Morgunblaðið - 12.09.1991, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR FIMMTUDAGUR
ntLioaoM ________
12. SEPTEMBER 1991
53
KNATTSPYRNA UNGLINGA / ISLANDSMOT
Grétar Már Sveinsson, fyrirliði UBK með bikarinn.
Fram fagn-
aði sigri í
fimmta flokki
< F
ram varð íslandsmeistari í
fimmta flokki á sunnudag með
því að sigra ÍBK í úrslitaleikjum
sem fram fóru á grasvelli ÍR í
Mjódd.
Keppt var með því fyrirkomulagi
að sigur í úrslitaleiknum hjá b-lið-
unum gaf tvö stig en þtjú sigur
fengust fyrir sigur í leik a-liðanna.
Fram vann Keflyíkinga 2:1 í leik
b-liðanna. Ómar Öm Ölafsson og
Baldur Knúdsson skoruðu mörk
Fram en Hjörtur Fjeldsted skoraði
eina mark IBK.
Með sigri b-liðsins dugði Fram
jafntefli í leik a-liðanna til þess að
hljóta titilinn en lengi vel leit út
fyrir sigur ÍBK. Keflvíkingar höfðu
3:1 forystu í leikhléi og sá munur
hefði getað orðið mun stærri. í
síðari hálfleiknum snerist leikurinn
við. Leikmenn Fram voru mun
hættulegri og jöfnuðu fljótlega 3:3,
IBK náði aftur forystunni en þá
tóku þeir bláklæddu öll völd á vellin-
um og skoruðu þijú síðustu mörkin.
Lokatölur voru því 6:4.
Haukur Hauksson skoraði þijú
af mörkum Fram, Björn Blöndal tvö
og Finnur Bjarnason eitt. Guð-
mundur Steinarsson skoraði tvíveg-
is fyrir ÍBK og þeir Kristján Jó-
hannsson og Ágúst Ingi Axelsson
gerðu sitt markið hvor.
„Þegar staðan var 3:1 í hálfleik
var útlitið ekki bjart og við vonuð-
umst eftir jafnteflinu. Það breyttist
allt þegar við skoruðum fyrsta
markið í síðari hálfieiknum og eftir
það komu mörkin á færibandi,“
sagði Andrés Jónsson sem lék mjög
vel í liði Fram og lagði upp tvö af
mörkum liðsins.
Framafar hafa verið sigursælir í
þessum flokki og þeir eru núver-
andi Reykjavíkurmeistarar innan-
og utanhúss.
„Við erum búnir að æfa mikið í
vikunni fyrir þennan leik og það
var leiðinlegt að missa forskotið
niður. Leikur okkar datt niður eftir
að við höfðum náð tveggja marka
forystu," sagði Ágúst Ingi Axeisson
leikmaður IBK. Félagi hans, Ingvi
Þór Hákonarson sem lék með b-lið-
inu mátti einnig sætta sig tap. „Eft-
ir að þeir náðu 2:1 forystu hættum
við að spila og fórum að rífast.“
Morgunblaðið/Frosti
ÁGÚST Ingi Axelsson og Ingvi Þór Hákonarsson, ÍBK. Ágúst Ingi sagði
að a-lið ÍBK hefði misst tök á leiknum eftir að hafa náð tveggja marka forystu,
en Ingvi Þór sagði að b-liðið hefði hætt að spila, þegar það var 2:1 undir.
Breiðablik varði tit
ilinn i fiorða flokki
Breiðablik ti-yggði sér íslands-
meistaratitilinn í fjórða flokki
annað árið í röð með því að sigra
KR í úrslitaleik 2:1.
Aðstæður voru mjög erfiðar eftir
miklar rigningar og Valbjarnarvöll-
urinn í Laugardalnum var mjög
þungur. Þrátt fyrir það brá oft fyr-
ir fallegu spili hjá báðum liðum.
KR-ingar byrjuðu betur, Andri Sig-
þórsson náði forystunni fyrir KR
en Kópavogsstrákarnir tryggðu sér
sigurinn með tveimur rhörkum í
síðari hálfleiknum. Atli Kristjáns-
son jafnaði leikinn og Kjartan Ás-
mundsson skoraði sigurmarkið.
Grétar Már Sveinsson fyrirliði UBK
var ánægður með sigurinn. „Þetta
var jafn leikur en við náðum upp
góðri baráttu í síðari hálfleiknum."
Þess má geta að UBK tapaði
leikjum sínum á Islandsmótinu fyrir
Val, Fram og KR. Liðið mætti Val
og Fram á leið sinni í úrslitin og
vann sigur á báðum liðunum.
Morgunbla4iö/Frosti Eiðsson
BREIÐABLIK - íslandsmeistari 4. flokks 1991. Fremsta röð frá vinstri: Snorri Viðarsson, Bjarni Jónsson, Magnús
Blöndal, Grétar Már Sveinsson fyririiði, Freyr Biynjarsson, Hjalti Kristjánsson. Miðröð frá vinstri: Einar Sveinn Arna-
son, Gunnar Jónsson, Jón Emil Sigurgeirsson, Bergur Sigfússon, Guðjón Gústafsson, Jón Steindór Sveinsson, Ingi Guð-
laugsson, Sveinn Ingvason liðsstjóri. Aftasta röð frá vinstri: Guðmundur Guðmundsson, Eyþór Sverrisson, Davíð Guð-
jónsson, Kjartan Ásmundsson, Átli Kristjánsson, Sighvatur Blöndal liðstjóri, Jón Bjarni Bjarnason liðstjóri.
Morgunblaðið/Frostí
FRAM - íslandsmeistari í fimmta flokki. Fremri röð frá vinstri: Baldur Karlsson, Davíð Guðmundson, Bjarni Þór Pét-
ursson, Baldur Knútsson, Haukur Hauksson, Eggert Stefánsson, Símon Símonarson, Ómar Ólafsson, Jón Vaisson, Birg-
ir Guðmunðson, Andrés Jónsson, Daníel Bjarnason og Lárus Grétarsson, þjálfari. Aftari röð frá vinstri: Pétur Guð-
laugsson liðsstjóri, Garðar Hannesson, Þorri Gunnarsson, Viðar Guðjónsson, Daníel Traustason, Björn Blöndal, Þórir
Hall Stefánsson, Davíð Gunnarsson, Finnur Bjarnason, Vilhelm Sigurðsson, ívar Jónasson, Egill Skúlason, Sigurður
Óli Sigurðsson, Pálmi Sigurðsson og Helga ívarsdóttir liðsstjóri. Freyr Karlsson var á NM í skák og því fjarverandi eins
og liðsstjóramir Gunniaugur Þorgeirsson og Guðjón Hákonarson.
FRJALSAR
Evrópukeppni félagsliða:
Fjórtán stúlkur til Parísar
FRÍ hefur valið fjórtán stúlkur
til að keppa í Evrópubikar-
keppni félagsliða sem fram fer
í París þann 14. september nk.
ftirtaldar stúlkur skipa íslenska
hópinn.
Halla Heímisdóttir Ármanni,
Kristín Alfreðsdóttir ÍR, Kristín
Ingvarsdóttir FH, Laufey Stefáns-
dóttir Fjölni, Maríanna Hansen
UMSE, Sigrún Jóhannsdóttir ÍR,
Snjólaug Vilhelmsdóttir, Sólveig
Björnsdóttir KR, Sunna Gestsdóttir
USAH, Sylvía Guðmundsdóttir,
Vigdís Guðjónsdóttir HSK, Þor-
björg Jensdóttir ÍR, Þórhalla Magn-
úsdóttir USÚ og Þuríður Ingvars-
dóttir Selfossi.
Geirlaug Geirlaugsdóttir og
Kristján Harðarson eru þjálfarar
hópsins.