Morgunblaðið - 20.09.1991, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991
Skólaskógar:
Það er mikilvægt að
prýða landið trjám
- segja Elín Rut og Árdís úr Melaskóla
Morgu nblaðið/Bjarni
Björn Júlíusson gefur krökkunum góð ráð.
Gróðursetning Skólaskóga
við Rauðavatn fer nú fram
fjórða árið í röð. Þegar hafa
4000 reykviskir grunnskóla-
nemar plantað áttaþúsund
birkiplöntum í skógunum. Yfir-
umsjón með gróðursetningunni
hefur Skógræktarfélag Reykja-
víkur.
Björn Júlíusson, hjá Skógrækt-
arfélagi Reykjavíkur, tók á móti
tveimur tíu ára bekkjum úr Mela-
skóla í Skólaskógunum í gær-
morgun. Hann byrjaði á því að
bjóða krakkana velkomna og út-
skýrði fyrir þeim hvemig best
væri að haga gróðursetningunni.
Fyrsta þumalputtaregla væri að
mæla eina plöntustafslengd á milli
plantnanna sem gróðursettar
væru eftir línum. Önnur reglan
væri að gera þijár holur í þumal-
fingursfjarlægð frá plöntunni.
Þær ætti síðan að fylla af skít sem
Bjöm sagði að væri „Cheerios"
plantnanna. Höndla ætti skítinn
eins og næringu, helst án vettl-
inga. Lagði hann ríka áherslu á
að ýta þyrfti plöntunum vel niður
í holuna og þjappa vel í kring.
Auðvelt og skemmtilegt að
gróðursetja
Eftir þessar leiðbeingar hófust
börnin handa, tvö og tvö saman
með 6 plöntur, plöntustaf og hálfa
fötu af skít. Elín Rut Kristinsdótt-
ir og Árdís Pétursdóttir sögðust
báðar miklu frekar vilja vinna við
gróðurset.ningu en vera í skólan-
um. Gróðursetningin væri auðveld
og skemmtileg því ekki væri mik-
ið um steina í jarðveginum. Þær
vom sammála um að mikilvægt
væri að prýða landið trjám og
Elín sagðist hafa heyrt að áður
fýrr hefði verið mikið af ttjám á
íslandi. „Svofórfólk
að byggja hús og
eyddi öllum skógin-
um. Við þurfum að
planta skógi og
passa að hann eyðist
ekki,“ sagði Elín.
Árdís sagði að í
garðinum heima hjá
henni væri mikið af
reyni
tijám. „Við búum í
sama húsi og amma.
Hún ræktar mikið
af reynitrjám. Þau
eru mjög falleg ög á
haustin finnst mér
gaman að tína sam-
an laufin sem falla
af tijánum og líma
þau á pappa.“ Stelp-
urnar sögðust stað-
ráðnar í að gróður-
setja fleiri tré
framtíðinni. Til
dæmis þar sem þær
ættu eftir að búa því
gaman væri að hafa
tré í umhverfi sínu.
Beint framhald af
líffræðikennslu
Jóna Sveinsdóttir, kennari í
Melaskóla, sagði að gróðursetn-
ingin væri í raun beint framhald
af líffræðikennslu sem krakkarnir
hefðu fengið. Fyrst hefði verið
farið í vettvangsferðir út í náttúr-
una þar sem meðal annars hefðu
fundist brúnklukkur en seinna
hefði verið fjallað um reyni, birki,
víði og ösp. „Ég teiknaði fyrir
krakkana útlínur af þessum tijám.
Þau tíndu svo lauf og límdu á
greinamar en. lituðu stofninn,"
sagði Jóna. Hún sagði að krakk-
amir hefðu tekið verkefnið mjög
alvarlega og verið passasöm með
að líma ekki lauf af einni tijáteg-
undi á aðra.
Bjöm Júlíusson sagði að upp-
haflega hefði gróðursetning í
Skólaskógum farið fram á vorin
en núorðið væri farið að skipta
hópnum í tvennt, annar kæmi að
vori en hinn að hausti. Hann sagði
að öllum 10 ára bekkjum í grunn-
skólum Reykjavíkur væri boðið að
taka þátt í gróðursetningunni og
hefðu flestir skólar þegið boðið.
Yfírleitt skemmtu krakkamir sér
vel og gott væri að ná til þeirra.
Þetta færi þó töluvert eftir veðri.
Árdís Pétursdóttir og Elín Rut Kristinsdóttir.
Unnið af kappi.
T
■
----——|
.
■M'
5* »,
wjm, *
1 m 1
mkwsmm •
(8S
wmm-:.
90^’ ‘
h
Leikmynd ogbúningar: Sigurjón Jóhannsson
Tónlist: Jóhann G. Jóhannsson
Lýsing: Ingvar Björnsson _
Leikstjóri: Halldór E. Laxness
Leikarar: Bára Lyngdal Magnúsdóttir, Björn Ingi Hilmarsson,
Eggert Þorleifsson, Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Ellert A. Ingimundarson,
Gunnar Helgason, Halldór Björnsson, Harald G. Iiaralds, Helga Þ. Stephensen,
Jón Hjartarson, Karl Guðmundsson, Karl Kristjánsson, Kjartan Bjargmundsson,
Kormákur Geirharðsson, Ólafur Öm Thoroddsen, Ragnheiður Elfa Arnardóttir,
Þorsteinn Gunnarsson, Þröstur Guðbjartsson og Valgerður Dan.
Frumsýning föstud. 20. september. Uppselt.
2. sýning laugard. 21. september. Grá kort gilda.
3. sýning fimmtud. 26. september. Rauð kort gilda.
4. sýning laugard. 28. september. Blá kort gilda.
Miðasalan er opin alla virka daga frá kl. 14-20 nema mánudaga
frá kl. 13-17. Miðapantanir í síma alla virka daga frá kl. 10-12.
Sími 680680.
fnaveislan
eftir Halldór Laxness
<*j<»
rbv^ÍrWMI Borgarleikhús
Ráðherra
keypti 11
málverk fyr-
ir sýslumann
FYRRUM dómsmálaráðherra,
Óli Þ. Guðbjartsson, keypti er
hann var við embætti 11 málverk
eftir Grétar Hjaltason listmálara
á Selfossi fyrir 180 þúsund krón-
ur til að skreyta húsakynni sýslu-
mannsembættisins á Selfossi án
samráðs við sýslumann. Myndirn-
ar bárust embættinu fyrir
skömmu.
Að sögn Þorleifs Pálssonar skrif-
stofustjóra í dómsmálaráðuneytinu
voru kaupin gerð á kostnað sýslu-
mannsembættisins og drógust út-
gjöldin frá um 6 milljóna fjárveit-
ingu til embættisins vegna kaupa á
tækjum og búnaði.
Myndimar voru um skeið geymd-
ar í Reykjavík en voru nýlega
sendar til sýslumannsins á Selfossi.
Ekki náðist í Andrés Valdimarsson
sýslumann í gær en Ingvi Eben-
hardsson, skrifstofustjóri embættis-
ins, kvaðst telja að kaupin hefðu
verið gerð án samráðs við sýslu-
mann og að ekki væri vitað hvað
gert yrði við myndirnar.
Þú svalar lestrarþörf dagsins
á síðum Moggans!