Morgunblaðið - 20.09.1991, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991
19
Eftirlitsmaður kærður fyrir
ólöglegar hreindýraveiðar
Eftirlitsmaður með hreindýra-
veiðum á Reyðarfirði hefur verið
kærður til lögreglu fyrir að
skjóta sex hreindýr utan um-
dæmis síns skömmu fyrir myrkur
síðastliðinn laugardag, sem var
síðasti dagur veiðitímabilsins.
Maðurinn hafði ásmt tveimur
öðrum elt hjörð úr eigin umdæmi
yfir í umdæmi eftirlitsmannsins
á Eskifirði en sá lagði fram kær-
una, þar sem hann hafði ekki
veitt leyfi fyrir því að dýrin yrðu
felld.
Hins vegar mun forseti bæjar-
stjórnar á Eskifirði hafa veitt vil-
yrði fyrir sitt leyti fyrir því að dýr-
in yrðu skotin, en samkvæmt upp-
lýsingum lögreglunnar á Eskifirði,
hafði Reyðfirðingurinn árangurs-
laust reynt að ná tali af hreindýra-
eftirlitsmanni umdæmisins.
Lögum samkvæmt er það sam-
eiginlegt verkefni sveitarstjóma og
hreindýraeftirlitsmanna, sem eru
starfsmenn veiðistjóra, sem heyrir
undir umhverfisráðuneyti, að hafa
umsjón með og veita leyfi til hrein-
dýraveiða.
Maðurinn sem kærður hefur ver-
ið, var við veiðar skömmu fyrir
myrkur á síðasta degi veiðitímabils-
ins er hann kom auga á hjörðina í
eigin umdæmi. Hins vegar mun
hann ekki hafa náð færi á dýrunum
áður en þau komust inn í Öskju-
botna, sem eru í umdæmi eftirlits-
mannsins á Eskifirði. Þar voru þau
felld eftir samráð við forseta bæjar-
stjórnarinnar.
Er eftirlitsmaðurinn á Eskifirði,
varð áskynja um veiðarnar kærði
hann veiðarnar til lögreglu, sem er
í þann veg að ljúka rannsókn sinni
en að því loknu verður málið sent
ríkissaksóknara.
Rúna Gísla-
dóttir sýn-
ir í Lindinni
UM ÞESSAR mundir stendur
yfir sýning á myndverkum Rúnu
Gísladóttur í veitingasal Hótels
Lindar, Lindinni. Rúna sýnir
collage, akrýl og olíumálverk
og mun sýningin standa yfir
næstu vikur.
Rúna Gísladóttir ‘er fædd í Kaup-
mannahöfn 3. sept. 1940. Hún
stundaði nám við Kvennaskólann
í Reykjavík -1953-57 og Kennara-
skóla Islands 1959-62. Málunar-
og vefnaðarnám í Noregi 1974-76,
námskeið við Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands 1976-77 og nám
í málaradeild MHÍ 1978-82. Hún
hefur stundað kennslu við grunn-
skóla 1962-73 og sérkennslu
1977-78, myndlistarkennslu frá
1983, m.a. við Tómstundaskólann,
og myndlistarkennslu á eigin
vinnustofu á Selbraut 11, Seltjarn-
arnesi, frá 1985.
leita opinna tilboða að ljúka ætti
verkinu fyrir áramót.
„Um er að ræða einagrun, pípu-
lögn og múrverk á öllu húsinu —
innréttingar og lokafrágangur á
efstu hæð með bráðabirgðalokun á
milli hæða og fullnaðarfrágangi á
vegg að bókasafni á 2. hæð.
Verkáfanginn var ekki boðinn
út, skv. ákvörðun nefndarinnar, en
núverandi verktaka boðið að gera
tilboð í verkið eftir verklýsingu frá
arkitekt og Tækniþjónustunni á
Húsavík.
Tilboð Fjalars hf. hljóðaði upp á
kr. 16.158.128,-. Kostnaðaráætlun
hljóðaði upp á kr. 17.749.591,-.
Tilboðið nam 91% af kostnaðaráætl-
un.
Nefndin samþykkti að ganga að
tilboði Fjalars hf. Við verksamning
leggur verktaki fram tryggingu,
17 ARA piltur hefur verið úr-
skurðaður í gærluvarðhadls til
30. þessa mánaðar, grunaður um
að flytja hassefni til landsins í
iðrum sínum.
Pilturinn var ásamt 25 ára göml-
um manni hantekinn á Keflavíkur-
flugvelli við komu til landsins frá
Amsterdam. Við röntgenskoðun,
sem mönnunum var gert að undir-
gangast, kom í ljós að þeir höfðu
báðir gleypt smokka með fíkniefn-
um.
Fljótlega skilaði efnið, hass og
maríúana, sér úr líkama eldri
mannsins og hefur hann verið látinn
laus en sá yngri, er enn í haldi á
grundvelli gæsluvarðhaldsúrskurð-
ar. Báðir mennirnir hafa áður kom-
ið við sögu fíkniefnamála.
Gleyptu hass
og reyndu að
smygla því
Geisladiskur með söng
Sigurlaugar Rósinkrans
gefinn út í Hollywood
SIGURLAUG Rósinkrans óper-
usöngkona hefur nú um árabil
búið í Los Angeles, nánar tiltek-
ið í Beverly Hills í kvikmynda-
borginni Hollywood. Þar hefur
hún haldið áfram söngferli sín-
um og nefnir sig Sally Rosinkr-
anz, því íslenska nafnið Sigur-
laug er óþjált í framburði fyrir
flesta útlendinga. Nú er út kom-
inn geisladiskur og hljóðsnælda
með söng Sigurlaugar á vegum
United Stars Productions í Be-
verly Hills og ber yfirskriftina:
Sally Rosinkranz - My Song to
Your Heart.
A geisladiskinum eru 9 íslensk
einsöngslög og þar að auki syngur
hún La Regata Veneziana eftir
Rossini og Seligkeit eftir Schu-
bert. Islensku einsöngslögin eru
Gígjan, Draumlandið, Sofnar lóa,
Augun blá og Vögguljóð, öll eftir
Sigfús Einarsson, Þú eina hjart-
ans yndið mitt eftir Sigvalda
Kaldalóns, Lifnað hefur lítil rós,
eftir Atla Heimi Sveinsson, í fjar-
lægð, eftir Karl 0. Runólfsson og
Fuglinn í fjörunni eftir Jón Þórar-
insson. Upptökurnar fóru raunar
fram hjá Ríkisútvarpinu hér á ís-
landi og undirleikari er Ólafur
Vignir Albertsson.
I stuttu símaviðtali við Sigur-
laugu sagði hún að geisladiskur-
inn væri bráðlega væntanlegur á
markað á íslandi. Hún sagði að
íslensku einsöngslögunum hefði
verið mjög vel tekið vestra og
stærsta útvarpsstöð Kaliforníu,
sem nær til tugmilljóna manna,
hefur útvarpað öllu sem á honum
er ásamt upplýsingum um söng-
Sigurlaug Rósinkrans
konuna. Ákveðið er að stór út-
varpsstöð í Chicago útvarpi af
honum einnig svo og útvarpsstöð
í Kanada, sem Siguriaug kvaðst
vona, að gleddi Vestur-íslendinga
sérstaklega. Hún sagði að hingað
til hefði verið álitið að íslensk ein-
söngslög ættu ekki greiðan að-
gang að útlendingum því sum
þeirra væru dálítið dapurleg, en
þessi reynsla sýndi allt annað.
Framundan er útgáfa á öðrum
geisladisk með söng Sigurlaugar.
Á honum verða einsöngslög eftir
Hallgn'm Helgason tónskáld, sem
hefur óskað eftir samvinnu við
söngkonuna, og væntanlega lög
eftir sænska tónskáldið Vikland-
er. Hann samdi lögin sérstaklega
fyrir þennan flutning Sigurlaugar.
Rúna Gísladóttir við eitt verka sinna.
Húsavík:
Fjalar hf. bygg-
ir grunnskólann
Húsavík.
VERKTAKAR á Húsavík hafa
lýst óánægju sinni yfir afgreiðslu
annars áfanga bygginganefndar
Grunnskóla Húsavíkur. Nefndin
afgreiddi málið með eftir-
greindri fundarsamþykkt þar
spm hún tnldi pkki tíma til að
10% af upphæð. Verklok eru 20.
desember 1991.“
Bæjarstjórn samþykkti síðan
þessa afgreiðslu á fundi sl. þriðju-
dag.
- Fréttaritari
SKÓLfl
í KÍLÓPAKKNINGUM
MEÐ15% AF5LÆTTI
0(5 PU 5PAPAR
VAR: 757.- KR./KG
VERÐUR: 667.- KR./KG