Morgunblaðið - 13.09.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.09.1991, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1991 Hópurinn fyrir utan salthús ísfélagsins. Y estmannaeyjar: Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson Myndskreytingar á salthúsi ísfélagsins Vestmannaeyjuin. KRAKKAR úr 9. bekk barna- skólans í Eyjum unnu við það í vikunni að lagfæra og fríska upp myndskreytingar á salt- húsi ísfélagsins. Myndirnar, sem voru málaðar af börnum úr barnaskólanum fyrir mörg- um árum, voru orðnar skemmd- ar og máðar. Sigurfinnur Sigurfinnsson teiknikennari sá um verkið og aðstoðaði bömin við myndskreyt- inguna. Hann sagðist vera í góðri æfíngu að veggskreyta nú því í sumar hefði hann unnið við að myndskreyta 240 fermetra vegg á fískverkunarhúsi á Fáskrúðs- firði og nú ynnni hann að mynd- skreytingu fyrir Kaupfélagið á Fáskrúðsfírði. Þær myndir sagðist hann mála á sex fleka sem væru tæpir 12 fermetrar á stærð hver. Flekarnir yrðu síðan fluttir austur þar sem þeir yrðu settir upp. Myndirnar sem krakkarnir í Eyjum unnu við að mála á vegg- inn hjá ísfélaginu sýna feril físk- verkunar frá því fiskurinn kemur í hús og þar til honum er skipað út. Það var létt yfir krökkunum í málningarvinnunni og þau höfðu greinilega gaman af því sem þau voru að gera enda miðaði verkinu vel. Grímur Formaður Alþýðufiokksins: Þingflokkuriim hefur samþykkt heimild til að taka skólagjöld Ágreiningur um hvort nemendasjóðsgjöld séu innifalin Suðureyri: Elín Þor- bjarnardótt- ir innsigluð SÝSLUMAÐURINN á ísafirði lét á miðvikudag innsigla togarann á Suðureyri, Elínu Þorbjarnar- dóttur, vegna vanskila á virðis- aukaskatti og staðgreiðslu. Að sögn Oðins Gestssonar, út- gerðarstjóra Hlaðsvíkur, sem gerir Elínu Þorbjarnardóttur út, hefur skipið verið í höfn frá 28. ágúst. Hann segir að til hafí staðið að það færi til veiða í dag, en nú væri ekki víst hvort af því yrði. Engar form- legar við- ræður um sameiningu - segir Guðmundur Agnarsson, Isafirði GUÐMUNDUR Agnarsson, fram- kvæmdastjóri Rækjustöðvarinnar hf. á ísafirði, segir að engar form- legar viðræður eigi sér stað um sameiningu fyrirtækisins við aðr- ar rækjuverksmiðjur í bænum heldur einbeiti forsvarsmenn fyr- irtækisins sér að því að bæta eig- infjárstöðu þess. Menn reyni að halda eigin fyrirtæki gangandi enda hafi enga þýðingu að sam- eina tvö til þijú illa stæð fyrir- tæki. Hins vegar sé sameiningar- möguleikanum haldið opnum og menn hafí rætt hann á óformleg- um nótum en þá að því gefnu að áður takist að bæta eiginfjárstöð- una, til dæmis með hlutafjáraukn- ingu, sölu eigna eða eftirgjöf á hluta skulda. Gunnar Þórðarson framkvæmda- stjóri rækjuverksmiðjunnar ísvers hefur greint Morgunblaðinu frá því að Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra hafi sagt að hugsanlegt væri að ríkissjóður keypti hús ísvers und- ir verkmenntaskóla á ísafírði ef það mætti verða til að tryggja samein- ingu rækjuverksmiðja á staðnum. Samkvæmt heimildum Morgunblaðs- ins er þó talið ólíklegt að sala húss- ins ein og sér geti tryggt sameiningu fyrirtækjanna, þar sem meira þurfi til þess að eiginfjárstaða ísvers telj- ist viðunandi. Guðmundur Agnarsson sagði ljóst að það hvort sameining kæmi til alvarlegrar skoðunar gæti ráðist af því að tækist að selja hús ísvers. „Ég held að ríkið mundi skoða það hvort þijú fyrirtæki, sameinuð í eitt, eða ef hin tvö, Rækjustöðin og Nið- ursuðuverksmiðjan, væru búin að koma sínum málum í það gott horf að það væru rekstrarvænleg fyrir- tæki,“ sagði Guðmundur. „Það er stefna manna, ekki síst stjómvalda, að reyna að fækka þessum fyrirtækj- um og það er vissulega ágætis kost- ur. Þau eru of mörg.“ una. Morgunblaðið náði í gær sambandi við Svein R. Valgeirsson, bæjarfull- trúa og stýrimann á Bergey, en hann var kominn á miðin suður af Eyjum. Hann sagði að vissulega væru uppi misjafnar skoðanir á fískveiðistjórn- uninni og hvemig haga bæri þeim málum. „Mln persónulega skoðun á ÓLAFUR Arnarson, aðstoðarmað- ur menntamálaráðherra, segir að einhveijir þingmenn Alþýðu- flokksins telji fyrir misskilning að nemendasjóðsgjöld séu innifalin í þeirri hámarksupphæð skóla- gjalda sem ríkisstjórnin hefur samþykkt. Þrátt fyrir bréf sem ráðherra hafi borist frá Ossuri Skarphéðinssyni þingflokksform- anni Alþýðufíokksins, þar sem andstöðu fjögurra þingmanna flokksins er lýst, breyti það ekki þessu er sú við verðum að staldra við og hugsa okkar gang og skoða staðreyndir. Við getum varla verið á réttri leið og af því hef ég áhyggjur. Við höfum verið með stjóm á físk- veiðum frá árinu 1983 en samt sem áður er árviss niðurskurður á afla- heimildum þar sem þorskstofninn að báðir stjórnarfíokkarnir hafi samþykkt skólagjöldin með ákveðnum fyrirvara þriggja þing- manna Alþýðuflokks um að heim- ild sé fyrir gjaldtökunni i gildandi lögum. Jón Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, segir að samþykkt ríkisstjórnarinnar feli í sér að skólum sé ætlað að brúa bil áætlaðra rekstrarútgjalda og ríkisframlaga, m.a. með heim- ild til gjaldtöku, allt að 250 millj. kr. sem sé lækkun á þeirri gjald- minnkar alltaf. Nú bætist svo við stórfelldur niðurskurður á afláheim- ildum á ufsa og ýsu. Niðurskurðurinn nú kemur vissulega við allt landið en við förum mjög illa út úr honum hér í Eyjum og stafar það af afnámi sóknarmarksins. Stór hluti Eyjaflot- ans var á sóknarmarki og veiddi því mikið af ýsu, ufsa, karfa og öðru. Nú er kominn kvóti á þetta yfir línuna og því verður skerðingin svo mikil hjá okkur. Þetta á eftir að hafa mikil áhrif á atvinnulífíð í Eyj- um og því er ég áhyggjufullur yfír,“ sagði Sveinn. Grímur töku sem viðgengist hafi. Segir Jón Baldvin að þingflokkur Alþýðuflokksins hafí samþykkt gjaldahlið fjárlaga, þ.m.t. mennta- málaráðuneytis, og skuldbundið sig til að styðja fjárlagafrumvarpið á þeim forsendum sem samþykkt ríkis- stjórnarinnar feli í sér. Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra sagði í gær að samþykkt ríkis- stjómarinnar um skólagjöld stæði og yrði ekki breytt í fjárlagafrumvarps- drögunum nema ríkisstjórnin tæki - um það ákvörðun. Andstaða fjögurra þingmanna Al- þýðuflokksins hefur valdið óvissu um hvort stjórnarmeirihluti sé með skólagjöldum. Ólafur Amarson segir að bréf það sem barst frá Össuri sé illskiljanlegt en verði þó ekki túlkað öðmvísi en sem árétting á fyrirvara um lögmæti gjaldtökuheimildarinn- ar. „Það er óvefengjanlegt að heim- ildin er fyrir hendi í lögum, þó það kunni að vera túlkunaratriði hve víðtæk hún er,“ sagði hann. Ólafur sagði alveg Ijóst að menntamálaráðuneytið skipti sér ekki af því hvað skólamir innheimtu fyrir nemendafélög og því væru nem- endasjóðsgjöld ekki innifalin í þeirri upphæð sem samþykkt hefur verið. Þá sagði hann að ef í ljós kæmi að ekki væri meirihluti fyrir tillögunni meðal stjórnarliða myndi mennta- málaráðherra ekki Ieggja hana fyrir þingið. Jón Baldvin sendi frá sér fréttatil- kynningu vegna þessa máls í gær þar sem segir m.a. að á ríkisstjórnar- fundi 3. sept. hefðu útgjaldarammar menntamálaráðuneytis verið hækk- aðir um 50 millj. Skólum sé því ætl- að að brúa bil rekstrarútgjalda og ríkisframlaga með spamaði eða gjaldtöku. „Upplýst var að gjaldtaka af nemendum í umræddum skólum hefði á sl. skólaári verið á bilinu 300-350 millj. kr. Hér er því um að ræða lækkun á þeirri gjaldtöku, sem viðgengist hefur,“ segir m.a. I til- kynningu Jóns Baldvins. Ólafur G. Einarsson men'ntamálaráðherra hef- ur sagt að sú tala sé ekki frá sér komin en meirihluti þeirrar upphæð- ar eru nemendasjóðsgjöld. Jón Baldvin segir ríkisstjómina hafa ákveðið að skipa nefnd til að samræma fyrirkomulag um eigin tekjuöflun skóla, svo sem innritunar- og efnisgjöld, sem lög heimili og lengi hafí viðgengist og eigi að.skila niður- stöðum um lagaheimildir til ráðstöf- unar á innheimtufé til reksturs skóla, fyrir lok fjárlagaafgreiðslu. Fyrr verði því ekki svarað, að hve miklú leyti heimilt sé . að ráðstafa inn- heimtufé til reksturs skóla. Vísar hann einnig í bókun 3ja þingmanna Alþýðuflokksins, þeirra Rannveigar Guðmundsdóttur, Sig- björns Gunnarssonar og Össurar Skarphéðinssonar, við afgreiðslu málsins þar sem þau fallast á út- gjaldaramma menntamálaráðuneytis en áskilji sér rétt til að hlutast til um breytingar í lögum um fram- haldsskóla til að tryggja að í framtíð- inni verði námsgjöld ekki látin standa undir rekstri skóla í meiri mæli en nú tíðkist. Áhyggjur í Eyjum vegna minnkandi aflaheimilda Vestmannaeyj um. BÆJARSTJÓRN Vestmannaeyja samþykkti samhljóða á fundi sínum á miðvikudagskvöld tillögu þar sem lýst er yfir áhyggjum vegna minnk- andi aflaheimilda Eyjaflotans. Sveinn Rúnar Valgeirsson, Sjálfstæðis- fíokki, flutti tillöguna sem undirrituð var af öllum bæjarfulltrúum. Fylgdi hann tillögunni úr hlaði með nokkrum orðum þar sem hann lýsti yfir áhyggjum sinum með þann geysilega aflasamdrátt sem Eyja- fíotinn yrði fyrir miðað við nýútgefnar aflaheimildir fyrir næsta fisk- veiðiár. Aðrir bæjarfulltrúar tóku í sama streng í umræðum um tillög-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.