Morgunblaðið - 23.11.1991, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. NÓVEMBER 1991
25
*
Sendiherra Eistlands á Islandi:
Af Eystrasaltsþjóðum eig-
um við hvað mesta samleið
með Norðurlandabúum
SENDIHERRA Eistlands a Islandi, Arvo Alas, aflienti forseta
Islands, Vigdísi Finnbogadóttur, trúnaðarbréf á fimmtudag. Er
Alas þriðji sendiherra Eistlands erlendis síðan landið öðlaðist sjálf-
stæði nú í haust. Alas talar íslensku og spjallaði hann við Morgun-
blaðið í gær um samskipti þjóðanna.
Arvo Alas lagði stund á norræn
tungumál við háskólann í Len-
íngrad sem nú heitir Pétursborg.
Megináherslu lagði hann á
norsku. Einnig nam hann fornís-
lensku hjá prófessor Steplín Kam-
enskíj þar í borg. Að námi loknu
var Alas um skeið ritstjóri bók-
menntatímarits í Eistlandi og
fékkst einnig við þýðingar. Hefur
hann meðal annars þýtt Grettis-
sögu og verk eftir Svövu Jakobs-
dóttur, Véstein Lúðvíksson, Jón
Óskar og Njörð P. Njarðvík. Áður
hefur Henrik Sepamaa, sem nú
er látinn, þýtt verk eftir Halldór
Laxness, Ólaf Jóhann Sigurðsson
og Halldór Stefánsson. Ennfrem-
ur hefur Rein Sepp þýtt Snorra-
Eddu yfir á eistnesku.
Síðastliðinn vetur, þegar sjáif-
stæðisbarátta Eystrasaltsþjóð-
anna stóð sem hæst, ákváðu
stjórnvöld þar að koma á fót skrif-
stofu sendifulitrúa í Kaupmanna-
höfn. Réðst Alas til starfa þar.
Þar eru nú þrír sendimenn, einn
frá hveiju Eystrasaltslandanna,
auk eins ritara. Alas verður send-
herra á Islandi, í Danmörku og
Noregi en ísland er fyrsta landið
þar sem hann afhendir trúnaðar-
bréf. Áður hafa Eistlendingar út-
nefnt sendiherra hjá Sameinuðu
þjóðunum og í Svíþjóð.
Alas hefur átt viðræður við ís-
lenska ráðamenn hérlendis að
þessu sinni og hitt fulltrúa Út-
flutningsráðs. Aðspurður um
hugsanleg viðskipti landanna
nefndi Alas sérstaklega þann
möguleika að Eistlendingar gerðu
við íslensk skip á ódýran hátt.
Sendinefnd Útflutningsráðs kæmi
til Eistlands í janúar næstkom-
andi til að kanna möguleika á
viðskiptum. Á mennta- og menn-
ingarsviðinu væru einnig miklir
möguleikar á samskiptum. Gat
Alas þess að til stæði að kvik-
mynda leikritið Lúkas eftir Guð-
mund Steinsson sem hann hefði
þýtt og á sama tíma yrði leikritið
fært upp í Tallinn. Guðmundur
væri nú staddur í Eistlandi til að
veita ráðgjöf við gerð kvikmynd-
arinnar. I Eistlandi væru einnig
margir frambærilegir listamenn.
Það hlyti t.d. að vera áhugavert
fyrir íslendinga að þýddar yrðu
bækur eistneska utanríkisráðher-
rans Lennarts Meris. Hann hefur
skrifað bók þar sem hann reynir
að sýna fram á að Grikkinn Pýþe-
as hafi ekki átt við ísland þegar
hann skrifaði um Ultima Thule
heldur Eistland. Önnur söguleg
skáldsaga Meris fjallar um það
að loftsteinn hafi fallið á Eistland
og hafi það haft áhrif á mótun
norrænnar goðatrúar. Annars
hefur ráðherrann mest skrifað um
rætur finnsk-úgrískrar menning-
ar í Síberíu.
Alas segir að Eistlendingar séu
sú baltneska þjóð sem eigi hvað
mest sameiginlegt með Norður-
Arvo Alas Morgunblaðið/Þorkell
landabúum. Þeir eru lúterstrúar
og skyldir Finnum — tala náskylt
tungumál. Fyrr á öldum heyrði
Eistland undir Svíþjóð og var á
árunum 1559-1645 hluti af
danska konungsríkinu — eins og
ísland! Sendiherrann vill þó ekki
gera lítið úr samstarfinu við Letta
og Litháa, það verði áfram mikil-
vægt, t.d. á vettvangi Eystrasalts-
ráðsins sem verið er að koma á
fót og verður hliðstætt Norður-
landaráði. Einnig verði Rússland
áfram mikilvægur markaður. Alas
segir Eistlendinga hafa mikinn
áhuga á aðild að Evrópubandalag-
inu en enn sem komið er sé of
snemmt að tala um aðild að Atl-
antshafsbandalaginu.
Bandaríkin:
KGB hélt að
Oswald væri
CIA-njósnari
New York. Reuter.
BANDARÍSKA sjónvarpið ABC
skýrði frá því á fimmtudag að
sovéska öryggislögreglan KGB
hefði grunað Lee Harvey Oswald,
meintan morðingja Johns F.
Kennedys Bandaríkjaforscta, um
að hafa njósnað fyrir bandarísku
leyniþjónustuna CIA er hann
flúði til Sovétríkjanna árið 1959.
Fréttamaður ABC fékk að tesa
gögn um Oswald á skjalasafni KGB
og þar kom fram að öryggislögregl-
an hefði fylgst grannt með honum
í þau rúmu tvö ár sem hann bjó í
Sovétríkjunum. Hlerunartækjum
var komið fyrir á heimili hans og
uppljóstrar KGB fylgdust með hon-
um er hann starfaði í verksmiðju í
Mínsk.
Rannsókn fréttamannsins leiddi
ennfremur í ljós að embættismenn
KGB drógu þá ályktun af þessum
gögnum að Oswald hefði ekki verið
fær um að myrða Kennedy Banda-
ríkjaforseta upp á eigin spýtur.
Bandarísk yfirvöld komust hins veg-
ar að þeirri niðurstöðu eftir morðið,
sem var framið 22. nóvember 1963,
að Oswald hefði verið einn að verki.
Margir sérfræðingar hafa efast um
þá niðurstöðu þau 28 ár sem liðin
eru frá morðinu.
Lockerbie-tilræðið:
Breska stjórnin var-
ar Líbýumenn við
London. Reuter.
BRESK stjórnvÖld vöruðu í gær Libýumenn við afleiðingum þess
að stjórn Muammars Gaddafis Líbýuleiðtoga hefur enn hafnað því
að framselja tvo menn sem grunaðir eru um aðild að Lockerbie-til-
ræðinu 1988. Þá fórust 270 manns er farþegaþota var sprengd í
loft upp yfir Skotlanjli.
„Við munum áfram íhuga til
hvaða ráðstafana geti orðið nauð-
synlegt að grípa og ráðgast við
bandamenn okkar,” sagði talsmað-
ur breska utanríkisráðuneytisins.
Erlendir stjórnarerindrekar í
Túnis segja að Líbýumenn reyni nú
að fá Arababandalagið til að taka
málið upp á fundi aðildarríkja þess
þar sem arabar neiti í sameiningu
kröfum Breta og Bandaríkjamanna
um framsal. Líbýumenn segja
mennina tvo saklausa. Vesturveldin
útiloka ekki að til hernaðaraðgerða
Moammar Gaddafi.
gegn Líbýu geti komið þrjóskist
Gaddafi enn við.
■ BRUSSEL- Staðfesta átti í
gær, föstudag, samning um auka-
aðild Póllands, Tékkóslóvakíu og
Ungveijalands að Evrópubanda-
ERLENT ,
laginu. Var að vísu nokkur andstaða
við það innan bandalagsins og einna
helst talið, að Spánverjar kynnu að
þráast við. Voru það landbúnaðar-
málin, sem stóðu í mönnum, en
bændum í EB-ríkjunum óar sam-
keppnin við ódýrar afurðir frá Aust-
ur-Evrópu. Á útflutning landbúnað-
arvöru munu þó Pólveijar og Tékk-
ar leggja alla áherslu enda er þar
um að ræða fljótvirkustu leiðina
fyrir þá til að afla gjaldeyris.
■ PEKING- Formaður _ fyrstu
opinberu viðskiptanefndar ísraela
sem sækir Kínverja heim sagðist í
gær hafa á tilfinningunni að ríkin
myndu taka upp stjórnmálasam-
band innan nokkurra mánaða.
Hann sagðist vænta þess að innan
skamms yrði komið á beinum við-
skiptum og satngöngutengslum.
Heimildarmenn í ísrael skýrðu frá
því að Moshe Arens, varnarmálaráð-
herra ísraels, hefði farið í leynilega
heimsókn til Peking í byijun nóv-
ember, skömmu fyrir ráðstefnu
Ísraela og araba í Madrid. ísraelsk-
ur ráðherra hefur ekki fyrr heim-
sótt Kína.
N-Kórea samþykkir
kjarnorkueftirlit
Seoul. Reuter.
NORÐUR-Korea hefur ákveðið að skrifa undir skuldbindingu um að
leyfa alþjóðlegt eftirlit með kjarnorkuáætlunum landsins, að því er
fram kemur í dagblaðinu Dong-A
Þessar upplýsingar hefur blaðið
eftir háttsettum suður-kóreskum
embættismanni sem segist hafa vitn-
eskjuna frá bandarískum og kín-
verskum aðilum. Samkvæmt frétt
blaðsins er búist við að Norður-
Kórea skrifí undir samkomulag við
Alþjóða kjarnorkumálastofnunina
(IAEA) í Genf í febrúarmánuði næst-
Ilbo í Seoul í dag.
komandi.
Dick Cheney, varnarmálaráðherra
Bandaríkjanna, sagði á fímmtudag,
að ákveðið hefði verið að fresta
áformuðum brottflutningi banda-
rískra hermanna frá Suður-Kóreu
þar sem grunur léki á að Norður-
Kóreumenn ynnu að gerð kjarnorku-
vopna.
Spádómarnir rætast 1
1
Matargerð
er list og undirstaðan
er úrvals hráefni
SMJÖRLÍKISGERÐ