Morgunblaðið - 13.09.1991, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 13.09.1991, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1991 GOLFKLÚBBURINN KEILIR Opiú saímút verður haldið nk. laugardag. Ræst út frá kl. 9-14. Fyrirkomulag 7/8 forgjöf. Punktakeppni. Skráning í dag í síma 53360. ÍÞRÚmR FOLK ■ ALLIR ítalskir lyftingamenn hafa verið settir í keppnisbann heima og erlendis, þar til opinber lyfjanefnd hefur komist að endan- legri niðurstöðu varðandi þrjá karla og þtjár konur, sem féllu á lyfja- prófi um mánaðarprófin. ■ TVÆR stúlkur, sem féllu á lyfjaprófi á stigamótinu í Róm í júlí sl., voru dæmdar í tveggja ára keppnisbann hja' Alþjóða fijáls- íþróttasambandinu. Þetta eru há- stökkvararnir Lelena Rodína frá Sovétrílqunum og Biljana Petrovic frá Búigaríu. ■ PAUL Lydersen, bakvörður hjá Start og norska landsliðinu í knattspymu, er á leiðinni til Arse- nal. George Graham hefur sam- þykkt aðjgreiða 500.000 pund (um 52 millj. ISK) fyrir Norðmanninn, ■ VÍKINGAR skipuleggja sæta- ferðir á leikinn gegn Víði í Garði á morgun. Farið verður frá Víkings- heimilinu við Stjörnugróf klukkan 12.15. ^KENWOOD Með Kenwood Chef er allt klárt í eldhúsinu Aukabúnaður m.a.: Grænmeíiskvörn — Hakkavél Grænmetisrifjárn — Ávaxtapressa 22.200 H HEKIAHF Laugavegi 170-172 Simi 695500 ■■ ■ -. KARFA / EVROPUKEPPNI KR-ingar nýttu ekkifærin Höfðu möguleika á að jafna en töp- uðu með níu stiga mun íVín KR mátti í gærkvöldi sætta sig við níu stiga tap, 74:75, gegn SPI í seinni leik liðanna ífyrstu umferð Evrópukeppni bikar- hafa íkörfuknattieik. Þegar rúmar tvær mínútur voru til leiksloka voru KR-ingarfjórum stigum undir. Þeir fengu góð tækifæri til að jafna, en nýttu ekki færin og Austurríkismenn- irnir notfærðu sér mistökin og bættu við. KR er þar með úr leik, tapaði fyrri leiknum 89:87, en báðir leikirnir fóru f ram í Vínarborg í Austurríki. Meimamenn ætluðu greinilega ekki að láta söguna frá því á þriðjudagskvöld endurtaka sig og mættu mun harðari og ákveðnari til leiks. Þeir komust upp með miklu meir hörku en í fyrri leiknum og voru 15 stigum yfir í hálfleik, 45:30. En KR-ingar létu ekki slá sig út af laginu og létu hart mæta hörðu eftir hlé, en heppnin var ekki með þeim í lokin. Birgir Guðbjörnsson, þjálfari KR, var ánægður með allt nema úrslit- in. „Ég er helst ánægður með hvað strákarnir börðust allan tímann og gáfust ekki upp, þrátt fyrir mótlæt- ið í fyrri hálfleik. Þeir voru inni í leiknum þar til síðustu tvær mínút- urnar, en með smá heppni hefði dæmið alveg getað gengið upp.“ Hermann Hauksson lék mjög vel og var stigahæstur með 18 stig. John Bear náði sér ekki eins vel á strik og í fyrri leiknum enda tekinn föstum tökum, en skoraði engu að síður 15 stig. Guðni Guðnason skor- aði 10, Axel Nikulásson, sem var meiddur í fyrri leiknum, fann sig vel og skoraði 9 stig, Páll Kolbeins- son var sérstaklega góður í fyrri hálfleik og gerði alls 8 stig og Lár- us Árnason, sem átti frábæran vamarleik, 5 stig. Bandaríski bakvörðurinn Dukes Lárus Árnason átti stórleik í vöm- inni og tók besta mann Austurríkis- manna úr umferð. var stigahæstur hjá SPI með 21 stig, en hann mátti sín lítils gegn Lárusi eftir hlé, sem tók hann þá nánast úr umferð. Bandaríkjamað- urinn Mayers skoraði 20 stig og Matyas 10 stig. Birgir sagði að KR-ingar hefðu átt erfitt uppdráttar í sókninni gegn ákveðinni vörn og misst einbeiting- una í lokin, en liðið hefði fallið úr keppni með sæmd. „Við þurfum ekki að skammast okkur fyrir frammistöðuna, því við vorum að leika gegn lang besta liði Austurrík- is. Mótheijarnir sigmðu fyrst og fremst á meiri líkamlegum styrk, en það háði okkur að héma á meg- inlandinu er leyft miklu meira en við emm vanir heima og því þarf að hafa mun meira fyrir hlutunum. En báðir leikirnir voru jafnir og við erum reynslunni ríkari." Skólamót í knatf spyrnu íslandsmót framhaldsskóla í knattspyrnu verður haldið í október og nóvember nk. Þátttökutilkynningar ásamt þátttökugjaldi kr. 5.000 sendist skrifstofu KSÍ, íþróttamið- stöðinni í Laugardal, 104 Reykjavík, fyrir 20. september. Heimilt er að senda eitt karlalið og eitt kvennalið frá hverjum skóla. Knattspyrnusamband íslands. Boðsmiðar á Evrópukeppni félagsliða Athygli íþróttaforystumanna, dómara og annarra hand- hafa aðgönguskírteina (passa) er vakin á því, að breytt hefur verið reglum um frímiða (boðsmiða) að landsleikj- um, Evrópukeppnum félagsliða og Mjólkurbikarképpni KSÍ. Aðgönguskírteini (passar) gilda ekki að framan- greindum leikjum, en handhafar þeirra geta sótt miða á leikina á skrifstofu KSÍ í Laugardal gegn framvísun skírteina (passa). Miðar á leiki Vals, Fram og KR í Evrópukeppni félagsliða, verða afgreiddir á skrifstofu KSÍ 16.-18. sept. kl. 12-18. Þá er rétt að benda handhöfum boðsmiða á, að eftirleið- is er þeim ætlað að ganga inn um sérstakt hlið, merkt: Boðsmiðar. Við hliðið verða skírteinishafar að sýna skírteini sín ásamt boðsmiða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.