Morgunblaðið - 12.09.1991, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ EIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1991
Víkingaskipið Gaia á siglingu.
Víkingaskip gera
strandhögg í Boston
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins.
ÞRJÚ LANGSKIP, Gaia, Saga Siglar og Oseberg, komu til hafnar
í Boston í Massachusetts síðdegis í gær. Knerrirnir eru á siglingu nið-
ur með austurströnd Norður-Ameríku og er Boston fyrsti viðkomustað-
ur þeirra í Bandaríkjunum. Tilefni siglingarinnar er að í ár eru 1000
á liðin frá því að Leifur heppni Eiríksson sigldi til Nýja heimsins.
Tekið var á móti skipunum með
fallbyssuskotum fyrir utan Castle
Island, eiði eitt í Boston. Þaðan var
siglt í fylgd annarra báta að sjóher-
skipahöfninni í Charlestown, sem er
eitt úthverfa Boston. Þar verða
knerrimir almenningi til sýnis í eina
viku og á föstudag og laugardag
verða á dagskrá ýmis skemmtiatriði
þar sem þjóðmenning og listir á
Norðurlöndum verða kynnt.
íslendingar og Norðmenn standa
sameiginlega að leiðangrinum, sem
að hluta til er fjármagnaður af
norska skipakónginum Knut Kloster.
Opinber tilgangur ferðarinnar er að
auka vitund almennings um um-
hverfismál með því að gera mönnum
ljóst að án þeirrar ævintýraþrár, sem
víkingamir bjuggu yfír og sýndu,
muni mannkyn halda áfram að tor-
tíma jörðinni.
Ýmsir í áhöfninni kváðust einnig
sjá annan tilgang í viðtali við banda-
ríska dagblaðið, Boston Globe, og
sögðu að hér væri komið kærkomið
tækifæri til að sýna Kristófer Kól-
umbusi og þeim, sem á næsta ári
ætla að fagna því að 500 ár verða
liðin frá því hann sigldi til Ameríku,
hvemig í raun og veru er í pottinn
búið. Eins og dagblaðið hafði eftir
Gunnari Eggertssyni, stýrimanni
Gaiu: „Myndir þú vilja láta ganga
framhjá þér ef þú vissir að þú hefðir
unnið kappsiglinguna með 500 ára
forskoti?“
Gaia, Saga Siglar* og Oseberg
fengu hagstæðan byr frá síðasta við-
komustað í Halifax í Nova Scotia og
sigldu því þremur dögum á undan
áætlun inn í band'aríska landhelgi.
Þar sem ekki mátti spilla þeim mót-
tökum, sem undirbúnar höfðu verið
fyrir knerrina í Boston ákváðu áhafn-
ir þeirra að kasta akkerum og láta
fyrirberast fyrir utan bæinn Salem.
Þá var einnig hægt að láta skipin
líta vel út þegar þau kæmu fyrir al-
mennings sjónir. Illa gekk þó að fara
huldu höfði. Þúsund ára gömul skip
eru auðþekkjanleg frá farkostum
okkar daga og fyrr en varði höfðu
smábátar safnast umhverfis Iangbát-
ana og flugvélar hnituðu hringa í
lágflugi yfir þeim. Ýmsir áttu erfitt
með að trúa því að þessi skip gætu
flotið og aðrir spurðu hvort þau
væru í raun þúsund ára gömul. Marg-
ir þeirra sem áttu leið framhjá, vörp-
uðu vínflöskum og bjórkippum um
borð og voru þessar óumbeðnu gjafir
vel þegnar þegar kvölda tók og gítar-
inn var tekinn fram.
Gaia er eftirlíking af 79 feta löngu
og 850 ára gömlu víkingaskipi, sem
var grafið upp í Noregi árið 1880.
Saga Siglar, sem er 57 fet á lengd,
og Osebek, sem er 71 fet á lengd
eru eftirlíkingar skipa, sem hafa ver-
ið grafnar upp í Danmörku og Nor-
egi. Nafnið Gaia er komið frá frú
Vigdísi Finnbogadóttur forseta.
Skipin hafa öll einhvem nútímaút-
búnað. Hvert skip hefur káetu, litla
vél, talstöð og rafmagnsdælu til að
dæla út sjó, sem lekur linnulaust
gegnum viðarkili makaða tjöru og
hampi.
Ragnar Thorseth er skipstjóri
Gaiu og jafnframt leiðangursstjóri.
Hann er blaðamaður og ofurhugi.
Hann vakti mikla athygli í Noregi
fyrir tveimur árum þegar hann tók
að mata ísbirni út um gluggann á
stýrishúsi báts síns, Havella, um-
kringdur ísjökum við Spitzbergen.
Skipin sigla á þriðjudag í næstu
viku áfram til Newport á Rhode Is-
land, þaðan til New York og að síð-
ustu til Washington. Þá verður kom-
ið fram í október.
Myriam Bat-Yosef
sýnir í FIM-salnum
MYNDLISTARKONAN María
Jósefsdóttir, eða Myriam Bat-
Yosef eins og hún heitir réttu
nafni, heldur um þessar mundir
sýningu verkum sinum í sal
Félags íslenskra myndlistar-
manna við Garðastræti. Á sýn-
ingunni eru rúmlega 50 verk
listakonunnar frá síðustu árum,
flest máluð með vatnslitum á
silki, pappír eða léreft. Hún
hélt síðast sýningu hér á landi
árið 1988.
Myriam Bat-Yosef er fædd í
Berlín í Þýskalandi en foreldrar
hennar voru Gyðingar frá Líthá-
en. Fjölskyldan fluttist til Palest-
ínu árið 1934 og var Myriam alinn
þar upp. Hún stundaði listnám
sitt íísrael og síðan í París en flutt-
ist hingað til lands 1956 ásamt
þáverandi eiginmanni sínum,
Guðmundi Guðmundssyni, Erró.
Á íslandi bjó hún í eitt ár og hef-
ur síðan komið til landsins á
tveggja til þriggja ára fresti og
haldið sýningar á verkum sínum.
Sýningar hennar hér á landi eru
því orðnar 17 eða 18 en alls hefur
hún haldið yfir 60 einkasýningar
víðs vegar í heiminum. Hún hefur
undanfarin ár búið og starfað í
Latínuhverfinu í París.
I samtali við Morgunblaðið
sagði Myriam að tengsl sín við
ísland væru mjög mikil. Hér ætti
hún fjölda vina og kunningja og
héldi við þá góðu sambandi. Varð-
andi verkin á sýningunni sagði
hún að þau sýndu hvað hún hefði
verið að gera á síðustu árum. Hún
hefði fyrir fjórum árum farið að
mála á silki, fyrst slæður, en síðar
til dæmis hálsbindi. Hún hefði
mjög gaman af því að fást við
Myriam Bat-Yosef við tvö verka
við Garðastræti.
ólíkar gerðir silkis með mismun-
andi áferð enda þætti henni
skemmtilegt að vinna með ólíka
hluti. Á sýningunni væri til dæm-
is verk, sem málað væri á lok af
salernisskál.
Myriam segir að hún vilji sýna
manninn í verkum sínum og þar
beri mikið á táknum eins og aug-
um, höndum og þríhyrningum,
sem mjókka niður. Augun og
Morgunblaðið/RAX
sinna á sýningunni í FÍM-salnum
hendurnar séu verkfæri hennar
við sköpun myndverksins og þrí-
hyrningurinn tákni konuna. Þetta
komi líka fram í þeim gjörningum,
sem hún sýni af myndbandi á
sýningunni. Þar sé markmið henn-
ar að verða sjálf hluti af listaverk-
inu.
Syning Myriam Bat-Yosef var
opnuð þann 5. september og
stendur hún til 23. september.
Sjómannaafslátturinn um 1,5 milljarðar 1991:
Lögskráðum dögum fjölgar þrátt
fyrir óbreyttan fjölda sjómanna
Sjómenn vara stjórnvöld við afleiðingum af skerðingu skattafrádráttarins
ATHUGUN sljórnvalda á leiðum til að bregðast við fyrirsjáanlegu
tekjutapi rikissjóðs á næsta ári hefur m.a beinst að skerðingu sjó-
mannaafsláttar en talið er að sjómenn njóti allt að 1,5 milljarðs kr.
skattafrádráttar vegna hans á þessu ári, sem skiptist á milli rúm-
lega 10.600 framteljenda. Sjómannaafslátturinn byggist á fjölda lög-
skráningardaga en upplýsingar skattframtala um skráða daga á sjó,
sem byggt er á við fjárlagagerð, sýna að á síðustu tíu árum hefur
meðalfjöldi lögskráðra daga á hvem sjómann aukist úr 188 árið 1980
í 220 árið 1990. Fjöldi sjómanna hefur hins vegar staðið í stað.
Óskar Vigfússon formaður Sjó-
mannasambandsins segir þetta al-
gerlega rangt. Kerfið hafi ekki
breyst þrátt fyrir staðgreiðsluna.
„Ég get fullyrt að undirmenn eru
ekki skráðir á sjó þá daga sem
þeir eru í landi,“ sagði Óskar.
Benedikt Valsson, framkvæmda-
stjóri Farmanna- og fiskimanna-
sambands íslands, segir að eðlilegar
skýringar séu á fjölgun Iögskrán-
ingardaga. „Flotinn hefur stækkað
á þessu tíu ára tímabili. Frystitogar-
ar taka nær tvöfaldan mannskap á
við hefðbundinn ísfisktogara og
starfstækifæri sjómanna á sjó hafa
aukist. Smábátum hefur líka fjölgað
gríðarlega," sagði hann.
Sjómenn afskráðir í fríum
Benedikt sagðist ennfremur telja
víst að aukning hefði orðið á árs-
verkum í sjávarútvegi á undanförn-
um árum eins og fram kæmi fram
í skýrslum Hagstofunnar. Aðspurð-
ur hvort sjómenn væru lögskráðir
þegar þeir væru í landi, sagði hann
að skv. lögskráningarlögum ætti
að afskrá alla sjómenn af skipum
þegar þeir tækju sér frí. „Það er
alltaf gengið þannig um hnútana
að það eru aldrei skráðir aðrir fyrir
hvern túr en þeir sem eru um borð.
Lögskráningarstjórar eru sýslu-
menn og fulltrúar þeirra sem sjá
um þetta og ég tel enga ástæðu til
að ætla annað en að þessi lögskrán-
ing sé rétt í öllum höfuðatriðum,“
sagði Benedikt.
Jafngildir stríðsyfirlýsingu
Fulltrúar FFSÍ hafa afhent ijár-
málaráðherra ályktun stjórnar sam-
bandsins þar sem stjómvöld eru
vöruð við afieiðingum þess að
skerða sjómannaafsláttinn. „Stjórn
FFSÍ telur það jafngilda stríðsyfir-
lýsingu við sjómenn ef stjórnvöld
ætla að framkvæma þessi áform
og mun þess vegna hvetja til
snarpra og róttækra aðgerða af
hálfu allra starfandi sjómanna,"
segir í ályktuninni.
Benedikt sagði að á fundi með
ráðherra hefði komið fram að engin
ákvörðun hefði verið tekin en málið
væri enn í skoðun í ráðuneytinu.
Ráðherra hafi þó sagt að hann
myndi hafa samráð við samtök sjó-
manna ef ákvörðun yrði tekin um
þetta.
„Sjómenn benda á að þessi
skattahlunnindi eru hluti af þeirra
kjörum. Þeir standa frammi fyrir
því að þurfa að taka á sig 12%
raunlækkun launa vegna skerðing-
ar á aflakvótum á yfirstandandi
fiskveiðiári. Ríkisstjómin hefur lýst
yfir að hún ætli ekki að hækka
skatta. Ef sjómannaafslátturinn
yrði lækkaður þýddi það skatt-
hækkun fyrir sjómenn,“ sagði
Benedikt.
Heilagur í augum sjómanna
Óskar Vigfússon segir að fulltrú-
ar Sjómannasambandsins muni
hitta fjármálaráðherra á morgun
þar sem krafist verður svara við
hvort þrálátur orðrómur um skerð-
ingu afsláttarins eigi við rök að
styðjast. „Sjómannaafslátturinn er
heilagur í augum sjómanna og það
verður ekki unað við að stjómvöld
leggist á hann. Því yrði svarað af
sjómannastéttinni,“ sagði Óskar.
Skipstjórafélag Norðlendinga
hefur sent frá sér hörð mótmæli
við öllum áformum um að skerða
sjómannaafsláttinn. „Stjórn S.N.
telur það siðlaust, ef þannig verður
ráðist að starfskjörum einnar
starfsstéttar í landinu. Sjórn S.N.
telur einsýnt, ef þessi áform ná
fram að ganga muni sjómenn mæta
þeim með hörðum aðgerðum,“ segir
m.a.í ályktuninni.
20 þús. á mánuði
Auk fiskimanna, njóta farmenn
og hlutaráðnir sjómenn eins og beit-
ingamenn sjómannaafsláttar en
hann byggist á fjölda lögskráðra
daga og getur orðið allt að 20 þús-
und krónur á mánuði hjá sjómanni
í fullu starfi. Kemur afslátturinn til
viðbótar persónuafslætti. Það jafn-
gildir um 110 þús. kr. skattleysis-
mörkum sjómanna, en skattleysis-
mörk landverkafólks eru 60 þúsund
kr.
Skv. upplýsingúm Hómgeirs
Jónssonar framkvæmdastjóra sjó-
mannasambandsins hefur sjómönn-
um í heilsársstörfum lítið ljölgað á
undanförnum árum. „Árið 1988 var
heildarfjöldi sjómanna, miðað við
heilsársstörf, 6.263, 1989 var hann
6.290 og á síðasta ári 6.553,“ sagði
hann.
Samkvæmt upplýsingum sem
byggðar eru á skattframtölum var
heildarfjöldi framteljenda sem töldu
fram laun af sjómennsku árið 1980
rúmlega 10.600 og meðalfjöldi lög-
skráningardaga á hvem sjómann
188. Árið 1985 hafði sjómönnum
fækkað í um 10.400 en skráðum
dögum á hvern sjómann hafði fjölg-
að í 200 og árið 1990 var fjöldi
þeirra sem nutu sjómannaafsláttar
10.675 en meðalfjöldi lögskráning-
ardaga 220.
í fjármálaráðuneytinu er áætlað
að laun sjómanna hafi hækkað tals-
vert umfram laun annarra launþega
síðasta áratuginn eða allt að 20%.
Skattbyrði sjómanna sé hins vegar
rúmlega 10% lægri hjá sjómönnum
en landverkamönnum ef miðað er
við sömu laun. Mánaðarlaun sjó-
manna á þessu ári eru hins vegar
áætluð um 190 þúsund kr. að með-
altali en laun landverkafólks um eða
undir 100 þúsund.