Morgunblaðið - 23.11.1991, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1991
!
íslenskum húsgögnum kí
FÉLAG húsgagna- og innréttingaframleiðenda hefur í samvinnu við
Iðntæknistofnun íslands tekið upp svonefnt vöruvottunarkerfi. Með
því er ætlunin að gæðaprófa íslenska húsgagna- og innréttingafram-
leiðslu og er kerfið sambærilegt sænska prófunarkerfinu Mobelf-
akta sem er við lýði á Norðurlöndunum.
Frá kynningarfundi um vöruvottun í Iðnaðarmannahúsinu. Frá
vinstri eru Ingvar Kristinsson, deildarstjóri hjá Iðntæknistofnun,
Kristján Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félags húsgagna- og inn-
réttingaframleiðenda, Rafn B. Rafnsson, formaður félagsins, og Jón
Sigurðsson iðnaðarráðherra.
Vöruvottun hafin á
Aðstöðu til húsgagnaprófana var
komið upp fyrir nokkrum árum á
Iðntæknistofnun og hefur stór hluti
fjöldaframleiddra íslenskra hús-
gagna fengið vöruvottun. Próf-
anirnar nýtast framleiðendum ekki
eingöngu við að prófa fullunna vöru
heldur einnig vöruþróunarferlinum.
Um er að ræða þijú mismunandi
gæðastig sem þýðir að vöruvottunin
segir til um hvort varan uppfyllir
lágmarks-, miðlungs- eða hámarks-
kröfur.
Rafn B. Rafnsson, formaður Fé-
lags húsgagna- og innréttingar-
framleiðenda, segir að tilgangur
vöruvottunar sé að tryggja kaup-
endum góðar upplýsingar frá óháð-
um aðila um mikilvæga eiginleika
vörunnar. Þær eiga að tryggja það
að neytendur kaupi ekki lélega vöru
vegna ófullnægjandi eða beinlínis
rangra upplýsinga. Þá sé það
markmið húsgagnaprófana að
styrkja markaðsstöðu innlendrar
framleiðslu með því að upplýsa
neytendur um gæði vörunnar í sam-
anburði við innflutta vöru. Með
aðgangi að húsgagnaprófunum
gefst framleiðendum kostur á að
stuðla að endurbótum á vörunni ef
gæðum kann að vera áfátt. Þá séu
gæðaprófanir og sá gæðastimpill,
vöruvottun, sem þær veita nauðsyn-
leg forsenda þess að hægt sé að
flytja út íslensk húsgögn.
Kjarvalsstaðir:
Opnuð sýning á ljóð-
um Þórarins Eldjárns
SÝNING verður opnuð á ljóðum
eftir Þórarinn Eldjárn á Kjarv-
alsstöðum í dag, laugardaginn
23. nóvember kl. 17. Höfundur
les úr verkum sínum. Opnunar-
athöfnin verður send út í beinni
útsendingu í þættinum Les-
lampinn á Rás 1.
í frétt frá Kjarvalsstöðum segir
að Þórarinn yrki jöfnum höndum
í hefðbundnu og óbundnu formi.
Stíll hans einkennist af íroníu,
óvæntri kímni, stundum með
ádeilubroddi. Hann sé orðhagur
og beiti sig oft frumlegum brögð-
um í orðasmíð og rímleikjum.
Ljóðabækur Þórarins eru orðnar
sjö að tölu, auk skáldsagna og
smásagna.
Sýningin á Kjarvalsstöðum
stendur til 8. desember nk.
Þórarinn Eldjárn
I
Blindrabókasafnið og Bréfaskólinn:
Enskunámskeið á p
snældum fyrir blinda |
OPNUM
DAG KL.12
JÓLAMARKAÐ ALLRAR
FJÖLSKYLDUNNAR
YFIR 50 VERSIANIR
VEITINGASALA
■ •. :;v* ' ".
LEIKTÆKIFYRIR BÖRN
ÆVINTYRA LEIKFANGALAND
ALLT MILLIHIMINS
OG JARÐAR TIL
ÚT ER komið á vegum Bréfaskólans og Blindrabókasafnsins nám-
skeið í ensku í tveimur hlutum á 15 hljóðsnæklum. Námskeiðið er
einkum ætlað blindum, sjónskertum og öðrum sem eiga erfitt með
að lesa.
'J-ATH!...
^ITT KAFFI TERTA
nOOSDRYKWjZr
P/MNARDAGInn'
Námskeiðið er samstarfsverk-
efni Blindrabókasafnsins og Bréf-
askólans og gert í tilefni 50 ára
afmælis skólans. Byggt er á efni
frá franskri námsgagnastofnun og
var það upprunalega bæði til á bók
og snældum en nauðsynlegt
reyndist að breyta efninu og lag-
færa áður en það var fært yfir á
hljóðsnældur.
Fyrrihluti námskeiðsins er snið-
inn fyrir þá sem lítið eða ekkert
kunna í ensku og þá sem vilja rifja
upp og síðarihluti er beint fram-
kafla og eru þeir allir eins upp
byggðir til að auðvelda námið,
segir í frétt frá Bréfaskólanum.
Öðru hvoru er skotið inn upprifjun-
arköflum.
Námskeiðið byggist á að nem-
endur hlusta og endurtaka setn-
inguna á ensku til að æfa fram-
burð og einnig er öðru hvoru gert
smá hlé svo að nemendur fái ráð-
rúm til að þýða það sem þeir heyra,
eða mynda setningar á ensku.
Skýringar á málfræði og fram-
burði eru á íslensku og fléttast inn
1 ..........................................
. , .. K FAXAFENI10-HÚSIFRAMTÍÐAR. OPIÐ ALIADAGAFRA12-19
laskeifan
SÖLU- OG KYNNINGARMARKAÐUR