Morgunblaðið - 10.11.1991, Blaðsíða 16
16 C
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1991
Var málgaldur
mæltur lengi
eftir Árna Matthíasson
ÞEGAR rætt er um útgáfu á íslenskum plötum ytra er einhvern-
veginn sjálfgefið að verið er að tala um íslenska popp- og rokk-
tónlist — ekki íslenskan rímnakveðskap. Það hlýtur því að teljast
fréttnæmt í meira lagi þegar gefin er út plata/diskur í Bretlandi
þar sem Sveinbjörn Beinteinsson kveður Eddukvæði og ljóð eftir
sjálfan sig, hvað þá þegar þar við bætist að á skömmum tíma
seldist upp upplag plötunnar, rúm 3.000 eintök.
Hljóðs bið eg allar '
helgar kindir,
meiri og minni
mögu Heimdallar.
Viltu, að eg, valföður,
vel fyr telja
fornspjöll fyra,
þau er fremst um man.
Svo hefst Völuspá, en á
plötunni/disknum sem
selst hefur svo vel ytra,
og heitir einfaldlega
Sveinbjörn Beinteinsson —
Edda, kveður Sveinbjörn
Völuspá, Hávamál, Sig-
urdrífumál og átta ljóð
eftir sjálfan sig, Braga-
þing, Nótt, Ósk, Vináttu,
Ferðavísur, Draum, Sum-
arhaust og Álfakvæði,
sem lýkur svo:
Var málgaldur
mæltur lengi.
Sló orðvaldur
óðar strengi.
Fór álfgyðja
orði réttu.
Laut bragiðja
boði settu.
Ensk þýðing á Völuspá. Háva-
málum og Sigurdrífumálum fylgir
útgáfunni.
Það er fyrirtæki David Tíbets
sem gefur plötuna út í Bretlandi
og víðar, en hluti uptpökunnar
hafði áður komið út á plötu á veg-
um Grammsins fyrir allmörgum
árum.
Sveinbjörn Beinteinsson þekkja
líklega flestir, enda eftirminnilega
skeggprúður með drifhvítt skegg
og hærur og oft á ferðinni. Svein-
björn er allsheijargoði ásatrúar-
manna og við bæ hans, Dragháls,
var lengi blótstaður safnaðarins.
Sveinbjörn er fyrir nokkru fluttur
af Draghálsi, en því fer fjarri að
hann sé sestur í helgan stein, því
við tekur útgáfa ýmiskonar og
jafnvel frekari upptökur í kjölfar
velgengni plötu hans ytra.
Kveðið fyrir pönkara
Þegar rokkbylgjan gekk yfir ís-
land, sem sumir vilja kenna við
pönk, tróð Sveinbjörn iðulega upp
með pönksveitum og kvað rímur
eða kvæði fyrir rokkþyrst ung-
menni, sem tóku honum alltaf vel
og af virðingu. Þannig hefst kvik-
myndin Rokk í Reykjavík einmitt
á kveðskap Sveinbjörns, og síðan
strax á eftir kemur mikil pönk-
keyrsla með unglingasveitinni
Vonbrigðum. Sveinbjöm er enn í
því að troða upp, því ekki em nema
nokkrar vikur síðan hann kom
fram með kamerúnska tónlistar-
manninum Manu Dibango í Hótel
íslandi.
Sveinbjörn vill ekki gera of mik-
ið úr tilstandinu með plötuna ytra;
hann hafi þó gaman af því, enda
ekki annað að gera fyrst hann er
kominn út í þetta á annað borð.
Island í hnotskurn
„Mér fannst Tíbet vera mjög
viðkunnanlegur piltur þegar hann
fór þess á leit við mig að fá að
gefa þetta út og greinilegt að hann
var að gera þetta af einlægum
áhuga. Hann kom hérna í haust
og talaði við mig, mér skildist á
honum að það reyttist eitthvað út
af þessu. Hann færði mér meira
að segja peninga, ég er óvanur því
þó ég sé að gera eitthvað svona.
Eg veit ekki hvaða gagn útlend-
Sveinbjörn Beinteinsson
Eddukvæði íflutningi__________
Sveinbjöms Beinteinssonar
voru fyrir skemmstu gefin út á
piötu í Englandi—og hafa
selstíyfir 3.000 eintökum
ingar hafa af þeásu, en ég segi það
bara út frá sjálfum mér að ég hef
gaman af að hlusta á eitthvað frá
fjarlægum heimshlutum og ég býst
við því að sé forvitni sem fær fólk
til að kaupa þessa plötu.”
Tíbet lýsir því í inngangi að plöt-
unni að fyrir honum sé kveðskapur
þinn ísland í hnotskurn.
„Já, það var gaman að heyra.
Það var einmitt það sem ég ætlaði
mér, en vissi ekki hvort kæmist til
skila.
Ég var lengi búinn að velta því
fyrir mér með þennan kveðskap
að menn hlytu að hafa kveðið hann.
Ég vildi finna það út hvernig það
hefði verið jgert og held mér hafi
tekist það. Eg eiginlega vann þetta
út frá kveðskapnum; mér fannst
að vísurnar segðu til ef ég væri
að gera eitthvað vitlaust, þær væru
í raun eins og nótur.”
Bara venjuleg skýr hugsun
Ilvað með boðskapinn, á hann
erindi til okkar í dag?
„Alltaf gæti nú staðist eitthvað
af þessu, þetta er nú ekki svo trúar-
legs eðlis að það sé neitt sem menn
þurfa að setja fyrir sig, þetta er
bara venjuleg skýr hugsun og hent-
ar hveijum sem er.”
Hvernig hefur þér svo þótt að
vera að kveða á rokktónleikum?
„Mér þykir gaman að þessu. Ég
held mínu striki og það virðist ekki
koma illa við fólk, þó þetta sé gjör-
ólíkt öðru sem er verið að flytja
þarna. Ég býst við að ég sé að ná
til áheyrenda sem annars hefðu
aldrei lagt við hlustir, en mér finnst
fólk hafa verið umburðarlynt,
menn hafa setið og hlustað stein-
þegjandi á og tekið þessu vel.”
Ekki er Sveiiibjörn á því að
kvæðaíþrótt sé á undanhaldi, „mér
finnst töluvert af ungu fólki sem
er að fást við þetta. Mér finnst
vera vakning frá því sem var fyrir
40 árum eða svo, það er meira líf
og mikill áhugi. Það er mikið af
ungu fólki, t.a.m. í skólum, sem
langar til að læra að búa til vísur
og þekkja reglurnar, en það þarf
að læra að kveða tii að skilja.”
Heillaður af Islandi
David Tíbet, sem gefur plötuna
út, er góðkunningi Hilmars Arnar
Hilmarssonar og hefur komið hing-
að til lands nokkrum sinnum og
þá unnið tónlist með Hilmari undir
nafninu Current 93 og fyrir stuttu
kom einmitt út með þeim félögum
platan ísland. Tíbet segist yfirleittt
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 10. NÓVEMBER 1991
C 17
selja um 2030.000 eintök af hverri
Current 93 plötu og segist hafa
vonað að það nafn sem hann hefði
unnið sér yrði til að fólk myndi
frekar gefa plötunni tækifæri, .
Þó hafi undirtektirnar komið hon-
um í opna skjöldu og ekki síður
þaú viðbrögð sem hann hefði feng-
ið frá þeim sem hefðu keypt plöt-
una. „Ég hef fengið íjölmörg bréf
frá fólki sem hefur heillast af plöt-
unni og finnst kveðskapurinn fal-
legur. Það hafa einnig margir
skrifað mér sem nafa fengist við
norræn fræði og sagst vera að
heyra íslensku í fyrsta sinn. Einn
skrifaði og sagðist aldrei hafa
heyrt eins fagra tónlist um ævina.
Hann sagðist hafa fyllst áhuga á
íslandi þegar hann var drengur og
væri nú fyrst að heyra íslensku,
sem væri svúfagurt mál að hann
ætlaði að læra hana. Ég hef varla
geð í mér að segja að fólk ljóðast
pg kveðst ekki á á götum úti á
íslandi.”
Upplagið kláraðist snemma
Tíbet sagði að upplag plöt-
unnar hafi klárast mjög snemma,
er þar sem fyrirtækið sé lítið og
með fleiri járn í eldinum, verði hún
ekki endurútgefin fyrr en eftir ára-
mót.
Hann segist hafa kynnst íslandi
í gegnum Hilmar, sem hann hitti
í Lundúnum, og þegar Hilmar bauð
honum hingað til lands hafi hann
heillast gjörsamlega af landinu.
„Mér fannst landið frábærlega
fallegt og fólkið vinsamlegt, en það
var líka eitthvað við það sem heill-
aði mig og ekki er gott að henda
reiður á; einhver dulúð, eða andi
sem varð mér hugstæður.
Nýaldartónlist hjóm eitt við
hliðina á kveðskap
Sveinbjarnar
Eitt það fysta sem ég heyrði
á Islandi var útgáfa Grammsins á
Eddukvæðunum með Sveinbirni.
Landið og dulúðin við það heilluðu
mig gjörsamlega og þegar ég
heyrði Sveinbjörn kveða fannst
mér hann ná þessari dulúð og þeim
anda sem ég skynjaði. Það eru svo
margir á kafi í allskyns nýaldar-
tónlist, sem er hjóm eitt og tilgerð
við hliðina á kveðskap Sveinbjarn-
ar. Ég hlusta mikið á plötuna á
síðkvöldum og finnst ég þá vera á
íslandi.”
Hyað með boðskap kvæðanna?
„Ég hef ekki áhuga á goðafræð-
inni, þó hún sé áhugaverð í sjálfu
sér, en mér finnst kvæðin taia
beint til hjartans án þess að vera
að prédika; benda á hvernig má
lifa góðu lífi án þess að vera sí-
fellt að hugsa um það. Ég er búdd-
isti sjálfur og finn þann boðskap
í kvæðunum, sérstaídega í Háva-
málum að góður maður er trúr
eðli sínu; hann þarf enga grímu.”
HVAÐ KOSTA
BLÓMIN?
VERÐLISTI BLÓMAVALS:
Jólastjama 1. fl. 869.-
Jólastjama 2. fl. 711.-
Jólastjama, (mini) 312.-
- Gerið verðsamanburð
Opið alla daga frá kl. 9-22. Sími 689070.
M FJÖGURRA kvölda námskeið
verður haldið, á vegum Hreyf-
ingarinnar, sem er alþjóðlegur fé-
lagsskapur sem vinnur að þroska
einstaklingsins í tengslum við
breytingar í nánasta umhverfi hans.
Námskeiðið verður haldið í Hlað-
varpanum 12., 14., 19., og 21.
nóvember, kl. 20. til íd. 23. og fjall-
ar um aðferðir til þess að dýpka
sjálfsþekkingu þátttakenda, auka
stjórn þeirra á lífskraftinum, verða
stefnufastari og öðlast samræmi
hugsana, tilfinninga og gjörða.
Einnig læra þátttakendur að bæta
samskipti sín og slaka á bæði ytri
og innri spennu. Leiðbeinandi er
Methúsalem Þórisson.
Þú svalar lestnirþörf dagsins
á sídum Moeeans! y
Námskeið:
Markviss
málflutningur
Reykjavík 12. og 14. nóv. og Akranesi 16. nóv.
Upplýsingar í síma 91 -46751.
FULL BÚÐ AF VÖRUM
Síðasti móttökudagur jólapantana
er 22. nóvember
PÖNTUNARLISTARNIR
Hólshrauni 2, Hafnarfirði, sími 52866
ARGOS-listinn ókevpis
| Bladid setn þú vaknar vió!
HIRTU TENNURNAR VEL
— en gleymdu ekki undirstööunni!
• l . v