Morgunblaðið - 23.11.1991, Blaðsíða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1991
Islandsdeild Evrópusambands píanókennara:
Neyðarkall frá Króatíu
STJÓRN íslandsdcildar Evrópu-
sambands píanóleikara, EPTA,
barst nýlega bréf frá sambands-
deildinni í Króatíu og er um að
ræða eins konar neyðarkall og
ákafa ósk um hjálp __ vegna
ástandsins í landinu. Er íslands-
deildin beðin að koma bréfinu
áfram til stjórnvalda í þeirri
von, að það ýti á, að Króatía
Kosningar í Belgíu:
Frönskumælandi
sósíalistum spáð sigri
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
RUMLEGA sjö milljónir Belga ganga að kjörborðinu á morgun, sunnu-
dag, til að velja fulltrúa í báðar deildir þingsins. Reiknað er með því
að frönskumælandi sósíalistar verði að loknum kosningunum stærsti
þingflokkurinn en fram að þessu hefur flokkur forsætisráðherrans,
Wilfreds Martens, flæmskumælandi kristilegir demókratar, verið
stærstur.
Tæpast er búist við því að frönsku-
mælandi sósíalistar geti haft forystu
um myndun ríkisstjórnar þar sem
enginn forystumanna flokksins talar
frambærilega flæmsku sem er skil-
yrði fyrir setu í embættum sem fjalla
um málefni beggja málsamfélaga
Belgíu.
Andúð á’innflytjendum hefur ein-
kennt kosningabaráttuna en sam-
kvæmt skoðanakönnun sem birt var
í síðustu viku eru kjósendur áhuga-
litlir um þau efni. í Belgíu er bannað
að birta skoðanakannanir síðustu 30
dagana fyrir kosningar en það
kemmur ekki í veg fyrir að dagblöð
og tímarit geri slíkt og samkvæmt
könnun sem birt var um síðustu helgi
munu frönskumælandi sósíaiistar
verða stærsti þingflokkurinn. Hins
vegar nýtur Martens yfirgnæfandi
stuðnings sem forsætisráðherraefni.
Það er því gert ráð fyrir því að tí-
unda ríkisstjórn Martens sjái dagsins
ljós að loknum kosningunum.
Meðalaldur ríkisstjórna í Belgíu
frá lokum síðari heimsstyrjaldarinnar
hefur verið rúmlega tvö ár en áttunda
ríkisstjórn Wilfreds Martens sat
nærri fjögur ár, sú níunda er milli-
þingastjórnin sem er við völd um
þessar mundir.'
verði viðurkennd sem sjálfstætt
ríki.
í bréfinu, sem er frá stjómar-
formanni króatísku EPTA-deildar-
innar, Borut Vidosevic prófessor,
segir, að tilraunir Evrópubanda-
lagsins til að binda enda á átökin
hafi engan árangur borið og jafn-
vel stundum gert illt verra. Virðist
sem margar Evrópuþjóðir hafí ekki
áttað sig á, að stríðið í Króatíu er
ekki aðeins átök milli þjóðarbrota,
heldur einkennist það af tvennu:
Annars vegar séu handhafar hins
kommúníska alræðiskerfis í hern-
aði gegn lýðræðinu og hins vegar
vilji Serbar leggja undir sig land,
sem aldrei hafí tilheyrt þeim.
í bréfinu er minnt á hörmung-
arnar í Vukovar og Dubrovnik,
þessum tveimur borgum, sem hafi
verið eins konar fulltrúar króatí-
skrar menningar og mennta í 1000
ár. Það sé engin tilviljun, að Ser-
bar vilji leggja þær í rúst og vakin
er athygli á, að í loftárásum Serba
á aðra bæi og borgir, sem sumar
eru langt inni í Króatíu, hafi
sprengjuregninu verið sérstaklega
beint að kirkjum, minnismerkjum,
leikhúsum og skólum.
Bréfinu lýkur Vidosevic með því
að biðja starfsbræður sína hér á
landi um hjálp. Að þeir beiti sér
fyrir því sem einstaklingar, utan
sem innan EPTA-samtakanna, að
Króatar fái sinn sess í samfélagi
Evrópuríkja sem sjálfstæð þjóð.
Rússneska þingið tekur
yfír stjóm sovéskra banka
Reuter
John Major, forsætisráðherra Bretlands (t.v) með Ruud Lubbers,
starfsbróður sínum í Hollandi, á tröppum Downingstrætis nr. 10,
embættisbústað Majors, í gær.
Bretland:
Major fær umboð
til Evrópuviðræðna
London. Reuler.
JOHN Major, forsætisráðherra Bretlands, yfirbugaði andóf í eigin
flokki og efasemdir Margaret Thatcher, fyrrverandi forsætisráðherra,
er þingið veitti honum á fimmtudagskvöld fullt umboð til að semja á
vettvangi Evrópubandalagsins (EB) um aukna samvinnu. Atkvæði féllu
351 gegn 250. Leiðtogafundur EB um breytingar á bandalaginu verður
í Maastricht í Hollandi í desember.
„Þetta var góð umræða og af- atkvæðagreiðsluna. Málið var rætt í
bragðs niðurstaða” sagði Major eftir tvo daga og fáeinir þingmenn íhalds-
_____________________ flokksins greiddu atkvæði með
Moskvu. Reuter.
ÞING Rússlands samþykkti með
þorra atkvæða í gær að taka
yfir stjórn á sovésku bönkunum
Gosbank og Vneshekonombank.
I samþykkt þingsins segir að
Rússlandsbanki verði „eina
stofnunin á rússnesku land- •
svæði sem beri ábyrgð á
peningalegum efnum, skulda-
málum og gjaldeyrismálum en
helsta markmiðið er að styrkja
rúbluna”. Sem stendur er Gos-
bank ábyrgur fyrir sovéskum
peningamálum en Vneshe-
konombank annast afborganir
af erlendum skuldum Sovétríkj-
anna gömlu er nema alls um 70
milljörðum Bandaríkjadollara.
Samþykktin gerir ráð fyrir því
að breytingin varðandi Gosbank
taki gildi 1. janúar nk. og Rúss-
landsbanki, ríkisbanki lýðveldisins,
Boutros Ghali, næsti framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna:
A sér þá hugsjón að vinna að
lausn á vanda Palestínumanna
Kairó. Reuter.
BOUTROS Boutros Ghali, aðstoðarforsætisráðherra Egyptalands,
verður næsti framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, var kjörinn
til þess af öryggisráðinu seint á fimmtudagskvöld. Var samstaða
um kjörið og tekur hann við embættinu af Perúmanninum Javier
Perez de Cuellar um næstu áramót. Ghali þykir sérstæður um
margt, hvorttveggja í senn Afríkumaður og arabi, vel mæltur á
ensku og frönsku og einstaklega hógvær þrátt fyrir mikið og
mótandi starf í egypskum utanrikismálum. Þá er hann kristinnar
trúar í landi þar sem flestir lúta spámanninum frá Mekka og kona
hans er egypskur gyðingur.
Boutros Ghali hefur verið nán-
asti samstarfsmaður Hosnis Mu-
baraks, forseta Egyptalands, og
hann átti mikinn þátt í, að Egyptar
fóru aftur að starfa í Einingarsam-
tökum Afríku, Samtökum hlut-
lausra ríkja og Samtökum íslam-
skra ríkja. Hafði hann verið utan-
ríkisráðherra í 14 ár þegar hann
var skipaður aðstoðarforsætisráð-
herra en eftir sem áður hefur hann
utanríkismálin á sinni könnu. Var
stöðuhækkunin gerð til að auka
möguleika hans á alþjóðlegu emb-
ætti en til þess hefur hugur hans
og Egypta staðið lengi.
Boutros Ghali er sérfræðingur í
alþjóðarétti og hann á sér þá hug-
sjón að vinna að lausn Palestínu-
málsins. Að því hefur hann líka
unnið manna mest og það er iík-
lega engin tilviljun, að hann nær
auðveldu kjöri sem framkvæmda-
stjóri SÞ á sama tíma og arabar
og ísraelar eru famir að ræðast við.
Ghali er kristinn, tilheyrir kopt-
ísku kirkjunni í Egyptalandi, og
hafa áar hans og ættingjar oft
gegnt háum embættum í landinu.
Afi hans, Boutros Pasha Ghali, var
forsætisráðherra þegar hann var
ráðinn af dögum 1910 og frændi
hans var utanríkisráðherra á þriðja
áratugnum. Má nefna til fleiri ráð-
herra og þingmenn í frændgarði
hans. Ghali er fæddur 14. nóvem-
ber 1922 og stundaði nám í Kairó,
París og í Bandaríkjunum áður en
hann var skipaður forseti stjórn-
málafræðadeildar Kairóháskóla.
Reuter
Boutros Boutros Ghali.
Hann var einn af stofnendum dag-
blaðsins Al-Ahram og skrifaði í það
um efnahagsmál. „Blaðamennskan
kenndi mér að vera gagnorður og
komast beint að efninu,” skrifaði
hann árið 1988, „og hún frelsaði
mig úr fílabeinsturni háskólafræð-
anna.”
muni fram tii 15. desember líta á
Vneshekonombank sem „almenn-
an viðskiptabanka, er annist er-
lendar skuldir Sovétríkjanna, og
taka yfír stjómina á núverandi
starfsemi bankans”. Forseti þings-
ins, Rúslan Khasbúlatov, sagði að
báðir bankamir yrðu almennir við-
skiptabankar.
Borís Jeltsín, forseti Rússlands,
hafði áður lagt fram tillögu á svip-
uðum nótum en í þeirri tillögu var
gert ráð fyrir að ríkisstjóm Rúss-
lands, sem hann veitir sjálfur for-
stöðu, hefði völdin yfír bönkunum
tveim. Talsmaður Jeltsíns, Sergej
Shakraj, fordæmdi þá ákvörðun
þingmanna að hafna tillögu forset-
ans og sagði að föstudagurinn
væri „svartur” dagur. Stjóm
Hvíta-Rússlands ákvað þegar að
hætta öllum gjaldeyrisviðskiptum
við Vneshekonombank og skipaði
fyrir um flutning alls alþjóðlegs
gjaldeyris lýðveldisins í hvítrúss-
neskan banka innan tveggja vikna.
Bankamenn í Sovétríkjunum og
á Vesturlöndum hafa varað við því
að allar tilraunir einstakra lýð-
velda til að þrengja að starfsemi
sovésku bankanna tveggja mundu
stofna í hættu trausti erlendra
aðila á því að landsmenn gætu
staðið við fjárhagslegar skuldbind-
ingar sínar. Ekki hefur enn náðst
endanlegt samkomulag milli lýð-
veldanna 12, sem Míkhaíl Gorb-
atsjov Sovétforseti vill að myndi
með sér nýtt ríkjasamband, um
skiptingu skuldabyrðarinnar. Átta
lýðveldi hafa þó undirritað slíkt
samkomulag og var það grundvöll-
ur þeirrar ákvörðunar sjö helstu
iðnríkja heims að veita Sovét-
mönnum ársfrest á afborgunum á
erlendu skuldunum, auk þess sem
þeir fá umfangsmikla fjárhagsað-
stoð.
stjórnarandstöðunni en nokkrir sátu
hjá.
Samkvæmt áætlunum stjómarinn-
ar er ekki útilokað að Bretar fallist
á að að gefa pundið upp á bátinn
og sættist á að tekinn verði upp sam-
eiginlegur EB-gjaldeyrir. Hann ótt-
ast að ella verði Bretar áhrifalitlir í
bandalgionu sem muni fara sínu fram
þótt Bretar reyni að þybbast við. Á
hinn bóginn segjast Major og and-
stæðingar hans sammála um að berj-
ast á móti hugmyndum um pólítískan
samruna sem hefði að markmiði
stofnun Bandaríkja Evrópu með
sameiginlega stefnu í utanríkis- og
varnarmálum.
Norman Lamont fjármálaráðherra
sagði að yrði settur á stofri evrópsk-
ur seðlabanki í tengslum við sameig-
inlegan gjaldeyri fyrir öll bandalags-
ríkin yrði bankinn að hafa sjálfstæði
til að ákveða vexti án afskipta utan-
aðkomandi aðila, þ. e. ríkisstjóma
landanna.
Kanada:
Fiskkvót-
ar skertir
St. John’s, Nýfundnalandi. Reuter.
KANADÍSK stjórnvöld hafa
ákveðið að minnka fiskveiðikvóta
við austurströnd landsins í því
skyni að styrkja fiskstofnana sem
hafa orðið illa fyrir barðinu á rá-
nyrkju.
Frekari niðurskurðar kann að
verða þörf, ef rannsóknir fískifræð-
inga leiða í ljós of hægan bata,
sagði John Crosbie sjávarútvegs-
ráðherra á fimmtudag. Til þessara
ráðstafana verður að grípa ef rá-
nyrkju fískiskipa frá Evrópu fyrir
utan kanadísku fískveiðilögsöguna
linnir ekki. „Það er einkum rán-
yrkja Spánveija og Portúgala sem
er hastarleg,” sagði Crosbie, en
Kanadamenn geta ekki stöðvað
þessar veiðar þar sem þær fara
fram á alþjóðlegu hafsvæði.
Dregið verður úr sókninni í stofn-
ana innan 200 mílna fískveiðilög-
sögunnar við austurströnd Kanada
um 5,5% og miðað við 185.000
tonna heildarafla. Enn verður dreg-
ið úr veiðunum um 5000 tonn árið
1993.