Morgunblaðið - 23.11.1991, Síða 29

Morgunblaðið - 23.11.1991, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1991 29 Snældusnúður með höfðaletri. M ÞRIÐJI og síðasti fyrirlesturinn í fyrirlestraröð Þjóðminjasafnsins í tengslum við sýninguna Stóra- Borg - fornleifarannsóknir 1978- 1990 verður sunnudaginn 24. nóv- ember. Þá flytur Elsa E. Guðjónsson deildarstjóri textíl- og búningadeild- ar safnsins erindi sem hún nefnir Fágæti úr fylgsnum jarðar. Mun hún ræða fornleifar í þágu textíl- rannsókna. Fyrirlesturinn verður haldinn í Þjóðminjasafninu við Suðurgötu og hefst kl. 16.15. Að honum loknum gefst tækifæri á að skoða sýninguna í Bogasalnum. -------------» ♦ ♦------- Athugasemd JAKOB Frímann Magnússon, menningarfulltrúi íslands í Lon- don, hefur beðið Morgunblaðið að koma eftirfarandi athugasemd á framfæri. Menningarfulltrúi íslands í Lon- don vill að gefnu tilefni skýra frá eftirfarandi: Eitt fjölmargra atriða á væntan- legri Islandshátíð í London er tónlist- arflutningur þriggja tónlistarmanna sem eiga það sameiginlegt að hafa náð leikni í að nota mannslíkamann sem ásláttarhljóðfæri á mismunandi tónsviðum. Jafnframt því að létta og lífga upp á dagskrána, er atriðið hugsað sem mótvægi við hátæknibúnað annarra tónlistaratriða á dagskrá sem er til- einkuð íslenskum andstæðum. Blaðamaður sértímarits auglýs- ingamanna, P.R. Weekly, bað um leyfí til að trufla fund og spyija menningarfulltrúa þriggja spurn- ingá. Spurt var: Hversu lengi hefur verið vitað um iðkun af þessu tagi. Svarað var: Alllengi, og vísað til þess er fyrst sást til SigíTrðar Rún- ars Jónssonar fremja gjörninga af þessu tagi fyrir u.þ.b. aldarfjórðungi (Saga íslenskrar hljóðritunar er ein- ungis um 50 ára). Þá var spurt: Er iðja af þessu tagi algeng á Islandi? Svarað var: Væri svo, hefði slíkt að líkindum farið fram fyrir luktum dyrum þar til nú. Spurt var að lokum: Mundi búk- sláttur sem þessi eiga sér einhveijar rætur í menningu íslendinga? Svarað var: Slíkar rætur væri helst að finna í unglingamenningu þar sem ungl- ingar hafa við hlustun hljómplatna í gegnum tíðina leikið á „loftgítara” og „læratrommur”. Þá var nefnt dæmi um búkslátt í þekktri pepsí- auglýsingu sem og í kvikmyndinni Með allt á hreinu. Þar með lauk því samtali sem var á mátulega alvarleg- um nótum og í takt við sjálft tónlist- • aratriðið. Greinarhöfundur fór hins vegar, eins og stundum vill verða, nokkuð fijálslega með þær upplýsingar sem veittar voru. Mun það að nokkru leyti eiga rætur að rekja til samtals blaða- manns við starfsmann kynningarfyr- irtækis í London sem aðstoðar við hátíðina en hafði á þeim tíma ekki kynnt sér málið til hlítar og bætti það upp með fijóu ímyndunarafli. í grein í Independent sl. laugar- dag, 16. nóvember, er það tekið fram að á Íslandshátíðinni verði boðið upp á íslenskan búkslátt þó þar sé tæp- ast um dæmigerðan íslenskan tón- listarflutning að ræða að sögn menn- ingarfulltrúans. í kynningarbæklingi sem dreift hefur verið er skýrt tekið fram að hér sé á ferðinni mjög óvenjulegt og sérstakt atriði. Þess má geta að geisladiskur með hinni óvenjulegu tónlist þessa hóps verður gefinn út í Bretlandi í mars á næsta ári á vegum bresks hljóm- plötufyrirtækis. Þá er vert að taka fram að umfjöll- un breskra fjölmiðla um íslands- kynninguna hefur verið umtalsverð og til þessa afar jákvæð. Umræður um stjórninálaályktun Alþýðubandalagsins; Djúptækur ágreiningur var á landsfundi um afstöðu til EES Morgunblaðið/Þorkell Ný stefnuskrá og afstaða Alþýðubandalagsins til EES eru stærstu viðfangsefnin á landsfundi flokks- ins. 275 fulltrúar flokksins hafa rétt -til setu á fundinuin. í dag fer fram kosning stjórnar flokksins, framkvæmdastjórnar og iniðsstjórnar. Fundinum lýkur á morgun. SAMNINGAR um evrópskt efna- hagssvæði voru átakamál lands- fundar Alþýðubandalagsins í gær þegar fram fóru umræður um drög að stjórnmálaályktun flokks- ins. Snérust þær aðallega um hvaða afstöðu flokkurinn ætti að taka en ekki er kveðið uppúr um það í stjórnmálaályktuninni eða ræðu formanns flokksins við setn- ingu landsfundarins. Hjörleifur Guttormsson alþingismaður sagði þá Stefnu sem fram kæmi í stjórn- málaályktuninni um EES alger- lega ótæka og að útilokað væri að Alþýðubandalagið stæði að samningunum um EES. Stein- grímur J. Sigfússon, varaformað- ur flokksins, sagðist tilheyra þeiin hópi sem hafði afar miklar efa- semdir um samninginn. Þing- mennirnir Svavar Gestsson, Ragn- ar Arnalds og Jóhann Arsælsson höfðu allir uppi mikla gagnrýni og fyrirvara á samningunum. Voru andstæðingar samningsins sérstaklega áberandi í umræðun- um í gær. Andrúmsloftið á landsfundi Al- þýðubandalagsins er nú allt annað en á landsfundum flokksins á undan- förnum árum. Höfðu margir ræðu- menn orð á því að sættir hefðu tek- ist og staða flokksins væri góð. Stein- grímur J. Sigfússon sagði að kosnin- gaúrslitin í vor hefðu verið mjög þýðingarmikil og snúið við þróun kosningaósigra á undanförnum ára- tug. Flokkurinn hefði öðlast styrk sem eining. Hjörleifur Guttormasson sagði að velgengni flokksins að und- anförnu mætti m.a. þakka að tekist hefði með skárri hætti en löngum áður að samstilla kraftana í forystu flokksins. Gagnrýni á landsfundinum beinist einkum að orðalagi um EES í drögum að stjórnmálályktun og fyrir að lítið sem ekkert sé fjallað um sjávarútvegsmál og landbúnað í henni. Ekki er búist við framboði gegn formanni og varaformanni á landsfundinum en viðmælendur Morgunblaðsins töldu að átök kynnu að verða um breytingatillögu við lög flokksins um að ritari flokksins verði jafnframt formaður framkvæmda- stjómar og um kosningu í það emb- ætti en Ottar Proppé lætur nú af formennsku í framkvæmdastjórn. Félagar í Birtingu hyggjast bjóða fram Arthúr Morthens til þeirrar stöðu. Skattlagning orkufyrirtækja Siguijón Pétursson, borgarfulltrúi, gagnrýndi harðlega tillögur í stjórn- málaályktuninni um skattlagningu Landsvirkjunar, Hitaveitu og Raf- magnsveitu Reykjavíkur og tillögu um afnám aðstöðugjalds. „Ef við vilj- um leggja skatt á orkufyrirtæki, hvort heldur sem er á veltu þeirra eða gróða, á það að gerast hvar sem er á landinu en ekki bara í einu sveit- arfélagi,” sagði hann. „Með því að leggja orkuskatt á Landsvirkjun er eingöngu verið að leggja til að hækka orkuverðið í landinu vegna þess að útlendingarnnir mmunu ekki borga eina krónu af þeirri skattlagningu,” sagði Siguijón. Sagði hann furðulegt að Alþýðubandalagið hefði það mikla samúð með fyrirtækjum í Reykjavík að lagt sé til af þeim sem sömdu drögin að aðstöðugjöld verði afnum- in. Lýsti hann því yfir að hann styddi hvoruga tillöguna. Hver á að verða stefna flokksins um EES? Hjörleifur Guttormsson fjallaði mest um EES í sinni ræðu og sagði: „Ég tel að það sé ekki frambærilegt að frá þessum fundi komi það eitt að við styðjum þjóðaratkvæða- . greiðslu en segjum síðan nánast ekki neitt efnislega um málið. Hver ætlar að verða stefna flokksins í þessu efni?” sagði Hjörleifur. Ragnar Arnalds sagði að með samningsdrögunum væru samskipti íslendinga við EB komin inn á háska- jlegar villigötur og með þeim væri hagsmuna íslendinga alls ekki gætt. Sagði Ragnar ekki rétt að sam- þykkja samninginn en óska þess í stað eftir viðræðum við EB þar sem Islendingar ættu að fara fram á mun meiri fyrirvaha en kveðið væru á um í samningsdrögunum. Jóhann Ársælsson alþingismaður sagði lítið fara fyrir umfjöllun um sjávarútvegsmál í drögum að stjórn- málaályktun og kvartaði yfir óljósu orðalagi um sjávarútvegsstefnuna. „Það er svolítið líkt því sem við vor- um gera grín að hjá Sjálfstæðis- flokknum fyrir síðustu kosningar,!’ sagði hann. Sóknarfæri í EES-samningum í stjórnmálaályktuninni, sem kom- in er frá forystu flokksins er engin skýr afstaða tekin til samninganna um EES. Margir þættir samninganna eru gagnrýndir en svo segir m.a. „Samningurinn um Evrópskt efna- hagssvæði er viðamesti og flóknasti milliríkjasamningur sem Islendingar hafa unnið að. I honum geta falist ýmis sóknarfæri fyrir íslenskt atvinn- ulíf og möguteikar til að ná lægra vöruverði og aukinni hagsæld, en þar eru einnig að finna margvísleg vafa- atriði og áleitnar spurningar.” Sett er fram krafa um að samningurinn verði lagður undir þjóðaratkvæði og ennfremur að nú þegar beri að hefja formlegar viðræður við önnur EFTA ríki og EB um breytingar sem óhjá- kvæmilega yrðu á samningnum við inngöngu annarra EFTA-ríkja í EB. Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, sagði marga Á landsfundinum fagnaði Mörður Árnason fyrirliggjandi stefnuskrár- drögum og sagði að með samþykkt þeirra væri Alþýðubandalagið að losa sig við kommúníska arfleifð sína. Á undanförnum tíu árum hefði flokkurinn breyst mikið. Nú væri hann að viðurkenna þær breytingar að hann væri ekki lengur kommún- istaflokkur, byltingarflokkur sem í kjarna sínum miðaði við einhvers konar yfirtöku ríkisins með alræði öreiganna. Flokkurinn tryði ekki lengur á að þjóðfélag væru útskipt- anleg, þ.e. að hægt væri að taka eitt þjóðfélagskerfi, stinga því upp á hillu og setja annað í staðinn. Mörður táldi þó að drögin bæru um flokksmenn mála EES-málin nánast í hvítt og svart. Sagði hann að samn- ingarnir urn EES væru einhveijir mikilvægustu samningar þjóðarinn- ar. Ræða þyrfti kosti og galla samn- inganna en ákveða ekki fyrirfram hvort flokkurinn yrði með samning- unum eða á móti. Sagðist hann hafa hlotið allmiklar ákúrur frá flokks- systkinum sínum fyrir sjónarmið sín um gildi samninganna fyrir neytend- ur. Jóhannes sagði ljóst að almenn- ingur hefði hag af samningnum út frá sjónarmiði neytenda. Svavar GestSson sagði m.a. að þjóðin gæti átt ýmsa möguleika og þyrfti því ekki að gerast aðili að al- þjóðlegum viðskiptablokkum. „Það sem mér finnst umhugsunarefni eru ekki viðskiptalegu atriðin, atriði sem lúta að sjávarútvegi, landakaupum, neytendamálum, landakaupum eða orkumálum, heldur að hann gerir ekki aðeins ráð fyrir að við samþykkj- um með fijálsum hætti að afhenda hluta okkar dómsvalds til kerfis sem við mótum sjálf. Samningurinn gerir líka ráð fyrir að við látum af okkar dómsvaldi til stofnana sem gefa út reglur og lög án þess að við höfum komið að mótun þeirra. Þar liggur skurðpunkturinn í mínum huga,” sagði hann. Jóhann Ársælsson sagði samning- ana um EES fela í sér að íslending- ar yrðu í framtíðinni að taka við öll- um reglum sem samþykktar yrðu í Evrópubandalaginu, það fæli í sér geldingu lýðræðisins og að sjálfstæði þjóðarinnar glataðist í raun. Haukur Helgason sagðist geta tekið undir of keim af því að vera samtíningur úr ýmsum áttum og minntu of mik- ið á klassískan sósíaldemókratisma. Steinn Lárusson gagnrýndi hve langt væri gengið í þá átt að viður- kenna kapítalisma í stefnuskrár- drögunum. Taldi hann nauðsynlegt að meiri umræða ætti sér stað innan flokksins um það hvaða tegund hag- kerfis væri æskilegust. Þrátt fyrir að forystumenn flokksins vildu þvo af honum gamlar syndir væri ekki rétt að skrifa upp á kapítalismann sem hið eina sanna hagkerfi. Hjörleifur Guttormsson alþingís- maður taldi að stefnuskráin væri | yfirborðsleg hvað varðaði hagfræði- [leg_ atriði og_ í hana vantaði skarpþ afstöðu í stjórnmálaályktuninni um EES en vildi þó fella út málsgrein þar sem segir að ljóst sé að ef krafa Islendinga um fríverslun með fisk hefði náð fram að ganga, hefðu ávinningar Islands orðið umtalsverð- tr. Leikni kamelljónsins Stefanía Traustadóttir sagði að umræðuhópur á vegum flokksins hefði flallað um EES-samningana að undanförnu og komist að sam- hljóða niðurstöðu um að hafna samn- ingunum, sem væru fyrsta skrefið*" inn í EB. Árni Þór Sigurðsson sagði m.a. nauðsynlegt að fá svör við því hvort ísland gæti gert tvíhliða við- skiptasamning við EB. Flestir sem til máls tóku sögðu nauðsyn bera til þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild ís- lands að EES. Birna Þórðardóttir og Ragnar Stefánsson höfðu uppi hörð ummæli um forystu flokksins og stjórnmálaá- lyktunina. Birna sagðist hafa starfað af heilindum í framkvæmdastjórn flokksins en skoðanir hennar hefðu ekki þóknast forystunni. í stjórn- málaályktuninni væri efnahagslegur stöðugleiki blessaður en- hann væri greiddur af þeim sem hefðu lökust kjörin. „Ég á mjög erfitt með að starfa með aðilum sem hafa leikni kamelljónsins til að bera hvað varðar skoðanir,” sagði hún. Ragnar sagði m.a. að í ályktuninni væri málum stillt þannig upp að allt væri í lagi ef Alþýðubandalagið væri í ríkis- stjórn en allt í ólagi ef það væri utan stjórnar. gagnrýni á hið kapítalíska samfélag sem Islendingar byggju við. Hjörleif- ur lýsti einnig yfir furðu sinni á þeirri skoðun sem hafði komið fram áður á fundinum, að með samþykkt nýrrar stefnuskrár væri Alþýðu- bandalagið að losa sig við kommún- íska arfleifð. Að hans mati þyrftu Alþýðubandalagsmenn ekki að biðj- ast afsökunar á kommúnískri arf- leifð sinni því að hún væri ekki til staðar. Sjálfur hefði hann aldrei tek- ið ásakanir andstæðinga flokksins um slíkt, alvarlega. Nikulás Ægisson taldi að með fyrirliggjandi stefnuskrárdrögum væri sveigt af leið frá grundvallar- markmiðum flokksins og lagði því fram breytingartillögu. I henni er kveðið á um að Alþýðubandalagið sé í eðli sínu stéttabaráttufflokkur og jafnframt samfylkingarflokkur vinstri manna, sósíalista, sóslaldem- ókrata og kommúnista. Áfonnað er að afgreiða hina nýju stefnuskrá í .dag^____________________________J Erum að losa okkur við kommúníska arfleifð - segir Mörður Árnason I DAG verður ný stefnuskrá Alþýðubandalagsins tekin til afgreiðslu og kemur hún í stað stefnuskrár frá árinu 1974 sem miðstjórnarfund- ur flokksins felldi úr gildi í fyrra. í drögum að nýrri stefnuskrá segir að Alþýðubandalagið byggi á grunnhugmyndum jafnaðarstefnunnar en athygli vekur að orðið sósíalismi kemur aðeins einu sinni fyrir en í drögunum eru þessi hugtök lögð að jöfnu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.