Morgunblaðið - 23.11.1991, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1991
19
Standa ber við samninga
eftir Ara Bergmann
Einarsson
Það var ánægður hópur íþrótta-
manna, fréttamanna og leiðtoga
sem kom heim frá Olympíuleikun-
um í Seoul ’88. íslendingar höfðu
að vísu ekki unnið til verðláuna á
leikunum en eigi að síður voru
ólympíufararnir sigurglaðir eftir.
stórsigur á þingi Alþjóða hand-
knattleikssambandsins, IHF, í
Seoul, þar sem samþykkt var að
heimsmeistarakeppnin í handknatt-
leik færi fram á Islandi 1995. Því
fer fjarri að þessi sigur hafi unnist
baráttulaust því auk tveggja ára
undirbúningsvinnu HSÍ voru áhrifa-
menn fengnir til þess að afla um-
sókn íslands fylgis á alþjóðavett-
vangi.
Fámenn þjóð hefur metnað í sam-
skiptum sínum við aðrar þjóðir og
vakti það athygli hve samstaðan
var mikil meðal íslendinga enda
iögðust allir á eitt, jafnt íþróttaleið-
togar sem sendiherrar og ráðherr-
ar. Allir notuðu persónuleg sam-
bönd sín til þess að fá stuðningsyfir-
lýsingu við umsókn íslands. Öllum
er kunnug niðurstaða þessarar þrot-
lausu sjálfboðavinnu þar sem sigur
vannst.
Með þessari ákvörðun var íslandi
sýndur mikill heiður enda gleðiefni
öllum þeim, sem trúa á gildi íþrótt-
anna og hollustu þeirra fyrir æsku
landsins. Því kemur það sem þruma
úr heiðskiru lofti, að nú skuli „prútt-
að” með það hvernig skila eigi sigr-
inum frá Seoul ’88. En þessi sigur
verður ekki frá okkur tekinn. Til
þess hafa of margir sagt of mikið,
Kveikti í síga-
rettu og keyrði
á ljósastaur
leiðtogar hafa lagt heiður sinn að
veði og skrifleg loforð liggja fyrir
frá fyrirmönnum þjóðarinnar. Menn
mega ekki láta meðalmennskuna
ná undirtökunum eða hvað er orðið
af kjarki og stolti okkar ágætu þjóð-
ar.
Víst skal viðurkennt, að vegna
efnahagsástandsins verða stjóm-
málamennirnir að ganga á undan
með góðu fordæmi og sýna aðhalds-
semi í hvívetna, en halda ber gerða
samninga. Því skal nú þegar snúa
vörn í sókn og stefna að settu
marki með HM ’95 en gæta um
leið fyllsta aðhalds í fjármálum. Til
þess að svo megi verða skal hætta
að blanda saman fjárhagsstöðu HSÍ
og byggingu íþróttahúss. Setja þarf
á stofn sérstaka framkvæmdanefnd
HM ’95, sem verði félag með sjálf-
stæðan fjárhag. Nefndin afli sjálf
fjár, til dæmis með fjáröflun meðal
almennings í beinni útsendingu út-
varps og sjónvarps.
Þar sem Kópavogsbær hefur nú
óskað eftir riftun samninga er nær-
tækast að hefja viðræður við
Reykjavíkurborg að nýju. Þó mikil
þörf sé á nýrri íþrótta- og sýningar-
höll þar, eru einnig mestu líkurnar
á að unnt verði að byggja ódýrast
Ári Bergmann Einarsson
í Reykjavík. Bílastæði og vegakerfi
er til staðar í Laugardalnum og
álitlegur kostur er að prjóna við og
endurbyggja Laugardalshöllina.
Það er reyndar skoðun mín að þessi
kostur hafi ekki verið kannaður til
hlítar.
íþróttahreyfingin er fullfær um
að sjá um framkvæmd heimsmeist-
aramótsins enda ekki ætlast til þess
að ríkisvaldið sjái um slíkt. Þess er
að skapa aðstöðuna og aðstoða eft-
ir föngum svo hið mikla sjálfboðal-
ið, íþróttahreyfingin, geti unnið
markvisst og fumlaust að settu
marki.
Höfundur er formadur
Siglingasambands íslands ogá
m.a. sæti í framkvæmdanefnd
Ólympíunefndar íslands.
MAÐUR slapp ómeiddur að kalla
á miðvikudagskvöld er hann ók
bíl sínum á ljósastaur á Vestur-
landsvegi, skammt frá Höfða-
bakka. Bíllinn varð óökufær óg
staurinn stórskemmdist.
Maðurinn gaf lögreglu þá skýr-
ingu á árekstrinum að hann hefði
sem snöggvast þurft að beina allri
athygli sinni að því að kveikja sér
í sígarettu og því hefði hann einsk-
is orðið var þegar hann ók út fyrir
veg og á staurinn.
TZutasicv
Heílsuvörur
nútímafólks
NISSAN SUNNY WAGON 4WD
n. ÓtW/l£§Q' góðu Vgf'Js •
1.1 35.000* - stgr*
* verð án ryðvarnar og skráningar
16 ventla vél,
aflmikil 1600cc vél
hiti í sætum
vökva- og veltistýri
M BIAGK&
DECKER
ÖFLUG OG
ENDINGARGÓÐ
STRAUJÁRN
BUGKSDECKER straujárn.
Fást í öllum helstu raftækja-
verslunum og stórmörkuðum.
stillanleg öryggisbelti
rafstillanlegir og
upphitaðir speglar
samlæsing hurða
hæðastilling
framljósa
IMI55AIM
stillanlegur halli á
aftursætisbökum
rafdrifnar rúður
sítengt aldrif
• sparneytinn
• 14" felgur
Bílasýning laugardag og sunnudag kl. 14 til 17.
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöföa 2
sími 91-674000