Morgunblaðið - 13.09.1991, Side 35
35
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 13. SEPTEMBER 1991
HANDKNATTLEIKUR HM U-21 I GRIKKLANDI
FOLK
■ DANSKA liðið fjölmennti á
leik íslendinga og Þjóðverja til
að hvetja Islendinga, því ef Þjóð-
verjar hefðu unnið hefðu Danir
leikið um 9. sætið, en þeir leika um
7. sætið. Svíþjóð og Júgóslavía
leika um gullið, en Sovétríkin og
Spánn um bronsið.
B ÍSLENSKU strákarnir lifðu í
voninni eftir jafntefiið við Þjóð-
verja. Ef Sovétmenn hefðu unnið
með níu marka mun var ísland í
leik um bronsið. En þær vonir runnu
út í sandinn strax í byijun leiks —
Svíar komust m.a. í 11:2 og útséð
um níumarka sigur Sovétmanna.
■ HLJÓÐIÐ var þungt í íslensku
strákunum eftir jafnteflið við Þjóð-
veija, en brúnin lyftist heldur
eftir að Svíar unnu Sovétmenn
því þar með skiptu úrslitin gegn
Þjóðverjum í raun engu máli. Svo
var þeim hugsað til leiksins gegn
Svíum og þá fraus brosið!
■ MAGNÚS Sigurðsson lék ekki
með í gær. Hann er meiddur á
vinstri öxl og læknir sovéska liðs-
ins, sem skoðaði hann, ráðlagði
landsliðsþjálfaranum að hvíla hann
fram á laugardag.
H DAGUR Sigurðsson lék sinn
fyrsta leik í keppninni og stóð sig
vel, var einn þriggja með 100%
skotnýtingu. Hann og Patrekur
skutu báðir einu sinni og skoruðu
sitt markið hvor, en Páll Þórólfs-
son skaut tvisvar á markið og skor-
aði í bæði skiptin.
■ GÚSTAF Bjarnason gerði þijú
mörk af línu í gær eftir glæsilegar
sendingar frá Sigurði Bjarnasyni,
Degi Sigurðssyni og Páli Þórólfs-
syni. íslensku strákunum gekk erf-
iðlega að finna leiðina í markið í
byijun seinni hálfleiks og það var
ekki fyrr en eftir rúmlega sex
mínútna leik að Sigurður braut
ísinn.
■ BAUMANN, aðstoðarþjálfari
Þjóðverja, fékk að sjá rauða spjald-
ið skömmu fyrir leikhlé gegn ís-
lendingum.
I ÞORBERGUR Aðalsteinsson
landsliðsþjálfari hélt fyrirlestur á
þjálfaranámskeiði í Aþenu í gær-
morgun. 70 Grikkir voru á nám-
skeiðinu og spurðu mikið. Einnig
kom blaðamaður frá Nígeríu að
máli við Þorberg og hafði hug á
að fá fyrirlesturinn og meiri upplýs-
ingar áður en íslenska liðið færi
heim.
■ SVÍAR eru ekki á flæðiskeri
staddir hvað markmenn varðar.
Gonzales, annar markvörður Svía
lék gegn Sovétmönnum og nær
lokaði markinu. Hann varði m.a.
15 skot í fyrri hálfleik og þar af
þijú vítaköst. Sovétmenn gerðu
þriðja mark sitt eftir 22 minútna
leik!
B ÞAÐ hefur örugglega haft góð
áhrif á leikmenn þýska liðsins að
Bredemeier, a-landsliðsþjálfari
Þjóðveija, kom til Aþenu fyrir leik
þeirra gegn íslendingum. Brete-
meier kom til að sjá hvort hann
gæti notað leikmenn í lið sitt.
■ STRÁKARNIR í landsliðinu
hafa sungið mikið jagið „Áfram
strákar," sem Jason Ólafsson, leik-
maður liðsins, samdi sérstaklega
fyrir keppnina. Söngur þeirra hefur
vakið athygli og einnig gítarleikur
Jasonar.
■ ÞAÐ kom fáum á óvart, þegar
Finnur Jóhannsson, baráttujaxl-
inn mikli úr Val, valdi mestu slags-
málamyndina sem sýnd var í
Aþenu, þegar hann fékk að velja
hvaða mynd strákarnir færu á eftir
leikinn gegn Svíum.
■ LEIKMENN íslenska liðsins
áttu frí á miðvikudag. Þeir notuðu
tækifærið og skruppu til eyjarinnar
Aigena, þar sem þeir fengu leyfi
til að vera í sólbaði í tvo tíma. Flest-
ir strákanna tókú sér skellinöðru á
leigu og fóru á flakk um eyjuna.
Hvað
sögðu þeir?
Sigurður Bjarnason hefur leikið mjög vel með íslenska liðinu, eftir að hann tók eitthvað að ráði þátt í leikjum liðsins.
Vonbrigði að missa
af verðlaunasæti
ÍSLENSKU strákarnir gerðu
jafntefli, 19:19, við Þjóðverja í
æsispennandi leik, þar sem
íslendingar höfðu forystu
lengst af. Þjóðverjar jöfnuðu,
þegar 38 sekúndur voru eftir
og leiktíminn rann út án þess
að íslensku strákunum tækist
að skapa sérfæri. íslenska lið-
ið leikur því gegn Rúmenum f
kvöld um fimmta sætið á mót-
inu.
Leikmenn íslenska liðsins voru
óánægðir með að ljúka dæminu
ekki sjálfir, það hefði verið miklu
auðveldara en að sitja uppi í áhorf-
endabekkjum og
vonast til að Sov-
étríkin sigruðu Svía
með níu marka mun.
„Við áttum að klára
þetta og vorum ferlegir klaufar að
gera það ekki. Þjóðveijarnir eru
ekki með það sterkt lið og við áttum
að sigra,“ sagði Gunnar Andrésson,
fyrirliði, eftir leikinn.
íslendingar voru fyrr í gang en
þýsku piltarnir og eftir nokkurra
mínútna leik höfðu þeir náð tveggja
marka forystu, 3:1, og sá munur
hélst allt þar til Þjóðveijar jöfnuðu
6:6 og komust síðan yfir 6:7. íslend-
ingar náðu aftur tveggja marka
SkúliUnnar
Sveinsson
skrifarfrá
Aþenu
forystu, 9:7 og 10:8, en Þjóðveijar
minnkuðu muninn í eitt mark fyrir
hlé og gerðu síðan tvö fyrstu mörk-
in í síðari hálfleik, en þeir voru
tveimur mönnum fleiri þá stundina.
Þjóðveijar náðu tveggja marka
forskoti, 11:13, en íslensku strák-
arnir gáfust ekki upp og komust
yfir á nýjan leik, 14:13, og síðan
17:15, þegar sjö mínútur voru eftir.
Þá breittu Þjóðveijar vörninni, tóku
Sigurð Bjarnason og Gunnar Andr-
ésson úr umferð og við það riðlað-
ist leikur okkar pilta nokkuð. Þjóð-
veijar jöfnuðu 18:18, þegar tæpar
fjórar mínútur voru til leiksloka.
Jason Ólafsson fiskaði vítakast,
þegar tæpar þijár mín. voru eftir,
en Sigurður þrumaði knettinum í
slá. Islensku strákarnir náðu þó
frákastinu, en hvorki gekk né rak
hjá þeim og að lokum fengu þeir
dæmda töf á sig. Þjóðveijar voru
svo sem lítið betri á tauginni því
þeir glötuðu knettinum í næstu
sókn.
Sigurður skoraði þegar 74 sek.
voru eftir, en Þjóðverjar gengu
síðan í rólegheitum í gegnum
íslensku vörnina, þegar 38 sekúnd-
ur voru eftir og jöfnuðu. Klaufa-
legt, því enginn Islendingur fór á
móti Þjóðveijanum, sem jafnaði.
Þegar 15 sek. voru eftir fengu
íslendingar aukakast og boltinn var
fyrir aftan mark Þjóðveija, en ann-
ars ágætir norskir dómarar sáu
ekki ástæðu til að stöðva klukkuna
og leiktíminn fjaraði út.
Leikurinn var ekki vel leikinn.
Þó íslendingar hefðu undirtökin í
fyrri hálfleik var það alls ekki fyrir
góðan leik. Sóknin var oft hálf
vandræðaleg og lítil hreyfing á
mönnum. Vörnin var þokkaleg, en
samt sem áður vantaði þann fídons-
kraft, sem verið hefur, nema síðustu
15 mínúturnar. Þá náðu þeir upp
góðri baráttu í vörninni. Sigurður
Bjarnason lék allan leikinn og stóð
sig vel. Það sama má segja um
Gunnar Andrésson fyrirliða. Dagur
og Jason áttu góðan leik og í vörn-
inni var Patrekur sterkur að vanda.
Hallgrímur varði ágætlega í fyrri
hálfeik, en lítið í þeim síðari. Islend-
ingar voru útaf í 12 mínútur en
Þjóðverjar í 10 og það var dálítið
einkennandi hversu illa strákarnir
nýttu sér að vera fleiri, en Þjóðveij-
ar gengu hins vegar á lagið.
Mörk Islands: Sigurður Bjarnason
6/2, Einar Sigurðsson 3, Gunnar
Andrésson 3, Gústaf Bjarnason 3,
Páll Þórólfsson 2, Dagur Sigurðsson
1, Patrekur Jóhannesson 1. Varin
skot: Hallgrímur Jónasson 11 (þar
af átta í fyrri hálfleik).
Gunnar Andrésson, fyrirliði,
var svekktur eftir leikina í
gær. „Það var grátlegt að missa
af því að spila um bronsið. Það
munaði svo sorglega litlu, en mér
finnst að við hefðum átt það skilið.
Við höfum leikið ágætlega en það
hefur vantað einhvern herslumun.
Áður en við fórum í þessa keppni
stefndum við að því að gera betur
en liðið í síðasta móti, en það náði
5. sæti. Nú verðum við að sig^r-
Rúmena til að gera jafnvel. Annars
held ég að fímmta eða sjötta sætið
sé alveg ágætis árangur.
Varðandi leikinn gegn Þjóðveij-
um þá veit ég ekki almennilega
hvað var að okkur. Við náðum ekki
upp alveg nógu góðri stemmningu
fyrir leikinn. Hugsanlega hefur ver-
ið einhver hræðsla í okkur þó mér
finnist það ólíkleg skýring vegna
þes að við höfum enga ástæðu til
að óttast þetta lið Þjóðveija. Við
vorum ferlegir klaufar að klára
ekki þennan leik, þegar stemmning-
in kom í lokin.“
Gunnar Einarsson, þjálfarí:
„Það voru fyrst og fremst þyngsli
og stemmningsleysi í mannskapn-
um. Það var ekki nema síðasta
stundarfjórðunginn, sem strákarnir
náðu að leika á fullu. Þetta var frek-
ar slakur leikur hjá okkur og mikið
um vitleysur. En fyrstu sex þjóðirn-
ar eru allar mjög svipaðar að styrk-
leika. Þegar við lögðum af stað
hingað var markmiðið að komast á
HM 93 og því höfum við náð og
erum ánægðir með það, en auðvitað
er maður sársvekktur með að vera
ekki að leika um bronsið eða jafn-
vel gullið. Það vantaði svo sáralítið
uppá.“
FRJALSIÞROTTIR
Missir Andersen silfrið?
IMorski kúluvarparinn, sem var annar í Tókýó, féll á lyfjaprófi
Norski kúluvarparinn Georg
Andersen, sem fékk silfur-
verðlaunin í kúluvarpi á HM í
Tókíó á dögunum, féll á lyfjaprófí
sem hann gekkst undir í júlí.
Reynist það á rökum reist verð-
ur silfrið tekið frá honum og hann
dæmdur f tveggja ára keppnis-
bann. Úrskurður verður kveðinn
upp 19. október og verður hann
í banni þangað til.
Norski lögregluþjónninn neitar
að hafa tekið ólögleg lyf og seg-
ist ekki hafa neina skýringu á
prófinu. Hann hafí hins vegar
fengið pillur vegna magaveiki og
er verið að rannsaka innihald
þeirra.
Mál þetta hefur vakið mikla
athygli í Noregi, en í upphafi átti
ekki að ekki að gera nafn Anders-
en opinbert - á meðan sekt hans
væri ekki sönnuð. Það voru ljós-
myndarar norsku blaðanna sem
tóku myndir af gögnum um málið
með aðdráttarlinsu og eftir að
þeir höfðu stækkað upp myndir
sfnar, sást nafn Andersens svart
á hvítu.
Þess má geta að á undanförn-
um árum hefur Andersen barist
harðast gegn lyfjanotkun íþrótta-
manna og sagt sínar skoðanir um
lyfjanotkun umbúðalausar. Marg-
ir vilja nú halda fram að íþrótta-
menn, sem hafa viljað hefna sín
á Andersen, hafi látið ólögleg lyf
í drykki, sem Andersen drakk.
Þá hefur verið deilt hart á
norska fijálsíþróttasambandið um
að hafa þaggað málið niður og
spurningin er; Hvers vegna var
ekki látið vita um að Andersen
féll á lyíjaprófíð áður en hann
keppti í Tókýó, en prófið var tek-
ið í byijun júlí, nær tveimur mán-
uðum áður en HM í Tókýó fór
fram.
Ef Andersen verður dæmdur
sekur og missir silfurverðlaun sín,
yrði það kaldhæðni örlaganna, að
það kæmi í hlut Norðmannsins
Lars Arvie Nilsen, sem var í
keppnisbanni vegna lyfjanotkunar
1987-1989, að taka við silfurverð-
launm Andersens, en Nilsen varð
í þriðja sæti í Tókýó.