Morgunblaðið - 20.09.1991, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991
41
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691282 KL. 10-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
pessir hringdu ...
Tómas týndi úlpu
Fjólublá og græn Skiss-bama-
úlpa tapaðist í sumar. Helst er
talið að hún hafi gleymst á íþrótt-
aleikvangi. Úlpan er merkt Tóm-
asi, ásamt símanúmeri. Ef einhver
hefur fundið úlpuna er hann beð-
inn um að hringja og vitja fundar-
launa.
Elvar týndi úlpu
Þriðjudaginn 17. september
tapaði Elvar sem er 5 ára úlpunni
sinni við hjólabrettapallinn við
Breiðholtssundlaugina. Úlpan er
tvílit, dökkgræn og ljósgræn með
mynd af hundinum „Snoopy“ sem
er þekktur úr teiknimyndaröðinni
„Smáfólk". Sá sem hefur fundið
úlpuna er beðinn um að hringja
í síma 78368 eftir kl. 2 eða skila
úlpunni að Vesturbergi 100, 2.
hæð tii hægri.
Sjónvarpstexti
Hanna hringdi: Ég vil gjaman
þakka sjónvarpinu fyrir góða
þætti en það er eitt sem mig lang-
ar til að gera athugasemd við.
Ég er nýlega komin frá Danmörku
og horfði þar mikið á sjónvarp. í
danska sjónvarpinu fær textinn
að vera miklu lengur á skjánum
heldur en hér heima.
Kettlingar gefins
Pjórir kettlingar, kassavanir,
fást gefíns. Upplýsingar í síma
50061.
Úlpa og skór
Anna Björg, 6 ára, hefur týnt
úlpunni sinni, sem er dökkgræn
með brúnum bryddingum á öxl-
um. Innan á úlpunni er ritað
„Tony-boy“. Anna Björg hefur
líka týnt öðmm skónum sínum,
sá er bieikur af tegundinni „01-
illy“. Skótapið hefur væntanlega
hent við Háteigsveg. Þeir sem
kynnu að hafa fundið þessar flík-
ur eru beðnir um að hringja í síma
629078.
Myglaðar kartöflur
Húsmóðir hringdi og var nóg
boðið. Hún hefur nú í haust, ítrek-
að orðið fyrir því að kaupa kartöfl-
ur sem komu myglaðar úr plast-
pokanum. Húsmóðirin taldi
ástæður þessa vera, að kartöfl-
umar væru þvegnar en síðan
pakkað blautum í plastpokana.
Þar eftir tækju kaupmennirnir við
varningnum og stöfluðu honum
upp í heitum verslunum, þar sem
hann myglaði á augabragði.
Svona meðferð á matvælum væri
ekki boðleg.
Svefnlyf
Júlíus hringdi: Ragnar Hall-
dórsson skrifar grein í Morgun-
blaðið miðvikudaginn 18. sept-
ember um gagnsemi svefntaflna.
Ég bið Ragnar um að upplýsa
hvaða svefnlyf þau hjónin nota.
Það eru svo margar tegundir til.
Ráðstjórn í sjávarútvegi
Einar Vilhjálmsson hringdi:
Víkveijinn í Morgunblaðinu skrif-
ar 18. september um sjónvarps-
þátt sem sýndi ömurlega vesöld
rússneskra bænda vegna ofsókna
Stalíns gegn sjálfseignarbændum.
Ég fæ ekki betur séð en að sjávar-
útvegsráðherrar undanfarinna
ára, Steingrímur Hermannsson,
Halldór Ásgrímsson og Þorsteinn
Pálsson, séu á sama hátt að út-
rýma smáútgerðarmönnum í sjáv-
arþorpum vítt og breitt um landið
þótt þeir beiti öðrum vinnubrögð-
um heldur en Stalín gerði á sínum
tíma. Vinnubrögð þeirra hafa leitt
til svipaðrar útkomu í íslenskum
sjávarútvegi og gerist í rússnesk-
um landbúnaði.
Honda
Accord
Sedan
2,0 EX
'91
Verðfrá 1.474 þúsund.
GREIDSLUSKILMÁLAR
FYRIR ALLA
(H
VATNAGÖRÐUM 24 RVÍK., SÍMI 689900
philips Whirlpool
FRYSTIKISTUR
Góð tski. Gott verð
• AFG015
138 lítra. h:88 b:60 d:66 cm
kr.stgr. 29.830.-
• AFG 033
327 lítra. h:88 b:112d:66cm
kr.stgr. 42.655.-
• AFG 041
408 lítra. h:88 b:135 d:66 cm
kr.stgr. 45.505.-
Heimilistæki hf
SÆTÚNIBSlMI691515»KRINGLUNNISlMI 691520
^LscmouiufiUH
Húsnæðis-
leysi ungl-
inga í dag
Ég hef orðið vitni að því að sjö
16-18 ára vegalausir unglingar
lágu á flatsæng hjá velviljuðum
manni því þeir höfðu ekki í önnur
hús að venda. Þessi miskunnsami
Samveiji sem sá aumur á þeim
var sjálfur öi-yrki og hafði ekki
annað en 12 fermetra herbergi til
umráða. Nú hefur hann reyndar
misst það og verður sjálfur að biðja
kunningja og vini að skjóta yfír
sig skjólshúsi yfír nóttina.
Nánast ógjörlegt er að leita
hjálpar Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar. Panta verður
viðtal á símatíma milli kl. 9 og 10
á morgnana frá mánudegi til
fimmtudags. Sá tími annar engan
veginn þörfínni því alltaf er á tali.
Er Félagsmálastofnun með þau
vinnubrögð sem nánast útiloka að
hægt sé að ná sambandi við félags-
ráðgjafa. Eru þessar reglur settar
til að útiloka að fólk fái fyrir-
greiðslu?
Sinnuleysi stjómvalda er glæp-
ur gegn sálarlífí þessara unglinga.
Ef ekki verður einhver bragarbót
gerð á málefnum hinna vegalausu
verður að beita aðferðum hústöku-
manna eins og gert hefur verið
erlendis.
Jóhann V. Gunnarsson
BRÉFA-
BINDIN
frá Múlalundi...
... þar eru gögnin á góðum stað.
Múlalundur
SÍMI: 62 84 50
Royal
-fjölbreyttur
skyndibúðingur
Fimm bragðtegundir:
Súkkulaði, jarðarberja,
karamellu, vanillu
og sítrónu.
OSKAST SOTTAR I DAG
rr
-Já, hann er kominn Lundby homsófinn sem slær allt út í verði
og þægindum. Hringið strax í dag og staðfestið pantanir.
Komdu í stserstu Húsgagnaverslun landsins og sjáðu það
nýjasta nýja í húsgagnaheiminum í dag.
GÓÐ GREIÐSL UKJÖR
VISA
EURO
'TOSíliiúll!
BÍLDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK - SÍMI 91-681199 - FAX 91-673511