Morgunblaðið - 12.09.1991, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUÐAGUR 12. SEPTEMBER 1991
■ i . i K-ITFTTrrfs^T" 'I ? i H'>! » P RJ jnT7rT-?.!"Ofl
Nám fyrir starfsmenn safnaða og aðra áhugamenn:
Leikmannaskóli kirkjunn-
ar tekur til starfa í haust
NÁMSKEIÐ fyrir starfsmenn safnaða og aðra áhugamenn um kirkj-
ulegt starf hefst í lok september. Er því ætlað að veita innsýn í
skipulag og starfshætti kirkjunnar, efla kirkjulega sýn og kirkjuleg-
an skilning og auka þekkingu á kenningu kirkjunnar og hefðum.
Kennt verður í tveimur 10 vikna önnum, fjórar kennslustundir í
viku. Guðfræðideild Háskólans annast kennsluna, en auk þess verð-
ur dvalist í Skálholti er vorar í nokkra daga.
Safnaðarstarfið í kirkjunni hefur
aukist mjög undanfarin ár og verð-
ur í vaxandi mæli í höndum leik-
manna. Ýmiss konar nýjar leiðir í
starfinu hafa gefist mjög vel, s.s.
starf með foreldrum og bömum á
virkum dögum. Má þar nefna sem
dæmi mömmumorgna, kirkjuskjól
og bamakórastarf. Þá hafa hin
myndarlegu safnaðarheimili kallað
eftir ýmiskonar starfskröftum til
starfsemi sinnar. Það hafa því
komið fram ítrekaðar hvatningar
til fræðsluaðila kirkjunnar um að
gangast fyrir námskeiðum þar sem
grunnatriði í biblíufræðum, trú-
fræði og siðfræði yrðu kennd auk
sálgæslu og helgisiðafræði. Nám-
skeið sem tekur á þessum þáttum
hefur því verið skipulagt og hefst
nú í lok september. það eru fulltrú-
ar frá guðfræðideild Háskóla ís-
lands, Fræðsludeild Biskupsstofu
og Skálholtsskóla sem hafa annast
undirbúning þessa vísis að leik-
mannaskóla kirkjunnar.
Það skal tekið fram að ekki er
skilyrði að vera starfsmaður kirkj-
unnar til að taka þátt í námskeið-
inu, heldur era allir áhugamenn
velkomnir. Skólagjald er ekkert,
enda námskeiðið stutt af Kirkju-
ráði. Biskupsstofa veitir allar nán-
ari upplýsingar og annast skrán-
ingu.
(Fréttatilkynning)
----------------------
H í LOK september hefjast í
Reykjavík námskeið um stjórnun
kvíða. Á námskeiðunum er tekist á
við helstu þætti sem orsaka og við-
halda kvíða í samskiptum manna.
Kenndar era og æfðar sálfræðilegar
aðferðir til að fyrirbyggja og yf-
irstíga einkenni kvíða, spennu og
streitu. Kvíðaviðbrögð koma ekki
einungis fram í líkamlegri vanlíðan
(höfuðverk, vövðabólgu, svita- og
skjálftaköstum), heldur einnig í líki
undirgefni, vanmetakenndar, fé-
lagslegrar einangranar og þung-
lyndis. Stjórnandi námskeiðanna,
Oddi Erlingsson sálfræðingur,
hefur um árabil leitt slík námskeið
og fengist við meðferð þessara
vandamála.
- - ..N
Söngáhugafólk
Samkór Kópavogs vantar fólk í allar raddir.
Æfingar eru á mánudagskvöldum kl. 20.30-
23.00 í Digranesskóla og byrja 23. sept. nk.
Raddprófun.
Upplýsingar gefa Agústa, sími 31 857, og
Osk, sími 34369.
V_______________________ J
Hugheilar þakkir fœri ég öllum þeim, sem
sýndu mér vináttu og virðingu á sjötugsafmœli
minu 15. ágúst síðastliðinn, fyrir heimsóknir
um langan sem skamman veg, skeyti, gjafir
og hlý orð í minn garð.
Sérstaklega vil ég þakka vinum mínum og
félögum í Sjálfstœðisfélagi Arnarfarðar og öll-
um þeim öðrum, sem lögðu fram skemmti-
atriði og aðra fyrirhöfn til að gera móttöku
gesta i Baldurshaga á Bíldudal ánœgjulega.
Ég, kona mín og fölskylda kunnum ykkur
öllum einlœgar þakkir.
Matthías Bjarnason.
Wlorgunverður og skólanesti
Korni hrökkbrauð 300 g . ^ ^
S2SE5-5T*...........................
Kavlí kavíar 95 g . . SSu*
Rynkeby appelsmusafi 1 irt .
Kornflakes 500 g -■ .. 98r
Skókijógúd m/ bönunum eða ^
m/ epla+karamellu ' ' ^ %<g&r
Kíwí kg ^
3 ■ MikUgaröur JV-- MiWigarður Miövangi I
10-18 MiWigarð^rGarðab 9M ^ MiðvaJJ
,un n-18 MiWigarður JL-hustnu, vx -
KAUPSTAÐUR
ÍMJÓDD
j^TfíL
A1IKLIG4RDUR
ALLAR BÚÐIR