Morgunblaðið - 12.09.1991, Side 17

Morgunblaðið - 12.09.1991, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUÐAGUR 12. SEPTEMBER 1991 ■ i . i K-ITFTTrrfs^T" 'I ? i H'>! » P RJ jnT7rT-?.!"Ofl Nám fyrir starfsmenn safnaða og aðra áhugamenn: Leikmannaskóli kirkjunn- ar tekur til starfa í haust NÁMSKEIÐ fyrir starfsmenn safnaða og aðra áhugamenn um kirkj- ulegt starf hefst í lok september. Er því ætlað að veita innsýn í skipulag og starfshætti kirkjunnar, efla kirkjulega sýn og kirkjuleg- an skilning og auka þekkingu á kenningu kirkjunnar og hefðum. Kennt verður í tveimur 10 vikna önnum, fjórar kennslustundir í viku. Guðfræðideild Háskólans annast kennsluna, en auk þess verð- ur dvalist í Skálholti er vorar í nokkra daga. Safnaðarstarfið í kirkjunni hefur aukist mjög undanfarin ár og verð- ur í vaxandi mæli í höndum leik- manna. Ýmiss konar nýjar leiðir í starfinu hafa gefist mjög vel, s.s. starf með foreldrum og bömum á virkum dögum. Má þar nefna sem dæmi mömmumorgna, kirkjuskjól og bamakórastarf. Þá hafa hin myndarlegu safnaðarheimili kallað eftir ýmiskonar starfskröftum til starfsemi sinnar. Það hafa því komið fram ítrekaðar hvatningar til fræðsluaðila kirkjunnar um að gangast fyrir námskeiðum þar sem grunnatriði í biblíufræðum, trú- fræði og siðfræði yrðu kennd auk sálgæslu og helgisiðafræði. Nám- skeið sem tekur á þessum þáttum hefur því verið skipulagt og hefst nú í lok september. það eru fulltrú- ar frá guðfræðideild Háskóla ís- lands, Fræðsludeild Biskupsstofu og Skálholtsskóla sem hafa annast undirbúning þessa vísis að leik- mannaskóla kirkjunnar. Það skal tekið fram að ekki er skilyrði að vera starfsmaður kirkj- unnar til að taka þátt í námskeið- inu, heldur era allir áhugamenn velkomnir. Skólagjald er ekkert, enda námskeiðið stutt af Kirkju- ráði. Biskupsstofa veitir allar nán- ari upplýsingar og annast skrán- ingu. (Fréttatilkynning) ---------------------- H í LOK september hefjast í Reykjavík námskeið um stjórnun kvíða. Á námskeiðunum er tekist á við helstu þætti sem orsaka og við- halda kvíða í samskiptum manna. Kenndar era og æfðar sálfræðilegar aðferðir til að fyrirbyggja og yf- irstíga einkenni kvíða, spennu og streitu. Kvíðaviðbrögð koma ekki einungis fram í líkamlegri vanlíðan (höfuðverk, vövðabólgu, svita- og skjálftaköstum), heldur einnig í líki undirgefni, vanmetakenndar, fé- lagslegrar einangranar og þung- lyndis. Stjórnandi námskeiðanna, Oddi Erlingsson sálfræðingur, hefur um árabil leitt slík námskeið og fengist við meðferð þessara vandamála. - - ..N Söngáhugafólk Samkór Kópavogs vantar fólk í allar raddir. Æfingar eru á mánudagskvöldum kl. 20.30- 23.00 í Digranesskóla og byrja 23. sept. nk. Raddprófun. Upplýsingar gefa Agústa, sími 31 857, og Osk, sími 34369. V_______________________ J Hugheilar þakkir fœri ég öllum þeim, sem sýndu mér vináttu og virðingu á sjötugsafmœli minu 15. ágúst síðastliðinn, fyrir heimsóknir um langan sem skamman veg, skeyti, gjafir og hlý orð í minn garð. Sérstaklega vil ég þakka vinum mínum og félögum í Sjálfstœðisfélagi Arnarfarðar og öll- um þeim öðrum, sem lögðu fram skemmti- atriði og aðra fyrirhöfn til að gera móttöku gesta i Baldurshaga á Bíldudal ánœgjulega. Ég, kona mín og fölskylda kunnum ykkur öllum einlœgar þakkir. Matthías Bjarnason. Wlorgunverður og skólanesti Korni hrökkbrauð 300 g . ^ ^ S2SE5-5T*........................... Kavlí kavíar 95 g . . SSu* Rynkeby appelsmusafi 1 irt . Kornflakes 500 g -■ .. 98r Skókijógúd m/ bönunum eða ^ m/ epla+karamellu ' ' ^ %<g&r Kíwí kg ^ 3 ■ MikUgaröur JV-- MiWigarður Miövangi I 10-18 MiWigarð^rGarðab 9M ^ MiðvaJJ ,un n-18 MiWigarður JL-hustnu, vx - KAUPSTAÐUR ÍMJÓDD j^TfíL A1IKLIG4RDUR ALLAR BÚÐIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.