Morgunblaðið - 12.09.1991, Blaðsíða 11
11
TT—
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1991
Vinnusvæðið við nýja íþróttahúsið.
Morgunblaðið/Gísli Bogason
Djúpivogur;
Unnið að byggingu nýs
íþróttahúss og kirkju
Djúpavogi.
UNNIÐ er að byggingu nýs
íþróttahúss og einnig eur fram-
kvæmdir hafnar við byggingu
nýrrar kirkju á Djúpavogi.
Lokið er við uppslátt á veggjum
íþróttahússins og verður væntan-
lega steypt á næstu dögum, límtrés-
bitar verða síðan settir ofan á vegg-
ina. Flatarmál íþróttasalar verður
27x17 metrar, Trésmiðja Djúpa-
vogs annast byggingarfram-
kvæmdirnar.
Framkvæmdir eni hafnar við
■ Á PÚLSINUM, fimmtudag til
sunnudags, 12., 13., 14. og 15.
september, heldur breska funk-
hljómsveitin The Government tón-
leika. Hér er um athyglisverða
hljómsveit að ræða og er tónlist
hennar lýst á þann veg að hún
grundvallist á sterkum rythma þar
sem rokkfrasar kanna nánar hinar
svörtu hliðar fönksins. Hljómsveit-
ina skipa fjórir tónlistarmenn;
Brian Foley, söngur og sax, Rog-
er Leece trommur og rafmagns-
percussion, Paul Huges gítarleik-
ari og söngvari og Steve Jones
bassaleikari. Á hljómleikaferða-
lagi, undanfarið vítt og breitt um
Evrópu og Norðurlönd, hefur hljóm-
sveitin eignast fjölda tryggra aðdá-
enda og héðan heldur hljómsveitin
til Noregs og Svíþjððar þar sem hún
spilaði fyrr á árinu, en í Svíþjóð er
byggingu nýrrar kirkju, það var
Ingimar Sveinsson fyrrverandi
skólastjóri og sóknarnefndarmaður
sem tók fyrstu skóflustunguna
þann 21. júlí. Ráðgert er að ljúka
við sökkul og plötu á þessu ári.
Hlífar Ákason sér um þær fram-
kvæmdir sem nú standa yfir. Gamla
kirkjan var vígð árið 1894 en hún
hafði verið byggð úr efni annarrar
kirkju þ.e. kirkjunnar á Hálsi sem
fauk árið 1891 í Norðvestan ofsa-
veðri. - Gilli Boga.
hljómsveitin þekkt og nýtur vin-
sælda. Hljómsveitin flytur eigið efni
í tilefni íslandsfararinnar hefur hún
æft nokkur kunn lög með heims-
kunnum tónlistarmönnum í eigin
útfærslu.
■ MORGUNBLAÐINU hefur
borist eftirfarandi ályktun frá
Fullrúaráði Kennarasambands
Islands: „Fulltrúaráð Kennarasam-
bands íslands heitir á launafólk og
allan almenning í landinu að sam-
einast og brjóta á bak aftur árásir
ríkisstjórnarinnar á það velferðar-
kerfi sem þjóðin hefur byggt upp
með áratuga baráttu. Fulltrúaráðið
hvetur til víðtækrar samstöðu
launafólks og annarra hagsmuna-
hópa gegn árásum á velferðarkerfið
og til samstarfs í komandi kjara-
samningum."
Arne Dale og Karin Bernhardsson undirbúa Norrænt dagsverk 1991.
að safna peningum heldur að fræða
okkur almennt um ástandið í þróun-
arlöndunum og hjá þessum fátæk-
ari þjóðum heim sem búa margar
við gífurlegar erlendar skuldir og
óðaverðbólgu. í þessum löndum er
lífsbaráttan erfið og unga fólkið fær
ekki nauðsynlega skólagöngu því
það verður að afla tekna og aðstoða
við að framfleyta fjölskyldunni.
Nám og mannréttindi
Sem fyrr segir munu fjármunir
sem safnast í Norrænu dagsverki
renna til hjálpar skólagöngu ungs
fólks í Brasilíu. Hjálparstofnanir
kirknanna í Svíþjóð, Danmörku og
Nöregi hafa átt samstarf við nokkra
aðila í Brasilíu í allmörg ár. Eru
það hvort tveggja kirkjuleg samtök
og ýmis samtök sem beijast fyrir
mannréttindum og bættum kjörum
á ýmsum sviðum. Beita þau sér
einkum í þágu þeirra sem búa í
fátækrahverfum stórborganna og
indíána sem hrakist hafa frá heima-
högum.
Karin Bemhardsson er fram-
kvæmdastjóri Norræns dagsverks á
íslandi og segir hún undirbúning
vel á veg kominn. Búið sé að fá
tengiliði í þeim skólum sem tilkynt
hafa þátttöku og undirbúningsnám-
skeið hafi verið haldin. Lokaundir-
búningur á að fara fram á Akur-
eyri í byijun september. Verið er
að prenta kennsluefni og annað
upplýsingaefni sem dreift verður til
nemenda og kennara og nýlega var
verkefnið kynnt á námskeið hjá
félagsfræðikennurum. Stjórnvöld
hafa styrkt undirbúninginn svo og
nokkur fyrirtæki og er um þessar
mundir verið að leita til þeirra m.a.
til að kanna hvort þau geti ráðið
skólafólk til sérstakra verkefna
þann 10. október næstkomandi.
jt
T-Iöfðar til
XJL fólks í öllum
starfsgreinum!
Ég sendi starfsfélögum, œtúngjum og vinum,
sem glöddu mig meö blómum, gjöfum og
heillaóskaskeytum á 80 ára afmœli mínu, hjart-
anlegar þakkir.
Sigurður Runólfsson.