Morgunblaðið - 20.09.1991, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 20. SEPTEMBER 1991
KNATTSPYRNA / EVRÓPUKEPPNI FÉLAGSLIÐA
EKingaleikur
KR-INGAR náðu sér aldrei á
strik gegn Tórínó ífyrri leik lið-
anna í Evrópukeppni félagslið
á Laugardalsvelli ígær. ítalska
liðið þrufti ekki mikið að hafa
fyrir 2:0 sigri og virtist gera
aðeins það sem þurfti til að
vinna, ekkert umfram það.
' Knattspyrnan var ekki í sam-
ræmi við veðrið sem var eins
og best gerist á þessum
árstíma. Möguleikar KRá að
komast í 2. umferð eru þar með
úr sögunni.
Leikurinn fór rólega af stað og
þreifuðu liðin fyrir sér fyrsta
stundarfjórðunginn. Lítið var um
marktækifæri eða allt þar til Mussi
kom Tórínó yfir eftir
ValurB. afdrifarík varnar-
Jónatansson mistök KR-inga.
skrifar Þetta var reyndar
eina færi ítalska
liðsins í fyrri hálfleik.
^ Dauðafæri
Heimir Guðjónsson fékk sann-
kallað dauðafæri stuttu eftir mark-
ið. Hann fékk góða sendingu frá
Þorsteini Halldórssyni inn fyrir
ítölsku vörnina, en máttlaust skot
hans fór rétt framhjá markinu.
Ragnar Margeirsson var nálægt því
að stýra boltanum í netið eftir
skalla frá Atla inní vítateiginn
mínútu áður. Atli átti síðan lúmskt
skot eftir aukaspyrnu Rúnars Krist-
inssonar, en boltinn fór rétt fram-
hjá.
Síðari hálfleikur var dapur og
nánast ekkert að gerast langtímum
saman. Síðara mark Tórínó kom
því eins og þruma úr heiðskíru lofti
um miðjan hálfleikinn. Eftir markið
tóku Tónínómenn Iífinu með enn
meiri ró en áður og greinilega sátt-
ir við þessi tvö mörk. KR-ingar
reyndu að komast inní sendingar,
en uppskáru ekki árangur erfiðis
síns. Eina skot KR-inga á mark
Tórínó í síðari hálfleik átti Rúnar
Kristinsson af 30 metra færi, sem
Luca markvörður bjargaði vel.
KR í hlutverki músarinnar
Það verður að segjast eins og er
—*ð KR-ingar voru í hlutverki músar-
innar í þessum leik og máttu sín
lítils gegn þessum þrautþjálfuðu
atvinnumönnum og kannski ekki
við öðru að búast. KR-ingar geta
tanMMMmi
Morgunblaðið/Einar Falur
Ragnar Margeirsson reynir hér að stýra knettinum í mark Tórínó eftir
kollspyrnu Atla Eðvaldssonar, en boltinn fór framhjá.
verið þokkalega sáttir við fyrri hálf-
leikinn. Þeir börðust vel og náðu
að skapa sér færi, en í síðari hálf-
leik var eins og allt púður væri úr
liðinu og það játaði sig sigrað.
Ragnar Margeirsson og Þor-
steinn Halldórsson voru bestu leik-
menn Iiðsins og_ eins komst hinn
ungi Sigurður Omarsson vel frá
leiknum. Atli var einnig traustur,
en hefði sjálfsagt mátt leika fram-
ar. Ekki reyndi mikið á Ólaf í mark-
inu fyrir utan mörkin sem hann
átti aldrei möguleika á að verjast.
Sigurður Björgvinsson og Gunnar
Skúlason sluppu þokkalega frá
sínu. Rúnar Kristinsson sýndi ekki
sitt besta og greinilegt að hann er
ekki enn búinn að ná sér fullkom-
lega eftir meiðslin. Heimir Guðjóns-
son, Björn Rafnsson og Gunnar
Oddsson voru slakir.
■ 4| Roberto Mussi
■ I skoraði eftir að hann
fékk sendingu inníýrir vörn KR
og skoraði örugglega í hornið
fjær á 19. mín. Gunnar Oddsson
átti alla möguleika á að komast
fyrir sendinguna en hitti ekki
boltann.
0:2,
Tóríno fékk hom-
ispyrnu og kom send-
ing út fyrir vítateiginn og þar
var Enrico Annoni sem skoraði
með þrumuskoti af 20 metra
færi með viðstöðulausu skoti.
Leiðinlegasti leikur
sem ég hef spilað
>- segir Ólafur Gottskálksson markvörður KR-inga
etta er einn leiðinlegasti leikur
sem ég hef spilað. Það var ekk-
ert að gera í markinu en samt gera
þeir tvö mörk,“ sagði Ólafur Gott-
skálksson markvörður KR.
„Fyrra markið kom eftir óþarfa
mistök í vörninni og í síðara markinu
gleymdum við að dekka fyrir utan
teiginn. Skotið var ágætt en ég hefði
varið það ef boltinn hefði ekki lent
í manni og breytt um stefnu. Staðan
í leikhléi hefði allt eins getað verið
1:0 fyrir okkur eins og þá og trúlega
- Jiefði jafntefli verið sanngjörnustu
ursltitin," sagði Ólafur.
Sáttur við fyrri hálfleikinn
„Ég er ágætlega sáttur við fyrri
hálfleikinn en í þeim síðari sýndu
ítalirnir styrk sinn og héldu boltan-
um vel þannig að við vorum bara
að elta þá. Við misstum síðan þolin-
-ínæðina og einbeitinguria eitt augna-
blik þegar þeir fengu horn og
gleymdum að dekka fyrir utan teig-
inn og það kostaði okkur annað
mark,“ sagði Guðni Kjartansson
þjálfari KR.
„Þeir eru með geyssterkt lið og
hefðu örugglega skorað úr þeim
færum sem við fengum. Þeir refsa
okkur, eins og atvinnumanna er sið-
ur, fyrir minnstu mistök en við ger-
um ekki það sama þegar þeir gera
mistök," sagði Guðni.
„Við lékum ágætlega í fyrri hálf-
leik og hefðum átt að skora þá, síðan
lognaðist þetta útaf hjá okkur,“
sagði Atli Eðvaldsson fyrirliði KR.
„Þeir eru sterkir og hafa reynslu sem
okkar unga lið skortir. Það sást best
þegar þeir skora síðara markið að
það má aldrei slappa af gegn svona
liði, þá er manni refsað," sagði Atli.
Svekktur að skora ekki
„Ég er ferlega svekktur yfir að
skora ekki í færinu sem ég fékk.
Þetta var gott færi en ég bjóst við
að markvörðurinn kæmi út á móti
mér. Það gerði hann ekki og ég
hafði ekki tíma til að líta upp og sá
því ekki að hann var kjurr á línunni,
ef ég hefði haft tíma þá hefði þetta
verið auðveldara," sagði Heimir
Guðjónsson sem fékk beta færi
KR-inga í leiknum.
„Þetta var samt gaman og góð
reynsla og ég hef aldrei leikið gegn
svona sterku liði. Eftir að þeir kom-
ust yfir héldu þeir boltanum oggerðu
það mjög vel þannig að við náðum
aldrei að gera neitt eftir það,“ sagði
Heimir.
„Við bárum of mikla virðingu fyr-
ir þessum mönnum. Fyrri hálfleikur-
inn var góður hjá okkur en síðan
gáfum við of mikið eftir í þeim síðari
og þeir héldu boltanum einstaklega
vel. Þeir eru mjög snöggir, fara vel
með boltann og eru auk þess eldfljót-
ir og losa sig skemmtilega við bolt-
ann. Þeir nýttu líka færin sem þeir
fengu en það gerðum við hins vegar
Morgunblaðið/Einar Falur
Atli Eðvaldsson stekkur upp til að
reyna að skalla knöttinn, en Luea
markvörður sá við honum og kýldi
boltann frá.
ekki,“ sagði Sigurður Ómai’sson
yngsti leikmaður vallarins, aðeins
18 ára síðan í janúar.
KR-TórínóO:2
Laugardalsvöllur, Evrópukeppni fé-
lagsliða, fyrri leikur, fimmtudaginn
19. september 1991.
Mörk Tórínó: Roberto Mussi (19.),
Enrico Annoni (73.).
Dómari: F'.ed McKnight frá N-írl-
andi. Dæmdi vel.
Ahorfendur: 1.623 greiddu aðgang.
Lið KR: Ólafur Gottskálksson, Sig-
urður Björgvinsson, Þorsteinn Hall-
dórsson, Sigurður Ómarsson, Atli
Eðvaldsson, Rúnar Kristinsson,
Gunnar Oddsson, Gunnar Skúlason,
(Óskar Hrafn Þorvaldsson vm. 80.),
Ragnar Margeirsson, Heimir Guð-
jónsson, (Bjarki Pétursson vm. 80.),
Björn Rafnsson.
Lið Tórínó: Luca Marchegiani,
Enrico Annoni, Roberto Policano,
Roberto Mussi, (Sandro Cois vm. á
88.), Silvano Benedetti, Danilo Fusi,
Gianluca Sordo, Giorgio Venturin,
(Guiseppe Carillo vm. 75.),Giorgio
Bresciani, Rafael Martin Vazquez,
Walter Casagrande.
Iþrmr
FOLK
■ RÚNAR Kristinsson var besti
maður leiksins að mati flestra
ítölsku blaðamannanna sem sáu
leikinn. Nokkrum þótti Ragnar
Margeirsson líka sýna góða til-
burði. Hins vegar voru þeir óánægð-
ir með frammistöðu Tórínó-manna
og fannst þeir vera að leika sér.
Sem sagt ekki leika af þeirri al-
vöru, sem atvinnumannalið á að
sýna í Evrópukeppni.
■ ATLI Konráðsson, 16 ára
markvörður 3. flokks KR, var vara-
markvörður KR-inga í Evrópu-
leiknum.
■ PÉTUR Pétursson sat á vara-
mannabekk KR-inga í gærkvöldi
með myndavélina sína og myndaði
leikinn. Hann er kominn af hækjun-
um og er nú í spelkum.
■ FRED McKnig-ht, dómari frá
Norður-írlandi, dæmdi í gær í
þriðja sinn á íslandi. Hann dæmdi
Evrópuleik Fram og Rapid Vín
1985 og Evrópuleik íslands og
Albaníu í fyrra.
■ 25 ÍTALSKIR fréttamenn
fylgdu Tórínó til íslands. Þeirra á
meðal voru fréttamenn frá ítalska
ríkissjónvarpinu og ríkisútvarpinu,
RAI. Stærstu blöðin, Corriere
dello sport, Corriere della Sera
og La Stampa, sendu tvo menn,
meðan minni blöðin létu sér nægja
að senda einn. Þegar tveir eða fleiri
fréttamenn eru sendir frá sama
blaðinu, skrifar einn þeirra alltaf
almenna grein um land og þjóð, þar
sem hann segir frá menningu og
sögu landsins.
■ ÍTÖLSKU fréttamönnunum
þótti breski dómarinn Fred
McKnight sofa svolítið á verðinum.
„Hann er eins og kaffikerling"
heyrðist sagt \ blaðamannastú-
kunni, þar sem ítalirnir sátu. Um
landa sína í liðinu létu þeir mörg
ófögur orð falla. „Kálhaus, skíthæll,
aumingi og fífl“ var uppistaðan f
orðalistanum sem þeir notuðu.
■ EMILIANO Mondoncino,
þjálfari Tórínó, neitaði að ræða við
blaðamenn eftir leikinn. Hann hefur
það fyrir reglu að tala aldrei við
blaðamenn eftir leik sem liðið hefur
unnið, eða ef honum finnst leik-
mennirnir hafa staðið sig vel. Ital-
skir blaðamenn eru vanir að hafa
greiðan aðgang að leikmönnum og
þjálfurum, og eru þeir því að vonum
ósáttir við þessa framkomu þjálfar-
ans. Flestum ber saman um að það
sé allt annað en hvetjandi fyrir leik-
mennina að þjálfarinn tali bara við
blaðamenn þegar hann hefur undan
einhveiju að kvarta.
■ ÞEIR ÍSLENSKU blaðamenn
sem reyndu að ná tali af þjálfaran-
um eftir leikinn voru furðu lostnir
yfir þessari framkomu hans og
ræddu um það við ítalska kollega
sem skrifuðu síðan um það slæma
orð sem Mondoncinio fengi á sig
á erlendri grundu.