Morgunblaðið - 12.09.1991, Page 52
52
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. SEPTEMBER 1991
Tandoori-kjúkl-
ingur á grillið
Umsjón: KRISTÍN GESTSDÓTTIR
Teikningar: SIGURÐUR ÞORKELSSON
ið síðan örlítið með eldhúspappír.
Grillið bitana síðan í 3-5 mínútur
á hvorri hlið.
Sósan
5 dl vatn
kjúklingabein, hamur og innyfli,
ef þau eru með
5 piparkorn
1 lárviðarlauf
Vi tsk. salt
2 tsk. gott milt karrý
2 meðalstórar gulrætur
Nokkrar ferskar belg-
strengjabaunir
1 vorlaukur eða nokkur strá gras-
laukur
hveitihristingur
2 tsk. hreinn ijómaostur
egar þetta er skrifað 5.
september, er komið
logn og blíða aftur og
sjálfsagt að vekja upp
minningar sumarsins og griila
Tandoori-kjúkling. Þar með er
þessari griilvertíð minni lokið.
Nú orðið þekkja margir íslend-
ingar Tandoori-kjúkling. Tandoor
er nafn á háum, sívölum leirofni,
sem notaður er í Norður-Indlandi
og Pakistan.
Ofninn er hitaður mjög vel með
viðarkolum og við þetta háa hita-
stig lokast safinn inn í vöðvanum
og kjötið verður mjög bragðgott.
En við getum sem hægast notað
gott útigrill við þessa steikingu.
Eg hefi notað gasgrill með góðum
árangri. Indveijar hamfletta
kjúklinginn áður en hann er
steiktur, þeir nota oft smáa kjúkl-
inga, sem á ensku heita „pouss-
in“. Mér vitanlega fást þeir ekki
hér. Þessir kjúklingar eru allt nið-
ur í 450 g að þyngd. Ég skipti
venjulegum kjúkling í hluta og
er hálfur kjúklingur eða ein kjúkl-
ingabringa ætluð á mann. Hent-
ugt er að taka kjúklinginn í sund-
ur og steikja bitana frekar litla
og þeir eru ekki nema örfáar
mínútur að stekjast í gegn. Einn-
ig er hægt að steikja kjúklinginn
heilan eða hálfan.
Áður en kjúklingurinn er steikt-
ur er hann lagður í jógúrtlög sem
í er bætt lauk, hvítlauk og engifer-
rót og svo Tandoori-karrý, sem
er rautt á litinn.
Indveijar búa til sína eigin
Tandoori-kryddblöndu, en mér
finnst þægilegast að kaupa Tand-
oori-karrý tilbúið. Það fæst víða,
en ég hefi keypt það í Heilsuhús-
inu á Skólavörðustíg. Kjúklinga-
beinin er best að sjóða í vatni og
nota soðið í sósu með kjúklingn-
um. Sú sósa getur verið margvís-
leg, en gott er að búa til græna
karrýsósu og setja grænmeti út í
hana. Og svo er gott að nota
hrísgijón og annað hvort Chap-
atti- eða Naan-brauð með. Eg
hefi áður verið með Chapatti-
brauð í þessum þætti og hefí því
Naan-brauð með núna. í þennan
rétt er best að nota kjúklinga-
bringur eingöngu, og er hæfilegt
að áætla eina bringu á mann.
Þótt auðvelt sé að taka haminn
af kjúklingum, er það leiðinlegt
verk auk þess erfitt að ná hamn-
um af leggjum og taka beinin úr
þeim, en það er hægt. Mun auð-
veldara er að hamfletta bringurn-
ar. Beinin, haminn og innyflin (ef
einhver eru með) sjóðum við síðan
og notum soðið í sósuna. Lærin
getum við svo notað í annað.
Hægt er að klippa þá af kjúklingn-
um frosnum og stinga aftur í fry-
stikistuna. Þessi réttur er svolítið
fyrirhafnarsamur, og raunar
hreinn spariréttur.
Tandoori-kjúklingur
4 meðalstórar kjúklingabringur
1 '/2 tsk. salt
nýmalaður pipar
safi úr 1 stórri sítrónu
1 dós hrein jógúrt
2 tsk. maltedik eða annað edik
2 hvítlauksgeirar
1 stór laukur
2-4 sm biti ferskur engifer (Hann
er misþykkur, og er erfitt að segja
til um magnið)
1 msk Tandoori-karrý
1. Hamflettið bringurnar, sker-
ið í 2-3 sm breiðar ræmur og legg-
ið í skál. Kreistið safann úr sítrón-
unni og hellið jafnt yfir kjúklinga-
bitana. Stráið salti og pipar yfir
þá og látið standa á eldhúsborðinu
í 1 klst.
2. Setjið jógúrt í skál. Afhýðið
lauk, hvítlauk og engiferrót, saxið
mjög fínt og setjið saman við jóg-
úrtina. Setjið Tandoori-karrý út í.
3. Hellið kiúklinsrabitunum á
sigti. Dýfið kjúklingabitunum í
jógúrtmaukið og raðið þeim á fat.
Hyljið bitann alveg með jógúrt-
mauki. Látið standa í kæliskáp í
6-12 klst.
6. Hitið grillið, smyijið grindina
með matarolíu.
7. Strjúkið jógúrtmaukið laus-
lega af kjúklingabitunum og þerr-
1. Setjið vatn í pott ásamt pip-
arkornum, lárviðarlaufi og salti.
Sjóðið við vægan hita í 30-40
mínútur. Síið þá soðið.
2. Setjið soðið í pott ásamt
þunnt skornum gulrótarsneiðum,
belg- eða strengjabaunum og vor-
lauk skornum í bita. Setjið karrý
út í. Sjóðið við hægan hita í 8
mínútur.
3. Búið til hveitihristing og
jafnið sósu. Hrærið síðan ijómaost
vel út í. Athugið saltmagnið í sós-
unni.
Naan-brauð
500 g hveiti
Vi msk. fínt þurrger
1 tsk. sykur
IV2 tsk. salt
'A dl matarolía
1 lítil dós hrein jógúrt + snarp-
heitt vatn svo að blandan verði
2Vi dl
50 g smjör
Vi dl matarolía
1. Setjið hveiti, þurrger, sykur
og salt í skál.
2. Blandið saman jógurt og
heitu vatni, blandan á að vera
fingurvolg. Setjið saman við mjöl-
blönduna ásamt matarolíu og
eggi. Hrærið saman. Setjið stykki
yfir skálina og látið þetta lyfta
sér á volgum stað í 40 mínútur
eða lengur.
3. Takið deigið úr skálinni,
skiptið í 10-12 hluta. Mótið kúlu
úr hveijum hluta, togið síðan örlít-
ið í annan enda kúlunnar svo að
hún verði mjórri í annan endann.
4. Fletjið út um Vi sm á þykkt.
Þetta á að vera eins og pera í
laginu.
5. Leggið brauðin á álpappír
og bakið á grindinni á grillinu.
Þetta má líka baka beint á grind-
inni.
6. Bræðið smjörið, setjið saman
við olíuna.
7. Smyijið brauðið með
olíu/smjörblöndunni um leið og
þið takið það af grillinu. Stingið
brauðinu síðan strax í plastpoka.
■ GRÆNMETISMARKAÐUR
verður haldinn í húsi KFUM og
KFUK við Holtaveg (gegnt Lang-
holtsskóla) næstkomandi laugar-
dag. Markaðurinn verður opnaður
kl. 14 og rennur ágóðinn til kristni-
boðsstarfs Islendinga í Eþíópíu og
Kenýu. Það eru nokkrar konur í
hópi kristniboðsvina sem standa
fyrir markaðinum. Þarna verður
seldur ýmiss konar jarðargróður,
ailt eftir því hvað konunum tekst
að útvega á söluborðin, en þær eru
háðar því hversu kristniboðsvinif
og aðrir velunnarar vilja gefa af
nægtum sínum eftir gott sumar.
Nær allt sem sprettur úr mold og
má leggja sér til munns er vel þeg-
ir, kál, kartöflur, ber, ávextir
o.s.fiv. Þeir sem vilja leggja eitt-
hvað fram ættu að koma með það
í KFUM-húsið föstudaginn 14. sept-
ember, en þar verður tekið við þvr
til kl. 19 síðdegis. Nýlega fóru
íslensk hjón til Áfríku til kristni-
boðsstarfa þriðja starfstímabil sitt
meðal pókotmanna í Vestur-Kenýu.
Börn þeirra ganga í norskan skóla
í Nairóbí en þar er íslensk kennslu:
kona á vegum kristniboðsins. í
Eþíópíu eru ein íslensk lijón að
störfum og eru þau að byggja upp
kristniboðsstöð meðal tsemai-
rnanna, frumstæðs þjóðflokks í suð-
vesturhluta landsins. Allir kristni-
boðarnir eru önnum kafnir. Fólkið
tekur þeim vel. Neyðin er mikil en
þúsundir manna hafa notið hjálpar,
bæði í andlegum og tímalegum efn-
um, fyrir tilstilli íslendinga. Enn
vantar nokkrar milljónir króna til
að nóg fé hafi safnast til starfsins
á þessu ári. Á markaðnum verður
reynt að fylla upp í eyðurnar.
■ DANSARAR frá Argentínu,
Daniela Arcuri og Armaiido
Orzuza sýna tangó á Hótel íslandi
um næstu helgi. Sýninguna kalla
þau Buenos Aires Tango. Undan-
farna daga hafa þau kennt í Kram-
húsinu. A Hótel íslandi er boðið upp
á fatafelluna og eldgleypirinn Tinu
Nielsen, en hún er hér á vegum
Scan Sound Agency í Kaupmanna-
höfn. Á laugardagskvöldið er
skemmtidagskráin I Hjartastað —
Lové me tender. Tvær sýningar
eru eftir, 14. og 28. september
næstkomandi. Eyjólfur Kristjáns-
son söngvari hefur nú bæst í hóp
listamannanna auk þess sem Sig-
rún Eva Ármannsdóttir söngkona
verður með í þehn fáu sýningum
sem eftir eru.
ER UM FL UTT Á LA UGA VEG 8 7
VEITUM10% AFSLÁTT
AFNÝJUM VÖRUM FRAM AÐ HELGI
V____________________________________________________________________________________________J