Morgunblaðið - 20.09.1991, Page 12

Morgunblaðið - 20.09.1991, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 20: SEPTEMBER 1991 Myriam Bat-Y osef _______Myndlist_____________ EiríkurÞorláksson Islendingum kann að koma það á óvart, en á sama hátt og ýmsir íslenskir listamenn hafa tekið ást- fóstri við lönd handan Atlantsála og gert þau að öðru heimili sínu, þá er einnig nokkuð um það að erlendir listamenn hafi fengið slíka ást á íslandi, og gert það að öðru föðurlandi sínu. Þessir listamenn hafa sest hér að tímabundið eða komið hingað reglulega, haldið list- sýningar og á annan hátt tekið þátt í íslensku listalífi. Sem dæmi um slíka listamenn í gegnum tíðina má t.d. nefna Dieter Rot, sem hafði mikil áhrif á heila kynslóð lista- manna á sjöunda áratugnum, og Leland Bell, sem hefur verið óþreyt- andi að kynna íslenska myndlist vestanhafs. Ein úr þessum hópi er Myriam Bat-Yosef (sem raunar gerðist ís- Ienskur ríkisborgari fyrir margt löngu, og ber þannig með réttu nafnið María Jósefsdóttir), en hún kom fyrst hingað til lands fyrir meir en þrjátíu árum. Eftir að hafa búið hér um tíma hefur hún komið reglulega á nokkurra ára fresti og m.a. haldið einkasýningar, og þann- ig gefið landsmönnum tækifæri til að fylgjast með því sem hún hefur verið að vinna að í listinni, en hún hefur búið og starfað í París. Nú stendur yfir í FÍM-salnum við Garðastræti sýning á yfir fimmtíu verkum Myriam, sem eru unnin á hina fjölbreytilegustu vegu. Þarna getur að líta myndir sem eiu málað- ar á striga, pappír, klósettsetu, silki, litógrafíur, japanskan pappír, myndaramma, slæður, púða og hálsbindi, svo nokkuð sé nefnt; en þó fletirnir séu ijölbreyttir að efni og lögun, þá ganga svipuð efnistök í gegnum flest verkin. Tjáningarmáti listakonunnar nú er svipaður og listunnendur hafa séð áður; litríkur, næstum skraut- Myriam Bat-Yosef við tvö verka sinna. gjam, leikandi og fjörlegur, einkum í þeim verkum, þar sem mynd og umgjörð renna saman í eitt. Nokk- ur tákn ganga í gegnum fjölda mynda, einkum mannsaugað; það stendur eitt sér í nokkmm myndum (t.d. „Móðuraugað nr. 17), eða er notað til að persónugera náttúra- vættir („Auglit orkídeunnar nr. 6, „Blómakonan nr. 20), sem eru óum- deilanlegur hluti tilvera okkar. Ymsar smámyndir á sýningunni era grípandi, t.d. „Mánaskin (nr. 3), en þó era það einkum tvær myndaseríur, sem augu gesta leita til, þar sem þeim er dreift um sýn- ingarrýmið. Hin fyrri er „Umhverf- is mitt tóma skaut (nr. 21), en þetta era þrjár myndir sem snúast í kringum auðan miðflötinn, og ná fram góðri myndbyggingu í jöðrun- um. Það er hins vegar galli að þessi verk era aðskilin í uppsetningu sýningarinnar, þannig að þau ná ekki að styrkja hvert annað eins vel og þau gætu. Svipað má segja um aðra mynda- seríu á sýningunni, sem byggir á gjömingi í bænaturni. Þarna er um að ræða nokkuð fjölbreyttar mynd- ir, ýmist unnar á hvítan pappír, NOTAÐU GRÆNMETI SEM HÆFIR TILEFNINU Við hjá KJ vitum að sama grænmetistegundin hæfir ekki öllum mat. Þess vegna hafa matreiðslumeistarar okkar lagað grænmetisblöndur sem henta mismunandi réttum: Þú átt valið. Niðursoðið grænmeti er hollt og ljúffengt meðlæti. AMERISK GRÆNMETISBLANDA ...með salatinu og svínakjötinu FRONSK GRÆNMETISBLANDA ......með nautasteikinni «—mbi ITOLSK GRÆNMETISBLANDA ....með pastaréttunum GULRÆTUR OG GRÆNAR BAUNIR ..........með lambakjötinu auk þess bjóðum við að sjálfsögðu upp á Grænar baunir, maískorn, rauðkál og rauðrófur © K.JONSSON&CO. Sími: 96-21466 Akureyri Orgelið í Selfoss- kirkju Tónlist Rágnar Björnsson Hamingjuóskir skulu færðar Sel- fyssingum og raunar okkur hinum líka með hvernig til hefur tekist með endumýjun orgelsins í kirkj- unni. Orgelið, eins og það var fýrir þessa umsmíð var að mörgu leyti gott og hljómfagurt, hafði að geyma margar góðar raddir, og hljómurinn í kirkjunni bauð vissulega upp á að stærra og meira orgel mætti njóta sín. Sú viðbót sem nú er á orðin harmonerar sannarlega við það sem fyrir var og maður fær á tilfinninguna að eftir þessu hafí kirkjan beðið, nú sé verkinu lokið. Ekki er ástæða að hér að telja upp þá viðbót og þær breytingar sem framkvæmdar vora, en gjarnan hefði mátt koma fram í efnisskrá hveijir unnu þessar breytingar, en hljómburður kirkjunnar tók mjög vel við „tutti“-hljóm orgelsins og svo virðist sem kirkjan og hljóðfær- ið þoli töluvert umfangsmikið efni- sval. Kirkjan og hljóðfærið virtust renna saman í eitt, þannig á það að vera. Hvemig spilaði Bach sjálf- ur sínar eigin tónsmíðar? Við þess- ari spurningu fáum við víst fá svör. Þó höfum við nokkra punkta frá samtímamönnum hans um t.d. hvemig hann sat við hljóðfærið, hvemig hann bar til hendumar o.fl. og þegar þessum punktum ber sam- an getur maður nokkuð áætlað um spilamáta hans. Við hraðan flutning Dorísku tokkötunnar er hætt við að tignarleikinn og virðu- hrynji utan af henni og eftir standi spila- borg sem lítil veður þolir. Miklar skreytingar á útfærslu þemasins era tónlistinni, í þessu tilfelli, tæp- lega þóknanlegar, sem elfur þung flýtur þessi tokkata frá byijun til ■ Á PÚLSTNUM verður Andrea Gylfadóttir ásamt Blúsmönnum sínum um helgina, föstudags- og laugardagskvöld. Blúsmenn Andreu skipa auk hennar Halldór Bragason, Guðmundur Pétursson, Richard Kom og Jóhann Hjörleifsson. Sam- kvæmt venju er von á góðum gestum upp á sviðið með • Blúsmönnum Andreu. Óhætt er að fullyrða að blús- kvöldin á Púlsinum svíki engan enda hin besta skemmtun og sem slík hafa þau unnið sér sérstakan sess í skemmtanalífi Reykvíkinga, segir í fréttatilkynningu frá Púlsinum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.