Morgunblaðið - 13.09.1991, Síða 1

Morgunblaðið - 13.09.1991, Síða 1
 56 SIÐUR B/C/D STOFNAÐ 1913 207. tbl. 79. árg. FOSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Pólsk sendinefnd til Vilnius: Vilja tryggja rétt- indi pólska minni- hlutans í Litháen Eystrasaltsríkin fá aðild að SÞ Varsjá. New York. Reuter. PÓLSKA stjórnin sendi sveit embættismanna til Litháens í gær til viðræðna um réttindi pólska minnihlutans í Eystrasaltslýðveldinu og samskipti ríkjanna. Nefndinni er ætlað að ganga frá sameigin- legri yfirlýsingu um samskipti ríkjanna sem tóku upp stjórnmála- samband í síðustu viku. Talsmaður pólska utanríkis- ráðuneytisins sagði í gær að kraf- ist yrði sömu réttinda fyrir pólska minnihlutann í Litháen og inn- fæddir níyndu njóta. Pólveijar eru 7% íbúa Eystrasaltsríkisins og er óttast að vaxandi þjóðemisspennu gæti eftir að litháíska stjórnin leysti upp sveitarstjórnir á tveimur svæðum sem eru að meirihluta byggðar Pólverjum. Voru sveitar- stjómirnar sagðar hafa tekið af- stöðu með harðlínumönnum sem reyndu valdarán í Sovétríkjunum fyrir þremur vikum. Pólveijar vilja að sveitarstjórnimar fái aftur völd. Öryggisráð Sameinuðu þjóð- anna (SÞ) samþykkti samhljóða í gær að mæla með því að Eist- landi, Lettlandi og Litháen yrði veitt aðild að stofnuninni. Eystrasaltsríkjunum þremur verður formlega veitt aðild að SÞ næstkomandi þriðjudag. Verður það fyrsta mál á dagskrá setning- arfundar allsheijarþingsins. Eistland, Lettland og Litháen áttu aðild að Þjóðabandalaginu, forvera SÞ, á millistríðsárunum en þau voru innlimuð í Sovétríkin árið 1940 með leynisamningum Adolfs Hitlers, kanslara Þýskalands, og Jósefs Stalíns, leiðtoga Sovétríkj- anna. Misheppnað valdarán harðlínumanna í Moskvu fyrir þremur vikum flýtti fyrir að þau fengju sjálfstæði og alþjóðlega við- urkenningu en Moskvustjórnin við- urkenndi sjálfstæði þeirra fyrir viku. Þá skýrði Juan Antonio Samar- anch, forseti Alþjóðaólympíu- nefndarinnar (IOC), frá því í gær, að hann myndi leggja til á fundi framkvæmdastjórnar IOC í næstu viku að Eystrasaltsríkin fengju aftur aðild að IOC. Ólympíunefnd Islands sendi Samaranch áskorun þess efnis í apríl sl. Ásamt Eystrasaltsríkjunum verða fjögur önnur ríki tekin í hóp aðildarríkja SÞ á þriðjudag; Kór- euríkin tvö, Sambandaríki Míkró- nesíu og Marshalleyjar. Reuter Ibúar sem teljast til pólska minnihlutans í Litháen efndu til mótmæla í Vilnius, höfuðborg ríkisins, í gær og var þá myndin tekin. Kröfðust Pólveijarnir þess að þingið í Vilnius breytti þeirri ákvörðun sinni að leysa upp sveitarstjórnir á svæðum pólska minnihlutans í Litháen. Inge Staldvik, þingmaður norska Verkamannaflokksins: Ekki tilskilinn þingmeiri- hluti fyrir EES-samningi Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, fréttaritara FJÖLDI áhrifamanna í Verka- mannaflokknum norska hefur í framhaldi af bæjar- og sveitar- stjórnarkosningunum um síðustu helgi lagt hart að Gro Harlem Brundtland forsætisráðherra að biðjast lausnar fyrir sig og ráðu- Major vill stækka Evrópubandalagið París. Daily Telegraph. JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, lagði til á fundi sam- taka hægriflokka í París í gær, að Evrópubandalagið (EB) verði stækkáð og það opnað fyrir lýðræðisríkjum í Austur-Evrópu og jafnvel Rússlandi. Major sagði að á leiðtogafundi EB í desember nk. þar sem til stæði að Ijúka sáttmála um pólitíska og efnahagslega framtíð banda- lagsins, mætti J»hn M^or ekki loka hurð- inni á nýfijáls ríki í Evrópu aust- anverðri. EB mætti ekki verða lokaður einkaklúbbur. Menn yrðu að víkka sjóndeildarhring sinn og horfa til nýrrar Evrópu. Taka yrði tillit til hinnar sögulegu þróunar sem átt hefði sér stað og hruns kommúnismans. Halda yrði opn- um möguleika fyrir Ungveijaland, Pólland, Tékkóslóvakíu, Eystra- saltsríkin þijú ogjafnvel Rússland og önnur sovétlýðveldi á aðild. í blaðaviðtölum eftir ræðuna á Parísarfundinum neitaði Major að tillögur hans væru settar fram til þess að freista þess að skemma fyrir samningum um pólitíska og efnahagslega framtíð EB og þar með afstýra alvarlegum klofningi í íhaldsflokknum sem hann mætti ekki við þar sem stutt væri í kosn- ingar. Morgunblaðsins. neyti sitt. Reynist réttar fullyrð- ingar eins þingmanns flokksins um fjölda þingmanna sem andvíg- ir eru samkomulagi um Evrópska efnahagssvæðið (EES) verður það fellt þegar það kemur til af- greiðslu í Stórþinginu. Vegna ákvæða norsku stjórnar- skrárinnar þurfa þrír fjórðu hlutar þingmanna, eða 124 af 165, að sam- þykkja samninginn til að hann öðlist gildi í Noregi. Hingað til hefur verið talið að Verkmannaflokkurinn og Hægriflokkurinn, sem samtals hafa 100 þingmenn, stæðu heilshugar á bak við slíkan samning. Kristilegi þjóðarflokkurinn með 14 þingmenn hefur gert að skilyrði fyrir samþykki að einkaleyfi norsku áfengisverslun- arinnar til innflutnings og sölu áfengis verði ekki raskað með EES- samningi. Einnig hefur verið talið að a.m.k. tíu af 22 þingmönnum Framfaraflokksins myndu styðja EES-samning. Miðflokkurinn og Sósíalíski vinstriflokkurinn hafa lýst því yfir að þeir muni greiða atkvæði gegn samkomulaginu en þingmenn flokkanna eru 28. Inge Staldvik, sem er í forystu þeirra sem beijast gegn EES-samn- ingum innan Verkamannaflokksins, segir í samtali við blaðið Nationen í gær, að hann viti um a.m.k. 14' þingmenn Verkamannaflokksins og Kristilega þjóðarflokksins sem muni greiða atkvæði gegn samningnum. Reynist fullyrðingar Staldviks um fjölda andstæðinga EES-samninga eru þeir orðnir a.m.k. 42, en það er nægilegur fjöldi til þess að þeir nái ekki fram að ganga. Andstæðingar hugsanlegrar að- ildar Norðmanna að Evrópubanda- laginu (EB) eru ívið fleiri en stuðn- ingsmenn hennar, að því er fram kemur í skoðanakönnun sem norska blaðið Dagbladet birti í gær. Könnunin gefur til kynna að 36% Norðmanna séu á móti aðild að Evr- ópubandalaginu en 32% með. 32% eru óákveðin. Stuðningsmenn aðild- ar hafa oftast verið fleiri samkvæmt könnunum fyrr á árinu. „EB-málið er að skapa aígjöran klofning á meðal þjóðarinnar," sagði Dagblad- et. Mest er andstaðan við aðild á meðal þeirra sem eru undir 24 ára aldri og fólks sem býr í mið- og norðurhluta landsins. Þeir sem leggj- ast gegn aðild segja að hún skerði fullveldi Noregs. Þrýstingur eykst dag frá degi á Gro Harlem Brundtland að efna til þjóðaratkvæðis um EES-samning- ana en því hefur hún tekið fálega. Jeltsín tekur við yfir- stjórn orkumála Rússa Moskvu. Kcuter. BORIS Jeltsín, forseti Rússlands, skerti mjög tök sovéskra stjórnvalda á efnahagsinálunum er hann tók í sínar hendur yfirstjórn allra orku- mála í Rússlandi. Rússar framleiða 90% allrar olíu sambandsríkisins og um 75% af jarðgasinu. Jeltsín hyggst selja öðrum lýðveld- um olíuna á heimsmarkaðsverði sem er þrisvar sinnum hærra en niður- greitt verð sem þau greiða nú. Olíusala hefur síðustu árin verið helsta gjaldeyrislind Sovétstjórnar- innar en talin er veruleg hætta á að orkuskortur geri vart við sig í land- inu í vetur. Tæknibúnaður olíu- vinnslustöðva er víða úreltur, vara- hlutir eru af skornum skammti og leiðslur oft ónothæfar. Olíufram- leiðsla minnkaði um sex af hundraði á síðasta ári. Sovétmenn hafa beðið um gríðar- lega matvælaaðstoð frá Vesturlönd- um. Talsmenn Evrópubandalagsins segja að Bandaríkin og Japan verði að hlaupa undir bagga, bandalagið ráði ekki eitt við verkefnið. Einnig er bent á að matarskortur sé ekki raunverulegi vandinn heldur ónýtt flutningakerfi í Sovétríkjunum og óvissa um hvaða yfirvöld eigi að ræða við.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.