Morgunblaðið - 20.09.1991, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991
Sýn stefnir að útsend-
ingum í lok nóvember
segir Páll Magnússon sjónvarpsstjóri Stöðvar 2
FULLTRÚAR Ríkisútvarpsins,
Sýnar hf. og Stððvar 2 ásamt
fulltrúum Pósts og síma undirrit-
Byggingarvísitalan:
0,3% hækk-
un í sept.
VÍSITALA byggingarkostnaðar
hækkaði um 0,3% frá ágústmán-
uði og reyndist vera 187 stig eða
598 stig samkvæmt eldri grunni.
Þessi vísitala gildir fyrir október.
Síðastliðna 12 mánuði hefur vísi-
talan hækkað um 8,4% en und-
anfama þrjá mánuði um 0,6% sem
jafngildir um 2,4% hækkun á heiiu
ári.
uðu í gær þríhliða samning um
framkvæmdir við uppsetningu
senda fyrir útsendingar RÚV á
svokallaðri UHF-rás til að rýma
fyrir útsendingum Sýnar á rás 6
en Sýn hyggst hefja sjónvarpsút-
sendingar i lok nóvember, að
sögn Páls Magnússonar sjón-
varpsstjóra á Stöð 2. íslenska
útvarpsfélagið sem stendur að
baki Stöð 2 á 70% hlutafjár í Sýn
hf. Sýn fékk úthlutað sjónvarps-
leyfi til útsendinga á rás 6 í sum-
ar og sagði Páll að í upphafi
myndu útsendingar Sýnar ná til
Faxaflóasvæðisins og um Suður-
nesin.
Páll sagði að undirbúningur fyrir
sjónvarpsútsendingu Sýnar gengi
vel. Ýmsir valkostir væru til skoð-
unar en eftir væri að ganga frá
skipulagi sjónvarpsstöðvarinnar og
dagskrár, sem hann sagði að yrði
talsvert frábrugðin dagskrá Stöðv-
ar 2.
Sýn þurfti að kaupa nýja UHF
senda fyrir ríkisútvarpið en tekur
í stað þess yfir senda RÚV á VHF
rásinni. Páll sagði að það tæki senn-
ilega tvo mánuði fyrir Póst og síma
að koma sendunum upp. Skipta
þyrfti um endurvarpa í Mosfells-
sveit, Sandgerði og Mýrum og sett-
ur yrði upp aðalsendir á Vatn-
senda. Þá þarf Sýn að setja upp
UHF loftnet fyrir útsendingar RUV
í Sandgerði og Mosfellsbæ.
Stöð 2 og Sýn eiga eftir að ganga
frá samningum sín á milli um sam-
eiginleg afnot af myndlyklunum en
Páll sagði að um 80% þeirra mynd-
lykla sem nú eru í notkun væru
fjölrásamyndlyklar.
VEÐURHORFUR íDAG, 20. SEPTEMBER
YFIRLIT: Skammt suðaustur af ian Mayen er 975 mb lægð sem
hreyfist norður, en um 800 km suðvestur af Reykjanesi er heldur
vaxandí 980 mb lægð á hreyfingu norðaustur og verður hún yfir
landinu vestanverðu um miðjan dag á morgun.
SPÁ Allhvass austan og rigning og síðan sunnan stinningskaldi
og skúrir suðvestanlands en vaxandi suðaustan- og austanátt og
fer einnig að rigna norðaustanlands. Hlýnandi veður.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARUDAG:Horfur á laugardag. Norðaustan strekk-
ingur og rigning á Vestfjörðum en hægari suð- og suðaustanátt í
öðrum landshlutum. Víða skúrir en þó líklega þurrt norðanlands.
Hiti 6-12 stig.
HORFUR Á SUNNUDAG: Vaxandi norðaustan átt um allt land og
kólnandi veður norðantil. Rigning eða súld á norðanverðu landinu
en sunnanlands léttir smám saman til.
Svarsfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TÁKN:
O Heiðskírt
Léttskýjað
Hálfskýjað
Skýjað
Alskýjað
s, Norðan, 4 vindstig:
^ Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
■J 0 Hitastig:
10 gráður á Celsíus
ý Skúrir
*
V El
— Þoka
= Þokumóða
’, ’ Suld
OO Mistur
—Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tíma
hítl veður
Akureyri S skýjað
Reykjavik 8 léttskýjað
Bergen 10 skúr
Helsinki 8 rigning
Kaupmannahöfn 17 skýjað
Narssarssuaq 4 skýjað
Nuuk 2 alskýjað
Ostó 16 skýjað
Stokkhólmur 16 léttskýjað
Þórshöfn 11 skýjað
Algarve 33 léttskýjað
Amsterdam 17 skýjað
Barcelona 26 mistur
Beriín 17 þokumóða
Chicago 4 léttskýjað
Feneyjar 24 skýjað
Frankfurt 22 skýjað
Glasgow 12 rigning
Hamborg 16 skýjað
London 18 skýjað
LosAngeles 16 þoka
Lúxemborg 18 skýjað
Madríd 30 heiðskírt
Malaga 27 heiðskirt
Mallorca 27 léttskýjað
Montreal 13 skúr
NewYork 26 skýjað
Orlando 24 skýjað
París 18 skýjað
Madeira vantar
Róm vantar
Vín 21 skýjað
Washington 2S skýjað
Winnipeg 3 skýjað
Morgunblaðið/Júlíus
Auða lóðin við Mjóstræti 5, milli Mjóstrætis 3 og Gijótagötu 6, þang-
að sem fyrirhugað er að flytja hluta hússins sem nú stendur við
Fischersund 1.
Fischersund 1 verður
flutt að Mjóstræti 5
Eldurinn talinn óviljaverk útigangsmanns
FYRIR borgarráði liggur tillaga um að hluti hússins við Fischersund
1, sem kviknaði í aðfaranótt fimmtudags, verði fluttur á lóð milli
ðflóstrætis 3 og Gijótagötu 6 og verði þá við Mjóstræti 5. Jafnframt
verður lóðamörkum lóðanna við Mjóstræti 3 og Aðalstræti 6 breytt.
Útigangsmenn hafa um tima leitað skjóls í húsinu og er talið að einn
þeirra hafi í ógáti orðið þess valdandi að eldur kviknaði í húsinu.
Að sögn rannsóknarlögreglu er talið víst að um óviljaverk hafi verið
að ræða.
Að sögn Hjörleifs Kvaran fram-
kvæmdastjóra lögfræði- og stjóm-
sýsludeildar, var upphaflega ráðgert
að rífa Fischersund 1. í tillögu sem
Iiggur fyrir borgarráði er gert ráð
fyrir að húsið verði sagað í sundur
og elsti hlutinn fluttur á lóðina við
Mjóstræti 5. Sagði Hjörleifur að
Húsafriðunamefnd ríkisins hefði
lagt til að húsið yrði ekki rifið og
að verið væri að kanna möguleika
á að koma því fyrir á lóðinni. Fjar-
Iægðin í næstu hús yrði í tæpara
lagi og verður að sækja sérstakleg
um leyfí fyrir húsið á þessari lóð
og kanna um leið undanþágur sem
gilda um fjarlægð milli húsa.
Áætlaður kostnaður við að flytja
þann hluta hússins sem á að varð-
veita, steypa sökkla og tengja við
veitukerfi borgarinnar, er talinn
vera um 3,6 milljónir króna. Að
sögn Hjörleifs, er gert ráð fyrir að
húsið verði selt í því ástandi.
Málverkauppboð í Kaupmannahöfn:
Tvö af fimm íslensk-
um verkum seldust
Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, Kaupmannahöfn.
TVÖ af fimm íslenskum málverkum sem boðin voru til sölu á upp-
boði á nútimalist í Kunst Hallen í Kaupmannahöfn í gær seldust.
Fjögur íslensku verkanna voru eftir Svavar Guðnason og eitt eftir
50.000 þús. en seldist á 41.000
danskar krónur. Annað verk frá
1945 var metið á 40.000 en fór á
45.000 danskar krónur. Stórt óár-
sett verk metið á 60.000 seldist
ekki og heldur ekki lítil mynd eftir
hann sem metin var á 8.000 þús.
danskar krónur. Málverk eftir Þor-
vald Skúlason var metið á 40.000
danskar krónur en seldist ekki.
Þorvald Skúlason.
Yfírleitt var salan dræm og mörg
verkanna voru dregin til baka m.a.
stór og dýr verk eftir þekkta mál-
ara. Heildarmatið var 6,4 milljónir
danskra króna en söluverðið varð
2,5 milljónir danskra króna. Það
virðist hreint engin eftirspum vera
eftir þessum verkum.
Olíumálverk á pappa eftir Svavar
Guðnason frá 1943 var metið á
Leland Bell
listmál-
ari látinn
LELAND Bell listmálari er lát-
inn, 69 ára að aldri. Hann fædd-
ist 17. september árið 1922 í
Cambridge í Maryland í Banda-
ríkjunum en ólst upp í New York.
Leland Bell var sjálfmenntaður í
list sinni og hreifst ungur af verkum
listmálarans Knaths, sem hann
kynntist persónulega og var læri-
meistari hans. í New York kynntist
hann ungu listafólki, sem þar stund-
aði nám og á sama hátt síðar er
hann dvaldi um tíma í Paris fyrst
árið 1946 síðan árið 1951 og loks
veturinn 1962 til 1963, ásamt konu
sinni Louisu Matthíasdóttur listmál-
ara.
Þau hjónin dvöldu oft hér á landi
og unnu að list sinni en bjuggu í
New York, þar sem Leland kenndi
fram til síðustu stundar við lista-
skóla, fyrst New School for Social
Leland Bell
Research, sem seinna varð Parson
School of Design, og New York
Studio School auk annarra skóla í
Bandaríkjunum. Þá flutti hann
fyrirlesta um myndlist víða í Banda-
ríkjunum og Evrópu.
Dóttir Lelands og Louisu er
Temma og er hennar maður Ingi-
mundur Kjarval leírlistamaður. Þau
eiga fjórar dætur.