Morgunblaðið - 23.11.1991, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1991
51
HANDKNATTLEIKUR
RK Zagœb vill
koma til íslands
Meistaramót Júgóslavíu í handknattleik liggur nú niðrl vegna
ástandsins þar. HSÍ hefur fengið fyrirspurn frá forráðamönnum
meistaraliðsins RK Zagreb, sem er króantísk, hvort að möguleiki sé á
að féiagið geti komið til ísland í æfinga- og keppnisferð. Liðið er nú
að undirbúa sig fyrir leiki gegn Shit Krasnodar frá Sovétríkjunum í
8-liða úrslitunum í Evrópukeppni meistaraliða.
Selfyssingar
lögðu KA-menn
Eg er að sjálfsögðu mjög ánægð-
ur með sigurinn og baráttu
hjá strákunum. Þeir höfðu meiri
vilja til að klára leik-
Anton inn °g gerði það
Benjamínsson gæfumuninn síðust
skrífar fimm mínútur leiks-
ins, en þá tryggðum
við okkur tvö dýrmæt stig,” sagði
Einar Þorvarðarsson, þjálfari Sel-
fyssinga, eftir að þeir höfðu lagt
KA að velli 23:26.
Leikurinn var í járnum allan tím-
ann og var varnarleikur aðalsmerki
beggja liða lengst af, en sóknarleik-
urinn var hings vegar frekar ein-
URSLIT
Handknattleikur
1. DEILD KVENNA:
Valur- Víkingur 14:15
Mörk Vals: Una Steinsdóttir 7/4, Kristín
Arnþórsdóttir 3, Katrín F. 2, Lilja Sturlu-
dóttir 1, Berglind Ómarsdóttir 1.
Mörk Víkings: Halla María Helgadóttir
5/4, Svava Sigurðardottir 4, Valdís Birgis-
dóttir 2, Inga Lára Þórisdóttir 2, Andrea
Atladóttir 1.
KR-Haukar 22:17
Mörk KR: Sigriður Páisdóttir 8, Sara Smith
3, Sigurlaug Benediktsdóttir 2, Brynja
Steinsen 2, Laufey Kristjánsdóttir 2, Hrefna
Harðardóttir 2, Ásthildur Helgadóttir -2,
Anna Steinsen 1.
Mörk Ilauka: Margrét Theódórsdóttir 8,
Harpa Melsted 4, Ragnheiður Guðmunds-
dóttir 4, Elfa Guðmundóttir 1.
Grótta - Ármann 22:12
Mörk Gróttu: Brynhildur Þorgeirsdóttir 6,
Laufey Sigurvaldadóttir 6, Ema Hjaltasted
3, Þórdís Ævarsdóttir 3, Elfsabet Þorgeirs-
dóttir 2, Björk Brynjólfsdóttir 1, Þurríður
Reynisdóttir 1.
Mörk Ármanns: María Ingimundardóttir
4, Anna Einarsdóttir 2, íris Þráinsdóttir 2,
Svanhildur Þengilsdóttir 2, Ágúst Sigurðar-
dóttir 1, Ellen Einarsdóttir 1.
■Leik FH og ÍBV, sem átti að fara fram
á morgun, hefur verið frestað til mánudags
kl. 21.30.
RISAKEPPNIN
Supér Cup í Þýskalandi:
Svíþjóð - Sovétríkin...........28:22
Spánn - Þýskaland...........j..19:18
Rúmenía - Júgoslavia...........22:18
Körfuknattleikur
Leikir í NBA á fimmtudag:
Cleveland - New Jersey.......116:112
Houston - Minnesota..........106:102
Milwaukee - Washington.......112: 87
Portland - LA Clippers.......106: 91
Golf
Sveit GR er í 18.-19. sæti i Evrópumeist-
aramóti félagsliða, eftir annan keppnisdag
á Quinta-vellinum við Marbella. Sveitin er
með 484 högg eins og Austurrikismenn.
Sigurður Hafsteinsson lék á 77 höggum,
Ragnar Ólafsson á 79 og Einar L. Þórisson
á 84 höggum í gær.
■Spánn er í i efsta sæti með 434 högg,
en Danir koma næstir með 440 högg.
Englæeningar og Frakkar koma svo með
447 högg.
hæfur - einkun þó hjá KA-mönn-
um. KA-menn náðu mest þriggja
marka forskoti, 7:4, um miðjan fyrri
hálfleikinn, en Selfyssingar voru
fljótir til að jafna - síðan var jafnt
á nær öllum tölum þar til undir lok
leiksins, en þá skildu leiðir.
Vendipunkturinn var sex mín.
fyrir leikslok, er staðan var 19:20.
KA-menn misnotuðu þá vítakst og
síðann hraðaupphlaup. Selfyssingar
nýttu sér það vel og náðu að tryggja
sér sigur á lokasprettinum.
KA - Selfoss 23:26
íþróttahús KA, íslandsmótið í handknattleik
1. deild. föstudagur 22. nóvember 1991.
Gang leiksins: 3:1, 4:4, 7:4, 8:8, 10:10.
13:13, 19:19, 19:22, 21:24, 22:25, 23:26.
Mörk KA: Alfreð Gíslason 8, Stefán Kristj-
ánsson 6/2, Sigurpáll Árni Aðalsteinsson
5, Guðmundur Guðmundsson 2, Erlingur
Kristjánsson 2.
Varin skot: Áxel Stefánsson 6, Björn
Bjömsson 2.
Utan vallar: 10 mín.
Mörk Selfoss: Sigurður Sveinsson 9/4,
Einar G. Sigurðsson 5, Einar Guðmundsson
5, Gústaf Bjarnason 4, Sverrir Einarsson
2, Stefán Halldórsson 1.
Varin skot: Einar Þoivarðarson 12/1.
Utan vallar: 8 mín .
Áhorfendur: Um 400.
Dómarar: Stefán Arnaldsson og Rögnvald
Eriingsson.
Sigurður Sveinsson sýndi gamla takta á Akureyri.
Sókn KA byggðist of mikið upp
á Alfreð Gíslasyni, eins og svo oft
áður. Hann sýndi hvers hann er
megnugur í lokin - þegar hann
skoraði mörg falleg mörk. Gamla
stórskyttan Sigurður Sveinsson lék
SUND
íslandsmet hjá
Ingibjörgu
Ingibjörg Amardóttir, Ægi,
bætti Islandsmet sitt í 800 m
skriðsundi í Sundhöll Reykjavík-
ur í gærkvöldi - hún varð fyrst
íslenskra kvenna til að synda
vegalengdina undir níu mín.
Tími hennar ( 25 m laug var
8:57,16 ntín.
GLIMA
Ólafur H. glímu-
maðurársins
Olafur Haukur Ólafsson, glímu-
kóngur íslands, sem vann
Grettisbeltið í fímmta sinn á árinu,
hefur verð valinn Glímumaður árs-
ins 1991 af Glímusambandinu. Ól-
afur Haukur hlaut nafnbótina í
sjönda sinn. Hann var höfuð og
herðar yfir aðra glímumenn á árinu.
Ólafur Sigurðsson úr HSK var
valinn efnilegasti glímumaður árs-
ins, en hann er aðeins 14 ára og
mikið glímuefni.
Ólafur H. Ólafsson.
einngi á alla oddi með Selfyssingum
og eins var Einar Sigurðsson mjög
ógnandi. Einar Guðmundsson skor-
aði mikilvæg mörk á lokamínútun-
um. Sterkasta vopn Selfyssinga var
liðsheildin.
Hjördís
hetja
Víkings
Hjördís Guðmundsdóttir, mark-
vörður Víkinga, kom í veg
fyrir að Víkingar töpuðu fyrsta stig
sínu í 1. deildarkeppninni, með því
að veija vítakast eftir að leiktími
var runnin úr í leik gegn Val í gær-
kvöldi. Hún varði vítakast Unu
Steihsdóttur, en Una, sem hafði
skorað úr fimm vítaköstum, ákvað
að breyta til og kasta á annan stað
- það mistókst. Víkingur, sem vann
15:14, er enn með fullt hús stiga
ásamt Stjömunni, sem mætir Fram
á morgun í Höllinni.
Leikurinn var jafn og spennandi.
Víkingsstúlkur, sem voru yfir, 6:8,
í leikhléi, skoruðu ekki mark fyrstu
tíu mín. í seinni hálfleik og Vals-
stúlkur náðu að jafna 9:9. Víkings-
stúlkur komust aftur yfir og voru
alltaf skrefínu á undan Valsstúlkum,
sem náðu alltaf að jafna, en ekki
þó úr vítakastinu í lokin.
Varnarleikurinn var mjög góður
hjá Val með Unu Steinsdóttur sem
besta mann og varði Arnheiður
Hreggviðsdóttir mjög vel í markinu.
Inga Lára Þórisdóttir og Halla Mar-
ía Helgadóttir voru bestar hjá Vík-
ingi.
ÍÞfém/t
FOLK
■ JÓHANN Sig’urðsson og Guð-
mundur Björnsson hafa gengið til
liðs við Þór á ný, eftir að hafa leik-
ið með UFA í 2. deild. Þeir verða
löglegir með Þór eftir mánuð.
■ FRÍÐA Rún Þórðardóttir úr
Aftureldingu og Margrét Brynj-
Ólfsdóttir úr UMSB keppa á
bandaríska háskólamótinu í víða-
vangshlaupum sem fram fer í Ariz-
ona um helgina. Þær stunda nám
við University og Georgia í Athens
í Bandaríkjunum og kepptu um síð-
ustu helgi á móti í South Carolína
og náðu að tryggja sér þátttökurétt
á bandaríska mótinu. Fríða Rún
varð í 16. sæti af 250 keppendum
í víðavangshlaupinu í South Caro-
lína.
■ GESTUR Gylfnson, leikmaður
Keflavík í knattspyrnu, hefur
ákveðið að ganga til liðs við Grind-
víkinga.
■ PÉTUR Ormslev var útnefnd-
ur knattspymumaður Fram á upp-
skeruhátíð félagsins fyrir skömmu.
Þetta var í annað sinn sem hann
hlýtur þessa nafnbót, áður var það
1987.
■ BRUNO Pasquale, varnarmað-
ur ítalska liðsins Tórínó, var
dæmdur í átta leikja bann fyrir
mótmæli við dómara. Hann fékk
að sjá rauða spjaldið í leik gegn
Juventus um síðustu helgi, en neit-
aði að fara af velli og félagar hans
komu í veg fyrir að hann réðist á
dómarann. Roberto Policano fékk
fjögurra leikja bann fyrir að sparka
í andlit leikmanns Juve í sama leik.
■ LEIKUR St. Etienne og Mar-
seille í frönsku deildinni, sem St.
Etienne vann 1:0, verður að fara
fram aftur og þá á hlutlausum
velli. Jean-Pien-e Papin fékk bjór-
dós í höfuðið á leiðinni inná völlinn
og lék ekki og markvörður St. Eti-
enne fékk stein í höfuðið. Mar-
seille var gert að greiða 50.000
franka (um 500.000 ÍSK), en St.
Etienne 20.000 franka.
■ IAN Rush leikur ekki með
Liverpool næstu þijár vikurnar
vegna meiðsla, en hann var einnig
meiddur í tvo mánuði í byijun tíma-
bilsins. „Eg hef aldr-
ei kynnst öðru eins
og er orðinn lang^.
þreyttur á þessu,'r
sagði Rush, en 14
leikmenn Liverpool hafa verið
meira eða minna meiddir á tímabil-
Frá
Bob
Hennessy
í Englandi
ínu.
■ GARY Lineker leikur í síðasta
sinn með Tottenham á Old
Trafford 2. maí á næsta ári. Síðan
tekur Evrópukeppnin við og svo
ætlar hann að fylgjast með Ólymp-
íuleikunum og taka því rólega, en
hann á að mæta á æfmgu hjá jap-
anska liðinu, sem hann gerði
tveggja ára samning við, 1. febrúar
1993.
KEILA
Keppt við
Bandaríkjamenn
Amorgun verður keilumót í
Keiluhöllinni Öskjuhlíð, þar
sem unglingar frá KR og KFR
keppa við bandaríska jafnaldra
sína. Keppni hefst klukkan 11, en
að henni lokinni, kl. 12, verður helg-
armót KR og KFR, sem er öllum
opið, og verður leikið í fjórum flokk-
um. Laugardagsmótið verður hins
vegar klukkan 20 í kvöld.
^ HANDBOLTI
IB|1 ^
Gunnor Beinteinsson
PiimH
RISASLAGUR
1. deild handbolti mfl. karla f Kaplakrika Hafnarfirði
laugardaginn 23. nóv. kl. 16.30
Valdimar Grímsson
/HIKUG4RDUR
MIDVANGI - OPNUNARTÍMI:
Mán.-fös. 9.00-22.00
Laugardaga 1 0.00-22.00
Sununnud. 1 1 .00-22.00
GARDABAiR:
Mán.-fim. 9.00-18.30
Föstudaga 9.00-1 9.30
Laugardaga 1 0.00-18.00
Sunnud. 11.00-18.00
FH - VALUR
FH-liðið er ósigrað í vetur.
VALS-liðið er komið í 8-liða úrslit Evrópu
keppninnar - Komið og sjáið sirkusmörk
PHd/NGOU í SÍMA
N ÍUtlU 0.0 NÍU CITTPÚSUND
GunnorBeinteinsson
spjallar um leikinn