Morgunblaðið - 20.09.1991, Page 18

Morgunblaðið - 20.09.1991, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991 Skólaskógar: Það er mikilvægt að prýða landið trjám - segja Elín Rut og Árdís úr Melaskóla Morgu nblaðið/Bjarni Björn Júlíusson gefur krökkunum góð ráð. Gróðursetning Skólaskóga við Rauðavatn fer nú fram fjórða árið í röð. Þegar hafa 4000 reykviskir grunnskóla- nemar plantað áttaþúsund birkiplöntum í skógunum. Yfir- umsjón með gróðursetningunni hefur Skógræktarfélag Reykja- víkur. Björn Júlíusson, hjá Skógrækt- arfélagi Reykjavíkur, tók á móti tveimur tíu ára bekkjum úr Mela- skóla í Skólaskógunum í gær- morgun. Hann byrjaði á því að bjóða krakkana velkomna og út- skýrði fyrir þeim hvemig best væri að haga gróðursetningunni. Fyrsta þumalputtaregla væri að mæla eina plöntustafslengd á milli plantnanna sem gróðursettar væru eftir línum. Önnur reglan væri að gera þijár holur í þumal- fingursfjarlægð frá plöntunni. Þær ætti síðan að fylla af skít sem Bjöm sagði að væri „Cheerios" plantnanna. Höndla ætti skítinn eins og næringu, helst án vettl- inga. Lagði hann ríka áherslu á að ýta þyrfti plöntunum vel niður í holuna og þjappa vel í kring. Auðvelt og skemmtilegt að gróðursetja Eftir þessar leiðbeingar hófust börnin handa, tvö og tvö saman með 6 plöntur, plöntustaf og hálfa fötu af skít. Elín Rut Kristinsdótt- ir og Árdís Pétursdóttir sögðust báðar miklu frekar vilja vinna við gróðurset.ningu en vera í skólan- um. Gróðursetningin væri auðveld og skemmtileg því ekki væri mik- ið um steina í jarðveginum. Þær vom sammála um að mikilvægt væri að prýða landið trjám og Elín sagðist hafa heyrt að áður fýrr hefði verið mikið af ttjám á íslandi. „Svofórfólk að byggja hús og eyddi öllum skógin- um. Við þurfum að planta skógi og passa að hann eyðist ekki,“ sagði Elín. Árdís sagði að í garðinum heima hjá henni væri mikið af reyni tijám. „Við búum í sama húsi og amma. Hún ræktar mikið af reynitrjám. Þau eru mjög falleg ög á haustin finnst mér gaman að tína sam- an laufin sem falla af tijánum og líma þau á pappa.“ Stelp- urnar sögðust stað- ráðnar í að gróður- setja fleiri tré framtíðinni. Til dæmis þar sem þær ættu eftir að búa því gaman væri að hafa tré í umhverfi sínu. Beint framhald af líffræðikennslu Jóna Sveinsdóttir, kennari í Melaskóla, sagði að gróðursetn- ingin væri í raun beint framhald af líffræðikennslu sem krakkarnir hefðu fengið. Fyrst hefði verið farið í vettvangsferðir út í náttúr- una þar sem meðal annars hefðu fundist brúnklukkur en seinna hefði verið fjallað um reyni, birki, víði og ösp. „Ég teiknaði fyrir krakkana útlínur af þessum tijám. Þau tíndu svo lauf og límdu á greinamar en. lituðu stofninn," sagði Jóna. Hún sagði að krakk- amir hefðu tekið verkefnið mjög alvarlega og verið passasöm með að líma ekki lauf af einni tijáteg- undi á aðra. Bjöm Júlíusson sagði að upp- haflega hefði gróðursetning í Skólaskógum farið fram á vorin en núorðið væri farið að skipta hópnum í tvennt, annar kæmi að vori en hinn að hausti. Hann sagði að öllum 10 ára bekkjum í grunn- skólum Reykjavíkur væri boðið að taka þátt í gróðursetningunni og hefðu flestir skólar þegið boðið. Yfírleitt skemmtu krakkamir sér vel og gott væri að ná til þeirra. Þetta færi þó töluvert eftir veðri. Árdís Pétursdóttir og Elín Rut Kristinsdóttir. Unnið af kappi. T ■ ----——| . ■M' 5* », wjm, * 1 m 1 mkwsmm • (8S wmm-:. 90^’ ‘ h Leikmynd ogbúningar: Sigurjón Jóhannsson Tónlist: Jóhann G. Jóhannsson Lýsing: Ingvar Björnsson _ Leikstjóri: Halldór E. Laxness Leikarar: Bára Lyngdal Magnúsdóttir, Björn Ingi Hilmarsson, Eggert Þorleifsson, Elín Jóna Þorsteinsdóttir, Ellert A. Ingimundarson, Gunnar Helgason, Halldór Björnsson, Harald G. Iiaralds, Helga Þ. Stephensen, Jón Hjartarson, Karl Guðmundsson, Karl Kristjánsson, Kjartan Bjargmundsson, Kormákur Geirharðsson, Ólafur Öm Thoroddsen, Ragnheiður Elfa Arnardóttir, Þorsteinn Gunnarsson, Þröstur Guðbjartsson og Valgerður Dan. Frumsýning föstud. 20. september. Uppselt. 2. sýning laugard. 21. september. Grá kort gilda. 3. sýning fimmtud. 26. september. Rauð kort gilda. 4. sýning laugard. 28. september. Blá kort gilda. Miðasalan er opin alla virka daga frá kl. 14-20 nema mánudaga frá kl. 13-17. Miðapantanir í síma alla virka daga frá kl. 10-12. Sími 680680. fnaveislan eftir Halldór Laxness <*j<» rbv^ÍrWMI Borgarleikhús Ráðherra keypti 11 málverk fyr- ir sýslumann FYRRUM dómsmálaráðherra, Óli Þ. Guðbjartsson, keypti er hann var við embætti 11 málverk eftir Grétar Hjaltason listmálara á Selfossi fyrir 180 þúsund krón- ur til að skreyta húsakynni sýslu- mannsembættisins á Selfossi án samráðs við sýslumann. Myndirn- ar bárust embættinu fyrir skömmu. Að sögn Þorleifs Pálssonar skrif- stofustjóra í dómsmálaráðuneytinu voru kaupin gerð á kostnað sýslu- mannsembættisins og drógust út- gjöldin frá um 6 milljóna fjárveit- ingu til embættisins vegna kaupa á tækjum og búnaði. Myndimar voru um skeið geymd- ar í Reykjavík en voru nýlega sendar til sýslumannsins á Selfossi. Ekki náðist í Andrés Valdimarsson sýslumann í gær en Ingvi Eben- hardsson, skrifstofustjóri embættis- ins, kvaðst telja að kaupin hefðu verið gerð án samráðs við sýslu- mann og að ekki væri vitað hvað gert yrði við myndirnar. Þú svalar lestrarþörf dagsins á síðum Moggans!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.