Morgunblaðið - 12.09.1991, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUÐAGUR 12. SEPTEMBBR 19ðl
33
„Sjóræningjar“
eftir Friðrik
Haraldsson
Oddný Sv. Björgvins er enn þá
við sama heygarðshornið, þegar
hún ijallar um ferðamál og útlend-
inga, sem starfa að þeim hérlendis.
Hér er átt við svokallaða viðtals-
pistla, þar sem hún „gefur fulltrú-
um erlendra ferðaskrifstofa tæki-
færi“ til að koma skoðunum sínum
á framfæri vegna „neikvæðra við-
bragða íslendinga í ferðaþjónustu“,
einkum leiðsögumanna.
Það er leitt til þess að vita, að
O.Sv.B. skuli ekki hafa beitt þeim
gáfum og dómgreind, sem margir
vita, að hún býr yfir til að kynnast
öllum hliðum þeirrar atvinnugrein-
ar, sem hún hefur tekið að sér að
skrifa um í víðlesnasta dagblað
landsmanna. Hún fellur sí og æ í
sömu gryfjuna, þegar hún ræðst
með atvinnurógi á samlanda sína í
þessari mikilvægu þjónustu og upp-
hefur erlenda lögbijóta, sem hafa
árum saman verið staðnir að verki.
Umijöllun hennar er byggð á
ótrúlegu þekkingarleysi og virðing-
arleysi fyrir landslögum, illgirni í
garð ferðaþjónustunnar, útlend-
ingadekri og undirlægjuhætti. Eina
ályktunin, sem hægt er að draga
af málflutningi hennar, er sú, að
einhver eða einhveijir í þessari at-
vinnugrein hafi sært hana svo djúpu
sári hér á árum áður, að eigi grói
aftur um heilt. Fari ferðaþjónustan
svo mjög í taugarnir á henni ætti
hún að huga að öðrum starfsvett-
vangi hið allra fyrsta.
O.Sv.B. er því miður ekki ein á
báti hvað niðurrifsstarfsemi snertir.
Hún á sem betur fer ekki nema fáa
skoðanabræður og systur, sem sum
telja sig eiga um sárt að binda eft-
ir viðskipti sín við ferðaþjónustuna,
en eru samt að fúska í atvinnugrein-
inni öllum til óþurftar og skaða
vegna þess, hve hátt þau láta í fjöl-
miðlum og hve rækilega hefur
tekizt að rugla embættismenn í
þeim ráðuneytum, sem fjalla um
ferðamál og atvinnuleyfí.
Þessir rugludallar hafa beint og
óbeint hvatt útlendinga til lögbrota
og þar með grafið undan sjálfum
„Þessir rugludallar
hafa beint og óbeint
hvatt útlendinga til lög-
brota og þar með grafið
undan sjálfum sér
ásamt öllum öðrum,
sem málið snertir og
hafa afkomu af ferða-
þjónustu hérlendis.“
sér ásamt öllum öðrum, sem málið
snertir og hafa afkomu af ferða-
þjónustu hérlendis. Þetta fólk hefur
verið og er svo blint á kjarna máls-
ins, að það er litið hornauga úr öll-
um áttum og álitið furðufuglar og
utangarðsfólk.
Kjarna málsins, sem er íslenzk
lög og reglugerðir, forðast O.Sv.B.
sem heitan eldinn í furðuskrifum
sínum. Hún hamrar á frelsi okkar
til ferða með íslenzka hópa um
önnur lönd, þar sem gilda aðrar
reglur, stundum strangari en hér
og stundum vægari, án þess að
gera greinarmun þar á. Þarna af-
hjúpar hún algert þekkingarleysi
sitt og lætur tilfinningar sínar og
viðmælenda sinna ríða röftum. Vilji
hún og aðrir viðhlægjendur hennar
draga úr takmörkunum, sem lög
og reglur setja starfsemi erlendra
ferðaútgerða hérlendis, verða þau
að beijast fyrir breytingum í stað
þess að stuðla beint og óbeint að
lögbrotum. Hér skal vísað í nokkur
lög og regiugerðir, sem brotin hafa
verið árum saman af skjólstæðing-
um O.Sv.B.
1. Reglugerð um hópferðir er-
lendra aðila í atvinnuskyni, þar sem
m.a. er kveðið á um skilyrði til
reksturs erlendra ferðaskrifstofa og
starfa erlendra leiðsögumanna hér-
lendis.
2. Lög um atvinnuréttindi útlend-
inga, sem skýra nákvæmlega
hvernig skuli staðið að umsóknum
um atvinnuleyfi, m.a. um nauðsyn
þess, að slík leyfi þurfi að hafa við
komuna til landsins, ella verði við-
komandi að snúa aftur til síns
heima.
Um flokksstj órnar-
fund Alþýðuflokksins
Athugasemd frá Guðmundi Einarssyni
í Morgunblaðinu þriðjudaginn
10. september er frétt af flokks-
stjórnarfundi Alþýðuflokksins sl.
föstudag.
Fréttin er byggð á fréttatilkynn-
ingu frá Ólínu Þorvarðardóttur og
þar er ekki rétt sagt frá málsatvik-
um við tillöguflutning á fundinum.
Skýrt er þar frá tillögu sem Ólína
Þorvarðardóttir, Guðmundur Árni
Stefánsson og fleiri fluttu um að
flokksstjóri áréttaði að aldrei mætti
víkja frá grundvallarstefnumiðum
flokksins. Síðan segir að flutnings-
menn hafi lagt til að bætt yrði fram-
an við setningu, þar sem lýst er
stuðningi við forystumenn flokks-
ins, ráðherra og þinglið í framgöngu
þeirra við gerð ríkisijárlaga.
Síðan segir að „áður hafi tillaga
um traustsyfirlýsingu á ráðherrana,
borin fram af Guðmundi Einars-
syni, verið dregin tii baka.“
Það síðastalda er rangt. Hið rétta
er að undirritaður, Guðmundur Ein-
arsson, gerði margumrædda tillögu
Ólínu Þorvarðardóttur, Guðmundar
Árna Stefánssonar o.fl. um grund-
vallarstefnumið flokksins, að um-
talsefni á fundinum og benti á að
ekki væri ljóst af henni hvert tilefni
væri til flutnings hennar.
Undirritaður bar fram breyting-
artillögu þar sem lögð var til sú
viðbót að fundurinn vísaði algerlega
á bug þeim áburði að forysta flokks-
ins hefði gengið á svig við grund-
vallaratriði stefnunnar og að fund-
urinn lýsti yfir fyllsta stuðningi við
forystufólkið.
ðlína Þoi’varðardóttir kom síðar
í ræðustól og bar efnislega fram
þá breytingu á tillögu undirritaðs,
að brott félli fyrri hlutinn, þar sem
vísað var á bug áburðinum um svik,
en látin yrði standa traustsyfirlýs-
ingin.
í ljósi þess að langt var liðið á
nótt ákvað undirritaður að höfðu
samráði við fundarstjóra að draga
tillögu sína til baka. En það var
ekki gert áður en tillaga Ólínu kom
fram eins og sagt er í fréttatilkynn-
ingu hennar. Þvert á móti var það
gert eftir að Ólína hafði flutt sína
tillögu og.ljóst var að hún myndi
standa að traustsyfirlýsingu á for-
ystumenn flokksins.
Það verður svo hver að finna það
út fyrir sig af hveiju Ólína Þorvarð-
ardóttir vildi ekki að flokksstjórn
Alþýðuflokksins andmælti þeim,
sem áður höfðu borið flokksforyst-
unni það á brýn að hún virti stefn-
una að vettugi.
Það er auðvitað ósköp leiðinlegt
að þurfa að ónáða lesendur Morg-
unblaðsins með þessu máli og flest-
ir geta látið það fara fram hjá sér.
En einhveijir eru vafalaust að
reyna að átta sig hvað gerðist á
flokksstjórnarfundinum góða.
Þeirra vegna taldist rétt að benda
á að frásögn Ólínu Þorvarðardóttur
er ekki sannleikanum samkvæmt
eins og hún er birt í Morgunblaðinu.
í ferðaþjónustu
3. Lög um stéttarfélög og vinnu-
deilur, sem kveða m.a. á um, að
lágmarkslaun útlendinga í vinnu
hérlendis megi ekki vera lægri en
lágmarkstaxti viðkomandi stéttar-
félags segir til um.
Hægt er að tína fleira til, t.d.
reglur, sem útlendingaeftirlitið á
að framfylgja, s.s. að ganga úr
skugga um að fólk hafí atvinnu-
leyfi við komuna til landsins, sem
hefur ekki verið sinnt, þegar um
leiðsögumenn hefur verið að ræða.
Málflutningur leiðsögumanna
hefur frá upphafi byggzt á því, að
yfirvöld framfylgi gildandi lögum
og reglugerðum til þess að þeir njóti
sömu verndar og önnur stéttarfé-
lög. Hingað til hafa þeir verið eins
og vergangsmenn við garðshlið
hinna háu herra og hafa ekki feng-
ið annað en orðhengilshátt og útúr-
snúninga. Vonandi má innan tíðar
vænta umsagnar Umboðsmanns
Alþingis eftir 17 ára hráskinnsleik
ónýtra embættismanna.
íslenzkir leiðsögumenn hafa aldr-
ei haft horn í síðu þeirra útlend-
inga, sem hafa aflað sér réttra leyfa
eftir réttum leiðum og á réttum
tíma. Undanþágur til útlendinga
hafa ætíð átt sér stað eftir að stétt-
arfélag var stofnað hinn 6. júní
1972, lengst af samkvæmt anda
laga um atvinnuréttindi útlendinga,
þar til einn embættismaður félags-
málaráðuneytisins var ruglaður svo
í ríminu, að hann hefur ekki borið
barr sitt síðan og valdið ómældu
tjóni. Þar með kallaði hann yfír sig
Friðrik Haraidsson
og fylgifiska sína stríð, sem tekur
ekki enda fyrr en lög verða virt eða
þeim breytt.
Fyrir skömmu tók Ferðamálaráð
íslands þá ábyrgð á sínar herðar,
án lagaheimildar, að gefa út undan-
þágur til útlendinga til að fara með
og stýra erlendum hópum um land-
ið okkar. Sett var á fót undanþágu-
nefnd þriggja aðila, fulltrúa Ferða-
málaráðs ferðaskrifstofanna og Fé-
lags leiðsögumanna. Auk þess að
þessi skipan mála sé í trássi við
gildandi lög er réttur stéttarfélags-
ins til umsagnar numinn úr gildi,
þar eð einn fulltrúi þess í nefndinni
verður ævinlega í minnihluta.
Árið 1990 veitti þessi undanþág-
unefnd 46 útlendingum leyfi til
starfa hérlendis og nú í ár urðu
undanþágurnar 71 samkvæmt lista
frá Ferðamálaráði 16. júlí 1991,
sem sundurliðast þannig:
Imbach Reisen 3
Ferðaskrifstofan Saga 1
Ferðaskrifst. G. Jónassonar hf. 3
Samvinnuf. — Landsýn 8
BSÍ 35
Land og Saga 10
Ferðaskrifstofa íslands 1
Natur Reisen 10
Margir þessara aðila sóttu svo
seint um leyfi, að fjöldi útlendinga
var farinn af stað með hópa um
landið í hrópandi trássi við íslenzk
lög, margir fengu synjun en störf- v
uðu samt og margir hirtu ekki um
að sækja um undanþágu.
Til þess að saklausir líði ekki
undir þessari ádrepu verður að geta
þess, að einn skipuleggjandi ferða
frá Austurríki, Kneissl-Turistik,
liggur undir mestu ámæli. Undirrit-
aður sat sjálfur fyrir framan Elísa-
betu Kneissl, einn eiganda þessa
fjölskyldufyrirta'kis, þegar hún lof-
aði í upphafi að virða íslenzk lög
og reglur og hét góðu samstarfi.
Við það hefur hún ekki staðið og
komizt upp með það. Á hennar veg-
um voru nokkrir undanþágulausir
útlendingar í starfi hérlendis í sum-
ar. Þetta kalla íslenzkir leiðsögu-
menn sjóræningjastarfsemi.
Höfundur er leiðsögumaður
innanlands og fararstjóri erlendis.
Vegna ótrúlego
hagstæðra innkaupa
getum við boðið kvenkuldaskó, loðfóðraða meÖ riffluðum sóla_
ó mjög lógu verði, eða ó aðeins
kr. 2.990,-
Stærðir: 36-41
Sölua&ilar um land allt:
Reykjavik: Skólínan Kópavogur: Skóbúð Kópavogs Akureyri: Skóhúsið
Axel Ó. Hafnarfjöróur: Skóhöllinn Húsavik: Versl. Garðarshólminn
Steinar Waage Keflavik: Skóbúð Keflavíkur Vopnaf jörður: Kf. Vopnfirðinga
SkómarkaSurinn Grindavik: Verslunin Bóra Egilstaðir: Kf. Héraðsbúa
Gallerí skór Akranes: Betri búðin Neskaupstabur: ViðLækinn
Toppskórinn Bolungarvík: Versl. Einars Guðfinnssonar Eskifjörbur: Sportvöruversl. Hókons
Hagkaup Hvammstangi: Kf. Vestur-Húnvetninga Vestmannaeyjar: Axel Ó. Lórusson
Mikligarður Sauðórkrókur: Verslunin Sparta Selfoss: VöruhúsKÁ.
Stepp