Morgunblaðið - 12.09.1991, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1991
af Skeggjagötunni, Tómas Grétar,
Steingrímur bróðir minn, Steinar og
ég, ásamt eiginkonum okkar, hitt-
umst og áttum saman glaða kvöld-
stund. Nú finn ég það best, að þær
hefðu átt að vera fleiri.
Nu, þegar leiðir skilja og komið
er að kveðjustund, þakka ég Stein-
ari Magnússyni langa og góða vin-
áttu og margar glaðar samveru-
stundir. Við, gömlu félagarnir af
Skeggjagötunni, sendum Önnu
Baldursdóttur, börnum hennar,
Klöru systur Steinars, og öðrum
vandamönnum innilegar samúðar-
kvéðjur. Megi minningar um góðan
dreng milda sorg þeirra og söknuð.
Höskuldur Baldursson
Mikill sómamaður er fallinn frá
löngu fyrir aldur, lífshlaupi Steinars
vinar míns er lokið mjög svo óvænt.
Ekki hvarflaði það að mér þegar
við hittumst síðast, að það yrðu okk-
ar síðustu samskipti í þessu lífi, en
allt er í heiminum hverfult, menn
ráða ekki alltaf sínum næturstað.
Ég ætla ekki að rekja lífshlaup
Steinars, en mig langar til að setja
á blað nokkur orð í virðingar- og
þakklætisskyni.
Kunningsskapur okkar hafði stað-
ið í 40 ár. Við hittumst fyrst haust-
ið 1951 þegar við báðir hófum nám
í framhaldsdeild Samvinnuskólans.
Síðan atvikaðist það þannig að við
hófum báðir störf hjá Sambandi ís-
lenskra samvinnufélaga 1. maí 1952
og allar götur síðan hafa leiðir okk-
ar legið saman í starfi og á ánægju-
legum samfundum hér heima og
erlendis. Með okkur Steinari tókst
strax náinn kunningsskapur sem síð-
an þróaðist upp í vináttu sem aldrei
bar skugga á.
Samstarf okkar var oft mjög náið
og þá einkum þegar hann veitti for-
stöðu skrifstofu Sambandsins í
Hamborg sem ég átti mjög mikil
samskipti við í starfi mínu og svo
tímabilið sem hann var framkvæmd-
astjóri fyrir Jötni hf. en lengst af
þeim tíma var ég í stjórn þess fyrir-
tækis. Steinar var háttvís í fram-
komu og einkar athugull og vandað-
ur starfsmaður. Samviskusemi og
heiðarleiki voru honum í blóð borin
og rækti hann störf sín af alúð og
nærgætni við samstarfsmenn sína
og viðskiptavini. Hvar sem spor hans
lágu gat ekki hjá því farið að ljúf-
mennska hans og fáguð framkoma
gæddu umhverfið næst honum sér-
stökum andblæ sem skildi eftir var-
anlegar kenndir hlýju og mann-
gæsku hjá samferðamönnunum.
Þegar hann er horfinn af sjónar-
sviðinu erum við allir sem næst hon-
um stóðum og störfuðu fátækari og
söknum góðs félaga og vinar. A bak
við fátæklegan búning þessara
kveðjuorða dyljast hugsanir og til-
finningar sem eru tvinnaðar úr
mörgum þáttum, en hinn sterkasti
þeirra er þó tengdur endurminning-
um mínum um persónulega sam-
skipti okkar fyrr og síðar. Hafi hann
að leiðarlokum heila þökk fyrir langa
og flekklausa samfylgd.
Eiginkonu hans, börnum og öðr-
um í fjölskyldu hans votta ég dýpstu
samúð og bið þeim blessunar guðs
og að þeim megi öðlast friður og
styrkur til þess að sigrast á þeim
harmi sem að þeim er kveðinn.
Á þessum degi sorgarinnar bið
ég þau að minnast þess, að „minn-
ingin lifir, þótt maðurinn deyi, björt
eins og sól á sumarvegi".
JÓn Þór Jóhannsson
Við skyndilegt og óvænt fráfall
vinar míns Steinars, sem lést að
kveldi sunnudagsins 1. þ.m. í Land-
spítalanum, aðeins rösku hálfu ári
miður sextugu, hrannast að í huga
mér Ijúfar minningar liðins tíma,
allt frá fyrstu kynnum okkar fyrir
réttum fjórum áratugum, þegar ég
hitti hann í fyrsta sinn, haustið 1951,
í Samvinnuskólanum, sem þá var til
húsa í Sambandshúsinu við Sölvhóls-
götu, en þar nam hann í efri bekk
skólans, en ég sat í þeim neðri.
Leiddu þau kynni til ævilangrar vin-
áttu, sem aldrei bar á neinn skugga,
þrátt fyrir að við deildum stafsvett-
vangi undir sama þaki í fjöldamörg
ár — hann á 3. hæð en ég á 1. hæð
Sambandshússins — en gamalt spak-
mæli segir að „vík skal vera á milli
vina, en fjörður á milli frænda".
Reyndi því oft á þá kosti hans að
vera gæddur miklu jafnaðargeði og
hófsemi til orðs og æðis, þar sem
við snerrisaman var að eiga, en fyr-
ir umburðarlyndi hans og trausta
vináttu vil ég nú — að leiðarlokum
— þakka af heilum huga, jafnframt
sem ég drúpi höfði við kistu vinar
míns á þessum, að mér fínnst, ótíma-
bæra degi.
Steinar Guðjón var fæddur í
Reykjavík þann 27. apríl árið 1932
og voru foreldrar hans þau Klara
Sigurðardóttir og Magnús A. Guð-
jónsson, sem lengi var vélgæslumað-
ur hjá Slippfélaginu í Reykjavík, en
heimili þeirra stóð þá á Skeggjagötu
3 og reyndar allar götur síðan, bæði
á meðan Steinar og þau systkinin
dvöldu í foreldrahúsum og eins eftir
að Klara var orðin ekkja. Steinar
var einkasonur foreldra sinna en
deildi foreldraástúð með yngri systur
sinni Klöru. Á það heimili kom ég
löngum og ávallt sýndu húsráðendur
mér sömu hlýjuna, svo að mér fannst
ég vera þar auðfúsugestur. Þannig
studdu foreldrarnir ekki aðeins son-
inn, heldur vini hans líka, og er það
geymt þakklátum muna, sem þau
fá e.t.v. skynjað eigi þau hugargengt
úr Ijósheimum.
Eins og fyrr segir hittumst við
fyrsta sinni haustið 1951, en þá
þegar hafði Steinar í raun lokið hinu
formlega Samvinnuskólanámi, sem
á þeirri tíð var aðeins einn vetur,
og var búinn að vera í starfí hjá
Kaupfélagi Dýrfirðinga um nokkur
misseri, en þar réði þá ríkjum sá
fyrirferðarmikli og duglegi kaupfé-
lagsstjóri, Eiríkur Þorsteinsson, síð-
ar alþingismaður, en vart mun hafa
verið hægt að kjósa sér betri hús-
bónda bæði að framsýni, dugnaði
og allri atorku. Steinar var því all-
vel sjóaður þegar hann hóf nám að
nýju í svokallaðri framhaldsdeild,
sem reynt var að velja í eftir föng-
um, enda var skólastarfið hugsað,
öðrum þræði, sem undirbúningur að
viðameiri störfum hjá samvinnu-
hreyfingunni og þá frekar þeim, sem
þess áttu kost að þiggja tilsögn síð-
ari veturinn.
Að góðu framhaldsskólaprófi
loknu fór líka svo að Steinar réðst
til Sambandsins og valdist honum
starfi hjá Iðnaðardeild, sem þá var
í örum vexti undir stjórn frænda
hans, Harrys Fredriksens. Það ráðs-
lag reyndist honum happadijúgt, því
þrátt fyrir afburða snyrtimennsku
og fágaða kurteisi umbar Harry
ekkert ráðdeildarleysi, leti né veifi-
skatahátt, og hann þurfti ekki að
hækka röddina til þess að menn vissu
til hvers ætlast var af þeim. Strax
varð með þeim frændum gagn-
kvæmt traust og hélst það ævina
út, en Harry féll einnig frá um aldur
fram fyrir allmörgum árum. Þessir
líku frændur, í svo mörgu, áttu það
sameiginlegt að þeir veittu sam-
vinnuhreyfingunni allan sinn stuðn-
ing ævina út og, sem Kolskeggur
forðum, níddust þeir aldrei á neinu
því, sem þeim var tiltrúað. Sígandi
lukka er best og reis starfsframi
Steinars með ámóta hætti og varð
hann fljótlega deildarstjóri, síðar
skrifstofustjóri og aðalhjálparhella
framkvæmdastjórans, sem sá í hon-
um trúverðugan forystumann. Fyrir
aðstoð Harrys komst Steinar í
starfsþjálfun hjá Þýzka samvinnu-
sambandinu á árinu 1-958 og sýndi
það bæði framsýni þess reynslumeiri
og vilja Steinars til að efla þekkingu
sína, enda komu kynni hans af lands-
búum og þýzkunni í góðar þarfir
síðar, þegar honum bauðst fram-
kvæmdastjórastarfíð í Hamborg, en
það hefði ekki legið á lausu ef mála-
kunnáttuna hefði vantað. Þar kom
í ársbyijun 1976 að vinur minn var
kallaður til framkvæmdastjórastarfa
fyrir Jötunn hf., en það fyrirtæki,
sem áður hafði verið í umsjá Iðnað-
ardeildar, skyldi nú eflt að allri starf-
semi. Hann reis undir ábyrgð sinni
með eðlislægri gætni, passasemi og
nauðsynlegu frumkvæði, því fímm
og hálfu ári síðar skilaði hann af sér
góðu og öflugu fyrirtæki, þegar
hann í júlílok 1981 var kvaddur af
forstjóra til að veita skrifstofu Sam-
bandsins í Hamborg forstöðu.
Gegndi hann framkvæmdastjóra-
störfum í Þýzkalandi, þar til í lok
októbermánaðar 1985 að hann snéri
heim, til að taka á ný við forstöðu
„Jötuns“ unz viðamiklar skipulags-
breytingar voru gerðar á öllum
rekstri Sambandsins og fyrirtækja
þess og „Jötunn“ þá sameinaður
nýju fjölþættu fyrirtæki, undir sama
nafni. Varð hann skrifstofustjóri
hins nýja fyrirtækis frá stofnun þess
í ársbyijun 1990 og allt til lokadæg-
urs síns.
Af framanrituðu má ljóst vera að
samvinnuhreyfingin á bæði þökk og
skuld að gjalda ósérhlífnum og sam-
viskusömum starfsmanni, en hún
veitti honum einnig umbun með
áunnu trausti og möguleikum, sem
veittu honum ómælda ánægju og
nægir í því skyni að nefna hamingju-
söm ár þeirra í Hamborg, þar sem
fjölskyldan gat' ótrufluð sinnt innri
fjölskyldurækt, svo sem fortapast í
annasömum störfum og stressi hér
heima.
Á „sokkabandsárum" okkar
beggja var ýmislegt brallað, sem
ekki skal tíundað hér, ferðir á fjöll
og firnindi, föst spilakvöld að vetri
í hópi góðra vina, en svo kom að
langri utanlandsferð að hausti 1961,
suður í lönd með „Hamrafellinu“,
þar sem okkur tvo og þriðja góða
ferðafélagann bar yfír Njörvasund
og til Marokkó, og þá um Evrópu-
lönd, sem leið lá til Kaupmannahafn-
ar, en þrátt fyrir nábýlið í lítilli bif-
reið, sem ég fékk að taka með mér
til Gíbraltar, reyndist farteskið ávallt
vera þýtt jafnlyndi og einhugur ferð-
afélaganna. Allir minntumst við
þessarar ferðar með ánægju, þótt
ekki vissum við, á þeim tíma, að við
deildum ferðinni með enn einum
ferðalanginum, sem ekki var tiltölu-
lega rúmfrekur á plássið. En um
þann vissum við ekki fyrr en all-
mörgum misserum síðar, þegar
Steinar, þrátt fyrir hógværð sína,
vildi knýja á fleiri dyr, og fór, með
öðrum vini okkar beggja, á miðils-
fund, en þar kvaddi sér hljóðs „ferða-
langurinn“ afí hans og rakti í stórum
dráttum ferðina á enda og hló mik-
ið. Þar sem sætisnautur Steinars var
ekki sá sem í ferðina fór, en bar því
vitni hvað karlinn sagði, hef ég þá
trú síðan að „hinum megin“ sé líka
gert að gamni sínu.
Sérstakur gæfudagur rann upp
þann 8. febrúar 1964, en þá gekk
Steinar að eiga Önnu Þóru Baldurs-
dóttur hjúkrunarfræðing frá
Ólafsvík og hefír sú hamingjutíð
staðið frá fyreta degi með þeim hjón-
um. Hún hefir búið bónda sínum
afar smekklegt heimili og verið stoð
hans og stytta bæði í meðbyr og
mótlæti. Hefír það jafnt gengið yfír
bæði. I hjúskap sínum hafa þau eign-
ast þijú börn, tvo syni og eina dótt-
ur, en unga dóttur átti Anna áður,
Hafdísi Aradóttur hjúkrunarfræð-
ing, gifta Tómasi Jónssyni lækni.
Eldri sonurinn, Baldur rafvirki, sem
ber nafn móðurafa síns, er kvæntur
Guðrúnu Erlingsdóttur kennara, en
sá yngri, Magnús, einnig rafvirki,
sem axlar nafn föðurafa síns og er
19 ára, dvelst enn í foreldrahúsum,
ásamt systur sinni Guðrúnu, sem
nú er mest vant, því umhyggja og
ástúð foreldranna beggja, svo og
systkinanna allra, er hennar hlíf í
41
skjóllitlum heimi. En við þessar
þrengingar biður maður þess að guð
veiti líkn með þraut og að hún megi
njóta sama athvarfs og hún naut
ávallt áður í faðmi foreldranna
beggja, en þar veit ég að móðirin
stendur ekki ein, með synina báða,
eldri dóttur sína, tengdadóttur og
tengdason að bijóstvörn.
Spakmælið „Að hryggjast og
gleðjast um fáa daga, að koma og
fara er lífsins saga“ heldur ávallt
gildi sínu, en það á ekki hvað síst
við þegar skráð er þannig í teiginn
að sigðin hefði allt eins getað komið
í annan stað niður, en nú varð raun-
in á. Enginn má sköpum renna og
hér er ekki við dómarann að deila.
Því er aðeins fyrir okkur, vinina,
að minnast nú góðs drengs, sem
öllum vildi vel og var vammlaus í
öllu háttemi. Við vitum að hans
hafa beðið vinir í varpa við umskipt-
in, en fyrir eiginkonu hans og börn-
in hennar biðjum við Sigríður þann,
sem öllu ræður, að veita þeim sálar-
þrek til að standast þá þolraun, sem
nú hefir á axlir þeirra verið lögð.
En vini okkar óskum við Sigríður
fararheilla og blessum minningu
hans.
Kjartan P. Kjartansson
SIEMENS-sæð/
ÓDÝRAR OG GÓÐAR
ELDAVÉLAR FRÁ SIEMENS
Þessar sívinsælu eldavélar frá SIEMENS eru einfaldar í
notkun, traustar, endingargóðar og á mjög góðu verði.
HS 24020
Breidd 60 sm
Grill
4 hellur
Geymsluskúffa
HN 26020
Breidd 50 sm
Grill
4 hellur
Geymsluskúffa
Munið umboðsmenn okkar víðs vegarum landið
Akranes: Rafþjónusta Sigurdórs. •
Borgarnes: Glitnir. •
Borgarfjörður: Rafstofan Hvitárskóla. •
Hellissandur: Verslunin Blómsturvellir. •
Grundarfjörður: Guðni Hallgrimsson. •
Stykkishólmur: Skipavik. •
Búðardalur: Versl. Einars Stefánssonar. •
ísafjörður: Póllinn hf. •
Blönduós: Hjörleifur Júliusson. •
Sauðárkrókur: Rafsjó hf. •
Siglufjörður: Torgið hf. •
Akureyri: Sir hf. •
Húsavík: Öryggi sf.
Þórshöfn: Norðurraf.
Neskaupstaður: Rafalda hf.
Reyðarfjöröur: Rafnet.
Egilsstaðir: Raftækjav. Sveins Guðmundss
Breiðdalsvík: Rafvoruv. Stefáns N. Stefánss.
Höfn i Hornarfirði: Kristall.
Vestmannaeyjar: Tréverk hf.
Hvolsvöllur: Kaupfélag Rangæinga.
Selfoss:'-Árvirkinn hf.
Garður: Raftækjav. Sigurðar Ingvarssonar
Keflavik: Ljósboginn.
SMITH &NORLAND
NÓATÚNI 4 • SÍMI 28300
Goldstar símkeríi, þar sem ekkert er gefið eftir.
æ htf\
Traust fyrirtœki sem tekur réttar
ákvarðanir, og er í góðu sambandi
við viðskiptavini sína. Það velur
traust, fullkomið og tœknilegt
símkerfi frá Goldstar.
Gœði, þœgindi og tækni.
GoldStcir
Örugg þjónusta.
Rúmlega 800 fyrirtœki og stofnanir,
hafa kosið símkerfi frá ístel.
Komdu við í Síðumúlanum, eða
sláðu á þráðinn.
Og tryggðu góðan árangur.
SIÐUMULA 37 SIMI 687570