Morgunblaðið - 12.09.1991, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1991
SIEMENS
Lítiö inn til okkar og skoðið vönduð
vestur-þýsk heimilistœki!
Hjá SIEMENS eru gœði, ending og
fallegt útlit ávallt sett á oddinn!
SMITH &NORLAND
NÓATÚNI 4 ■ SlMI 28300
STJARNAN
GARÐABÆ
Líkamsrækt fyrir alla aldurshópa
í íþróttamiðstöðinni Asgarði
Leíkfimi
fyrir karla og konur á mánudögum, miðvikudögum og laugardögum.
Sund og heitir pottar eftir hvern tíma.
Tímarnir eru kl. 17.15,18.15 og 19.10.
Leiðbeinendur eru Lovísa Einarsdóttir, Ólafur Á. Gislason,
Sigurjón Elíasson og Birna Guðmundsdóttir, íþróttakennarar.
Mömmumorgnar
á mánudags og fimmtudagsmorgnum. Fjölbreytt leikfimi.
Leiðbeinandi Birna Guðmundsdóttir íþróttakennari.
Nánari upplýsingar
og innritun í síma 651940 á fimmtudag og föstudag.
Námskeiðin hef jast mánudaginn 16. september n.k.
Gönguferð um gosbeltið, 11. ferð:
Hestagjá - Víðiker
eftirBaldur
Sveinsson
Lagt verður af stað frá Um-
ferðarmiðstöðinni kl. 10 og 13
sunnudaginn 15. september og
er þetta 11. ferðin og sú næstsíð-
asta um gosbeltið. Ekið verður
sem leið liggur um Mosfellsdal
að Kárastaðastíg, en hann er
gamla ökuleiðin niður í AI-
mannagjá. Til hægri handar er
Hakið með ágætri útsýnisskífu.
Áður en lagt er af stað í gönguna
er tilvalið að ganga að skífunni
og kynna sér vel hinn fagra
fjallahring, sem verður fyrir aug-
um næstu stundirnar og njóta
um leið helgi staðarins.
Gert er ráð fyrir að fylgt verði
Almannagjá allt til Leynistígs.
Við Drekkingarhyl verður farið
yfír Öxará og gengið undir Fang-
brekku og Hallinum inn á Vellina
efri, en þaðan eftir göngustíg
upp í Stekkjargjá. Er þaðan stutt
að ganga að öxarárfossi, þar sem
hann fellur niður í gjána tær og
fagurskapaður með léttum úða
til mikillar prýði fyrir annars
dásamlegan hamrasal.
í Fangbrekku munu þinggest-
ir hafa setið og horft á glímur
og aðra leika, sem fram fóru á
sléttum vellinum fyrir neðan.
Haldið verður göngunni áfram
norður Stekkjargjá og farið upp
úr henni til vinstri inn svokallað-
an Langastíg og er þá komið upp
á brúnir Snókagjár. Snókagjá er
fremur erfið yfirferðar á köflum,
vegna mikils framhruns úr gjár-
veggjum og er því betra að
þræða brúnir hennar, þegar
komið er inn á Tæpastíg, þar sem
þjóðvegurinn liggur niður á Leir-
ana, er rétt að beygja til vinstri
og ganga Hvammagjá inn undir
Leynistíg. Hún er björt og gróð-
ursæl og slétt undir fæti.
Nú er stefnan tekin um Bola-
bás og Sleðaás undir hlíðum
Ármannsfells. Vestan undir
Sleðaási, þar sem vegurinn
sveigir upp á hann, stendur mik-
ill steinn nefndur Grettishaf.
Segir sagan, að Grettir hinn
sterki hafi eitt sinn dundað við
að lyfta þessu bjargi, þegar hann
hafði ekkert merkilegt fyrir
stafni. Ekki er þó ráðiegt fyrir
göngumenn að þreyta sig neitt
við bjargtök að þessu sinni, því
Á slóðum
Ferðafélags
íslands
að alllöng leið er enn fýrir hönd-
um. Leiðin liggur nú við hlíðar-
rætur Ármannsfells og er sig-
dældin mikla, hinir fögru Blá-
skógar, á hægri hönd. Einnig
blasa við til sömu handar
Hrafnabjörgin með þverhníptum
móbergshömrum og setja
þróttmikinn svip á landslagið.
Framundan gnæfír fegursta
dyngja landsins, fjallið Skjald-
breiður, og gersemi fjallahrings
sveitarinnar.
Brátt er komið á Hpfmanna-
flöt við austurenda Ármanns-
fells, en þar skiptast leiðir. Leið-
in til vinstri liggur um Sandkluft-
ir, en sú til hægri er nefnd Ey-
firðingarvegur. Hér mun hafa
verið áningarstaður manna og
hesta um langan aldur, malur
opnaður og dreypt á ferðapela.
Einnig er þess getið í fornum
bókum, að þegar Ármann bjó í
Ármannsfelli hafi verið efnt til
íþróttamóts þar á vellinum og
voru þar mættir til leiks hálf-
þursar og önnur heljarmenni
víðsvegar að af landinu. Fóru
þar fram knattleikir og glímur
allstórkarlalégar. Skessur og
jötnastelpur sátu á Skessusæti
og hvöttu garpana til átaka og
hlógu dátt, svo að kvað við í.fjöll-
unum. Bárður Snæfellsás var þar
mættur til leiks og hvað hann
sér hljóðs við mótslok og mælti
svo: „Mun mannfundur þessi í
minnum hafður, því ég hygg eigi
komi annars staðar saman
fríðara drengjaval né röskvari
garpar, en hér eru nú og skal
völlur þessi, er vér höfum hist,
heita Hofmannaflötur.“
Liggur nú leiðin upp fyrir
Sandkluftir með Lágafell á
hægri hönd. Opnast nú sýn í
norður fyrir sandorpna sléttu,
sem þó er nokkuð gróin, þar sem
heita Ormavellir. Lítið vatn,
Sandkluftavatn, en þar í kvosinni
til vinstri. Við enda sléttlendisins
ber fyrir augu brekku sem upp
skal klífa, og heitir þar Trölla-
háls.
Kemur þá í hugann gömul
þjóðsaga um sakarmanninn
Skúla, sem flýði undan óvinum
sínum þessa leið og norður um
Kaldadal. Segir sagan að hann
hafí verið dæmdur á þingi til
lífláts, en hann hafi sloppið úr
haldi og komist á hest sinn Sörla
mikinn stólpagrip. Reið hann
síðan einhesta frá Þingvöllum
norður um Kaldadal til Húsafells
og er á þeirri leið örnefnið Skúla-
skeið, en þar sneru fjandmenn
hans aftur, því að þar er ekki
reiðvegur sökum stórgrýtis.
Grímur Thomsen hefur með
kjarnyrtu kvæði gert afrek Sörla
ódauðlegt. Kvæðið hefst þannig:
Þeir eltu hann á átta hófahreinum
og aðra tvenna höfðu þeir til reiðar
en Skúli gamli sat á Sörla einum
og svo að heldur þótti gott til’veiðar.
Og síðar segir í sama kvæði:
Þynnast bráðum gerði fjanda flokkur
fimm á Tröllahálsi klárar sprungu
og í Víðikerum var ei nokkur
vel fær nema garpur Sveins í Tungu.
Og nú eiga göngumenn eftir
að klífa þennan snarbratta háls
og því ráðlegt að blása mæðinni
við rætur hans, áður en upp-
gangan er hafin. Norðan við
hálsinn taka við Víðiker, sauð-
land gott og er þá komið að
endalokum þessarar gönguferð-
ar. Nú ræður fararstjóri hversu
langt verður gengið inneftir Víði-
kerunum. Upp frá Víðikerum rís
allmikið fell, Kvígindisfell, en í
suðvestri rísa Botnssúlur í allri
sinni tign. Til norðausturs er jö-
klasýn, en til austurs sést til
Hlöðufells handan Skjaldbreiðar.
Boðið er upp á tvær raðgöng-
ur um gosbeltið þennan sunnu-
dag, brottför í fyrri ferðina er
kl. 10.00 en þá seinni kl. 13.00,
frá Umferðarmiðstöðinni, aust-
anmegin. Styttri gönguferðin
hefst hjá Víðivöllum og endar í
Víðikerum.
Höfundur er verkfræðingur.
.
i
i
i
»
»
'
»
i
t
í
í