Morgunblaðið - 20.09.1991, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FOSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991
—:'1 : ■■íí‘u,:íT"1:"; . 1: n ■- 'mtv:.o n
il,
með litógrafíum, ljósmyndum, á
japanskan pappír eða arche-pappír,
þar sem danshreyfingar gjömings-
ins eru bundnar í skrautleg mynst-
ur myndanna, og umbreytingin
verður full dulúðar. Þetta er mjög
áhugaverð úrvinnsla á listrænum
gjömingi, þar sem málaður líkami
dansarans lék stærsta hlutverið
(myndbönd af öðmm gjörningum
listakonunnar em einnig til staðar
á sýningunni), en vegna þess hve
myndunum er dreift um sýningar-
rýmið vill samhengið rofna um of,
þannig að erfitt er að fá heildar-
mynd af því hvemig listakonan
hefur unnið úr þessu.
Hinn mikli fjöldi verka á sýning-
unni gerir það að verkum að öll
uppsetning hennar virkar mjög
þröng, og hvert verk fyrir sig hefur
lítið rými til að skapa sér sérstöð.u;
þetta bitnar einkum á þeim seríum,
sem hér em nefndar. Stíll listakon-
unnar er mjög fjölskrúðugur, og
því þarf hvert verk ákveðið oln-
bogaiými, til að gestir geti notið
þess til fullnustu.
Sýning Myriam Bat-Yosef í FÍM-
salnum við Garðastræti stendur til
þriðjudagsins 23. september.
Bjöm Steinar Sólbergsson
enda. Að spila „interesant" er ekki
alltaf fömnautur sannleikans. Bjöm
Steinar Sólbergsson er duglegur og
metnaðarfullur organleikari og er
það vel, en í þessa fyrrnefndu gryfju
fannst mér hann falla í Bach-túlkun
sinni. Sama var uppi í sálmforleik-
unum „Wachet-auf“, „Ach bleib bei
uns“ og „Kommst du nun“. Þeir
vom yfírleitt of hraðir og örlítið
órólegir. Miklu betur á leikur Björns
heima í frönsku verkunum sem á
eftir komu. Upp úr stóð þar flutn-
ingur Bjöms á tveimur þáttum úr
Uppstigningunni eftir Messiaen og
þó sérstaklega síðari þátturinn (nr.
3) sem Björn spilaði með glæsibrag.
Varast skal þó of bratta notkun á
„svellinum“. Tónleikunum lauk með
tveimur fantasíuþáttum eftir L.
Vieme, Andantino og Carillion de
Westminster, einkennandi fýrir
franskan fléttustíl. Eftir prentaða
efnisskrá var tónleikagestum boðið
að koma upp á orgellóftið og horfa
á hvemig orgelleikur fer fram og
lék Björn þá d-moll tokkötu Bachs,
sem hefði þurft að vera betur æfð.
Vænst er mikils af Birni sem orgel-
leikara og því þarf gagnrýnin að
vera hörð frá báðum hliðum. Endur-
teknar eru hamingjuóskir með org-
elið.
Hvað er
AranaSlex
Það er heimsviðurkennd
pípueinangrun í hólkum,
plötum og límrúllum frá
Þ. ÞORGRÍMSSON &C0
Ármúla 29 - Múlatorgi - Sími 38640
*
Ferðafélag Islands:
Lokaáfangi göngu-
ferðar um gosbeltið
TÓI,FTI og síðasti áfangi raðgöngu Ferðafélagsins um gosbeltið suð-
vestanlands frá Reykjanestá að Skjaldbreið verður farin laugardaginn
21. september. Gangan hófst í vor við Reykjanestá 14. aprfl í vor og
hefur siðan verið farið nokkuð reglulega á hálfsmánaðarfresti.
Á laugardaginn verður lagt upp
kl. 9 frá Umferðarmiðstöðinni, aust-
anmegin og verður ekið um Þing-
velli inn á Kaldadalsveg. Ætlunin er
að ganga frá Víðikeri á fjallið Skjald-
breið og þaðan norður á Línuveginn.
Þetta er ganga fyrir vant göngu-
fólk, en einnig verður í boði auðveld-
ari ganga á Skjaldbreið af Línuvegin-
um og í þriðja lagi ferð án göngu.
Að loknum göngunum verðu ekið að
skála Ferðafélagsins á Hlöðuvöllum
þar sem lokaáfanga gosbeltis-
göngunnar verður fagnað. í boði
verða kaffiveitingar í þjóðlegum stíl.
Til að auðvelda undirbúning ferð-
arinnar eru þátttakendur beðnir um
að skrá sig á skrifstofunni, Öldugötu
3. Sunnudaginn 22. sept. verður dag-
ur fjallsins hjá Ferðafélaginu; kl. 9
er ganga á Stóra-Bjömsfell og kl.
13 er ganga á Þverfellshom Esjunn-
ar.
(Fréttatilkynning)
ESAB
RAFSUÐUVÉLAR
vír og fylgihlutir
= HEÐINN =
VÉLAVERSLUN SÍMI 624260
SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER
9rtr.raBssxsat
*
3
<
VATRYGGING
SEM BRÚAR
BILIÐ
Par sem velferðarkerfinu sleppir taka Sjóvá-Almennar við
og tryggja fjárhagstöðu þína ef starfsorkan skerðist
af völdum slyss eða veikinda.
Kynntu þér málið.
V/
SJOVAljoALMENNAR
KRINGLUNNI 5 • SÍMI 692500
& \