skjóli samkeppnisleysis geti bank-
arnir komizt upp með að hækka
vexti á einum tíma til að bæta upp
tap á öðrum. I bréfinu segir for-
sætisráðherra að Seðlabankanum
beri að „stuðla að vaxtaþróun sem
hann telur æskilega fyrir efna-
hagslífið í víðara samhengi og
freista þess að veita bönkunum
það aðhald sem þá skortir vegna
ófullkominna markaðsaðstæðna,"
eins og segir í bréfinu. „Þetta ber
Seðlabankanum að gera með því
að beita þeim tækjum sem hann
hefur yfir að ráða og með for-
tölum. í því efni er ekki verið að
mæla með beinum fyrirmælum
Heimssýningin á Spáni:
TJtflutning-sráð samþykkir
tíu daga Islandskynningu
KNUD Kloster, eigandi víkingaskipsins Gaiu, hefur boðið íslending-
um að nota skipið til kynningar á Islandi og íslenskum útflutningsvör-
um á Heimssýningunni í Sevilla á Spáni á næsta ári. Stjórn Útflutn-
ingsráðs hefur samþykkt að standa að þessari kynningu, sem mun
líklega standa í 10 daga, ef áætlanir standast um að skipið verði
-^nið til Spánar í ágúst. Ríkisstjórnin ákveður á þriðjudag hvort
'ikið tekur þátt í kostnaðinum. Ingjaldur Hannibalsson, fram-
kvæmdastjóri Útflutningsráðs, segir að heildarkostnaður við kynn-
inguna sé áætlaður 25-30 millj. kr.
Ráðgert er að Gaia verði á um-
hverfísráðstefnu Sameinuðu þjóð-
anna í Brasilíu í júní en þaðan verð-
ur skipið sent til Sevilla. Ingjaldur
sagði að einnig stæði til að fá að-
stöðu á hafnarsvæðinu, sem væri
innan heimssýningarsvæðisins, en
beðið væri staðfestingar frá Spán-
veijum.
„Hugmyndin er að vera með
kynningu á íslenskum matvælum á
matsölustöðum, reyna að fá tón-
leikahús þar sem íslenskir lista-
menn kæmu fram og nota tækifær-
ið til að kynna islenskar afurðir,
Island sem ferðamannaland, hreint
umhverfí íslands og íslenska menn-
ingu,“ sagði Ingjaldur.
Hann sagði að þessi kynning
gæti vakið meiri athygli en ef
byggður hefði verið íslandsskáli á
heimssýningarsvæðinu eins og til
stóð í vor en áætlun þá gerði ráð
fyrir að hann myndi kosta 250-300
milljónir. „Með þessu móti yrði ís-
Iand beinn þátttakandi í heimssýn-
ingunni i stuttan tíma. Enn er þó
ósvarað hvort tekst að koma skipinu
til Spánar á réttum tíma og hvort
við fáum viðunandi aðstöðu,“ sagði
Ingjaldur.
eða tilskipunum, heldur að við-
fangsefnið verði náigast með svip-
uðum hætti og í öðrum löndum
og innan þeirra marka sem að-
stæður hér leyfa.“
Bankarnir hækkuðu vexti á óverð-
tryggðum útlánum um allt að 3%
1. ágúst síðastliðinn og voru þá gefn-
ar þær skýringar af hálfu bankanna
að meiri verðbólga á árinu, en gert
var ráð fyrir, hefði orsakað misræmi
vaxta óverðtryggðra og verð-
tryggðra lána, sem bæta yrði upp.
Forsætisráðherra gagnrýndi þá
þessa ákvörðun bankanna og óskaði
eftir skýringum Seðlabankans. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
hafa Seðlabankinn og forsætisráðu-
neytið síðan skipzt á bréfum um
vaxtamálin, og hefur meðal annars
komið fram í greinargerðum bank-
ans að þróun vaxta á verðtryggðum
lánum sé leiðandi fyrir vaxtaþróun
almennt. Þessir vextir hafi hækkað
vegna mikils framboðs á húsbréfum
og fjárlagahalla. Jafnframt kemur
fram hjá Seðlabankanum að vaxta-
breytingar bankanna til að bregðast
við misræmi vaxta óverðtryggða og
verðtryggðra lána komi oft of seint,
meðal annars vegna stjórnmálalegra
áhrifa bankaráðanna. í greinargerð
bankans kemur einnig fram að ekki
fari á milli mála að bankar hafí með
vaxtahækkuninni 1. ágúst verið að
reyna að bæta sér upp vaxtamun á
bæði verðtryggðum og óverðtryggð-
um lánum á fyrri hluta ársins. Ein-
stakir bankar á stórum og virkum
markaði gætu ekki aukið vaxtamun
með þessum hætti. Á slíkum mark-
aði myndi banki, sem hefði verðlagt
þjónustu sína lægra en efni stóðu
til, verða að taka á sig tekjutapið.
Seðlabankinn mælir gegn því að
reynt sé að veita bönkunum aðhald
með beinum fyrirmælum, en nefnir
sem möguleika til að ýta við bönkun-
um að ríkisvaldið taki upp viðræður
um tengsl banka við verðbréfafyrir-
tækin, og að stuðlað verði að starf-
semi erlendra bankaútibúa hér á
landi.
í bréfí forsætisráðherra frá því á
föstudag er m.a. tekið undir þær
skýringar Seðlabankans' á háu
vaxtastigi að almennir lántakendur
eigi erfítt með að fara út á erlendan
lánamarkað, og innlendar lánastofn-
anir fái því ekki aðhald af erlendri
samkeppni. Minna af útistandandi
lánsfé komi til endurútlána á ári
hveiju og minna bætist við með
nýjum sparnaði. Stórum hluta af
lánsfé sé beint með sérstökum ráð-
stöfunum til forgangsútlána, til
dæmis með skyldulánum lífeyris-
sjóða til húsakaupenda og hefðarlán-
um á vildarkjörum til sjóðfélaga. Þá
sé almenn lánsfjáreftirspurn meiri
en sparnaður stendur undir.
„Kjarni málsins er sá ... að
íslenzkir bankar búa ekki við virka
samkeppni. í skjóli þess geta þeir
hækkað vexti á einum tíma til að
bæta upp tap á öðrum. Á virkum
markaði gæti þetta ekki gerzt, held-
ur yrðu bankarnir að byggja ákvarð-
anir sínar á hveijum tíma á efna-
hagsleguin forsendum við markaðs-
aðstæður," segir í bréfi forsætisráð-
herra.
Morgunblaöið/RAX
Hnullungakast í Rauðhólum
Þeir létu ekki ljósmyndara Morgunblaðsins trufla sig þessir strákar sem æfðu hnullungakast í Rauðhólunum á dögunum. Af einbeittum svip
þeirra mætti jafnvel ráða að þar væru á ferðinni upprennandi kúluvarparar eða kringlukastarar.