Morgunblaðið - 13.09.1991, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 13.09.1991, Blaðsíða 25
MORGÚNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1991 missir er sá allra mesti og marg- falt meiri en' okkar hinna. En það sem huggar og sefar sorg okkar er minning um yndislega konu og þakklæti fyrir að hafa átt hana að. Minning hennar mun lýsa okkur um ókomin ár. Að lokum langar mig til að nota ljóð sem ég las um daginn sem loka- ■orðin mín til hennar ömmu, sem ég alltaf leit á sem mömmu mína líka: Ó, hve einmana ég er á vorin þegar sólin strýkur blöðum tijánna líkt og þú straukst vanga minn forðum og þegar ég sé allt lifna og grænka minnist ég þess að þú gafst einnig lífi mínu lit, og þegar ég sé sólina speglast i vatninu, speglast minningin um þig í hjarta mínu og laufgast á ný. (Björg Finnbogadóttir) Sigrún Aðalheiður Mig langar að minnast hennar ömmu í fáum orðum og segja frá henni eins og ég minnist hennar, sem gefandi og lífsglaðri konu sem alla tíð var bæði þægilegt og gott að vera nálægt. Þegar ég kom á Háaleitisbraut- ina var alltaf tekið á móti mér með mikilli ánægju og góðu meðlæti. Sjaldan yfirgaf ég ömmu og afa, hjón sem alltaf voru eins og nýtrú- lofuð, án þess að við amma spiluð- um hvort fyrir annað á píanóið þar sem Litla flugan hans Fúsa flaug yfirleitt með. Rétt fyrir ári, á 80 ára afmæli þeirra hjóna, stigum við amma dansinn og þá var ekki að sjá á henni að hún myndi kveðja okkur svo stuttu síðar. En þótt amma, þessi mikli gleði- gjafi, sé dáin, eigum við öll sem þekktum hana fjölda góðra minn- inga um hana sem á eftir að halda minningunni um hana lifandi á meðal okkar í framtíðinni. Um leið og ég vil þakka ömmu fyrir samfylgdina í gegnum árin votta ég afa mínum og öðrum að- standendum mína dýpstu samúð. Þórður V. Oddsson Elsku amma okkar er dáin. Hún lést í Landspítalanum að kvöldi 1. september sl. eftir erfið veikindi. Við eigum svo bágt með að trúa því að hún, sem alltaf var svo kát og hress, sé farin frá okkur fyrir fullt og allt. En við lifum í þeirri trú að við hittumst aftur, en hvern- ig og hvar vitum við ekki frekar en aðrir. Amma okkar var yndisleg kona, svo blíð og svo góð, enda sóttum við barnabörnin mikið til hennar og afa. Þangað var alltaf jafn skemmtilegt að koma. Fyrstu minn- ingar okkar um afa og ömmu tengj- ast Borgarnesi, en þar var afí lækn- ir. Þangað voru farnar ófáar ferð- imar með pabba og mömmu, ferðir mikillar tilhlökkunar. Þegar til afa og ömmu var komið var allt gert til þess að við skemmtum okkur vel og liði sem best. Sama tilhlökkun fylgdi komu'þeirra í bæinn. Oftar en ekki biðum við systkinin úti í glugga á Háaleitisbraut 49 og síðar í Hörðalandinu eftir að bíllinn þeirra afa og ömmu kæmi í hlaðið. Þegar hann birtist var hlaupið út og mik- ið faðmast og kysst. Árið 1969 fluttustþau úrBorgar- nesi út á Akranes og munum við þá enn betur eftir okkur. Helst hefðum við alltaf viljað vera hjá þeim á þessum árum og fórum stundum ein til þeirra með Akra- borginni. Hún amma hafði enda- lausa þolinmæði. Ósjaldan var eld- húsið hennar undirlagt fyrir búðar- leiki og þess háttar. Litakeppnir voru oft á dagskrá og amma var iðulega dómari í þeim keppnum. En alltaf voru myndirnar jafn fal- legar hjá okkur og allir fengu verð- laun því ekki vildi amma gera upp á milli okkar. Árið 1975 komu amma og afí aftur til Reykavíkur, þar sem þau áttu heima á sínum yngri árum. Fannst okkur ofsalega gaman að fá þau svona nálægt okkur. Nú gætum við farið til þeirra hvenær sem við vildum. Fljótlega fórum við nú samt að sakna þess að geta ekki farið upp á Akranes eins og áður og verið hjá þeim lengri tíma í einu. Hver jól kom öll fjölskyldan sam- an heima hjá afa og ömmu eftir að jólapakkarnir höfðu verið upp teknir. Þar var setið og spjallað saman, gengið í kringum jólatréð og amma sá um að jólasveinn kæmi í heimsókn. Síðla kvölds brást svo ekki drekkhlaðið kaffíborð og íjúpnapotturinn hennar ömmu stóð öllum opinn í eldhúsinu. Þessari sérstöku og ómissandi stemmningu á jólunum gleymum við aldrei. En þetta var ekki bara svona á jólun- um. Amma og afi voru einstakir gestgjafar. Enginn mátti líta inn öðruvísi en búið væri að bera á borð kökur og annað góðgæti. Allt var fyrir mann gert og minningarn- ar óteljandi. Elsku afi okkar. Missir þinn er mikill en megi minningin um hana elsku ömmu okkar ylja þér og okk- ur öllum um hjartarætur. Sofu mín Sigrún og sofðu nú rótt. Guð faðir gefi góða þér nótt! (Jón Thoroddsen) Rúna og Þórður Ólabörn. Nú er hún amma okkar farin og við eigum bágt með að trúa því að hún komi ekki aftur. Margar af okkar bestu minningum tengjast henni og afa. Alltaf tóku þau okkur opnum örmum og buðu inn í eld- hús, þar sem kökur voru ævinlega á boðstólum. Og oftast áður en við fórum teygði amma sig í „nammi- dósina" og gaf okkur sælgæti, síðan fóru allir ánægðir heim. Svona voru heimsóknirnar til ömmu og afa á Háó eins og við kölluðum þau allt- af. Þegar við svo urðum eldri var að vísu hætt að teygja sig í nammi- dósina en kökurnar voru enn til staðar. ' Okkar kærustu minningar erú án nokkurs efa tengdar jólunum hjá ömmu og afa. Þegar jólasveinn- inn mætti með fullan poka af nammi og fékk alla viðstadda til að dansa í kringum jólatréð. Þegar rjúpurnar voru bornar fram settust allir að snæðingi. Við kunnum þó ekki að meta þær fyrr en í seinni tíð. En nákvæmlega þessa stemmn- ingu eigum við ekki eftir að upplifa aftur, því hún elsku amma er farin. Við vonum þó að við fáum áfram að njóta gleðistunda og ánægju- legra jóla með afa okkar. En svona munum við ömmu okkar og svona munum við ávallt minnast hennar. Við barnabörnin viljum nú að lokum þakka þá umhyggju og elsk- usemi sem hún alla tíð auðsýndi okkur. Elsku afi, megi minningin um hana ömmu okkar varðveitast í huga okkar allra um ókomna tíð. Blessuð sé minning hennar. Þú sæla heimsins svalalind, ó, silfurkæra tár, er allri svalar ýtakind og ótal læknar sár. Æ, hverf þú ei af auga mér, þú ástarblíða tár er sorgir heims í burtu ber, þótt blæði hjartans sár. Mér himneskt ljós í hjarta skín i hvert sinn, er ég græt, því drottinn telur tárin mín, ég trúi og huggast læt. (Tárið eftir Kristján Jónsson) Ásta Dís, Steingrímur, Þórdís, Soffía og Thelma Lummubakstur í Habæ. ■ ÞAR SEM sláturtíðin er fram- undan verður dagskrá Árbæjar- safns sunnudaginn 15. september tengd matargerð áður fyrr. Hall- gerður Gísladóttir þjóðháttafræð- ingur á Þjóðminjasafninu segir frá geymslu og matreiðslu á kjöti og innmat í eldri tíð. Spjall hennar hefst kl. 15.00 í Dillonhúsi. í Ár- Til ritstjóra Morgunblaðsins: Með tilvísan til greinar Birnu Bjarnleifsdóttur, sem birtist 28.8, þar sem gagnrýnt er að leiðsögu- menn frá Þýskalandi fylgi ferða- mannahópum þaðan, vil ég taka fram að ekki einungis á Islandi heldur einnig í mörgum öðrum lönd- um, þar sem Þjóðveijar eru á ferð, bænum verður sýning á gömlum mataráhöldum og algengur matur frá síðstu öld verður á borðum. Bakaðar verða lummur, búin til kæfa og í Hábæ verður kaffi brennt og malað. Krambúðin og Dillonshús verða opin sem endranær. Allir vel- komnir. fylgja þeim innlendir leiðsögumenn. Þýskar ferðaskrifstofur, þ. á m. Studiosus og Kneissl Touristik ættu að virða þessa grundvallarreglu. Með vinsamlegri kveðju, Dr. Gottfried Pagenstert, sendiherra Þýskalands á ís- landi t Eiginmaður minn, INGÓLFUR EIDE EYJÓLFSSON, Garðbraut 74, Garði, verður jarðsunginn frá Útskálakirkju laugardaginn 14. september kl. 14.00. Erla Magnúsdóttir. t CHRISTIAN ZIMSEN fyrrverandi apótekari, lést á heimili sínu 7. september sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Guðrún Laxdal, Else Zimsen, Kristinn Zimsen, Nils H. Zimsen, Jón Zimsen. t Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, EGILL JÓNSSON glerslípunar- og speglagerðarmeistari, Reykjavíkurvegi 16, Hafnarfirði, lést í Borgarspftalanum þann 12. september. Birna Guðbjörnsdóttir, Guðbjörn Egilsson, Sigurjón Egilsson, Rúnar Þór Egilsson, Svanhildur M. Bergsdóttir, Egill Fannar, Bergdís Mjöll, Heiðrún Birna. t DANÍEL ÞÓRHALLSSON, Hátúni 10, Reykjavík, fyrrv. útgerðarmaðurfrá Siglufirði, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 16. september nk. kl. 15.00. Dagmar Fanndal, Þórhallur Danfelsson, Sigurður Gunnar Daníelsson, Elínborg Sigurgeirsdóttir, Sofffa Svava Danfelsdóttir, Birgir Guðjónsson, Ingibjörg Daníelsdóttir, Sigurður Valdimarsson og barnaborn. t Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÐUR GUÐMUNDSSON, Sólvallagötu 36 (Höfn), Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavikurkirkju laugardaginn 14. septem- ber kl. 11.00. Magnús Þórðarson, Bára Björnsdóttir, Emil Þórðarson, Auður Þórðardóttir, Guðmundur Kr. Þórðarson, Lára Axelsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Þökkum auðsýnda samúð við fráfall okkar ástkæra sonar, bróður og föðurbróður, VALSRAFNS ÚLFARSSONAR, Asparvfk, Álftanesi. Úlfar Ármannsson, Bryndís Ásgeirsdóttir, Sigurbjörn Rafn Úlfarsson, Stefán Rafn Sigurbjörnsson, Ármann Rafn Úlfarsson, Hrefna Sif Ármannsdóttir. t Við þökkum af heilum hug auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför SVERRIS ELENTÍNUSSONAR bifreiðastjóra. Ingveldur Eyjólfsdóttir, Eyjólfur Sverrisson, Helga Kristfn Guðmundsdóttir, Sverrir Sverrisson, Auður Svanborg Óskarsdóttir, Elentínus Sverrisson, Helga Sigrún Harðardóttir, Sævar Sverrisson, Gréta Grétarsdóttir, barnabörn og systkini hins látna. LOKAÐ verður í dag, föstudaginn 13. september, frá kl. 12.00 á hádegi vegna jarðarfarar GUNNGEIRS PÉTURSSONAR, skrifstofustjóra Byggingarfulltrúinn í Reykjavík. Islensk leiðsögn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.