Morgunblaðið - 12.09.1991, Side 51
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1,2, SEPTEMBER 1991,
51
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Þessir hringdu ...
Hver saknar afmælisgjafar?
Arvökull borgari hringdi og
greindi frá fundi sínum. Á þriðju-
dagsmorgun fann hann lítinn
pakka á Langholtsvegi út við.
Suðurlandsbraut. Utan um pakk-
ann er hvítur pappír_ og bundið
um með blárri slaufu. í pakkanum
eru hringir, hálsmen o.fl. og virð-
ist vera um afmælisgjöf barns eða
eitthvað þess háttar að ræða. Ef
einhver saknar pakkans má fá
nánari upplýsingar í síma 32348
eftir kl. 4 á daginn.
Af mönnum og dýrum
Kona í miðbænum hringdi. Hún
vildi gera að umtalsefni kvartanir
borgaranna vegna hundaskíts í
skrúðgörðum og á götum og stétt-
um borgarinnar. En hún vildi
benda á að það væri ekki við dýr-
in að sakast, þótt þau þyrftu að
losna við sitt. Það væru eigendur
þessara dýra sem væru sóðar.
Þeir ættu að hirða úrganginn í
poka og losa í ruslið. Þá kröfu
mætti gera til mannanna. En kon-
unni þótti sem dýrin kunna betri
mannasiði en t.a.m. draugfullt
fólk sem gerði sín stykki inn í
görðum og húsasundum og karl-
menn sem mígu utan í öskutunnur
og ljósastaura. Það þyrfti frekar
að áminna fólkið en málleysingj-
ana um þrifnað. Konan hafði
margoft mátt horfa uppá það að
menn hræktu á göturnar, sótt-
kveikjur og „geðslegheit“ bærust
svo með skótaui inn í híbýli fólks.
Konan vildi einnig benda á að það
væru ekki allir borgarar í miðbæn-
um svo vel stæðir að þeir gætu
keypt jafn oft nýja skó eins og
þessi lýður brennivínsflöskurnar
sem hann tæmdi og bryti svo fyr-
ir hunda og manna fótum. En þó
skótjónið væri skaði, væri hitt
harmleikur að horfa og heyra í
blessuðum dýrunum sem stigu á
þessi glerbrot. Konunni þótti mál-
notkun og umburðarlyndi almenn-
ings skrítið, „dýrslegt athæfi“
væri talið „bara mannlegt".
Dökkjarpur hestur
í umsjón vörslumanns Hafnar-
fjarða'rbæjar hefur síðan 20. ág-
úst verið dökkjarpur hestur í óskil-
um. Hesturinn er u.þ.b. 7-8 vetra,
járnaður, ómarkaður en með
stallmúl. Upplýsingar í síma
651872.
undist hefur í gömlu dóti, stór
silfurkross, merktur: Jón Páls-
son, 23. júní 1973. Nánari upp-
lýsingar í síma 618080. Sæunn.
Lyklar við Valhöll
Kona hringdi og vildi láta vita
af því að hún hefði fundið tvo
húslykla sunnudagsmorguninn 8.
september við Háaleitisbraut
nærri Valhöll. Sá sem kannast við
að hafa tapað lyklum á þessum
slóðum um þetta leyti getur hringt
í síma 31214.
Týndur eyrnalokkur
Gulleyrnalokkur, fisklaga,
týndist við/eða í veitingahúsinu
„Tuttugu og tveir“ laugardags-
kvöldið 31. ágúst. Finnandi er
beðinn um að hringja í Bogeyju
í síma 77732 eftir kl. 18. Fundar-
laun.
FORELDRA OC BARIUA
Nú eru að hefjast námskeið þar sem foreldrum
gefst kostur á að kynnast og tileinka sér ákveðnar
hugmyndir og aðferðir í samskiptum foreldra og
barna. Þar verður m.a. fjallað urn hvað foreldrar
geta gert til að:
• Aðstoða börn sín við þeirra vandamál.
• Leysa úr ágreiningi án þess að beita valdi.
• Byggja upp jákvæð samskipti innan
fjölskyldunnar.
Upplýsingar og skráning í síma 621132 og
626632
Hugo Þórisson
sálfrœðingur
Wilhelm Norðfjörð
sálfrœðingur
saMskipti
VERKSMIÐJU ÚTSALA
frá 3. september í húsi Sjóklæðagerðarinnar Skúlagötu 51,1. hæð.
Útlitsgallað og eldri gerðir af sport- og vinnufatnaði.
REGNFATNAÐUR
barna, kvenna, karla
SJÓFATNAÐUR
NYLONFATNAÐUR
KAPP-FATNAÐUR
barna, kvenna, karla
VINNUFATNAÐUR
samfestingar, buxur, jakkar, sloppar
VINNUVETTLINGAR
STIGVEL
SJÓKLÆÐAGERÐIN HF • SKÚLAGÖTU 51
Opið virka daga kl. 13-18 og laugardaga kl. 10-14